Morgunblaðið - 12.03.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019
Birting viðkvæmra persónuupplýsinga
og upplýsinga um félagsleg vandamál í
skýrslu á vef Stjórnarráðs Íslands,
sem var á ábyrgð velferðarráðuneyt-
isins, samrýmdist ekki lögum um per-
sónuvernd og vinnslu persónuupplýs-
inga, að því er segir í nýrri ákvörðun
Persónuverndar. Um var að ræða birt-
ingu skýrslu á vef Stjórnarráðsins um
úttekt á málsmeðferð og efnislegri at-
hugun velferðarráðuneytisins í kjölfar
kvartana tiltekinna barnaverndar-
nefnda vegna Barnarverndarstofu og
forstjóra hennar. Voru persónugrein-
anlegar upplýsingar í skýrslunni eins
og hún var birt á vef Stjórnarráðsins
að því er segir í greinargerð Persónu-
verndar sem tók málið til athugunar að
eigin frumkvæði.
Í niðurstöðu Persónuverndar segir
að þótt fallist verði á að birting
skýrslna sem feli í sér úttekt á störf-
um opinberra stjórnvalda geti verið
til hagsmuna fyrir almenning þurfi að
gæta að því hvaða persónuupplýsing-
ar rétt sé að afmá áður en slíkar
skýrslur séu birtar. ,,Þrátt fyrir að
upplýsingar um meðferð barnavernd-
armála eigi erindi við almenning þá
víki það ekki til hliðar rétti einstak-
linga, sem upplýsingarnar varða, til
verndar samkvæmt persónuverndar-
lögum,“ segir þar.
Beinir Persónuvernd þeim fyrir-
mælum til velferðarráðuneytisins ,,að
það hugi að því framvegis að fyllstu
varfærni sé gætt við vinnslu persónu-
upplýsinga þegar til stendur að birta
eða veita almenningi með öðrum
hætti aðgang að gögnum og að tryggt
verði að í þeim séu ekki upplýsingar
sem unnt sé að nota, beint eða óbeint,
til þess að auðkenna einstaklinga þeg-
ar umfjöllun um þá felur jafnframt í
sér viðkvæmar persónuupplýsingar
um þá eða upplýsingar um félagsleg
vandamál þeirra.“
Birti viðkvæmar
upplýsingar
Samrýmdist ekki persónuverndarlögum
Morgunblaðið/Eggert
Ráðuneyti Skýrslan var birt á vef
Stjórnarráðsins en síðar fjarlægð.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Viðlega smábáta í útgerð frá Reykja-
vík verður færð yfir í Vesturbugt og
verður hafist handa við nauðsynlegar
breytingar næsta haust eða vetur,
samkvæmt upplýsingum Gísla Gísla-
sonar, hafnarstjóra. Á fundi stjórnar
Faxaflóahafna á föstudag var hafn-
arstjóra falið að ræða við fulltrúa
smábátaeigenda um aðgerðir til að
efla útgerð smábáta frá Reykjavík og
Akranesi. Á síðasta ári var aðeins um
500 tonnum landað úr smábátum í
Reykjavík, en nálægt þúsund tonn-
um á Akranesi.
Nú hafa bátar í útgerð einkum að-
stöðu í Suðurbugt, Norðurbugt og á
Verbúðarbryggju í Reykjavík og þá
einkum við bryggju næst Ægisgarði í
Suðurbugt. Fyrirhugað er að færa
bryggjuna úr Suðurbugt í Vestur-
bugt á milli Slippsins og Sjóm-
injasagnsins, en samhliða þarf að
ráðast í ýmsar aðrar framkvæmdir.
Gísli segir að fyrirhugaðar bygginga-
framkvæmdir í Vesturbugtinni eigi
ekki að trufla útgerðina ef vel verði
að málum staðið.
Nýliðun sífellt erfiðari
Lítil þátttaka var í þjónustukönn-
un Faxaflóahafna varðandi aðstöðu
smábátaútgerða,sem kynnt var á
föstudag. Alls tók 21 smábátaeigandi
í Reykjavík og á Akranesi þátt, en
spurningalistinn var sendur á 53
smábátaeigendur. Rúmlega 61%
svarenda í Reykjavík var jákvætt
gagnvart flutningi aðstöðunnar í
Vesturbugt.
Í niðurstöðum segir meðal annars:
„Útgerð smábáta hefur átt undir
högg að sækja síðustu ár þar sem ný-
liðun í þessari útgerð verður sífellt
erfiðari. Endurnýjun innan stétt-
arinnar virðist hæg og því vert að
halda utan um þessa útgerð með alúð
þar sem um langa atvinnuhefð og
menningu er að ræða.“ Gísli hafn-
arstjóri hyggst ræða við forsvars-
menn smábátaeigenda fljótlega og
heyra skoðanir þeirra á því hvað sé
til ráða í því skyni að sporna við frek-
ari fækkun.
Fram kemur í niðurstöðunum að
með flutningi í Vesturbugt væri
hægt að skapa farsæla lausn fyrir
smábátaeigendur til að selja fisk
beint úr báti, en 76% svarenda sögð-
ust geta hugsað sér slíkt fyrirkomu-
lag. Hins vegar sögðust 23,8 % ekki
geta hugsað sér að selja beint frá
báti.
Óánægja með umferðina
Flestir svarendur í Reykjavík
töldu umferðarmálum og umferð-
artengingum á hafnarsvæðinu vera
ábótavant. Af þeim smábátaeigend-
um í borginni sem svöruðu þjónustu-
könnuninni fannst 42,9 % þessir
þættir mjög slæmir, 21,4 % fannst
þeir slæmir, 21,4 % voru hlutlaus, en
14,3% smábátaeigenda fannst þetta
vera í góðu lagi.
Af þeim smábátaeigendum sem
svöruðu þjónustukönnuninni fannst
95,2 % nauðsynlegt að á staðnum
væru bílastæði fyrir smábátaeigend-
ur til að geyma bíla meðan þeir væru
í róðri.
Viðlega smábáta í Reykjavík
verður flutt í Vesturbugtina
Á síðasta ári var aðeins um 500 tonnum landað úr smábátum í borginni
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavíkurhöfn Sameina á viðlegu og útgerð smábáta í Vesturbugtinni milli Slippsins og Sjóminjasafnsins.
Á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda er fjallað um könnun Faxa-
flóahafna. Segir þar að framtakið sé jákvætt og gott væri ef fleiri hafnir
færu að fordæmi Faxaflóahafna og gerðu slíka könnun meðal sinna not-
enda.
„Ljóst er að í allt of mörgum sveitarfélögum þarf að grípa til aðgerða ef
viðhalda á smábátaútgerð. Aðstöðuleysi og aðþrenging annarrar starf-
semi á við í sumum höfnum og úr því er hægt að bæta sé vilji til,“ segir á
heimasíðunni. Þar er því jafnframt fagnað að hafnarstjóra hafi verið falið
að ræða við fulltrúa smábátaeigenda um aðgerðir til að efla smábátaút-
gerð frá Reykjavík og Akranesi.
Víða þarf að grípa til aðgerða
GOTT EF FLEIRI FÆRU AÐ FORDÆMI FAXAFLÓAHAFNA
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Regnkápur
Kr. 10.900
Str: S-XXL
3 litir: Gult, rautt, grænt
Lík fannst á bökkum Ölfusár við
Arnarbæli í Ölfusi um hádegisbil á
sunnudaginn var. Göngumaður sem
var þarna á ferð gekk fram á líkið
og tilkynnti lögreglunni á Suður-
landi um það um klukkan 13.00.
Talið er að líkið sé af Ríkharði
Péturssyni, sem var fæddur 3. apríl
1969. Hans hefur verið saknað frá
því 23. janúar 2018 að hann fór af
heimili sínu á Selfossi, að því er seg-
ir í tilkynningu lögreglunnar á Suð-
urlandi. Leit að honum bar ekki ár-
angur á sínum tíma.
Rannsóknardeild lögreglunnar á
Suðurlandi, tæknideild lögreglu
höfuðborgarsvæðisins og kennsla-
nefnd ríkislögreglustjóra rannsaka
málið. gudni@mbl.is
Lík fannst á bökkum
Ölfusár við Arnar-
bæli á sunnudag