Morgunblaðið - 12.03.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.03.2019, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Báðir flugritar Boeing-farþegaþot- unnar sem hrapaði í Eþíópíu í fyrra- dag fundust í gær. Flugfélagið Ethi- opian Airlines, sem og samgönguyfirvöld í Kína og Indóne- síu, kyrrsettu í gær allar vélar af sömu gerð, Boeing 737 Max 8. Þetta er í annað sinn á hálfu ári sem flug- vél þeirrar gerðar hrapar stuttu eft- ir flugtak, en flugvél Lion Air hrap- aði í Indónesíu í október síðastliðnum. Stjórnvöld í Eþíópíu lýstu yfir sorgardegi í gær, en ljóst er að far- þegar og áhöfn vélarinnar voru frá 35 mismunandi löndum. Á meðal far- þeganna 149 voru að minnsta kosti 22 starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, auk nokkurra túlka sem voru á veg- um samtakanna. Sendi Antonio Gu- terres, framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, samúðarkveðjur til fjölskyldna allra sem voru borð. Enn óvíst um orsakirnar Þotan hrapaði nálægt þorpinu Tulu Fara, sem er um 60 kílómetra frá höfuðborginni Addis Ababa. Sjónarvottar sögðu AFP-fréttastof- unni að svo virtist sem vélin hefði þegar verið í ljósum logum áður en hún brotlenti. Allar veðuraðstæður munu hins vegar hafa verið til fyr- irmyndar þegar vélin hóf sig á loft. Þá sagði sérfræðingur í flugör- yggismálum við AFP að líkindin með þessu slysi og hrapinu í Indónesíu væru mjög mikil. Í báðum tilfellum hefði vélin farist stuttu eftir flugtak og í báðum tilfellum hefði flugmaður vélarinnar tilkynnt flugturni að hann ætti í erfiðleikum. Max 8 þoturnar kyrrsettar  Báðir flugritar vélarinnar komnir í leitirnar  Sögð í ljósum logum fyrir hrapið AFP Flugslys Brak úr vélinni dreifðist víða um staðinn þar sem hún fórst. Japanir minntust þess í gær að átta ár voru þá liðin frá jarðskjálftanum og flóðbylgjunni miklu sem varð til þess að um 18.500 manns létust eða týndust, auk þess sem kjarnorkuverið við Fukushima skemmdist. Fulltrúar aðstandendanna lögðu meðal annars blóm við altari sem reist var í minningu fórnarlambanna, en auk þeirra vottuðu Shinzo Abe forsætisráðherra og Akishino prins og Kiko prinsessa virðingu sína. AFP Átta ár liðin frá Fukushima-hamförunum Fórnarlambanna minnst víða Siti Aisyah, indó- nesískri konu sem grunuð var um aðild að morðinu á Kim Jong-nam, var sleppt úr haldi stjórnvalda í Malasíu í gær eftir að saksókn- arar ákváðu að láta mál hennar falla niður. Aisyah, sem er 27 ára, sagðist vera ánægð með ákvörðunina og að hún hefði ekki átt von á því, en stjórnvöld í Indónesíu höfðu þrýst á um að tekið yrði vægt á henni. Aisyah og Doan Thi Huong, víet- nömsk kona sem einnig var ákærð fyrir morðið, neituðu því báðar að hafa vísvitandi eitrað fyrir Kim, sem var eldri hálfbróðir Kim Jong-un, núverandi leiðtoga Norður-Kóreu. Mun þeim hafa verið talin trú um að þær væru þátttakendur í hrekk í raunveruleikasjónvarpi. Huong er enn í haldi. Sleppt óvænt úr haldi stjórnvalda Siti Aisyah MALASÍA Juan Guaido, leiðtogi stjórn- arandstöðunnar í Venesúela, hvatti þjóðþing lands- ins í gær til að lýsa yfir neyðar- ástandi, en raf- magnslaust hef- ur verið í megninu af land- inu síðustu fimm sólarhringa. Unnið var að við- gerðum á raforkukerfi landsins um helgina, en þær náðu ekki að tryggja stöðugt framboð af raf- magni. Þingið kom saman í gær til þess að ræða tillögu Guaidos um neyðarástand en rafmagnið fór af þingsalnum eftir um klukkustundar umræðu. Boðaði Guaido jafnframt til allsherjarmótmæla á morgun vegna ástandsins. Nicolas Maduro, forseti landsins, segir að rafmagnsleysið sé útsend- urum Bandaríkjastjórnar að kenna. Vill láta lýsa yfir neyðarástandi Juan Guaido VENESÚELA Breska stjórnin kvaðst í gærkvöldi hafa tryggt „lagalega bindandi“ breytingar á samningi sínum við Evr- ópusambandið um Brexit, útgöngu Bretlands úr sambandinu. Fulltrúi Theresu May, forsætisráðherra Bret- lands, skýrði frá þessu á breska þinginu eftir að hún hélt til Strass- borgar fyrr um daginn til að ræða við leiðtoga Evrópusambandsins um breytingar á samningnum. Neðri deild breska þingsins á að greiða at- kvæði í dag um endanleg örlög samn- ingsins, og töldu breskir fjölmiðlar í gær að nær útilokað væri að það yrði samþykkt að óbreyttu. Fyrirhugað er að Bretar gangi úr sambandinu 29. mars næstkomandi. Hafni neðri deildin samningnum í dag er mögulegt að sá dagur renni upp án þess að nokkurt samkomulag liggi fyrir um viðskiptatengsl Breta og Evrópusambandsins, en varað hefur verið við því að slíkt gæti haft slæmar afleiðingar. Fari svo að þingið hafni samningn- um í dag á neðri deildin að greiða at- kvæði á morgun um hvort Bretland eigi að ganga úr ESB án samnings. Verði þeirri tillögu hafnað á þing- deildin að greiða atkvæði á fimmtu- dag um hvort fresta eigi Brexit. Michel Barnier, aðalsamningamað- ur Evrópusambandsins, og Angela Merkel Þýskalandskanslari sögðu fyrr í gær að Bretar ættu næsta leik til þess að rjúfa þá pattstöðu sem komin væri upp í viðræðunum. Sagði Barnier að viðræðurnar væru nú í raun á milli bresku ríkisstjórnarinnar og breska þingsins, en Merkel sagði að ESB hefði boðið ýmsar leiðir til þess að skýra betur lagalega stöðu hins svonefnda „írska varnagla“, en hann hefur verið sagður helsta hindr- unin fyrir samkomulagi. sgs@mbl.is Samið um „laga- lega bindandi“ breytingar  Kosið um skil- yrði útgöngunnar AFP Brexit Theresa May hélt til Strass- borgar í gær til viðræðna. Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði fram í gær tillögur Hvíta húss- ins að fjárlögum ársins 2020. Þar er gert ráð fyrir að varið verði um 8,6 milljörðum Bandaríkjadala í fram- kvæmdir á landamærum Bandaríkj- anna og Mexíkó, en forsetinn bað um 5,7 milljarða til verksins fyrir árið 2019 en fékk ekki. Öldungadeild Bandaríkjaþings mun síðar í vikunni greiða atkvæði um neyðarástandið sem Trump lýsti yfir á landamærunum í síðasta mán- uði, en yfirlýsingunni var ætlað að gera honum kleift að nýta fjármagn sem ætlað var til varnarmála í landa- mærin. Fjórir öldungadeildarþingmenn repúblikana hafa lýst því yfir að þeir muni greiða atkvæði með demókröt- um, sem hafa sagt yfirlýsingu Trumps í trássi við stjórnarskrána. Standi þeir við það eru andstæðingar yfirlýsingarinnar með 51 atkvæði af 100 í deildinni. Sagði Trump í gær að repúblikanar þyrftu að standa sam- an þegar kæmi að landamæraöryggi. Vill meira fé til landa- mæravörslu  Greiða atkvæði um múrinn í vikunni LC02 hægindastóll Leður Verð 285.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.