Morgunblaðið - 02.03.2019, Side 18

Morgunblaðið - 02.03.2019, Side 18
ÚR BÆJARLÍFINU Björn Björnsson Sauðárkróki Margt er gott og jákvætt að gerast í Skagafirði þessa dagana, einmuna góð tíð þó svolítið blási stundum og snjólétt, allt frá áramótum, svo að framkvæmdamenn hafa hvergi þurft að slá af, hvorki við byggingar né annað það sem gera þarf.    Þessa dagana er Leikfélag Sauðárkróks að hefja æfingar á frumsömdu Sæluvikuverkefni fé- lagsins, Fylgd, leikriti með söngvum eftir Guðbrand Ægi Ásbjörnsson, sem jafnframt er leikstjóri. Öll lög og söngtextar verksins eru samin af höfundum sem á einhvern hátt tengjast Skagafirði, utan tvö sem áð- ur hafa heyrst. Að sögn Sigurlaugar Dóru Ingimundardóttur, formanns félagsins, taka um 20 leikarar þátt í uppfærslunni, nokkrir nýliðar auk marghertra reynslubolta á sviði, en alls koma um 50 manns að sýning- unni. Áætluð frumsýning er 28. apríl nk.    Slökkvilið Sauðárkróks tók nýlega við nýrri pólsk-sænskri bif- reið í flotann, og segir Svavar Atli Birgisson slökkviliðsstjóri að um gjörbyltingu sé að ræða í tækjakosti liðsins. Fyrir átti slökkviliðið ellefu þúsund lítra tankbíl, níu manna þjón- ustubíl, körfubíl auk tveggja sjúkra- bíla. Eldri bíl sem sá nýi leysir af hólmi hefur verið lagt, enda kominn til ára sinn og ekki búinn til átaka svo sem þurfa þótti. Slökkviliðið hefur 22 menn á út- kallslista á Sauðárkróki, fimm í Varmahlíð og fjóra á Hofsósi og hafa þeir yfir að ráða minni slökkvibílum. Fjórir eru fastráðnir á slökkvistöð á Sauðárkróki og annast þar almenn störf, eldvarnaeftirlit, sjúkraflutn- inga og fleira. Svavar segir nýja bíl- inn gjörbreyta öryggi og vinnuað- stöðu slökkviliðsmanna enda sé hér um að ræða eins vel búinn bíl og mögulegt er. Sagði Svavar að með- alútkallstími liðsins frá stöð væri um fimm mínútur. Verð hins nýja bíls er um 60 milljónir króna.    Á vegum sveitarfélagsins er nú hafin vinna við gerð nýs deili- skipulags fyrir hafnarsvæðið vegna verulega aukinna umsvifa við höfn- ina, ekki hvað síst vegna mikillar aukningar á löndunum fiskiskipa, aukningar á komum flutningaskipa og síðast en ekki síst væntanlegrar komu nokkurra smærri skemmti- ferðaskipa á næsta ári. Þá er að hefjast hönnunarvinna á viðbyggingu við leikskólann Glað- heima á Sauðárkróki og um það bil er að ljúka hönnun nýs leikskóla á Hofsósi, sem vænta má að hafist verði handa við á þessu ári. Er bygg- ingin í tengslum við Grunnskólann. Framkvæmdir við nýbyggingu Byggðastofnunar eru að sigla af stað, gengið hefur verið frá jarðvegs- skiptum í grunni og fara fram- kvæmdir af stað á næstunni. Þá er áfram unnið við síðari áfanga við- gerða og endurbyggingar sundlaug- arinnar og má segja að þegar lokið verður muni nánast um nýja laug að ræða. Opnuð hafa verið tilboð í efni nýrrar hitaveitulagnar frá Hofsósi að neðstu bæjum í Hjaltadal og fækkar nú ört þeim svæðum í Skaga- firði sem ekki njóta hitaveitu.    Þorkell Þorsteinsson, settur skólameistari Fjölbrautaskóla Norð- urlands vestra, sagði að nú í fyrstu viku mars yrði væntanlega undirrit- aður samningur milli FNV og Keilis vegna flugkennslu á Alexand- ersflugvelli. Gert er ráð fyrir að samningurinn gildi frá undirskrift og til ársloka. Að jafnaði munu verða hér nokkrir tugir flugnema og a.m.k. 4 flugkennarar og sér FNV þeim fyr- ir gistingu og kennsluhúsnæði ef þurfa þykir. Þessa dagana eru hér þrjár flugvélar og hafa verið í nokkr- ar vikur, og er notalegt að heyra í þessum vélum hátt yfir bænum, eftir að allt áætlunarflug til Sauðárkróks var blásið af. Allt er þetta nú aldeilis ágætt, en hinsvegar er annað sem ekki er eins gott og ánægjulegt, en það er að tveir framkvæmdastjórar fyrirtækja í fremstu röð hafa látið af störfum. Forstjóri FISK Seafood gekk út úr fyrirtækinu eftir, að sagt er, átaka- fund í stjórn, en hinum var sagt upp símleiðis og honum tjáð að hans væri ekki þörf í vinnu næsta dag.    Jón Eðvald Friðriksson tók við útgerðarfyrirtækinu á erfiðum tíma, þegar ef til vill var ekki hvað bjartast framundan en hefur síðan þá gert FISK Seafood að einu öflugast og þekktasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins.    Doktor Hólmfríður Sveins- dóttir tók við forystu í nýju há- tæknifyrirtæki á vegum Matís og KS og undir hennar stjórn var var stofn- að fyrirtækið Protis, sem vaxið hefur ört og hafa bæði fyrirtækið og Hólm- fríður hlotið fjölda viðurkenninga fyrir rannsóknarstörf og framleiðslu fyrirtækisins. Um brotthvarf þessara tveggja burðarása, hvors í sínu fyrirtæki, ríkir þögn, og finnst hinum almenna borgara að honum séu skuldaðar réttar og afdráttarlausar skýringar á þessum gjörningum.    En þrátt fyrir allt þá eru Skag- firðingar bjartsýnir og þó að ýmsir sem svartsýnastir eru segi að blíð- viðri komi alltaf í bakið á manni, – þá er ekki á þá hlustað. Verkföll leysast eftir kjarabaráttu þó harðvítug sé og vor kemur að liðnum vetri, jafnvel snjóþungum, – og er þá ekki allt gott? Morgunblaðið/Björn Björnsson Bylting Svavar Atli Birgisson slökkviliðsstjóri hjá nýju slökkvibifreiðinni, sem gjörbreytir öryggi og vinnuaðstöðu. Blíðviðri í Skagafirði en blikur eru á lofti 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 Til sölu er lögbýlið Suðurgafl í Bláskógabyggð á Geysissvæðinu. Um er að ræða fasteignina Suðurgafl sem er sunnan við þjónustumiðstöðina á Geysi. Á 3,7 ha. lóð stendur 106 m2 holsteinshús landnr. 167102 og fastnr. 222-4956 sem byggt var 1973 ásamt 33,8 fm geymslu/bílskúr en bæði þarfnast viðhalds. Eigninni fylgir land sem er 3,7 ha að stærð. Því fylgir einnig tæplega 60 ha. spilda í svokölluðum almenningi sem er á einu stærsta samfellda mýrlendissvæði í uppsveitum Árnessýslu, óraskað af framræslu og á Náttúruminjaskrá. Einnig fylgir eigninni hlutdeild í landi í óskiptri sameign í Haukadalsheiði en óvíst er um landmerki á því svæði. Eigninni tilheyrir jarðhiti skv. Fasteignaskrá. Skoðun á eigninni er eftir samkomulagi. Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá ÍsMál Lögmannsþjónustu á netfanginu ismal@ismal.is eða í síma 620 7500. Fjárfestingartækifæri á Geysissvæðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.