Morgunblaðið - 02.03.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 02.03.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 LC02 hægindastóll Leður Verð 285.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is SKECHERS DELSON HERRASKÓR MEÐ MEMORY FOAM. STÆRÐIR 41-47.5 13.995.- HERRASKÓR gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Ný sending frá Opið 11-15 í dag Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Flottar gallabuxur Kr. 14.900 Str. 36-50 Guðmundur Malm- quist, lögfræðingur og fyrrverandi forstjóri Byggðastofnunar, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold föstudaginn 1. mars, 75 ára að aldri. Guðmundur var fæddur í Reykjavík 13. janúar 1944 og ólst þar upp. Foreldrar Guð- mundar voru Eðvald Brunsted Malmquist, yfirmatsmaður garð- ávaxta í Reykjavík, og Ásta Thoroddsen Malmquist, húsfreyja og skrif- stofumaður í Reykjavík. Guðmundur stundaði nám við MR, lauk þaðan stúdentsprófi 1964. Hann nam lögfræði við Háskóla Ís- lands, lauk þaðan embættisprófi 1969 og öðlaðist réttindi héraðs- dómslögmanns 1971. Guðmundur var fulltrúi hjá bæj- arfógetanum í Vestmannaeyjum 1969-70, var lögfræðingur hjá Seðla- bankanum árin 1970- 72, lögfræðingur hjá lánadeild Fram- kvæmdastofnunar frá hausti 1972 til 1985 og var jafnframt aðstoðarmaður iðn- aðarráðherra 1984-85. Hann var forstjóri Byggðastofnunar á árunum 1985-2001 og framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 2001-2008. Hann átti sæti í fjölda nefnda og stjórna, ekki síst á þeim árum er hann gegndi forstjórastarfi hjá Byggðastofnun, og gegndi auk þess formennsku í stjórnum fyrirtækja, s.s. Sjóefnavinnslunnar og Norður- stjörnunnar. Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er Sigríður J. Malmquist, fyrrver- andi bankaritari. Börn Guðmundar og Sigríðar eru Ásta, Rúna og Jón Eðvald. Barnabörnin eru 8 að tölu. Andlát Guðmundur Malmquist Febrúarmánuður var mjög tvískipt- ur í veðri. Fyrri hluti mánaðarins var kaldur og þónokkur snjór var á landinu. Þurrt og bjart var suðvest- anlands en úrkomusamara norð- anlands. Mikil hlýindi einkenndu síðari hluta mánaðarins og snjóa leysti víðast hvar á láglendi. Kemur þetta fram í yfirliti Veð- urstofu Íslands um tíðarfar í febr- úarmánuði. Að tiltölu var hlýjast við suður- ströndina. Hitinn var 0,7 stigum hærri í Skaftafelli en að meðatali síðustu tíu ár og er það mesta hlýn- unin. Að tiltölu var kaldast inn til landsins norðaustanlands. Þar var mesta frávikið frá meðaltalinu síð- ustu tíu ár mínus 1,6 stig í Möðru- dal. Meðalhiti í Reykjavík var 1 stig í febrúar. Er það 0,7 stigum ofan meðallags árin 1961 til 1990 en að- eins undir meðaltali síðustu tíu ár. Á Akureyri var meðalhitinn -1,1 stig sem er 0,9 stigum undir meðallagi síðustu tíu ár en 0,4 stigum yfir 30 ára meðallagi. Mesta frostið í Svartárkoti Meðalhiti í mánuðinum var hæst- ur í Surtsey, 3,8 stig, en lægstur í Sandbúðum á Sprengisandi, -6,3 stig. Í byggð var meðalhitinn lægst- ur -4,8 stig í Svartárkoti í Bárðardal. Hæsti hiti mánaðarins mældist 15,2 stig á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði 23. febrúar. Mesta frost í mánuðinum mældist -29,3 stig í Svartárkoti 3. febrúar. Úrkoma í Reykjavík mældist 72,9 millimetrar sem er jafnt meðaltali árin 1961 til 1990. Febrúar var úr- komusamur á Akureyri. Þar mæld- ist úrkoman 78,1 mm sem er 84% umfram meðallag viðmiðunarárin 1961 til 1990. Meiri sól í Reykjavík Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 74 sem er 22 stundum fleira en var að meðaltali í mán- uðinum á undan, janúar. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 40,2 sem er 4 stundum fleira en í með- alári. helgi@mbl.is Febrúarmánuður var mjög tvískiptur í veðri  Kalt og snjór í fyrrihluta mánaðarins  Hlýindi einkenndu seinni hlutann Morgunblaðið/Hari Snjór Menn eru kannski búnir að gleyma kuldanum í byrjun febrúar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.