Morgunblaðið - 12.03.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Von er á 1.000 skömmtum af bólu-
efni gegn mislingum í dag til við-
bótar við þá 3.000 skammta sem
notaðir voru um helgina. Um miðja
viku gætu bóluefnin komist í dreif-
ingu. „Auk þess vinnum við að því
að útvega meira bóluefni frá Evr-
ópu en það er ekki auðvelt því það
er mikil eftirspurn eftir þessu bólu-
efni og ekki margir aflögufærir,“
sagði Þórólfur Guðnason sóttvarn-
arlæknir.
Engin ný mislingatilfelli greind-
ust um helgina. Samtals hafa um 50
sýni verið send í greiningu og eru
fimm tilfelli staðfest. Fylgst er náið
með þeim tugum manns sem eru
heima hjá sér í sóttkví vegna gruns
um mislingasmit á höfuðborg-
arsvæðinu og á Austurlandi.
Fólk á að hafa samband við lækni
ef það telur sig vera með mislinga
og þá eru tekin sýni. Ekki er hægt
að taka sýni fyrr en fólk veikist og
fær einkenni sem passa við misl-
inga.
Áfram verður unnið að því að
bólusetja óbólusett börn frá 6 til 18
mánaða aldri sem og þá sem hafa
aldrei verið bólusettir við misl-
ingum. Börn á þessum aldri þurfa
að fá tvær bólusetningar til við-
bótar, við 18 mánaða aldur og 12
ára. thorunn@mbl.is
Von er á meira mislingabóluefni í dag
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Við fögnum því að það hefur verið
lítið um verkefni vegna óveðursins í
kvöld,“ sagði Davíð Már Bjarnason,
upplýsingafulltrúi Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar, á ellefta tímanum
í gærkvöld. Hann benti þó á að ekki
væri öll nótt úti enn og spáð miklu
hvassviðri í nótt og fram eftir degi.
„Fólk virðist taka mark á viðvörun-
um Veðurstofu og viðbragðsaðila.
Við hvetjum fólk til að halda því
áfram og fara ekki í ferðalög þegar
varað er við vondu veðri.“
Björgunarsveitir mönnuðu lokun-
arpósta vegna lokunar hringvegar-
ins milli Hvolsvallar og Víkur og svo
austar milli Lómagnúps og Jökuls-
árlóns. Þjóðveginum á milli Hvols-
vallar og Víkur var lokað síðdegis og
átti ekki að opna hann aftur fyrr en í
dag. Þá var veginum um Skeiðarár-
sand og Öræfasveit lokað klukkan
20.00 og verður hann opnaður í dag.
Einnig gegndu björgunarsveitir
nokkrum óveðursútköllum.
Björgunarfélag Vestmannaeyja
sinnti þremur útköllum síðdegis í
gær en í Eyjum var mjög hvöss aust-
anátt. Eitt var vegna húss ofarlega í
bænum. Þakið fauk af því fyrir
nokkru og var gert við það til bráða-
birgða. Björgunarfélagsmenn forð-
uðu því að dúkur sem lokaði þakinu
fyki af. Enginn býr í húsinu. Þá voru
tvö útköll vegna skjólveggja sem
voru að fjúka við hús niðri í bæ. Eng-
in slys urðu á fólki, að sögn Arnars
Inga Ingimarssonar, varaformanns
Björgunarfélagsins.
Klæðning var að losna af íþrótta-
húsinu í Vík í Mýrdal síðdegis í gær
og var talin hætta á að hún fyki af
húsinu. Björgunarsveitin Víkverji
var kölluð út og festi klæðninguna
tryggilega.
Þá komu tvö útköll á Kjalarnesi.
Undir kvöldmat var þak að losna af
íbúðarhúsi og hjálpaði Björgunar-
sveitin Kjölur við að festa það. Um
klukkan 21.00 var beðið um aðstoð
vegna byggingarefnis sem hætta var
talin á að fyki.
Veðurstofan birti appelsínugula
viðvörun fyrir Suðurland, Suðaust-
urland og miðhálendið frá því klukk-
an 15.00 í gær og til hádegis í dag.
Spá um sterkan vind og mjög sterk-
ar vindhviður undir Eyjafjöllum og í
Öræfasveit gekk eftir. Gul viðvörun
er í gildi fyrir Norðurland eystra,
Austurland að Glettingi og Austfirði.
Vegum lokað og foktjón
Kröpp óveðurslægð olli miklu hvassviðri víða í gær Nokkurt foktjón varð en
ekki stórvægilegt Björgunarsveitir mönnuðu lokunarstöðvar á hringveginum
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Vestmannaeyjar Björgunarfélag Vestmannaeyja sinnti þremur óveðursútköllum í miklu hvassviðri síðdegis í gær.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Mýrdalur Hringveginum var lokað vegna veðurs á tveimur köflum í gær.
óskuðu aðrir þátttakendur eftir
öruggari fundarstað. Við því var orð-
ið.
Ekki búin að meðtaka
„Ítalía varð niðurstaðan og fund-
urinn og samtölin þar voru í alla staði
lærdómsrík. Ég kvaddi þau Kenía-
fólkið síðdegis á föstudag við fund-
arlok þegar fólk hélt til síns heima.
Þangað áttu þessir góðu vinir mínir
ekki afturkvæmt og ég er satt að
segja varla búin að meðtaka þetta,“
segir Margrét Þóra
kveða með rannsóknum og fleiru í
sínu fagi. Okkur Íslendingunum þótti
þeirra hugmyndir um kennslufræði
samræmast best okkar sjón-
armiðum. Við vorum að tala um á
leiðinni heim hvað væri spennandi að
auka samskipti milli HA og Ke-
nyatta-háskólans í Nairóbí og heim-
sókn okkar Íslendinganna til Afríku
á næsta ári var nefnd,“ segir Mar-
grét. Upphaflega stóð til að há-
skólafólkið kæmi saman í Nairóbí í
Kenía, en eftir hryðjuverkaárás sem
þar var gerð fyrir nokkrum vikum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mér var brugðið að fá fréttirnar með
tölvupósti í morgun. Bilið milli lífs og
dauða er stutt og heimurinn lítill,“
segir Margrét Þóra Einarsdóttir,
verkefnisstjóri við kennslumiðstöð
Háskólans á Akureyri. Tvö af þeim
157 sem fórust með Boeing 737 MAX
8-þotu Ethiopian Airlines á leiðinni
frá Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu,
til Nairóbí í Kenía á sunnudags-
morgun, voru með Margréti og þrem-
ur öðrum frá Akureyri á samráðs-
fundi í Salerno á Ítalíu í síðustu viku.
Þetta voru Isaac Mwangi Minae og
Agnes Kathumbi, bæði kennarar við
Kenyatta-háskóla í Kenía.
Í hópi háskólafólks
Þau sem fórust voru í hópi um 30
háskólamanna frá átta skólum í
þremur álfum sem mættu til Salerno
til að útbúa námsefni í kennslufræði á
háskólastigi.
Farþegarnir sem fórust með þot-
unni voru af 35 þjóðernum, flestir frá
Kenía eða 32. Átján voru Kan-
adamenn, níu frá Eþíópíu og sömu-
leiðis níu frá Frakklandi. Þá voru alls
18 starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
um borð, en áberandi margt fólk sem
sinnti hjálpar- og mannúðarstörfum
var um borð.
Margrét Þóra segist hafa fengið
góða viðkynningu af þeim Isaac og
Agnesi. „Þau voru bæði doktorar;
hæfileikafólk sem hafði látið að sér
Var á Ítalíu með tveimur
sem fórust í flugslysinu
„Varla búin að meðtaka þetta,“ segir Margrét Þóra
Ljósmynd/Basak Gözbay
Fundur Margrét Þóra fyrir miðri mynd. Hægra megin við hana er Isaac
Mwangi Minae og Agnes Kathumbi er nær. Þau fórust bæði í flugslysinu.
Eugen Ghiorghita, sá sem situr við endann á borðinu, er frá Rúmeníu.
Gangi gröftur Dýrafjarðarganga
áfram jafn vel og undanfarið og
komi ekkert óvænt upp á verður
líklega slegið í gegn eftir rúman
mánuð. Í síðustu viku voru grafnir
90,9 metrar og þá voru eftir 404,2
metrar í gegnumbrot. Auk þess á
eftir að grafa eitt útskot. Í vikunni
þar á undan lengdust göngin um
91,5 metra og þar með var 90%
markinu náð. Göngin verða um 5,6
km löng með vegskálum. Áætluð
verklok eru í september 2020.
Baldvin Jónbjarnarson, eftirlits-
maður með verkinu af hálfu Vega-
gerðarinnar, sagði að miðað við
ganginn undanfarið geti gegn-
umbrotið orðið einhvern tímann á
bilinu frá 12. til 20. apríl.
„Þetta hefur gengið mjög vel
undanfarið. Það er eiginlega allt
með okkur. Þurrt og þægilegt að
bora,“ sagði Baldvin. Hann sagði
að þeir sem vinna að ganga-
gerðinni séu mjög samhentir og
hafi unnið lengi saman. Einhverjir
unnu að gerð Héðinsfjarðarganga
og margir unnu saman í Norðfjarð-
argöngum.
„Það vita allir nákvæmlega hvað
á að gera næst. Það er aldrei nein
bið, menn eru alltaf tilbúnir,“ sagði
Baldvin. Tékkneskir starfsmenn
Metrostav sjá um að bora og
sprengja og þeir hjá hinu íslenska
Suðurverki keyra efnið út og ganga
frá því. Unnið er nótt og dag í sex
sólarhringa og tekið frí á sunnudög-
um. Þá eru líka vaktaskipti en
teymin skiptast á um að vinna dag-
vaktir og næturvaktir. gudni@mbl.is
Slá í gegn
um miðjan
apríl
Góður gangur í
Dýrafjarðargöngum