Morgunblaðið - 12.03.2019, Page 10

Morgunblaðið - 12.03.2019, Page 10
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Mikil ólga var á vinnumarkaði á árinu 2015 og um tíma var allt útlit fyrir að yfir 70 þúsund launamenn á vinnumarkaðinum væru á leiðinni í verkföll, sem hefðu orðið margfalt víðtækari en þær verkfallsaðgerðir sem eru í undirbún- ingi um þessar mundir. Vorið og fram á sumarið 2015 var sérstaklega róstusamt á vinnumarkaðinum. Auk verkfalls- boðana ASÍ-félaga boðuðu 17 BHM-félög viða- miklar verkfallsaðgerðir sem hófust 7. apríl og stóðu í tíu vikur og 2.100 hjúkrunarfræðingar fóru í verkfall 27. maí, sem stóð í tvær vikur eða þar til ríkið greip inn í með lagasetningu 13. júní og fól gerðardómi að ákveða kjör þessara stétta. Bjuggu sig undir „grjóthart verkfall“ Þegar kjaraviðræður mjökuðust í gang á al- menna vinnumarkaðinum á fyrstu mánuðum ársins 2015 var Starfsgreinasambandið (SGS) í fararbroddi en það var með samningsumboð fyrir 16 aðildarfélög og um 10 þúsund fé- lagsmenn. SGS vísaði svo kjaradeilunni til rík- issáttasemjara í byrjun febrúar og 10. mars sleit SGS viðræðunum þar sem þær væru ár- angurslausar, skv. yfirliti yfir þessa atburðarás í ársskýrslu forseta ASÍ fyrir árið 2015. Viku síðar kynnti SGS viðamikla áætlun um verkfallsaðgerðir sem áttu að skella á í apríl og fram í maí. Um var að ræða sólarhringslangar verkfallshrinur á tilteknum dögum, sem hefjast áttu með allsherjarverkfalli 10. apríl og síðan tækju við staðbundnar vinnustöðvanir á ákveðnum dögum á félagssvæðum aðildarfélag- anna. Í maí áttu aðgerðirnar svo að stigmagnast með allsherjarverkföllum á tilteknum dögum allt til 26. maí þegar ótímabundið allsherj- arverkfall allra 16 aðildarfélaganna skylli á. Ekki kom þó til þessara verkfalla þar sem fé- lagsdómur dæmdi undir lok mars að boðað verk- fall rafiðnaðarmanna hjá RÚV væri ólögmætt þar sem óheimilt væri að telja í einu lagi atkvæði verkfallsboðunar margra stéttarfélaga. Verka- lýðsfélögin í SGS fóru saman í verkfallskosn- inguna og ætluðu að telja öll atkvæðin úr einum potti en þegar niðurstaða félagsdóms lá fyrir var ljóst að hún væri komin í uppnám vegna óvissu um lögmæti hennar. Ákvað samninganefnd SGS þá að afturkalla atkvæðagreiðsluna og búa til nýtt aðgerðaplan sem var kynnt 9. apríl. ,,Fyrri atkvæðagreiðsla okkar var dæmd ólögmæt og því er hún endurtekin núna og greint á milli aðildarfélaga innan SGS og þeirra samninga sem kosið er um. Aldrei hefur verið dæmt í svona máli áður en ljóst er að SA ætlar að beita lagaklækjum frekar en að setjast að samningaborðinu. Því svörum við með sam- stöðu, þrautseigju og baráttugleði,“ sagði í til- kynningu sem SGS sendi frá sér og opinberaði því næst mun harðari og umfangsmeiri að- gerðaáætlun en áður hafði verið kynnt. Rúmlega tíu þúsund félagsmenn áttu að leggja niður störf í á þriðja þúsund fyrirtækjum innan Samtaka atvinnulífsins um allt land. Haf- inn var undirbúningur fyrir ,,grjóthart verkfall“ eins og Vilhjálmur Birgisson, formaður Verka- lýðsfélags Akraness orðaði það. Meginkrafan í kjaradeilunni var að grunn- laun sem þá lágu í rúmum 200 þúsund kr. hækk- uðu verulega þannig að lágmarkslaun færu upp í 300 þúsund kr. innan þriggja ára. 94,6% samþykktu aðgerðirnar í atkvæða- greiðslu en rúmlega 50% tóku þátt. „Fólk er bara orðið reitt. Það er ekki hægt að lifa sóma- samlegu lífi á þessum launum,“ sagði Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, í viðtali við Morgunblaðið á þessum tíma. „Almenningur er á okkar bandi um að þetta séu ekki boðleg laun fyrir fulla vinnu – rúmar tvö hundruð þúsund krónur á mánuði,“ sagði hann. Fyrsta verkfallshrinan hófst á hádegi 30. apr- íl með 12 klukkustunda langri allsherjarvinnu- stöðvun og síðan tók við röð verkfalla á til- greindum dögum í einn eða tvo sólarhringa í senn, allt til 26. maí en þá átti að hefjast ótíma- bundin allsherjarvinnustöðvun. Þunginn í deilunni fór vaxandi undir lok apr- ílmánaðar þegar VR og Landssamband ís- lenskra verslunarmanna slitu viðræðum hjá ríkissáttasemjara og hófu undirbúning aðgerða til að þrýsta á um gerð kjarasamnings. ,,Í kjöl- farið færði VR 2 milljarða króna úr félagssjóði í vinnudeilusjóð. Flóabandalagið lýsti sama dag yfir árangurslausum fundi hjá ríkissáttasemjara og boðaði aðgerðir,“ segir í yfirliti forseta ASÍ. Verslunarmenn og Flóabandalagið (Efling, Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómanna- félag Keflavíkur) kynntu sam- stilltar verkfallsaðgerðir 5. maí en þær beindust að fyrir- tækjum í ákveðnum atvinnu- greinum; hópferðafyrirtækjum 28. maí, hótelum og gististöðum 30. maí, flugafgreiðslu 31. maí og svo koll af kolli allt til 6. júní þeg- ar hefjast átti ótímabundið alls- herjarverkfall. Þann 6. maí var þá þegar hafin tveggja daga vinnustöðvun verka- lýðsfélaga í SGS á landsbyggðinni og í forsíðufrétt Morgunblaðsins þann sama dag sagði: ,,Komi til verkfalla VR og Flóabandalagsins, auk Starfsgreinasambandsins og Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga, verða um 70 þúsund félagsmenn komnir í verkföll í byrjun næsta mán- aðar. Yrðu það víðtækustu verkföll hér á landi í áratugi.“ Þennan sama dag lýstu svo iðn- aðarmannafélögin yfir árangurslausum viðræðum við SA og boðuðu atkvæða- greiðslu um verkföll, sem síðan var ákveðið að ættu sér stað frá 10. til 16. júní og ótímabundið verkfall átti svo að hefjast 24. ágúst hefðu samningar ekki náðst um sumarið. Athygli vakti að verslunarmenn í VR sem ekki höfðu farið í verkfall frá árinu 1988 sam- þykktu boðun verkfalla með hátt í 60% atkvæða og Flóabandalagið samþykkti verkfallsboð- unina með um 94% atkvæða. Áður en kom til þessara allsherjarvinnu- stöðvana undir lok maí, sem hefðu lamað at- vinnugreinar um allt land, komst hreyfing á samningaviðræður á almenna vinnumark- aðinum og 15. maí ákvað SGS að fresta boðuðu verkfalli um nokkra daga. En enn á ný sigldu viðræður í strand þegar upp úr slitnaði á milli SA og VR og Flóabandalagsins 19. maí. „SA hafa verið tilbúin að koma til móts við kröfur verkslýðsfélaganna um verulega hækkun lægstu launa og umtalsverða hækkun dag- vinnulauna fyrir þriggja ára samning, eða sem nemur um 24% hækkun. Þessu boði höfnuðu verkslýðsfélögin án þess að leggja fram nokkr- ar raunhæfar lausnir um nýjan kjarasamning,“ sagði í tilkynningu sem SA sendu frá sér sama kvöld. Kröfur voru gerðar á stjórnvöld um aðgerðir til lausnar kjaradeilunum, einkum um aðgerðir í húsnæðismálum, aðgerðir til að styrkja stöðu leigjenda o.fl. og eftir nokkrar tilraunir til að þoka málum áfram í Karphúsinu náðist sam- komulag 25. maí um að fresta fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum sem hefjast áttu 28. maí um fimm sólarhringa. Þá fóru hjólin að snúast við samningaborðin og 26. maí lágu fyrir megin- áherslur í drögum að nýjum kjarasamningi til þriggja ára. Skrifað undir á elleftu stundu SGS, Flóafélögin, VR, LÍV og Stéttarfélag Vesturlands skrifuðu undir nýja kjarasamninga 29. maí og þar með var verkfallsaðgerðum af- stýrt. Iðnaðarmenn sömdu svo í seinni hluta júní. ,,Þessir samningar náðu til um 70 þúsund félagsmanna á almennum markaði og með samningum iðnaðarmanna sem undirritaðir voru þann 22. júní bættust um 18 þúsund fé- lagsmenn á almennum markaði við þá sem sam- ið höfðu og var á þeim tímapunkti samið fyrir um 90% almenna markaðarins og samningstím- inn til ársloka 2018,“ segir í samantekt í árs- skýrslu ríkissáttasemjara fyrir árið 2015. Hver var svo afraksturinn þegar upp var staðið? Í nýju kjarasamningunum var m.a. sam- ið um 25 þúsund kr. hækkun kauptaxta og 7,2% grunnhækkun launa við gildistöku samninga fyrir þá sem voru með 300 þúsund kr. eða lægri laun. Hækkanir annarra fóru stiglækkandi eftir því sem ofar dró í launastiganum. Þá var samið um áfangahækkanir á samningstímanum og að lágmarkstekjutrygging launafólks ætti að ná 300 þúsund kr. á árinu 2018. Ríkið lofaði m.a. breytingum á tekjuskatti með fækkun skatt- þrepa í tvö í tveimur áföngum og að lægra skattþrepið færi niður í 22,50% og persónu- afsláttur hækkaði til samræmis við verðlag. Skattalækkanirnar áttu að kosta 9 til 11 millj- arða kr. Einnig var lofað aðgerðum í húsnæðis- málum, stuðningi við leigjendur og stuðningi til kaupa á fyrstu íbúð, jöfnun örorkubyrði lífeyr- issjóða og lofað var niðurfellingu tolla á fatnað og skó svo dæmi séu nefnd. Hagdeild ASÍ hefur metið kostnað við þessa kjarasamninga sem sýnir að í SGS-samning- unum nam uppsöfnuð hækkun á árunum 2015 til 2018 21,24% og kostnaður við samninga iðn- aðarmanna var 17,59%. 21 verkfall yfir allt árið ,,Árið 2015 var átakaár á íslenskum vinnu- markaði, eins og reyndar árin tvö þar á undan,“ skrifaði Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemj- ari í ársskýrslu sinni fyrir þetta ár. Vinnudeilur á bæði almennum og opinberum markaði settu sannarlega mark sitt á allt árið. Alls voru gerðir 229 kjarasamningar hjá rík- issáttasemjara á árinu 2015. 60 sáttamál komu til kasta embættisins. Alls voru boðaðar 43 vinnustöðvanir á árinu og komu 29% þeirra til framkvæmda eða 21 verkfall. Römbuðu á brún allsherjarverkfalla  Árið 2015 var mikið átakaár á vinnumarkaði  Verkalýðsfélög í ASÍ boðuðu verkfallshrinur um vorið og í sumarbyrjun  Stefndi í vinnustöðvanir sem áttu að ná til yfir 70 þúsund launþega Morgunblaðið/Árni Sæberg 1. maí 2015 Kröfuganga á baráttudegi verkafólks í miðjum kjaradeilum og boðuðum átökum. Átakaár Verkfalls- fréttir á forsíðum Morgun- blaðsins. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is VWGOLF GTE DSG nýskr. 05/2017, ekinn 10 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Sportsæti, snertiskjár, panorama o.fl. Verð 4.650.000 kr. Raðnúmer 259068 LR RANGE ROVER EVOQUE SE DYNAMIC ýskr. 06/2017, ekinn 16 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Glæsilegur bíll! Verð 6.990.000 kr. Raðnúmer 259145 ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI BMW225XE IPERFORMANCE nýskr. 02/2017, ekinn 12 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn (X-drive). Tilboðsverð 3.990.000 kr. Raðnúmer 259005 PORSCHE CAYENNEDIESEL nýskr. 05/2014, ekinn 82 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Flott eintak! Verð 7.390.000. Raðnúmer 258002 M.BENZ GLS 350 D 4MATIC AMG nýskr. 05/2017, ekinn 25 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, hlaðinn aukabúnaði! Verð 15.555.000 kr. Raðnúmer 259205 Bílafjármögnun Landsbankans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.