Morgunblaðið - 02.03.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég veit sumt í þessarisögu en annað á eftir aðrenna upp fyrir mér.Þetta er söguheimur sem
á eftir að þróast mjög lengi,“ segir
Bjarni Hinriksson myndasöguhöf-
undur sem í dag opnar sýningu sína,
Myrkva, í Gallerí Göngum í Háteigs-
kirkju og fagnar um leið útgáfu fyrsta
hluta myndasögu sem hann hugsar
sem þríleik.
„Mig langaði til að fara aftur til
upprunans, dýfa pennastöng í blek og
teikna á pappír. Höndin og penninn
fengu því að flæða og þá urðu til
teikningar sem fóru að rekja hug-
myndir um sögu. Grafíska útlitið og
furðuheimur Myrkva varð til í skiss-
um áður en sagan kom. Í byrjun var
markmiðið að vinna algerlega með
ímyndunaraflið, henda mér út í heim-
ildarlausan heim og vinna með það
sem hefur safnast upp í hausnum á
mér eftir margra áratuga teikningar.
En þegar hér er kominn á prent
fyrsti hluti sögunnar, þá er ég búinn
að fara í gegnum langt ferli og ég
styðst líka við raunheiminn. Ég vísa í
umhverfi í Reykjavík nútímans, til
dæmis er safn Einars Jónssonar á
Skólavörðuholtinu, Hnitbjörg, hús að-
alpersónunnar, Hildings hálfmána.“
Mennskar persónur en þó ekki
Bjarni segir að þó svo Myrkvi
gerist í furðuheimi og fylgi lögmálum
furðusögu, þá sé þetta saga sem vísar
í það sem til er. „Svo kemur í ljós eftir
því sem sögunni vindur fram hvernig
þær tengingar eru. Þetta er grótesk-
ur furðuheimur þar sem persónur eru
mennskar en þó ekki mennskar. Æv-
intýrið og þjóðsagan er mjög sterkur
þáttur í sögunni og goðsagnahugs-
unin líka. En þetta er fyrst og fremst
vettvangur til að vinna með hug-
myndir sem snúast um okkar nútíma,
hvort sem það er á sviði stjórnmála,
efnahagslífs eða siðferðis. Stóra
spurningin í þessari sögu er: Hvert
stefnum við sem manneskjur, og er
það líf sem við lifum í dag sjálfbært? Í
söguheimi Myrkva er ólga, upplausn
og ójafnvægi, sem speglar það sem
mér finnst ég sjá í okkar raunheimi í
dag.“
Grunnstefið í sögunni er að
tungumál eru í varðveislu ákveðinna
vera sem búa í innri heimi allra líf-
vera í Myrkva, í svokölluðum Huldu-
löndum. „Þar eru varðveislumenn
tungumálsins og ef þeir deyja, þá
deyr tungumálið. En það er einmitt
verið að drepa varðveislumenn
tungumálsins í sögunni.“
Breyskar persónur en góðar
Hildingur og félagi hans Brjáli
eru meginpersónur sögunnar en
Myrkvi er yfirheiti heimsins.
„Svo sjáum við til hvað gerist,
hvort Myrkvi vísi til persónu sem síð-
ar kemur fram. Hildingur og Brjáli
eru báðir breyskar persónur en í
grunninn góðar manneskjur, rétt eins
og flestar persónur sögunnar. Vissu-
lega eru sumar þeirra fulltrúar hins
skárra í okkur og aðrar fulltrúar
dekkri hliða, en allar hafa þær eitt-
hvað sem vegur upp á móti því sem er
ríkjandi í persónunni,“ segir Bjarni
og bætir við að hann langi að vinna
með persónur sem hafa pláss til að
þroskast og mótast, því yfirleitt hafi
hann verið að vinna með styttri sög-
ur. „Markmiðið er að geta sem höf-
undur farið dýpra en ég hef leyft mér
að gera hingað til. Á endanum snýst
þetta meira um að fjalla um samskipti
persóna, þótt þær séu í þessu grót-
eska formi og lúti aðeins öðrum lög-
málum en okkar daglega líf. Glíman
er að gera þær trúverðugar.“
Fyrir fólk á öllum aldri
Bjarni segist hafa unnið þennan
fyrsta hluta Myrkva á löngum tíma
og í því ferli hafi hann verið að móta
stílinn og frásagnarþráðinn. „Sam-
bandið við sögupersónur hefur líka
breyst; fyrst var ég mikið með Hild-
ingi en undanfarið meira með kven-
persónunum. Ég bíð spenntur eftir að
sjá hvernig sambandið við sögu-
persónur muni þróast, því þótt ég sé
búinn að skrifa framhaldið af fyrsta
hefti getur það tekið miklum breyt-
ingm þegar ég sest niður og fer að
fullvinna texta og myndir,“ segir
Bjarni og bætir við að myndasagan
bjóði skemmtilega upp á tvennt; ann-
ars vegar hugmyndavinnu og hreinan
texta, en hins vegar myndræna út-
færslu.
„Þannig getur maður leyft sér að
nýta kosti bæði texta og mynda og
steypa svo saman í form sem á end-
anum er einhver blanda sem gæti
ekki verið til í öðru formi en formi
myndasögunnar.“
Bjarni segir Myrkva vera sögu
sem ætlað er að skemmta fólki á öll-
um aldri. „Ég vil ekki flokka hana fyr-
ir ákveðinn aldur. Ég held hún höfði
til yngri lesenda en hún er ekki ætluð
börnum og unglingum sérstaklega,
og hún gæti þróast út í það sem er að-
eins meira fyrir eldri lesendur.“
Bjarni starfaði sem grafíker hjá
sjónvarpinu í áraraðir en sagði starfi
sínu lausu sl. haust, því honum fannst
kominn tími til að gefa sér samfelld-
ari tíma til að sinna myndasögunni.
„Ég hef fengist við myndasögu-
gerð meðfram starfinu á RÚV í öll
þessi ár, en það hefur þurft að mæta
afgangi. Ég vil fást við það sem er
ástríða mín.“
Furðuheimar Mikið er um að vera í Myrkva, þar er mikil ólga og átök og fyrirmyndir úr raunheimum, t.d. býr Hildingur í Hnitbjörgum, safni Einars Jónssonar á Skólavörðuholtinu í Reykjavík.
Hildingur hálfmáni leitar að ljósi
MYRKVI er yfirheiti
myndasagna þar sem
Hildingur hálfmáni,
Brjáli, Hulda, Maia og
fleiri draga lesendur inn
í heim furðusögu með
rætur í okkar eigin. Höf-
undurinn, Bjarni Hin-
riksson, veltir fyrir sér
hvert mannfólk stefnir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Myndasöguhöfundur Bjarni hengir upp mynd af Hildingi sem verður meðal verka á sýningu hans sem opnar í dag.
Led húsnúmer
Falleg húsnúmer í öllum stærðum og gerðum
· Sérsmíðum númer á öll hús og fjölbýli
Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar: ledhúsnúmer
Einnig hægt að hringa í sími 775 6080
· Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni
· Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli
· Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer
Kerið er ríki
úti í Ballar-
hafi. Á eyj-
unum búa
stríðsmenn
og stjórn-
endur, auð-
menn og
almenning-
ur, seiðfólk, náttúruvætti og líf-
vélar. Vatnskonungur ríkir yfir
Skerinu en þar er stjórnmála-
og siðferðiskreppa. Stafamenn-
irnir, varðveislumenn tungumál-
anna, búa í Huldulöndunum. Í
Meginlandsstríðinu brast teng-
ing Meginlandsbúa við Huldu-
löndin með hörmulegum afleið-
ingum. Sagan hefst árið 4041,
fjórtán árum eftir stríðslok á
Meginlandinu.
Tenging
brast í stríði
FYRSTI HLUTI ÞRÍLEIKS
Útgáfu- og myndlistarsýning
Bjarna opnar í dag laugardag 2.
mars kl. 16 í Gallerí Göngum í Há-
teigskirkju. Þar verður fyrsta hefti
myndasögutímaritsins MYRKVI
gefið út og sýnd grafík unnin út frá
sögunni.