Morgunblaðið - 12.03.2019, Page 16

Morgunblaðið - 12.03.2019, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019 12. mars 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.31 121.89 121.6 Sterlingspund 158.73 159.51 159.12 Kanadadalur 90.11 90.63 90.37 Dönsk króna 18.231 18.337 18.284 Norsk króna 13.805 13.887 13.846 Sænsk króna 12.82 12.896 12.858 Svissn. franki 120.1 120.78 120.44 Japanskt jen 1.0907 1.0971 1.0939 SDR 168.18 169.18 168.68 Evra 136.02 136.78 136.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.5464 Hrávöruverð Gull 1294.1 ($/únsa) Ál 1846.0 ($/tonn) LME Hráolía 66.08 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Hlutur launafólks í verðmætasköpun hótela sem yfirstandandi verkföll ná yfir var 76% árið 2017. Þetta kemur fram á vefsíðu Viðskiptaráðs Íslands. Segir þar að á sama tímabili hafi hlutdeild rekstr- arhagnaðar dregist saman sem því nem- ur og því hafi uppgangur í ferðaþjónustu að meirihluta til runnið til starfsfólks fremur en eigenda. Launakostnaður launþega hækkaði að raunvirði um 28% á árunum 2014-2017 hjá þeim hótelum þar sem nú standa verkföll yfir. „Sú hækkun endurspeglar að langmestu leyti aukningu kaupmáttar launa.“ Segir einnig að kaupmáttur launa í gisti- og veitingarekstri hafi hækkað frá árinu 2008 um 18% eða meira en í nokkrum öðrum atvinnugreinahópi. Frá árinu 2014 nemur hækkunin 23% og er einungis meiri á meðal opinberra starfsmanna. Um 23% hagnaðar hótelanna sem verk- föllin ná yfir hefur verið greiddur út sem arður frá 2010 til 2017. Afgangurinn hef- ur verið endurfjárfestur í uppbyggingu þeirra. Raunvirði launakostn- aðar hækkað um 28% STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Ljóst var strax við opnun markaða í gær eftir hið mannskæða flugslys í Eþíópíu, þar sem ný Boeing 737 MAX 8-vél fórst og með henni 157 manns, að traust í garð hinnar nýju vélartegundar úr verksmiðjum Bo- eing er lítið. Raunar gáfu utanþings- viðskipti með bréf Boeing, áður en markaðir opnuðu vestanhafs til kynna að félagið ætti í vök að verjast í kjölfar þess að önnur vélin af fyrr- nefndri tegund ferst á fimm mánaða tímabili. Við opnun markaða nam lækkunin um 12% og er það mesta lækkun sem félagið hefur horft upp á frá því að hryðjuverkaárásir voru gerðar á Bandaríkin 11. september 2001. Eftir því sem leið á daginn náði markaðurinn þó meira jafnvægi og nam lækkun við lok viðskipta í Kaup- höllinni í New York (NYSE) ríflega 5%. Í viðskiptunum þurrkaðist því jafnvirði tæplega 1.500 milljarða króna af markaðsvirði félagsins út. Icelandair tekur á sig högg Verri útreið fengu hlutabréf Ice- landair Group en félagið tapaði tæp- lega 10% af markaðsvirði sínu í Kauphöllinni í gær í viðskiptum sem námu 306 milljónum króna. Inn í þá verðþróun kann þó, auk slyssins í Eþíópíu, að spila tilkynning sem barst í gegnum Kauphöllina í Stokk- hólmi á laugardag þess efnis að bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Indigo Partners hygðist leggja allt að 90 milljónir dollara inn í rekstur WOW air og að nú lægi fyrir tillaga þess efnis að skuldabréfaeigendur að síðarnefnda félagið gæfu eftir 50% af 50 milljóna höfuðstól skuldabréfaút- gáfunnar. Stækkandi MAX-floti Icelandair Group hefur í rekstri þrjár Boeing 737 MAX vélar. Eru þær hluti af mun stærri flugvéla- pöntun sem félagið gerði árið 2012 og felst í kaupum á níu 737 MAX 8- vélum og sjö 737 MAX 9-vélum. Þannig komast 3 MAX 8-vélar í flug- flotan í ár til viðbótar við þær þrjár sem fyrir eru, tvær á næsta ári og ein árið 2021. Opinbert listaverð fyr- ir Boeing 737 MAX 8-vél er 121,6 milljónir dollara, jafnvirði 14,7 millj- arða króna. Icelandair mun þó, líkt og önnur flugfélög, hafa fengið veru- legan afslátt af listaverði við kaupin. Í lok janúar síðastliðins höfðu flug- félög og fjármögnunarfyrirtæki lagt inn pantanir fyrir 5.100 vélum af Bo- eing 737 MAX-gerðinni og hafði Bo- eing þá afhent 350 slíkar vélar úr Renton-verksmiðjunni í Seattle í Bandaríkjunum. MAX 8-vélarnar geta borið allt að 210 farþega en vélarnar sem Ice- landair hefur í rekstri sínum eru búnar 160 sætum fyrir farþega. Fólk hræðist vélarnar Viðskiptavinur sem á flug nú í vik- unni með vél Icelandair af gerðinni Boeing MAX 8 óskaði eftir því að fá miðanum breytt yfir á flug þar sem notast væri við vélar af annarri gerð. Félagið gat ekki orðið við þeirri beiðni en féllst á að endurgreiða mið- ann þótt um hafi verið að ræða óendurgreiðanlegt fargjald á svo- kölluðu „economy light“-fargjaldi. Viðbrögð fólks á samfélagsmiðlum í kjölfar flugslyssins í Eþíópíu hafa verið nokkuð sterk og hafa mörg flugfélög brugðist við með því að undirstrika traust þeirra á MAX-vél- unum. Forstjórinn hefur ekki áhyggjur af vélunum Í samtali við mbl.is í gær sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice- landair Group að miðað við fyrir- liggjandi upplýsingar væri engin ástæða til að að hafa áhyggjur af þot- um félagsins. Fleiri félög brugðust einnig við. Þannig hefur t.d. bandaríska flug- félagið Southwest Airlines, sem er með fleiri vélar af þessari tegund í pöntun en nokkuð annað flugfélag í heiminum, undirstrikað þá afstöðu kirfilega: „Við erum áfram sannfærð um öryggi flotans okkar sem hefur á að skipa yfir 750 Boeing-vélum og hefur á þessum tímapunkti flota af 34 Boeing 737 MAX 8-vélum í okkar eigu,“ sagði á Twitter-síðu félagsins. Í gær greindi fréttaveitan Bloom- berg frá því að viðskiptavinur South- west Airlines hefði óskað eftir því að fá ferð sinni breytt með félaginu svo hann gæti komist hjá því að ferðast með Boeing 737 MAX-vél. Félagið brást við og án þess að til kostnaðar kæmi fyrir viðskiptavininn. „Mann- eskjan sem ég er að ferðast með hafði samband fimm mínútum síðar í sömu erindagjörðum og þeir gátu ekki orðið við beiðni um breytingar,“ sagði viðkomandi viðskiptavinur So- uthwest Airlines. Á vefsíðunni http://flightstats.com er mögulegt að sjá með nokkurri vissu hvers konar flugvélartegund er skráð á hvert flugnúmer hverju sinni. Flugslysið í Eþíópíu skekur flugmarkaði um allan heim  Boeing lækkaði um 5,33% í viðskiptum í gær  Icelandair lækkaði um 9,66% Boeing 737 MAX 8 839 km/klst. fl ughraði Vænghaf: 35,9 m Lengd: 39,52 m 210 sæti að hámarki,algengur sæta- fjöldi er 162 til 178Hreyfl ar: 2x CFM Inter- national LEAP-1B Heimild: Boeing 5.011 vélar* hafa verið pantaðarog þar af hafa 350 vélar veriðafhentar 6.570 km drægni *Heildarfjöldi MAX 7, 8, 9 og 10 Icelandair Group hefur tekið lán að fjárhæð 80 milljónir dollara, jafn- virði 9,7 milljarða króna, hjá inn- lendri lánastofnun samkvæmt til- kynningu frá félaginu sem send var í gegnum Kauphöll Íslands eftir lokun markaða í gær. Heimildir Morgun- blaðsins herma að lánastofnunin sem um ræðir sé Landsbankinn. Í tilkynningunni kemur fram að lánið sé tekið til fimm ára og að gert sé ráð fyrir að andvirði þess verði nýtt sem hlutagreiðsla inn á útgefin skuldabréf félagsins. Þá er lánið veitt með veði í 10 Bo- eing 757-vélum félagsins. Félagið er í dag með 25 Boeing 757-200-vélar (184 sæti) í rekstri og tvær 757-300- vélar (225 sæti). Vélarnar eru komn- ar til ára sinna en framleiðslu þeirra var hætt árið 2004. Icelandair hefur á undanförnum árum unnið að því að endurnýja flota sinn með það að markmiði að losa 757-vélarnar smátt og smátt út. Það hefur m.a. verið gert með kaupum á sextán 737 MAX- vélum. Þá greindi ViðskiptaMogginn frá því fyrir skemmstu að nú standi yfir viðræður við Boeing og Airbus um næstu skref í flotaendurnýjun fé- lagsins. Niðurstaða mun komast í þau mál á þriðja fjórðungi þessa árs. Lántakan að þessu sinni er hluti af viðbrögðum Icelandair Group við þeirri stöðu sem upp kom á síðari hluta árs 2018 þegar versnandi rekstrarniðurstaða félagsins leiddi til þess að það stóðst ekki lengur skilmála sem settir höfðu verið í um- fangsmikilli skuldabréfaútgáfu fé- lagsins 2016 og 2017. Eftir samningaviðræður við skuldabréfaeigendur varð úr að fé- lagið samþykkti að kaupa skulda- bréfin til baka á tilgreindum kjörum. Skuldabréfaflokkurinn var að fjár- hæð 190 milljónir dollara, jafnvirði 23 milljarða króna. ses@mbl.is Icelandair slær 10 milljarða lán  Landsbanki lánar með veði í 10 vélum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Floti Icelandair er með 27 Boeing 757 vélar í rekstri um þessar mundir. Er bíllinn tilbúinn fyrir vetrarkuldann? TUDOR er hannaður til þess að þola það álag sem kaldar nætur skapa. Forðastu óvæntar uppákomur. Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mælum og skiptum. - Traust og fagleg þjónusta alla leið. Veldu öruggt start með TUDOR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.