Morgunblaðið - 02.03.2019, Side 2

Morgunblaðið - 02.03.2019, Side 2
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hún var nokkuð einbeitt á svip litla stúlkan sem nýverið lét keyra sig um stræti borgarinnar í mjúkum vagni. Bolluvöndur, að líkindum búinn til undir leiðsögn á leikskóla, var með í för og má gera ráð fyrir að ferðafélagi telpunnar kynnist vendinum þegar bolludagur rennur upp eftir helgi. Með bollu- vönd á lofti 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 VERÐ FRÁ 219.900 KR. NÁNAR Á UU.IS PIEDMONT ÍTÖLSK PÁSKAVEISLA Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Beint fjárhagslegt tap ferðaþjónust- unnar á hverjum degi verkfalla get- ur numið hundruðum milljóna, að mati Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferða- þjónustunnar. Tjónið eykst hratt ef aðgerðir standa marga daga í einu, margar vikur í röð. Telur hann að heild- artap þjóðarbúsins geti slagað upp í aflabrest á loðnu, ef verkalýðsfélög- in framkvæma boðaðar aðgerðir. „Þetta yrðu efnahagslegar hamfar- ir.“ „Þetta eru mjög umfangsmiklar aðgerðir, hannaðar með það fyrir augum að valda hámarkstjóni með sem minnstum tilkostnaði þeirra sem að þeim standa,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins. Hann segir að þær muni ekki aðeins koma niður á fyrirtækjunum sem þau beinast gegn heldur einnig starfsfólki þeirra. Óvissutímar í ferðaþjónustu Jóhannes segir að verkföllin valdi ekki aðeins tjóni hjá fyrirtækjunum sem eru í beinni skotlínu í aðgerð- unum heldur ferðaþjónustunni í heild. „Ferðaþjónustan er keðja. Ef klippt er á einn hlekk hefur það áhrif á alla keðjuna. Ferðaskrifstof- ur og ferðaþjónustuaðilar eru að svara spurningum erlendra við- skiptavina um hvað þeir eigi að gera við ferðafólkið. Það er erfitt að svara þeirri spurningu, þegar svona stendur á,“ segir hann. Jóhannes segir að áhrifanna muni einnig gæta langt út fyrir ferðaþjón- ustuna. Áhrifin verði langvarandi, muni ná inn í komandi sumar og jafnvel út árið. „Það er ómögulegt að segja til um það hversu langt það muni teygja sig.“ Verkfallsaðgerðir verkalýðsfélag- anna koma ofan á mikla óvissutíma í ferðaþjónustunni þar sem samdrátt- ur er í flugferðum til landsins og spáð fækkun ferðamanna auk þess sem afdrif annars íslenska milli- landafélagsins virðast óviss. Jó- hannes bætir við að rekstrarskilyrði ferðaþjónustunnar hafi versnað mikið á undanförnum árum, bæði vegna tekjusamdráttar vegna sterkrar stöðu íslensku krónunnar en ekki síður vegna launahækkana. Hlutfall launa hjá ferðaþjónustufyr- irtækjum á gildistíma kjarasamn- inga sem runnu sitt skeið á enda um síðustu áramót hafi hækkað úr 36- 38% af tekjum í 45-50%. Vilja skoða verkbann Fram kom í viðtölum við Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóra Kynnisferða, og Þóri Garðarsson, stjórnarformann Gray Line, á mbl.is í gær að vert væri að skoða mótaðgerðir, svo sem verkbann á starfsmenn fyrirtækjanna. „Við metum hvert skref af kostgæfni og yfirvegun,“ var það eina sem Hall- dór vildi segja um verkbannshug- myndina. Verkföllin eru afar mismunandi. Ná meðal annars til hluta starfa við- komandi starfsmanna og hluta úr degi. Spurður um lögmæti þess seg- ir Halldór að fjölmörg álitaefni komi þarna fram sem þurfi að skoða bet- ur. „Við munum að sjálfsögðu leita úrlausnar fyrir félagsdómi um hvort álitaefni standast vinnulöggjöfina.“ Tapa hundruðum milljóna á dag Morgunblaðið/Eggert Reykjavík Óvissa ríkir um hvort gestir fái gistingu og komist á milli staða.  Boðuð verkföll eru „efnahagslegar hamfarir“ að mati framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar  „Við metum hvert skref af kostgæfni og yfirvegun“ segir framkvæmdastjóri SA um verkbann Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Vöktun á loðnustofninum heldur áfram í næstu viku. Grænlenska skipið Polar Amaroq fer frá Reykjavík á mánudag til leitar úti fyrir Vestfjörðum, m.a. til að kanna hvort vestanganga kunni að vera á ferðinni, og er gert ráð fyrir að skipið verði við leit í um vikutíma. Síðustu daga hafa fréttir borist af loðnu á grunnunum fyrir Norðurlandi og mun Polar væntanlega skoða það svæði að lokinni yfirferð við Vestfirði. Á mánudag er ráðgert að Ásgrímur Halldórsson SF haldi frá Höfn í Hornafirði og skoði ástand loðnugöng- unnar með suðurströndinni og djúpin þar út af. Frá því í fyrrahaust hefur ítrekað verið farið í leið- angra til að meta stærð og útbreiðslu loðnustofnsins. Auk rannsóknaskipa Hafrannsóknastofnunar hafa veiðiskip tekið þátt í verkefninu. Ekki hefur fundist nægilegt magn til að gefa út veiðikvóta og nú fer hver að verða síðastur ef takast á að veiða loðnu í vetur. Með hverjum deginum styttist í hrygningu loðnunnar, en að henni lokinni drepst stór hluti hrygningastofnsins. Óvissa með vertíð næsta vetur Í hefðbundnum bergmálsmælingum á stærð loðnu- stofnsins síðasta haust var útbreiðsla loðnu mjög vest- læg, líkt og verið hefur undanfarin ár. Stærð veiði- stofns vertíðarinnar 2018/2019 var metin um 238 þúsund tonn. Gildandi aflaregla byggist á því að skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygningar í mars 2019 með 95% líkum. Óvissa er með loðnuvertíð næsta vetur því einungis mældust tæplega 11 milljarðar eða 99 þúsund tonn af ungloðnu. Samkvæmt aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt verði með upphafsaflamarki fiskveiðiársins 2019/2020. Tvö skip fara til vöktunar á loðnunni í næstu viku  Stutt í hrygningu  Kanna vestangöngu  Fréttir að norðan „Þetta mál er í vinnslu í ráðu- neytinu og þeirri vinnslu er ekki lokið. Það er ver- ið að skoða málið gaumgæfilega og við munum taka okkur þann tíma í það sem þarf,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Boðað hafði verið í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar að lögð yrðu fram þingmál í febrúar um sam- þykkt svonefnds þriðja orkupakka Evrópusambandsins vegna aðildar Íslands að EES-samningnum. Ekk- ert bólar hins vegar á þingsálykt- unartillögu Guðlaugs Þórs um ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar um breytingar á EES-samningnum vegna innleið- ingar á þriðja orkupakkanum. Þær upplýsingar fengust í ráðuneytinu að engin ákvörðun hefði verið tekin um frekari frestun. Frestar orkupakka  Þriðji orkupakk- inn enn til skoðunar Guðlaugur Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.