Morgunblaðið - 26.02.2019, Side 33

Morgunblaðið - 26.02.2019, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019 Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Ensk-bandaríski rokkgítarleikar- inn Peter Frampton hefur tilkynnt að hann þjáist af vöðvarýrnunar- sjúkdómi og hyggst hann halda í sína hinstu tónleikaferð og kveðja aðdáendur sína. Hann hyggst jafn- framt gefa út tvöfalda plötu í sumar, sína fyrstu í nokkur ár. Frampton greindi frá veikind- um sínum í viðtölum við Rolling Stone og CBS-sjónvarpsstöðina um helgina. Hann segir að veik- indin muni draga úr hreyfigetu sinni, og þar með möguleikunum til að spila á gítarinn. Vinsælasta plata hans, Frampton Comes Alive!, seldist í um 17 milljónum eintaka. AFP Rokkarinn Gítarleikarinn Peter Framp- ton á dygga hjörð aðdáenda víða um lönd. Peter Frampton kveður aðdáendur Magnús Helga- son myndlistar- maður heldur fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri - Ketil- húsi í dag, þriðjudag, klukkan 17. Fyrirlesturinn kallar Magnús Til einskis, sem betur fer. Þar mun hann fjalla um myndlistar- feril sinn, kvikmyndasýningar og myndasýningar af verkum. Magnús er búsettur á Akureyri en verk hans hafa sést víða á sýn- ingum á undanförnum árum, til að mynda í Verksmiðjunni á Hjalteyri og nú í Listasafninu á Akureyri. Magnús Helgason Magnús fjallar um verk sín og sýningar Green Book, kvikmynd um ferðalag hörundsdökks tónlistarmanns og hvíts aðstoðarmanns hans um Suður- ríki Bandaríkjanna snemma á sjö- unda áratug liðinnar aldar, hreppti eftirsóttustu Óskarsverðlaunin á Óskarshátíðinni á Los Angeles á sunnudagskvöld þegar hún var valin besta kvikmynd liðins árs. Margir veðbankar höfðu talið Roma, meistaralega og svarthvíta endurminningakvikmynd mexíkóska leikstjórans Alfonso Cuarón, líkleg- asta til að hreppa verðlaunin en Roma var framleidd af streymisveit- unni Netflix og að auki á spænsku, sem margir sögðu vinna gegn henni þegar kæmi að atkvæðagreiðslu meðlima Bandarísku kvikmyndaaka- demíunnar. Og sú reyndist raunin. Cuarón hreppti að engu síður þrenn merk verðlaun; hann var valinn besti leikstjórinn og hlaut jafnframt verð- laun fyrir bestu kvikmyndatöku og þá var Roma valin besta erlenda kvikmyndin. The Favorite hafði verið tilnefnd til tíu verðlauna, rétt eins og Roma, en einungis ein féllu henni í skaut; þegar Olivia Colman var valin besta leikkonan. Rami Malek var hins veg- ar valinn besti leikarinn fyrir túlkun sína á Freddie Mercury í Bohemian Rhapsody en kvikmyndin sú hreppti flesta Óskara eða fjóra; einnig fyrir hljóðsetningu, hljóðblöndun og klippingu. Leikstjórinn Spike Lee hreppti sín fyrstu Óskarverðlaun í einum helstu keppnisflokkanna, ekki fyrir leik- stjórn þar sem hann var þó til- nefndur, heldur ásamt þremur fé- lögum fyrir BlackKklansman, handrit byggt á áður útgefnu verki. Mahershala Ali var valinn besti leikari í aukahlutverki fyrir frammi- stöðu sína í Green Book en kvik- myndin fékk einnig verðlaun fyrir besta frumsamda handrit. Regina King fékk Óskar sem besta leikkona í aukahlutverki, fyrir frammistöðuna í If Beale Street Could Talk. Spider-Man: Into the Spider- Verse var valin besta teiknimyndin í fullri lengd og Bao besta stutta teiknimyndin. Free Solo var valin besta langa heimildarkvikmyndin og Period. End of Sentence sú besta stutta. Besta lagið var valið Shallow og voru það einu verðlaunin sem féllu í skaut A Star Is Born, og þá fékk Black Panther Óskara fyrir bestu tónlist, besta útlit og búninga. AFP Kátt í höllinni Aðalleikarar og listrænir stjórnendur Green Book fagna því að kvikmyndin fékk Óskarinn sem besta kvikmynd ársins. Green Book hreppti Óskarinn  Cuarón og Roma hlutu þrenn Ósk- arsverðlaun en The Favorite aðeins ein Koss Olivia Colman kyssir verðlaunagripinn sem hún fékk fyrir besta leik í The Favorite. Kvikmyndin var tilnefnd til tíu Óskara en fékk þennan eina. Safnari Alfonso Cuáron mætti á dansleikinn eftir verðlaunaveitinguna með verðlaun fyrir leikstjórn, kvikmyndatöku og bestu erlendu myndina. Besta lagið Lady Gaga þakkar fyrir hönd þeirra Marks Ronson, Anthonys Rossomando og Andrews Wyatt, höfunda lagsins Shallow. Loksins Spike Lee fékk Óskar fyrir handrit. Hann gekk á dyr þegar Green Book var valin besta kvikmyndin og líkti valinu við rangan dóm í körfubolta, ósáttur við þá mynd sem dregin er þar upp af samskiptum svartra og hvítra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.