Morgunblaðið - 12.03.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019
Digrir sjóðir stéttarfélagsins Efl-ingar, sem fámenn klíka hefur
sölsað undir sig, hafa verið óspart
notaðir til að halda uppi áróðri og
ýta undir ólgu í þjóðfélaginu. Þetta
er í samræmi við
grundvallarsjón-
armið klíkunnar um
að bylta „auðvalds-
kerfinu“ og taka
upp annað þrátt fyr-
ir reynsluna af því
kerfi sem taka skal
við.
Meðal þesskeypta áróð-
urs sem klíkan hefur
teflt fram er að um-
talsvert svigrúm sé
til launahækkana
hér á landi. Í grein
eftir hagfræðing Samtaka atvinnu-
lífsins á dögunum var sagt frá því að
Stefán Ólafsson, sem starfar fyrir
Eflingu, haldi því fram að svigrúmið
sé 5,3% hækkun launakostnaðar.
Röksemdin fyrir þessu sé að spáum hækkandi verðbólgu rétt-
læti meiri launahækkanir og bendir
hagfræðingur SA, Ásdís Kristjáns-
dóttir, á að með slíkum rökum sé
„svigrúmið“ til launahækkana mest
í óðaverðbólgu.
Það er erfitt að halda uppi rök-ræðum þegar slíku er teflt
fram til stuðnings óraunsæjum kröf-
um. En athyglisvert er það sem Ás-
dís bendir á, að meðalhækkun
launakostnaðar á framleidda ein-
ingu hafi verið um 4,8% frá árinu
2010.
Þetta er gríðarleg hækkun ogþegar þróunin í Noregi, Sví-
þjóð og Danmörku hefur verið um
2% að meðaltali sést glöggt hversu
fjarstæðukennt það er að halda því
fram að svigrúm sé til mikilla launa-
hækkana í íslensku atvinnulífi.
Ásdís
Kristjánsdóttir
Spuninn
um svigrúmið
STAKSTEINAR
Stefán
Ólafsson
Matvörumarkaðurinn Reykjavík
Street Food hyggst halda svokall-
aðan götubitamarkað á Mið-
bakkasvæðinu yfir eina helgi í sum-
ar, frá föstudegi til sunnudags.
Áform eru um að yfir 30 söluaðilar
selji þar gestum og gangandi götu-
bita í gámum, matarvögnum og
sölutjöldum en auk þess verði settar
upp búðir með götufatnaði og sér-
verslanir. Þá stendur einnig til að
hafa bar, kaffibari, ísbúð og bakarí á
staðnum en viðburðurinn á að auki
að hýsa keppnina Besti götubiti Ís-
lands. Keppnin verður haldin í
fyrsta skipti á Íslandi og mun sigur-
vegarinn keppa fyrir Íslands hönd í
keppninni European Street Food
Awards.
Fyrirhugað er að halda tónleika
og fjölskylduskemmtun samhliða
matvörumarkaðnum. Sambærilegur
markaður var settur upp í Skeifunni
í fyrra en þá hét verkefnið Box –
Skeifan og stóð Reykjavík Street
Food fyrir honum í samstarfi við
Reykjavíkurborg og Torg í biðstöðu.
Reykjavík Street Food hefur sent
Faxaflóahöfnum erindi um að fá af-
not af Miðbakkasvæði Reykjavíkur-
hafnar og er það í vinnslu. Jafn-
framt var sótt um fjárstyrk vegna
verkefnisins en því hafnaði hafnar-
stjórnin.
Götubitahátíð haldin í sumar
Reykjavík Street Food hyggst setja
upp götubitamarkað á Miðbakka
Morgunblaðið/Hari
Götubiti Í fyrrasumar var settur
upp götubitamarkaður í Skeifunni.
Fyrsta farþegaskip ársins kemur til
landsins á föstudaginn þegar Astor-
ia er væntanlegt til Reykjavíkur.
Með skipinu er áætlað að komi um
550 farþegar og um 280 manns í
áhöfn. Astoria er rúmlega 160 metr-
ar á lengd, 21 metra breitt og 16.144
brúttótonn.
Undanfarin ár hefur Magellan
yfirleitt verið fyrsta farþegaskip
ársins en nú er það Astoria og mun
skipið fimm sinnum hafa viðkomu í
Reykjavík í ár. Bæði skipin eru gerð
út af Cruise and Maritime Voyages
(CMV). Á heimasíðu Faxaflóahafna
kemur fram að aðalástæðan fyrir
komu skemmtiferðaskipa svo
snemma árs sé aukinn áhugi á
norðurljósasiglingu.
Alls eru í ár áætlaðar 200 komur
farþegaskipa til Faxaflóahafna með
190.269 farþega, þar af eru sjö
skipakomur bókaðar til Akraness í
sumar. Áætluð fjölgun á skipakom-
um frá síðasta ári er rúmlega 24%
og fjölgun farþega rúmlega 22%.
Ocean Diamond er það skip sem oft-
ast kemur til Reykjavíkur í ár eða 16
sinnum, Star Breeze er væntanlegt
níu sinnum, Spitsbergen, N.G.
Explorer og Astoria fimm sinnum
hvert skip.
Queen Mary 2. kemur í júlí
Þau farþegaskip sem koma oftast
eru leiðangursskip og taka í kring-
um 250 farþega, segir á heimasíðu
Faxaflóahafna. Farþegar koma yfir-
leitt fyrr til landsins með flugi og
gista á hótelum áður en farið er í
siglingu við landið.
Þann 19. júlí er Queen Mary 2.
væntanleg til Reykjavíkur, en skipið
er 345 metrar að lengd og hefur
lengra skemmtiferðaskip ekki komið
hingað. Til samanburðar má nefna
að keppnisvöllur í fótbolta er rúm-
lega 100 metrar að lengd. aij@mbl.is
Fyrsta farþegaskip-
ið kemur í vikulokin
Um 200 skipakom-
ur til Faxaflóahafna
190 þús. farþegar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjöldi Skipin sem koma í sumar eru
af öllum stærðum og gerðum.
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Léttur sportskór
úr tauefni frá Nike.
Every day comfort innlegg
sem gerir skóinn
einstaklega mjúkan.
Verð 10.995
Nike Tanjun
Stær r 36-42
Nike
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/