Morgunblaðið - 12.03.2019, Side 1
Vegfarendur í Reykjavík þurftu að gæta að því að húfurnar fykju ekki af höfðum þeirra í rok-
inu í gær. Þar var þó ekki jafn hvasst og víða annars staðar vegna djúprar lægðar sem nálg-
aðist landið. Hvassast var undir Eyjafjöllum og í Mýrdal í gærkvöld. Vindhviður slógu í 58 m/s
á Steinum, í 57 m/s í Hvammi undir Eyjafjöllum og í 49 m/s norðan Reynisfjalls í Mýrdal. Mjög
hvasst var í Öræfasveit og við Sandfell mældist hviða upp á 45 m/s um kl. 22.00. Veginum milli
Hvolsvallar og Víkur var lokað vegna óveðursins og einnig þjóðveginum í Öræfum. »2
Morgunblaðið/Eggert
Passa þurfti að hávaðarokið tæki ekki húfurnar
Þ R I Ð J U D A G U R 1 2. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 60. tölublað 107. árgangur
ÍSLENSKA
ÓPERAN Á BULL-
ANDI UPPLEIÐ HRYLLINGUR ÓMISSANDI
GÓÐAR ERLENDAR
BÆKUR FYRIR BÖRN
OG UNGLINGA
ÆVINTÝRI HANS OG GRÉTU 12 FORLAGIÐ KVER 30La traviata bbbbn 33
Icelandair tók snarpa dýfu í Kaup-
höll Íslands í gær. Er lækkunin m.a.
rakin til þeirrar staðreyndar að fé-
lagið hefur í rekstri 3 Boeing 737
MAX 8-vélar en tvær vélar af þeirri
tegund hafa farist með fimm mánaða
millibili. Með vélunum fórust 346
manns. Forstjóri Icelandair segist
bera fullt traust til vélanna en á
þessu ári munu fleiri slíkar bætast í
flota félagsins.
Lækkuðu bréf félagsins um tæp
10% í viðskiptum gærdagsins. Einnig
gustaði um framleiðanda vélanna,
Boeing, sem sveiflaðist mjög í Kaup-
höllinni í New York í gær. Þegar upp
var staðið höfðu um 1.500 milljarðar
króna þurrkast út af markaðsvirði fé-
lagsins. Í gærkvöld tilkynntu flug-
málayfirvöld í Bandaríkjunum að þau
myndu skipa Boeing að gera breyt-
ingar á 737 MAX 8-vélunum. Þess er
krafist að uppfærslu á vélunum verði
lokið ekki síðar en í næsta mánuði.
Eftir lokun markaða í gær var svo
tilkynnt um að Icelandair Group
hefði náð samkomulagi við innlenda
lánastofnun um 80 milljóna dollara
lán, jafnvirði tæplega 10 milljarða
króna. Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því að lánastofnunin sé Lands-
bankinn. Er ætlunin að nýta andvirði
lánsins til að greiða inn á stóran
skuldabréfaflokk sem félagið gaf út á
árunum 2016 og 2017. Er lánið veitt
með veði í 10 Boeing 757-vélum í eigu
félagsins. ses@mbl.is »16
Sviptingar hjá
Icelandair Group
Landsbankinn lánar 10 milljarða
Morgunblaðið/Eggert
Vélar Landsbankinn tekur tíu 757-
þotur að veði fyrir lánveitingunni.
Skólaráð Fossvogsskóla hittist kl.
18.00 í gær ásamt fulltrúum frá
skóla- og frístundasviði, umhverfis-
og skipulagssviði og Frístundamið-
stöð Kringlumýrar. Í tilkynningu frá
Aðalbjörgu Ingadóttur, skólastjóra
Fossvogsskóla, til foreldra nemenda
kom fram að þau hafi augastað á
húsnæði þar sem hægt verður að
hýsa alla árganga skólans frá 1.-7.
bekk út þetta skólaár. Verið er að
undirbúa samningagerð vegna þess.
Aðalbjörg kvaðst vona að hægt verði
að upplýsa nánar um niðurstöðu í
dag. Stefnt er að því að halda for-
eldrafund í skólanum á morgun.
„Dóttir mín er með mikil líkamleg
einkenni – þrálátar stíflur við ennis-
og kinnholur, sár í munnvikum og
mikið exem og sár í hársverði. Hún
er alltaf með stíflað nef sem háir
henni mjög í íþróttum,“ segir móðir
11 ára stúlku í Fossvogsskóla.
Ástæðu þessara veikinda segir móð-
irin vera slæmt ástand skólans.
Móðirin fór margsinnis með dótt-
ur sína til læknis og sagði að hún
hafi átt við heilsufarsvanda að stríða
í rúm þrjú ár. Læknar voru farnir að
spyrja hvort mygla væri á heimilinu.
Hafa augastað á hús-
næði fyrir kennslu
Móðir rekur veikindi dóttur sinnar til ástands skólans
MFór margsinnis til læknis »6
Morgunblaðið/Hari
Fossvogsskóli Kennslu verður hætt í skólahúsinu á morgun vegna myglu.