Morgunblaðið - 28.02.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 28.02.2019, Síða 16
dk iPos snjalltækjalausn fyrir verslun og þjónustu Einfalt, fljótlegt og beintengt dk fjárhagsbókhaldi Smáratorgi 3, 201 Kópavogur • Hafnarstræti 53, 600 Akureyri 510 5800, dk@dk.is, www.dk.is dk iPos er hluti af snjalltækjalínu dk hugbúnaðar. Líttu við og fáðu kynningu á þeim fjölbreyttu lausnum sem dk hugbúnaður hefur fyrir verslun og þjónustu. VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS 25 sagt upp hjá Ölgerðinni Draga Boeing og Airbus … WOW semur við leigusala Áhrifavaldar þurfa að greiða skatt Vel undir veturinn búin Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN 36 þúsund Íslendingar notast við ís- lenska hugbúnaðinn Sportabler sem samnefnt fyrirtæki hefur þróað sem auka á skilvirkni og bæta á samskipti í starfsemi íþróttafélaga. Vel þykir hafa til tekist með fyrstu vöru fyrir- tækisins sem er skipulagsapp fyrir þjálfara sem geta á einum stað komið skilaboðum til foreldra ungra iðkenda í alls kyns tómstundastarfi. Fleiri vörur eru í farvatninu að sögn Mark- úsar Mána Maute, framkvæmda- stjóra Sportabler sem var stofnað ár- ið 2017. „Fyrsta varan okkar snýr að þess- um skipulagsþætti. Með henni ætlum við að leggja grunninn að Sportabler. En það er bara til þess að einfalda allt skipulag og utanumhald um alla þessa ósýnilegu vinnu sem er í kring- um íþróttastarfið. Þegar það er búið að straumlínulaga það er að hægt að færa meiri fókus á að útvíkka mögu- leika íþróttastarfsins. Eitt af því er að koma þjálfun gildra og jákvæðra per- sónuleikaþátta í gegnum íþróttir með markvissum hætti,“ segir Markús Máni í viðtali við ViðskiptaMoggann. Markús Máni segir að fyrirtækið hafi í samstarfi við ýmsa sérfræðinga útbúið kennsluefni fyrir foreldra, iðk- endur og þjálfara sem síðan aðlaga efnið að sínum hópi. Að handritaskrif- unum koma sérfræðingar á sínum sviðum en Sportabler vann t.d. með sálfræðingum sem skrifuðu um sjálfstraust og núvitund. Enn sem komið er býður Sporta- bler upp á þjónustuna endurgjalds- laust en fyrirtækið hlaut nýlega fjár- mögnun sem veitir fyrirtækinu tækifæri til þess að styrkja starfsem- ina. Að sögn Markúsar er nú unnið að leiðum til þessa að fjármagna félagið til lengri tíma en fyrst og fremst snýst vinnan um að sýna fram á nota- gildi vörunnar. „Við þurfum að finna eitthvað sem gengur fyrir alla aðila. Bæði fyrir okkur sem fyrirtæki og fyrir íþróttafélögin,“ segir Markús. Skapti Hallgrímsson Sportabler auðveldar mjög allt skipulag íþróttastarfs fyrir foreldra og félög. 36 þúsund nota Sportabler Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Íslenska fyrirtækið Sport- abler hefur þróað hug- búnað sem auka á skil- virkni og bæta á samskipti í starfsemi íþróttafélaga. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Ríkisstjórnin hefur nú greint fráfyrirheitum um að lengja fæð- ingarorlof í 12 mánuði. Það er fagurt fyrirheit og lengi hefur verið kallað eftir því að foreldrum sé gert kleift að fylgja nýfæddum börnum sínum betur eftir fyrstu mánuði lífsins. Það þekkja allir sem eignast hafa börn að tíminn frá því að fæðingarorlofs- rétti lýkur og þar til að börn fá inni á leikskóla eða hjá dagmömmu getur verið strembinn og sýna þarf útsjón- arsemi til þess að láta „dæmið“ ganga upp. En fyrirheit um 12 mánaða fæð-ingarorlof er aðeins hluti af úr- lausnarefninu. Það þak sem sett hef- ur verið á greiðslur úr fæðingar- orlofssjóði veldur mörgum heimilum miklum búsifjum og þótt stigin hafi verið hænuskref í að hækka þessar greiðslur þá dugar það hvergi nærri til í tilfelli margra foreldra. Ungt fólk sem komið er í góðar tekjur, oft með miklar skuldbindingar á bakinu í formi húsnæðis- og námslána, verð- ur fyrir talsverðu tekjutapi vegna þaksins. Ef stjórnvöld ætla að lengja fæð-ingarorlofið verður þakið að hækka samhliða því. Að öðrum kosti eykst tekjutap margra barnafjöl- skyldna í hlutfalli við lengingu or- lofsins. Það er ósanngjarnt, ekki síst í ljósi þeirrar staðreyndar að greiðslur í fæðingarorlofssjóð koma í gegnum tryggingagjald, en það er eðli máls samkvæmt hærra af hærri tekjum. Fyrirheit sem litlu skila Spaugstofunni hefði ekki einusinni dottið í hug atriði þar sem seðlabankastjóri lýsti því yfir að að- stoðarseðlabankastjórinn væri ekki undirmaður hans. En það datt bankastjóranum sjálfum í hug. Ein- hverjir hlógu að því uppátæki og héldu vísast að þarna væri á ferðinni upptaktur að árshátíð Seðlabankans sem þá var á næsta leiti. En það var engin ástæða til að hlæja. Þarna sást glitta í hugarfar sem heltekið hefur Seðlabankann á síðustu árum. Hug- arfar og dómgreind sem tekist hefur að snúa öllu á hvolf og valda bank- anum og borgurum þessa lands verulegu tjóni. Og enn safnast í sarpinn þann.Greinargerð bankaráðs Seðla- bankans er einn stór áfellisdómur yfir stjórnsýslu bankans – bæði hinu ólánsama og ógeðfellda gjaldeyr- iseftirliti sem þar var komið á lagg- irnar, og öðrum stofnunum bankans einnig. Annar stór áfellisdómur er sú niðurstaða sem leiðir til þess að Seðlabankinn þarf, hrakinn út í horn, að endurgreiða tugmilljóna sektir sem hann lagði á einstaklinga og lögaðila vegna meintra brota gegn gjaldeyrislögum á árunum 2009-2011. Leggjast þær endur- greiðslur ofan á þær 114 milljónir sem Hæstiréttur hefur skipað bank- anum að endurgreiða vegna annarra viðlíka ákvarðana sem teknar voru á árabilinu 2012-2018. Og þarna hefðu einhverjir taliðað nóg væri nóg. En nú hefur verið gert opinbert bréf, óformlegt að sögn höfundar, sem seðla- bankastjóri sendi forsætisráðherra. Þar reynir hann að bera í bætifláka fyrir afbrot bankans og valdníðslu á síðustu árum. Að einhverju leyti í af- sökunartón, en alltaf glittir í þá sannfæringu að bankinn hafi mátt og átt að þjösnast á fólki og fyrir- tækjum í því skyni að tryggja nauð- synlegan „fælingarmátt“. Þetta eintal verður lengi í minnumhaft, en kann að baka höfund- inum meiri vandræði en virðist við fyrstu sýn. Um það skal tekið eitt dæmi af of mörgum sem mætti nefna. Varðar það fræga húsleit Seðlabankans og annarra yfirvalda á skrifstofum Samherja. Um for- sendur húsleitarinnar segir hann: „Allt þetta gaf sterka vísbendingu en var ekki talið nægjanlegt til að hægt væri að fullyrða að rökstuddur grunur lægi fyrir um brot sem myndi nægja til að beita stjórnvalds- sektum eða kæra mál til lögreglu.“ Þessi ummæli þyrfti að skoða gaum- gæfilega í samhengi við 74. Grein sakamálalaga frá því herrans ári, 2008. Eintal seðlabankasálar Bresku stöðvarnar BBC og ITV ætla að bjóða upp á streym- isveituna BritBox til höfuðs Netflix. Ný streymisveita BBC og ITV 1 2 3 4 5

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.