Morgunblaðið - 12.03.2019, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019
Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda.
5-8 manneskjur
19.500 kr.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
Verð aðra leið:
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2012
-2017
Kerruöxlar og íhlutir
ALLT TIL
KERRUSMÍÐA
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Umhverfisstofnun telur ekki for-
svaranlegt að opna fyrir umferð á
svæðinu við Fjaðrárgljúfur í Skaft-
árhreppi að svo stöddu. Þá hefur
Umhverfisstofnun framlengt lokun á
Skógaheiði meðfram Skógaá ofan
við Fosstorfufoss. Á báðum svæðum
er miðað við lokun til 1. júní vegna
verulegrar hættu á tjóni. Ef að-
stæður leyfi verði svæðin opnuð
fyrr.
Gönguslóða meðfram Fjaðrár-
gljúfri var lokað 27. febrúar og út-
tekt var aftur gerð á svæðinu á
sunnudag. „Þó ástandið versni ekki
á meðan frost er á svæðinu þá má
búast við leysingum á svæðinu á
næstu dögum. Að hafa svæðið lokað
áfram er því einnig fyrirbyggjandi
aðgerð til að koma í veg fyrir frekari
skemmdir,“ segir á heimasíðu Um-
hverfisstofnunar.
Miðað er við að framlenging lok-
unar geti tekið gildi klukkan níu í
fyrramálið, en óskað er eftir um-
sögnum og samráði fyrir kl. 10 f.h. í
dag.
Lokun gönguslóða á Skógaheiði
var tekin 23. febrúar eftir að starfs-
maður Umhverfisstofnunar gerði út-
tekt á svæðinu. Viðkomandi göngu-
slóði og umhverfi hans reyndust afar
illa farin vegna mikils fjölda gesta á
svæðinu samhliða veðrabreytingum,
hlýindum og mikilli vætu, segir á vef
Umhverfisstofnunar. Lokunin var
bæði af öryggisástæðum og til að
vernda gróður og landslag umhverf-
is gönguslóðann.
Loka vinsælum gönguleiðum
Ljósmynd/Umhverfisstofnun
Við Fjaðrárgljúfur Ekki er talið forsvaranlegt að hafa opið fyrir umferð.
Veruleg hætta á tjóni við Fjaðrárgljúfur og á Skógaheiði
Valdimar Öss-
urarson, formað-
ur Samtaka
frumkvöðla og
hugvitsmanna,
segist ósáttur við
ákvörðun Ásbrú
fasteigna ehf. að
segja upp leigu-
samningum við
allra frumkvöðla
sem voru með að-
setur í Eldey, frumkvöðlasetri á
Ásbrú. Hann sakar stjórnvöld um að
svíkja „öll sín fyrirheit við þá hug-
vitsmenn og frumkvöðla sem lofað
var við opnun Eldeyjar, þegar frum-
kvöðlum var heitið aðstöðu á hóflegu
leiguverði til að vinna að nýsköpun í
þágu þjóðarhags.“
Málið nær aftur til 2006 þegar ís-
lenska ríkið tók við eignum sem
bandaríski herinn skildi eftir þegar
hann hvarf af landi brott. Stofnað
var Þróunarfélag Keflavíkur-
flugvallar sem síðar hlaut nafngift-
ina Kadeco, en því var falið að fara
með þessar eignir ríkisins og koma
þeim í sölu. Árið 2008 var gerður
samningur til þriggja ára milli fé-
lagsins og Keilis, Nýsköpunarmið-
stöðvar Íslands og Háskóla Íslands
um uppbyggingu og rekstur frum-
kvöðla- og orkuseturs á Ásbrú og
var setrinu komið fyrir í byggingu
sem nefnd var Eldey.
Í desember árið 2016 seldi Kadeco
um 80 þúsund fermetra til fjárfesta.
„Maður hafði ekki miklar áhyggjur
af því þar sem leigan hækkaði nú
eiginlega ekkert, þannig að maður
hélt að þetta verkefni myndi halda
áfram,“ segir hann. „Frumkvöðlar
treystu því að stjórnvöld stæðu við
sín fyrirheit um nýtingu þessarar
þjóðareignar,“ bætir hann við.
Nú hafi hinsvegar komið í ljós að
þeir sem keyptu síðan eignirnar í
nóvember 2017 hafi ákveðið að segja
upp öllum leigusamningum við
frumkvöðlana í Eldey, að sögn
Valdimars. Hann vísar til þess að í
september síðastliðinn hafi leigj-
endum verið tilkynnt að þeir þyrftu
að yfirgefa húnæðið innan nokkurra
mánaða. Þá segir hann þessa
ákvörðun nýrra eigenda vera í and-
stöðu við stefnu stjórnvalda um að
efla frumkvöðlastarfsemi.
gso@mbl.is
Segir frumkvöðla
svikna á Ásbrú
Frumkvöðlasetrið í Eldey lagt af
Valdimar
Össurarson
Til stendur að hefja framkvæmdir
við sýningarskála og geymslu við Ár-
bæjarsafn sem mun hýsa götuvalt-
arann Bríeti og eimreiðina Pionér.
Áætlað er að framkvæmdir við
skemmuna geti hafist í maí en einnig
er áætlað að ljúka uppsetningu á
vatnsúðakerfum í geymsluskemmum
Árbæjarsafns og fleiru á þessu ári.
Kostnaðaráætlun við þessi verk er
114,8 milljónir króna, þar af 75 millj-
ónir króna fyrir sýningarskálann og
umhverfi hans, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Gufuvaltarinn Bríet var smíðaður í
Englandi og fluttur til Íslands 1912.
Þá hafði bæjarstjórn Reykjavíkur
samþykkt að kaupa valtara til gatna-
gerðar en göturnar í bænum þóttu þá
býsna holóttar og nauðsynlegt að
slétta og þjappa. Valtarinn var fljót-
lega nefndur Bríet og stundum
Knútsdóttir en nöfnin vísuðu til
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og Knud
Zimsen, bæjarfulltrúanna sem höfðu
talað mjög fyrir því að fá hann keypt-
an, segir í tilkynningunni. Valtarinn
var fluttur á Árbæjarsafn 1961.
Eimreiðin Pionér kom hins vegar
frá Þýskalandi 1913 þar sem hún
hafði verið smíðuð 1892. Hún kom í
samfloti með eimreiðinni Minör og
voru þessar tvær eimreiðar notaðar
til að flytja grjót frá Öskjuhlíð í hafn-
argarðana við Ingólfsgarð (Batt-
eríið), Grandagarð, Norðurgarð og í
Örfirisey. Verkinu lauk 1917. Pionér
hefur verið í vörslu Árbæjarsafns frá
1975 en Minör er í eigu Faxaflóa-
hafna og er jafnan til sýnis á Mið-
bakka gömlu hafnarinnar á sumrin.
aij@mbl.is
75 milljónir í skála
fyrir Bríeti og Pionér
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Bríet Gufuvaltarinn að störfum í Pósthússtræti við Austurvöll.