Morgunblaðið - 12.03.2019, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Laxabakki er kominn á heljarþröm
og ekki má tæpara standa með
endurgerð hússins,“ segir Hannes
Lárusson myndlistarmaður. Sögu-
sviðið er gamall tveggja bursta torf-
bær við Sogið í Grímsnesi, örskammt
neðan við brúna við Þrastarlund.
Bygging þessi var reist árið 1942 af
Ósvaldi Knudsen málara og kvik-
myndagerðarmanni og var veiðihús
hans og sumarbústaður. Ósvaldur,
sem þekktur var fyrir kvikmyndir
sínar meðal annars af íslenskum eld-
gosum, lést árið 1975 og komst húsið
þá í eigu afkomenda hans sem nýttu
það mikið fram undir aldamót.
Hirðuleysið stingur í augu
Í skuldaskilum árið 2004 komst
Laxabakki í eigu Lögheimtunnar í
Reykjavík og eftir það hefur lítið sem
ekkert verið sinnt um bygginguna.
Óhætt er að segja að hirðuleysið hafi
stungið marga í augu, enda þykir
byggingin stílhrein og falleg, þar sem
hún blasir við fólki handan Sogsins
þegar ekið er við austanvert Ingólfs-
fjall.
Hannes Lárusson stendur að
menningarsetrinu Íslenska bænum
að Meðalholtum í Flóa. Þar er lögð
áhersla á að kynna menningu viðvíkj-
andi torfbæjum sem voru allsráðandi
hér á landi nokkuð fram á 20. öldina.
Gamall torfbær er í Meðalholtum og
fyrir um ári síðan eignaðist Hannes,
undir merkjum stofnunar sinnar,
sjálfan Laxabakka og stefnir að
endurgerð byggingarinnar. Málið er
hins vegar í blindgötu eins og sakir
standa.
Ágreiningur tefur
„Spildur hér á svæðinu í kring eru
í eigu Landverndar og Héraðs-
nefndar Árnesinga og hafa fulltrúar
þeirra samtaka gert ágreining um
lóðamörk. Þau eru hins vegar, að
mínu mati og fleiri, alveg skýr,“ segir
Hannes. „Búið að teikna lóðina skv.
fyrirliggjandi pappírum auk þess
sem hér liggja leifar af gamalli girð-
ingu sem liggur á landamæralínunni.
Stífni þessara nágranna okkar hefur
komið í veg fyrir að hægt sé að skrifa
undir lóðablöð eða gefa út fram-
kvæmdaleyfi vegna endurbyggingar
Laxabakka. Ég hef þó ástæðu til að
ætla að samkomulag geti náðst innan
tíðar sem er mjög brýnt. Hér þyrfti
að hefjast handa strax á morgun ef
bjarga á húsinu.“
Gerður var út könnunarleiðangur
að Laxabakka síðastliðinn laugardag,
í kjölfar ráðstefnu um bygginguna og
sögu hennar sem haldin var í Meðal-
holtum.
„Bygging þessi er merkileg í
mörgu tilliti og höfundareinkenni og
handbragð Ósvaldar er mjög skýrt,
enda hefur það vakið eftirtekt
margra,“ segir Hannes. Tiltekur
hann þar meðal annars að á sínum
tíma hafi Alvar Alto, hinn heimsfrægi
arkitekt sem meðal annars teiknaði
Norræna húsið, komið að Laxabakka
árið 1969 og lýst húsinu sem því feg-
ursta á Íslandi. Því réði hve vel bygg-
ingin félli inn í landslagið þarna; í
kjarrskógi við lygna ána.
Í dag er Laxabakki opinn fyrir
veðri og vindum og feyskinn suð-
urgafl hússins er hruninn. Þá eru
hlaðnir grjótveggir að hruni komnir,
rúður brotnar og svo framvegis. Allt
þetta má þó laga og gera bygginguna
aftur upprunalega, segir Hannes sem
áformar að reisa, skammt frá, þjón-
ustuskála, það er menningar- og
fræðslusetur. Byggingin yrði eftir at-
vikum dvalarstaður með áherslu á
minjavernd, náttúrvernd, vistvæna
byggingarlist og arfleifð íslenska
torfbæjarins.
Samruni náttúru og menningar
„Þetta er merkileg húsagerðarlist
og samruni náttúru og menningar.
Íslensku torfbæirnir voru vistvænar
byggingar eins og nú er mikill áhugi
fyrir að reisa, með tilliti til umhverf-
ismála. Mér finnst þetta segja okkur
að mikið sé í húfi. Laxabakka verður
að bjarga,“ segir Hannes Lárusson.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Húsakönnun Hannes Lárusson á bökkum Sogsins og í baksýn er hið formfagra hús sem hann hyggst endurgera.
Laxabakka
verði bjargað
Fegursta húsið á Íslandi að falli
komið Nýr eigandi vill endurgerð
Laxabakki Timburveggirnir feysknir og torf sígur niður bárujárnsþakið.
Héraðsdómur Suðurlands hefur hafn-
að kröfum Arcanum ferðaþjónustu
ehf. og tíu landeigenda við Sólheima-
sand um að fella úr gildi synjun sýslu-
manns á lögbannsbeiðni og leggja á
lögbann vegna skipulagðra hjólaferða
sem ferðaskrifstofan Tröllaferðir var
með á sandinum að flugvélarflakinu
sem þar er að finna.
Flugvélarflakið er vinsæll áfanga-
staður ferðamanna og lét Vegagerðin
útbúa bílaplan við þjóðveginn vegna
mikils fjölda ferðamanna sem vildu
stoppa þar og fara að flakinu. Þangað
liggur 7 kílómetra langur vegur, en
vegna ágangs lokuðu landeigendur
honum fyrir umferð bíla. Arcanum
rekur ferðaþjónustu og eru meðal
annars skipulagðar fjórhjólaferðir um
veginn niður að flugvélarflakinu.
Tröllaferðir hófu svo að fara þangað á
hjólum, eða nánar tiltekið svokölluð-
um „fat bike“-hjólum sem eru með
breiðari dekk en eru á hefðbundnum
reiðhjólum.
Arcanum og landeigendur töldu að
með þessu væri verið að fara út fyrir
almannarétt sem heimilar fólki för um
land án sérstaks leyfis landeiganda, ef
ekki er farið á vélknúnum ökutækj-
um. Vísað var til kurteisisreglu um að
skipuleggjendur ferða ættu að hafa
samráð við landeiganda. Dómurinn
taldi ljóst að sandurinn fyrir sunnan
þjóðveg, þar sem flakið er að finna,
væri ekki í byggð og að ekki væri séð
að umræddar ferðir gætu valdið
ónæði við nytjar.
Hafna lögbanni á
ferðir að flakinu
Kröfum eigenda og Arcanum hafnað
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sólheimasandur Flak Douglas Da-
kota-vélar er vinsæll áfangastaður.
VALFRJÁLST TILBOÐ TIL
HLUTHAFA Í HEIMAVÖLLUM
AU 3 ehf. býður hluthöfum Heimavalla að kaupa hluti þeirra í félaginu
Þann 1. febrúar 2019 tilkynnti félagið Heimavellir
hf. („Heimavellir“) að félaginu hefði borist með
bréfi beiðni um hluthafafund í félaginu frá þremur
hluthöfum félagsins, Snæbóli ehf., Gana ehf. og
Klasa ehf., sem samtals eiga 18,93% hlutafjár í
Heimavöllum. Í bréfinu er þess óskað að sett verði
fram á hluthafafundi tillaga um töku hlutabréfa
félagsins úr viðskiptum hjá NASDAQ Iceland hf.
Jafnframt var upplýst í bréfinu að samhliða beiðni
um afskráningu yrði lagt fram valfrjálst tilboð í
samræmi við ákvæði X. kafla laga um
verðbréfaviðskipti.
Nú hefur AU 3 ehf., sem er íslenskt
einkahlutafélag í stýringu Alfa Framtaks ehf., gert
valfrjálst tilboð í allt að 27% hlutafjár Heimavalla,
fyrir allt að kr. 4.000.000.000, nema félagið nýti
sér áskilnað um að auka við þann hluta sem það
býðst til að kaupa, en forsenda þess er að því
standi til boða frekari fjármögnun. Tilboðið er
byggt á skilmálum og háð þeim skilyrðum sem
sett eru fram í opinberu tilboðsyfirliti sem dagsett
er 11. mars 2019 („tilboðsyfirlitið“).
Tilboðshafar
Tilboðið nær til allra hluta í Heimavöllum.
Hluthafar sem skráðir eru í hlutaskrá Heimavalla
í byrjun dags 15. mars 2019 munu fá sent
tilboðsyfirlit, samþykkiseyðublað og
svarsendingarumslag í pósti.
Framangreind skjöl eru einnig aðgengileg hjá
Arctica Finance hf. sem er umsjónaraðili með
tilboðinu. Jafnframt er hægt að nálgast
tilboðsyfirlitið á heimasíðu Arctica Finance hf.,
(www.arctica.is) og óskað hefur verið eftir því að
það verði einnig aðgengilegt á heimasíðu
Heimavalla, (www.heimavellir.is).
Umsjónaraðili
Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance hf., kt. 540509-
1820, Katrínartúni 2 - 15. hæð, 105 Reykjavík
hefur verið ráðinn umsjónaraðili með tilboðinu
fyrir hönd tilboðsgjafa. Nánari upplýsingar veita
Stefán Þór Bjarnason, í síma 820 6362 og Jón
Þór Sigurvinsson í síma 895 9242.
Tilboðsverð og greiðsla
Verð samkvæmt tilboðinu er 1,3 krónur fyrir hvern
hlut í Heimavöllum, kvaða og veðbandslausan.
Þrátt fyrir að um valfrjálst tilboð sé að ræða er horft
til skilyrða ákvæðis 2. mgr. 103. gr. laga um
verðbréfaviðskipti og er tilboðsverðið því hærra en
það verð sem greitt hefur verið fyrir hlutabréf í
Heimavöllum frá töku hlutabréfanna til viðskipta hjá
NASDAQ Iceland. Greiðslur fyrir hluti þeirra sem
samþykkja tilboðið verða greiddar í íslenskum
krónum inn á bankareikning viðkomandi hluthafa
sem tilgreindur er á samþykkiseyðublaðinu.
Greiðsla verður innt af hendi eigi síðar en fimm
viðskiptadögum eftir að gildistími valfrjálsa
tilboðsins rennur út og öll skilyrði þess hafa verið
uppfyllt.
Gildistími
Gildistími valfrjálsa tilboðsins er sjö vikur og þrír
dagar, frá 15. mars 2019 til 6. maí 2019. Samþykki
við valfrjálsa tilboðinu verður að hafa borist
umsjónaraðila eigi síðar en kl. 16 þann 6. maí
2019. Hluthafar bera sjálfir ábyrgð á að
samþykkiseyðublaðið hafi borist. Tilboðsgjafi
áskilur sér einhliða rétt til að ákveða hvort
samþykkiseyðublöð sem berast eftir að gildistími
tilboðsins rennur út verði tekin gild. Valfrjálsa
tilboðið kann að verða framlengt, eftir því sem
heimilt er samkvæmt lögum.
Taka úr viðskiptum
Tilboð tilboðsgjafa er háð því skilyrði að
afskráning hlutabréfa félagins úr viðskiptum hjá
NASDAQ Iceland hf. verði samþykkt. Í því felst
annars vegar a.m.k. 50% þeirra atkvæða sem
mætt er fyrir á hluthafafundi Heimavalla, greiða
atkvæði með því að óska eftir afskráningu
hlutabréfa félagsins. Hins vegar að NASDAQ
Iceland fallist á beiðni um afskráningu, sem komi
til framkvæmda sama dag og tilboðsfrestur rennur
út, enda hafi tilboðsgjafi þá staðfest gagnvart
NASDAQ Iceland að ekki hafi borist samþykki frá
hluthöfum umfram það hámark sem tilboðsgjafi
býðst til að kaupa.
Í tilboðsyfirliti þessu felst ekki ráðgjöf af hálfu
tilboðsgjafa og Arctica Finance hf. og er
tilboðshöfum bent á að leita sér viðeigandi
ráðgjafar.