Morgunblaðið - 02.03.2019, Page 38

Morgunblaðið - 02.03.2019, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 Þetta er einhver marktækasta og heildstæðasta sýningin á þessum Vísirósum mínum til þessa en orðið stendur fyrir Benduvísi handrita- eða myndritagerð,“ segir Bjarni H. Þórarinsson myndlistarmaður um sýninguna Víðróf með verkum hans sem opnuð verður í BERG Contem- porary á Klapparstíg 16 klukkan 17 í dag, laugardag. Aðalheiður Val- geirsdóttir er sýningarstjóri og á sýningunni er á annað hundrað áður ósýndra og athyglisverðra Vísirósa en þær eru hluti „af viðamiklu verk- efni sem hófst árið 1987“, eins og segir í texta eftir Jón Proppé sem fylgir sýningunni úr hlaði: „Í þessum fínlegu blýantsteikningum rennur tungumálið inn í formfasta, mynd- ræna framsetningu – tungumálið og myndin verða eitt. Að baki verk- unum liggja langir orðalistar sem Bjarni kallar róf, en í þeim kannar hann mögulegar samsetningar orða og hugmynda svo úr verður eins konar heildarsýn á tiltekin svið mannlegrar hugsunar.“ Þá eru einn- ig á sýningunni myndir þar sem Bjarni endurtúlkar skákir í mynd- rænu formi. Í stað þess að skoða hverja stöðu fyrir sig eins og gert er í skákfræðunum einbeitir Bjarni sér að hreyfingunum og teiknar þær upp á skákborðið. Með því að beita aðferðum sem hann hefur þróað í Vísirósunum sýnir hann skákina sem eins konar dans eða hrynhátt. Bjarni er mjög ánægður með sýn- inguna í BERG Contemporary og segir hana minna á gamla hugmynd sína; að koma á fót safni sem hann hefði kallað Þvílíka safnið. „Þessi sýning gæti orðið einhvers konar sýndarveruleiki fyrir það hugar- fóstur mitt! En það er bara eitt af þeim hugarfóstrum sem ég hef feng- ið út frá uppgötvun minni á sjón- hættinum,“ segir hann. „Vísirósirnar eru ekki arkitektúr en gætu verið það sem ég kalla yrki- tektúr. Það er bullandi yrkitektúr í öllum myndunum hér. Þar á meðal eru þessar 19 Skákbendur, sem ég kalla svo, það eru fjórtán verk eftir hinn ágæta stórmeistara okkar Frið- rik Ólafsson og fimm eftir skákum norska heimsmeistarans Magnus Carlsens. Meðal afþreyingar hjá mér þegar ég hvíli mig á Vísirósa- gerðinni er að leggjast í skákrann- sóknir,“ segir hann en áður hefur Bjarni útfært skákir Fischers og Spasskís í einvíginu 1972. Hann seg- ir Skákbendurnar passa vel við þann liststíl sem hann hafi beitt í rúm þrjátíu ár í Vísirósagerðinni. „Í skákinni er ferli sem ég nýti mér og beiti þá þeirri grein innan Vísiakademíunnar sem ég kalla bendivísimynsturfræði og fyrir mér er þetta bara listsköpun.“ Þess má geta að á sýninguni eru tvö mynd- bandsverk þar sem Bjarni útskýrir hugmyndafræðina, merkingarheim- inn og vinnuna að baki verkunum. Hann segir að hugtakið „benda“, einkennishugtak sjónhátta, sé æði „víðtækt, margslungið og fjölskrúð- ugt fyrirbæri málvísindalaga séð“. Engu sé líkara en hugtakið geti brugðið sér í allra kvikinda líki. Og óhætt er að hvetja fólk til að kynna sér heima verkanna. efi@mbl.is „Bullandi yrkitektúr í öllum myndunum hér“  Sýning á Vísirósum Bjarna H. Þórarinssonar í BERG Morgunblaðið/Einar Falur Myndritagerð „Þetta er einhver marktækasta og heildstæðasta sýningin á þessum Vísirósum mínum til þessa,“ segir Bjarni H. Þórarinsson. Nostrað við poppið Snilligáfa Mark Hollis markaði óvenju djúp spor, þótt nafnið sé ekki á allra vörum. plötum og skoðið athugasemdirnar. Sjálfur mun ég aldrei skilja hvernig tíminn stoppar hreinlega þegar þessi tónlist fer af stað. Í henni er sannur heilunarmáttur sem ég vona að sem allra flestir uppgötvi og komist í tæri við. Þróun Talk Talk er merkileg og að sönnu einstök í popp/rokk- sögunni. Sveitin byrjaði sem nokk- urs konar Duran Duran fátæka mannsins, en snemma fór að bera á miklum metnaði og tilrauna- mennsku, sem heyrist afar vel á þriðju plötunni Colour of Spring (1986). Engu að síður er sveitin enn að vinna með tiltölulega hefðbundið lagasnið. Það er síðan á áðurnefndum plötum sem eitthvað allt annað fer í gang. Áhrif frá Can, Miles Davis og nútímatónlist. Afstraktdjass. Sveim og furðulegheit. Skringileg hljóð- færi, taktskiptingar o.s.frv. Hollis og félagar voru einstrengingslegir, með sterka listræna sýn, og Hollis gat ekki verið meira sama um kröf- ur útgefandans, sem var risinn EMI. Segir sagan að yfirmaðurinn hafi farið að gráta þegar hann heyrði Spirit of Eden. Ekki er vitað hvort það voru fegurðartár eða sorgartár, þar sem það var ljóst að það var engin leið að koma lög- unum í útvarpið, hvað þá selja af- urðina. Vegur Talk Talk hefur hins vegar farið vaxandi með hverju ári. Nýjar kynslóðir uppgötva þetta efni og frelsast. Viðbrögðin eru venju- lega á eina leið; eins og hlustendur hafi bókstaflega „himin“ höndum tekið. Þetta sést líka á viðbrögðum kollega Hollis úr tónlistarheim- inum; áhrifin voru augsýnilega mikil og djúp. Ég gæti skrifað um þessa tón- list og þennan mann lengi lengi en langaði bara til að kveðja, form- lega, eins og ég sagði hæ, formlega, árið 1996. Skrif frá aðdáanda, sem ég fann á youtube undir laginu „New Grass“, sitja í mér. Þau eru einfaldlega svona. „Það var ótrú- lega fallegt sólarlag hjá okkur í kvöld. Þetta hlýtur að hafa verið þú.“ » Sjálfur mun égaldrei skilja hvernig tíminn stoppar hrein- lega þegar þessi tónlist fer af stað. Í henni er sannur heilunarmáttur sem ég vona að sem allra flestir uppgötvi og komist í tæri við. Mark Hollis, fyrrver- andi leiðtogi hljóm- sveitarinnar Talk Talk, féll frá í vikunni. Fram- lag hans til tónlistar- innar var merkilegt og viðbrögðin úr þeim heimi eru óvenju mikil og tilfinningaþrungin. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Fyrsta opinbera greinin semég skrifaði um tónlist varum Talk Talk og Mark Holl- is. Þetta var árið 1996 og Kristín Björk Kristjánsdóttir (kira kira) var að gefa út lítið tímarit („zine“). Greinin mín bar nafnið „Er Mark Hollis Guð?“ og innihélt pælingar mínar um síðustu plötu Talk Talk, Laughing Stock (1991). Hátimbrað- ur titill, og næsta grátbólginn, en fullkomlega eðlilegur að mér fannst, miðað við umfjöllunarefnið. Ekkert hefur breyst hvað þá sýn mína varðar, svo ég sé alveg heið- arlegur. Hollis hafði verið vandlega utan við sviðsljósið undanfarin tutt- ugu ár, var í raun „hættur“, og lifði hefðbundnu fjölskyldulífi í Wimble- don, London (og fór stundum í vélhjólatúra með öðrum feðrum í hverfinu). Ég var búinn að sætta mig við að heyra ekki nótu af tónlist frá honum framar, en að hann væri búinn að yfirgefa jarðvistina, það var erfiðara (Hollis var 64 ára, dán- arorsök hefur ekki verið staðfest enn). Tónlist hans fyllti stofuna á þriðjudaginn, á meðan fjölskyldan borðaði sinn vikulega chili-rétt, og faðirinn brynnti músum á meðan. Engin tónlist hefur haft jafn djúp áhrif á mig og tónlistin sem er að finna á tveimur síðustu Talk Talk-plötunum, Spirit of Eden (1988) og áðurnefndri Laughing Stock. Áhrifunum er ekki hægt að koma í orð, þótt ég sé að gera til- raun til þess hér. Það er engu líkara en Hollis hafi verið beintengdur við almættið og þessi djúpfegurð sem lá í sköpun hans hefur snert við glettilega mörgum. Prófið að fletta upp lögum á youtube af þessum H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Trésmiðja með 40 ára rekstrarsögu sem sérhæfir sig í innréttingasmíði fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið er vel tækjum búið og í eigin húsnæði. Velta 130 mkr. • Fyrirtæki sem framleiðir ákveðnar tegundir einfaldra matvæla fyrir aðra aðila á markaði. Töluverð sjálfvirkni þannig að kostnaði er mjög stillt í hóf. Velta 100 mkr. og afkoman sérlega góð. • Heildverslun sem flytur inn ýmsan tæknibúnað til hitunar, kælingar og loftræstingar. Velta yfir 200 mkr. og góð afkoma. • Blikkiðjan ehf. í Garðabæ. Um er að ræða rekstur og fasteign að Iðnbúð 3. Velta um 80 mkr. • Þjónustufyrirtæki á mjög sérhæfðu sviði sem hefur eftirlit mað hreinlæti á vinnustöðum, gerir tillögur að kerfum og sér um úttektir. Velta 100 mkr. og góð afkoma. • Hádegisverðarþjónusta þar sem bæði er sent í fyrirtæki og neytt á staðnum í hádeginu. Tilvalið fyrir samhenta fjölskyldu og kokka. Velta 100 mkr. Töluverðir möguleikar fyrir duglega aðila að auka veltuna. • Gott fyrirtæki með áratuga sögu sem sérhæfir sig í vélaviðgerðum og sölu varahluta sem það flytur sjálft inn. Velta nokkuð stöðug undanfarin ár og jákvæð afkoma. • Litlar heildsölueiningar sem henta sem viðbót við annað. Um er að ræða snyrtivörur fyrir fagfólk, bætiefni og ýmsa smávöru. • Ungt og hratt vaxandi veitingastaður (2 staðir) þar sem áhersla er lögð á hollan skyndibita í hádeginu og á kvöldin. Veltan í ár áætluð 280 mkr. og EBITDA 20 mkr. Miklir möguleikar á að fjölga stöðum undir vörumerkinu sem hlotið hefur góðar viðtökur. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.