Morgunblaðið - 02.03.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 02.03.2019, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 HB FASTEIGNIR Hrafnhildur Bridde Löggiltur fasteignasali Yfir 20 ára reynsla við sölu fasteigna hrafnhildur@hbfasteignir.is s: 8214400 Ármúli 4-6, 108 Reykjavík – Sími 821 4400 – www.hbfasteignir.is ÞEKKING - ÞJÓNUSTA - ÞINN HAGUR Heiðmörk 8, Hveragerði Til sölu snoturt og vel staðsett endaraðhús á einni hæð við Heiðmörk í Hveragerði. Stærð 82,5 m2. Tvö svefnherbergi með möguleika á því þriðja. Steinsteypt hús með grónum sérgarði og góðri aðkomu. Bílskúrsréttur. Nýr útiskúr. Nýlegt þak. Laust fljótlega ! Verð kr. 35,9 millj. Verið velkomin ! Opið hús sunnudaginn 3. mars kl. 16:30 - 17:00 Hveramörk 16 , Hveragerði Einbýlishús á tveimur hæðum, 130 m2. 3-4 svefnherb. Húsið hefur mikið verið endurnýjað. Stór og gróin lóð. Rólegur staður. Verð 45.5 millj. Hallkelshólar - sumarhús Til sölu lítill og sjarmerandi 24,6 m2 sumarbústaður á 8.400 m2 leigulóð. Bústaðurinn er í góðu ástandi. Verð 9,9 millj. Ilmur Stefánsdóttir, myndlistarkona og leikmyndahöfundur, á 50ára afmæli í dag. Hún gerði m.a. leikmyndina við Ríkharð III semverið er að sýna í Borgarleikhúsinu, og hefur hún oftar en einu sinni unnið til Grímuverðlauna fyrir leikmyndir sínar. „Þessa stundina er ég að gera leikmyndina fyrir Matthildi sem er stór söngleikur með mjög stórri leikmynd sem hverfist um allt rýmið eins og hvirfilbylur, en Matthildur getur beitt hugarorku til að berjast við óréttlæti. Þetta er yndisleg saga um litla stúlku sem rís upp og berst gegn ranglæti.“ Söngleikurinn verður frumsýndur 15. mars í Borgar- leikhúsinu. Ilmur stundar sína myndlist meðfram leikmyndagerðinni, en síðasta einkasýning hennar var í Hafnarhúsinu árið 2017 og hét Panik. „Núna er ég að taka þátt í sýningu Unnar Elísabetar sem er í Tjarnarbíói, en hún fékk 14 listamenn til að koma með hugmyndir að verkum sem hún síðan túlkar á leiksviði. Höfundarnir eru til dæmis Ólafur Darri leikari, Daníel Ágúst og Urður úr GusGus og þarna eru sýnd vídeóverk, gjörn- ingar og sýning á sviði sem Unnur Elísabet sýnir, mjög skemmtileg sýning sem ég myndi kalla listahátíð. Í tilefni afmælisdagsins ætla ég að vera í miklu dekri og hitta fólkið sem ég elska. Það byrjar með morgunmat í rúmið og síðan vina- og fjöl- skylduhittingi. Ég notaði líka fimmtugsafmælið sem ástæðu þegar við maðurinn minn og börnin fórum í skíðaferð til Austurríkis fyrir tveim- ur vikum,“ en eiginmaður Ilmar er Valur Freyr Einarsson leikari. Börn þeirra eru Salka 23 ára rappari, Ísak 22 ára nemi í hagnýtri stærðfræði við HÍ, Grettir sem varð 17 ára fyrir tveimur dögum, og Gríma 14 ára. Ljósmynd/Jón Páll Eyjólfsson Kona apótekarans Myndlistarsýning Ilmar í Hafnarborg 2013. Gerði leikmyndina við Ríkharð þriðja Ilmur Stefánsdóttir er fimmtug í dag S igurður Gizurarson fædd- ist 2. mars 1939 í Reykja- vík og ólst þar upp. „Á sumrin var ég í sveit hjá Ólafi föðurbróður mínum á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, Rang- árvallasýslu, meira og minna alveg fram til tvítugs.“ Sigurður gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdents- prófi með ágætiseinkunn. Hann fékk þá verðlaun frá Stærðfræði- félagi Íslands fyrir afburðakunnáttu í stærðfræði. Hann sneri sér þó að háskólanámi af allt öðru tagi, þ.e. lögfræði, og var við nám í alþjóða- rétti í Heidelberg 1959-60 og í Grenoble 1960-61. Hann kom síðan heim og hóf nám í lögfræði við Há- skóla Íslands, lauk þaðan embættis- prófi í janúar 1967 og öðlaðist síðan héraðsdómslögmannsréttindi 20.10. 1967. Sigurður hélt þá utan og var þá aftur við nám í alþjóðarétti og al- þjóðlegum samskiptum veturinn 1967-68. „Þótt ég hafi haft sérstakan áhuga á alþjóðarétti og alþjóða- málum hafa atvik ekki orðið þau að ég hafi starfað í utanríkisþjónust- unni nema um nokkurra mánaða skeið í sendiráðinu í París sumar og haust 1968.“ Helsta viðfangsefni Sigurðar varð hins vegar lögmanns- störf og varð hann hæstaréttar- lögmaður 14.3. 1972. „Á árunum 1970-73 var ég lög- maður bænda við Laxá og Mývatn og flutti mál þeirra gegn Laxár- virkjun, sem segja má að hafi verið fyrsta umhverfisréttarmál hér á landi. Dómur Hæstaréttar í því máli gekk 15.12. 1970 og var mikill sigur í því máli. Um Laxárdeiluna skrifaði ég bók, sem kom út 1992.“ Síðan tóku við bæjarfógeta- og sýslumannsstörf fyrst á Húsavík 1974-85 og síðan á Akranesi 1985- 98. Frá sumri 1998 hefur Sigurður rekið lögmannsstofu á Seltjarn- Sigurður Gizurarson hæstaréttarlögmaður – 80 ára Fjölskyldan Efri röð: Dagmar, Magnús og Júlía, neðri röð: Ólafur, Guðrún, Gizur, Sigurður og Ingibjörg. Verðlaunaður fyrir stærð- fræði en fór í lögfræði Hilmir ÞH 114 Sigurður átti þennan bát og gerði út á grásleppu meðan hann var sýslumaður á Húsavík. Hamborg Jóna Sophie Schlieck Jónsdóttir fæddist 6. febrúar 2018 kl. 17.27. Hún vó 3.325 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Jasmin Schlieck og Jón Bragi Guðjónsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.