Morgunblaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 36
Standardar úr amer-
ísku söngbókinni
Kvartett Sigmars Þórs Matthías-
sonar bassaleikara kemur fram kl.
20.30 í kvöld á KEX hostel. Efnis-
skrá tónleikanna samanstendur af
standördum úr amerísku söngbók-
inni í bland við önnur uppáhaldslög
kvartettsins en hann skipa Haukur
Gröndal sem leikur á altsaxófón,
Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar
og Matthías Hemstock á trommur
auk Sigmars á kontrabassa.
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 57. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Selfoss vann Val í algjörum há-
spennuleik, 26:25, á Hlíðarenda í
gærkvöld þegar liðin mættust í
toppslag í Olísdeild karla í hand-
bolta. Með því settu Selfyssingar
allt í hnút í toppbaráttunni en nú
eru Haukar efstir með 25 stig, stigi
á undan Selfossi, FH og Val. Valur
fékk dauðafæri til að ná jafntefli í
gærkvöld. »2
Selfoss setti allt í
hnút í titilbaráttunni
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ljóðaljóðin eru uppáhaldsbókin mín
í Biblíunni,“ sagði Daníel Ágúst
Gautason, sem útskrifaðist með MA-
gráðu í guðfræði frá Háskóla Íslands
á laugardaginn var. Hann les nú til
embættisprófs prests við HÍ. Með
námi starfar hann sem æskulýðsfull-
trúi í Grensáskirkju og Bústaða-
kirkju.
Titill lokaritgerðar Daníels í guð-
fræði er „Elskhugi minn réttir hönd-
ina inn… Erótísk notkun á myndmáli
líkamans í Ljóðaljóðunum“. Hann
kvaðst hafa viljað velja sér óhefð-
bundið umfjöllunarefni, sem ekki
væri búið að skrifa mikið um í HÍ.
Daníel sagði að skýr munur væri á
erótík og klámi. „Klám beinist að
hráum losta og einkennist í dag af
kvenfyrirlitningu, ofbeldi og vald-
níðslu. Erótík gerir það ekki. Hún
skoðar hið fagra í kynvitund mann-
eskjunnar og er fögnuður þess að við
erum kynverur, hvort sem við stund-
um kynlíf eða ekki. Við höfum okkar
langanir og þær þarf ekki að ramma
inn í það sem klámiðnaðurinn segir
að okkur eigi að finnast aðlaðandi.
Erótíkin er okkar. Klám er annarra
og er þrýst að okkur,“ sagði Daníel.
Táknrænir líkamshlutar
Dr. Gunnlaugur A. Jónsson, pró-
fessor, var leiðbeinandi Daníels við
ritgerðarsmíðina og tók mjög vel í
hugmynd hans um lokaverkefnið.
„Líkamshlutar eru notaðir á tákn-
rænan hátt í Ljóðaljóðunum. Ég
fjallaði aðallega um augu og hendur.
Hebreskan á ekki almennilegt orð yf-
ir getnaðarlim og notar stundum orð
eins og hendur eða hold og fer mynd-
rænt í þetta. Mér þótti það áhugavert
og skoðaði þá nálgun,“ sagði Daníel.
„Ég lagði áherslu á að bera saman
mismunandi sjónarhorn ólíkra fræði-
manna um við hvað er átt í text-
anum.“ Markmiðið var að skoða erót-
íska notkun á myndmáli líkamans í
Ljóðaljóðunum. Hann kvaðst hafa
haldið áfram á sömu braut í lokarit-
gerð í mag. theol.-náminu en hún
fjallar um samkynhneigð í Gamla
testamentinu.
„Ég vil ekki að kynferðismál séu
feimnismál innan kirkjunnar eða
kristindómsins,“ sagði Daníel. „Þau
eru eðlilegur hluti af lífi okkar og
hluti af því að vera manneskja og at-
riði sem þarf að tala um.“
Hann kvaðst almennt ekki vera
mikill ljóðaunnandi og hafa gaman af
ýmsum bókum Biblíunnar. „En það
var eitthvað sem snerti mig þegar ég
las Ljóðaljóðin í fyrsta sinn. Mér
fannst þetta svo fallegt og svo tært,
svo mikil ástarjátning sem snerti við
mér. Kærleikur og ást eru uppá-
haldsorðin mín. Það er svo mikinn
kærleika og ást að finna í Ljóðaljóð-
unum, sem bæði er hægt að túlka
þannig að það sé á milli manna, eða til
Guðs og frá Guði til okkar. Þessi bók
hefur verið í huga mínum síðan ég
byrjaði í guðfræðinni,“ sagði Daníel.
Morgunblaðið/Eggert
Guðfræðingur Daníel Ágúst Gautason vill ekki að kynferðismál séu feimnismál innan kirkju og kristindóms.
Skoðaði erótíska undir-
tóna í Ljóðaljóðunum
Myndmál líkamans Erótík er allt annað en klám
Kjartan Henry Finnbogason er orð-
inn markahæsti Íslendingurinn frá
upphafi í dönsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í karlaflokki en þeim
áfanga náði hann á laugardaginn
þegar hann skoraði fyrir Vejle í leik
gegn Nordsjælland.
Í íþróttablaðinu í
dag er fjallað um
það og þar má sjá
hvaða íslensku leik-
menn hafa
skorað
mest og
spilað
mest í
dönsku
úrvals-
deild-
inni. » 1
Kjartan orðinn marka-
hæstur í Danmörku