Morgunblaðið - 12.03.2019, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019
✝ Sigurður Páls-son fæddist 19.
september 1936 í
Reykjavík. Hann
lést 2. mars 2019 á
Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund.
Hann var yngsti
sonur Páls Sigurðs-
sonar prentara og
Margrétar Þorkels-
dóttur húsfreyju.
Systkini hans voru Þorkell
bifreiðasmiður, Steinunn hús-
móðir, Kristín fóstra og for-
stöðumaður og Svandís kennari.
Sigurður kvæntist 5. október
1957 eftirlifandi eiginkonu
sinni, Jóhönnu G. Möller söng-
konu, f. 28. apríl 1938. Hún er
dóttir Gunnars J. Möller
hæstaréttarlögmanns og Ágústu
Guðnadóttur Johnsen húsfreyju.
Dætur Sigurðar og Jóhönnu
eru:
1) Ágústa Helga, lögfræð-
ingur, f. 21. ágúst 1960, d. 9.
apríl 1990, var gift Búa Krist-
jánssyni myndlistarmanni og
eignuðust þau þrjá syni; Hauk
Þór þýðanda, í sambúð með Kol-
brúnu Mist Pálsdóttur, Birgi
Hrafn lögfræðing, kvæntur Sæ-
unni Ýri Marinósdóttur, synir
þeirra eru Daníel Leó og Atli
Hrafn, og dr. Arnar Má hag-
fræðing, sonur
hans er Viktor Örn.
2) Margrét Kristín,
tónlistarkona, leik-
kona og kennari, f.
11.12. 1963, gift dr.
Börge J. Wigum
jarðverkfræðingi
og eiga þau tvö
börn; Emblu Gabrí-
elu og Ágúst Örn.
Sigurður ólst
upp í Reykjavík.
Hann lauk kennaraprófi frá KÍ
1957, söngkennaraprófi frá KÍ
1957, BA-prófi í kristnum fræð-
um og uppeldisfræði ásamt
kennsluréttindum á framhalds-
skólastigi frá HÍ 1978, embætt-
isprófi í guðfræði frá HÍ 1986 og
doktorsprófi í menntunarfræði
frá KHÍ 2008.
Sigurður var kennari við
Breiðagerðisskóla 1957-69, lög-
regluþjónn í Reykjavík sumrin
1961-68, skrifstofustjóri hjá
Ríkisútgáfu námsbóka 1969-77,
stundakennari við MR 1979-82,
við KHÍ 1979-2010 og við guð-
fræðideild HÍ 1994-2010, náms-
tjóri í kristnum fræðum og
fíknivörnum við skólarann-
sóknadeild menntamálaráðu-
neytisins 1977-84, deildarstjóri
námsefnisgerðar hjá Náms-
gagnastofnun 1984-86, for-
stöðumaður námsefnissviðs hjá
Námsgagnastofnun 1987-90,
settur sóknarprestur í Hall-
grímssókn 1988-89 og aftur um
skeið 1993. Hann var fram-
kvæmdastjóri Hins íslenska
biblíufélags 1990-97 og gegndi
embætti sóknarprests í Hall-
grímskirkju 1997-2006.
Meðal trúnaðar- og nefndar-
starfa sem Sigurður gegndi má
nefna að hann sat í stjórn Hins
íslenska Biblíufélags 1998-2012
og var kjörinn heiðursfélagi í
tilefni af 200 ára afmæli félags-
ins 2015. Hann átti auk þess sæti
í þýðingarnefnd Gamla testa-
mentisins 1990-2007. Sigurður
sat í stjórn KFUM í Reykjavík
1974-86, var formaður 1978-84
og 1985-86, og var gerður að
heiðursfélaga í samtökunum ár-
ið 2017.
Sigurður samdi fjölda
kennslurita í kristnum fræðum
auk erinda og ritgerða um krist-
ið uppeldi og trúarbragða-
kennslu í skólum. Hann hlaut
viðurkenningu Hagþenkis, fé-
lags höfunda fræðirita og
kennslugagna, 1997 fyrir að
semja vandað og vekjandi náms-
efni í kristnum fræðum. Meðhöf-
undur hans var Iðunn Steins-
dóttir, kennari og rithöfundur.
Haustið 2015 kom út eftir hann
bókin Mínum Drottni til þakk-
lætis, saga Hallgrímskirkjusafn-
aðar í Reykjavík.
Hann verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju í dag, 12. mars
2019, klukkan 14.
Ég minnist Sigurðar Pálssonar
með þakklæti og virðingu. Við
Sigurður áttum margs konar sam-
skipti gegnum árin vegna tengsla
milli fjölskyldna okkar og starfa
minna á vegum Gídeonfélagsins,
en Sigurður bar hag þess mjög
fyrir brjósti, enda megintilgangur
þess sá sami og Biblíufélagins þar
sem hann var áður framkvæmda-
stjóri. Þá naut ég góðs af pred-
ikunum Sigurðar sem prests í
Hallgrímssöfnuði. Sigurður vann
um árabil að málefnum kristin-
fræðinnar á vegum hins opinbera,
en verkefnið var honum afar hug-
leikið. Við vorum á einu máli um
þau mistök sem borgaryfirvöld í
Reykjavík sýndu með nýjum
reglum um samskipti trúar- og
lífsskoðunarfélaga og skóla, sem
bönnuðu heimsóknir Gídeon-
manna í grunnskóla til að segja
frá Gídeonfélaginu og bjóða
grunnskólanemendum Nýja
testamenti að gjöf til stuðnings
kristinfræðikennslunni í skólun-
um. Gallinn var sá að borgaryfir-
völd gerðu ekki greinarmun á
fræðslu og boðun í þessu sam-
bandi, en fræðsla um kristni er
skylda og nauðsyn fyrir grunn-
skóla í samfélagi kristinnar menn-
ingar, og Nýja testamentið hefur
jafnan verið stuðningsrit sem
tengst hefur kristinfræðikennsl-
unni. Sem prestur í Hallgríms-
kirkju var Sigurður áhrifamikill
predikari. Guðsorðið var Sigurði
ekki léttvægt – hann umgekkst
það ekki af neinni yfirborðs-
mennsku. Honum var í mun að
kryfja merkingu þess og heim-
færa það svo allir gætu séð og skil-
ið hve brýnt það væri fyrir líf
þeirra og raunar samfélagsins
alls. Predikanir Sigurðar eru með-
al þeirra allra bestu og uppbyggi-
legustu sem ég hef hlýtt á um æv-
ina. Að leiðarlokum votta ég
Jóhönnu og fjölskyldunni allri
mína innilegustu samúð og bið
Guð að blessa minningu Sigurðar
Pálssonar.
Rúnar Vilhjálmsson.
Elsku afi minn. Mikið er sökn-
uðurinn sár. Þú hefur snert svo
stóran hluta af mínu lífi, og tekið
svo mikinn þátt í að gera mig að
þeim manni sem ég er í dag, að
missirinn bergmálar um mig all-
an. En eins erfitt og það er að
kveðja þig þá er svo ótal margt
sem ég er þakklátur fyrir. Ég á
svo margar ljúfar minningar af
þér, og stundunum okkar saman,
að síðustu daga hef ég varla gert
annað en að tárast og brosa til
skiptis.
Maður hittir ekki oft manneskj-
ur sem maður upplifir að séu góð-
ar í gegn, en þú varst það afi minn.
Duglegur, ósérhlífinn, fullur af
kærleik og hugsaðir fyrst og
fremst um alla aðra en sjálfan þig.
Betri fyrirmynd er varla hægt að
hugsa sér. Þú hefur alla mína ævi
verið kletturinn í fjölskyldunni,
alltaf til staðar og alltaf tilbúinn að
aðstoða við öll hugsanleg vanda-
mál.
Enginn annar hefur fengið leyfi
til að kalla mig Krumma og ég
minnist þess þegar við sátum
saman, þú tókst í höndina á mér,
horfðir á mig kærleiksríkum aug-
um og vitnaðir í ljóð Davíðs Stef-
ánssonar:
Krummi gamli er svartur, og krummi er
fuglinn minn.
Birgir Hrafn (Krummi).
Það er erfitt að ímynda sér til-
veruna án þín, elsku Diddi frændi,
mín dýrmæta fyrirmynd um svo
margt. Minningarnar hlaðast
fram og tárin taka að streyma nið-
ur kinnar. Hann Diddi frændi gat
allt. Var óvenju mikið gefið á svo
mörgum sviðum. Afkastamikill,
skarpur, djúpskyggn á mannlegar
tilfinningar og þarfir, umhyggju-
og elskusamur. En hann hafði líka
sinn kross að bera, þungar byrðar
sem drógu úr honum og ollu mik-
illi vanlíðan. Glíma innilega trúaðs
kristins manns var því oft erfið og
lamandi, þar sem glitti í von en úr-
slit voru oft ekki sjálfgefin eða
svörin einföld.
Diddi minn, takk fyrir flotta
kassabílinn sem þú smíðaðir
handa mér þegar ég var stubbur.
Takk fyrir að taka að þér að skrifa
50 ára sögu Gídeonfélagsins á Ís-
landi 1945-1995. Bókina um
Vatnaskóg 1923-1983. Takk fyrir
vel gerða bók um sögu Hallgríms-
kirkju. Allar aðgengilegu kristin-
fræðinámsbækurnar þar sem
biblíusögurnar lifnuðu við, urðu
aðgengilegar og skiljanlegar.
Takk fyrir að benda svo fallega á í
ákveðnu samhengi á viðkvæmum
tímum að Guð væri ekki niður-
lægjandi dæmandi afl sem stöðugt
væri með vísifingurinn á lofti svo
fólk þyrfti að hrökklast inn í skápa
eða undir stóla. Takk fyrir mann-
skilning, virka hlustun og mildi og
takk fyrir að kynna Jesú Krist
sem elskandi frelsara og eilífan líf-
gjafa sem stendur með sinn hlýja,
opna, útbreidda, umvefjandi faðm
sem allir eru velkomnir að leita
sér skjóls í, sama hvað. Takk fyrir
að standa með mér um aldamótin
þegar ég starfaði sem fram-
kvæmdastjóri KFUM og KFUK.
Takk fyrir að taka að þér að
annast útför elsku mömmu í mars
2006, þinnar stóru systur sem
passaði þig þegar þú varst snáði
og bar allnokkra ábyrgð á uppeldi
þínu þar sem amma og afi voru oft
heilsutæp. Takk fyrir snilldarlega
samantekin minningarorð og ekki
síður um pabba síðar sama ár. Þú
varst mikill orðsins meistari og
snillingur með svo næmt hlust-
andi hjarta.
Takk fyrir að skíra yngsta son
minn, Pál Steinar, í Friðrikska-
pellu 1995 og ferma hann svo á
sama stað 2009.
Mér þótti verulega vænt um
þig og mikið til koma en fann líka
oft svo til með þér. Ég hélt alltaf
svo innilega með þér, enda him-
nesk fyrirmynd, algjörlega með
báða fætur á jörðinni. Þú kynntist
fegurð lífsins sem þú elskaðir en
einnig þjáningu og dauða líkt og
frelsarinn, sem þú hefur nú fengið
að líta og hefur gefið þér líf án
þjáninga um alla eilífð.
Ég treysti því að nú hafir þú
hlotið hinn himneska frið sem þú
þráðir svo heitt og boðaðir. Dýrð
sem aldrei mun þrjóta. Þar sem
spurningum verður svarað. Þar
sem elsku engillinn þinn hún Ágú
tekur á móti þér.
Þín verður sárt saknað. En ég
samgleðst þér að fá nú að baða þig
í faðmlagi hinnar himnesku ljóm-
andi dýrðar. Guð umvefji og blessi
elsku Jóhönnu, Stínu og ykkur öll
sem hann unni heitast og elskaði
mest.
Takk fyrir allt, elsku Diddi
frændi. Þú munt alltaf eiga stórt
pláss í mínu hjarta. Við sjáumst
svo fljótt.
Kærleikurinn mun sigra. Lifi
lífið!
Þinn einlægur frændi og aðdá-
andi,
Sigurbjörn Þorkelsson.
Ég minnist, með virðingu og
þökk, frænda míns, Sigurðar Páls-
sonar, eða Didda Páls, eins og
hann var jafnan kallaður í fjöl-
skyldunni. Faðir hans og afi minn
í móðurætt voru bræður. Þegar ég
horfi til baka er efst í huga þakk-
læti fyrir ótal samverustundir og
samvinnu, bæði á vettvangi
KFUM og KFUK, og í tengslum
við kristinfræði- og trúarbragða-
fræðslu í skólum, einkum í kenn-
aranáminu í Kennaraháskóla Ís-
lands. Framlag hans til starfs
KFUM og KFUK og Kristilegra
skólasamtaka er ómetanlegt og ég
minnist sérstaklega stuðnings og
leiðsagnar hans við okkur sem
yngri vorum í þessu starfi. Það var
til að mynda ómetanlegt að hafa
hann við hlið okkar sem sátum í
stjórn Kristilegra skólasamtaka á
þeim árum sem hann var fulltrúi
KFUM og KFUK í stjórninni.
Sigurður var alla tíð mikill
skólamaður og kom víða við á
þeim vettvangi. Einlægur áhugi
hans og eldmóður birtist með
ýmsu móti, meðal annars í nám-
skrár- og námsbókagerð, greina-
skrifum og fleiru. Það vakti at-
hygli að þegar hann tók
doktorspróf, undir lok starfsferils
síns, var það meðvituð ákvörðun
hans að það yrði frá Kennarahá-
skóla Íslands. Hann var einn
þriggja fyrstu og einu doktoranna
sem útskrifuðust frá þeim skóla,
skömmu áður en hann var samein-
aður Háskóla Íslands. Viðfangs-
efni doktorsritgerðarinnar ber
vott um það sem hann bar jafnan
fyrir brjósti, en það var vönduð
kristindóms- og trúarbragða-
fræðsla í skólum. Í ritgerðinni
fjallaði hann um þróun þeirrar
fræðslu hér á landi á 20. öld í sam-
anburði við þróunina í nágranna-
löndunum.
Þegar ég fór að fást við kennslu
á þessu sviði í Kennaraháskólan-
um naut ég samvinnunnar við Sig-
urð, en hann var þar stundakenn-
ari um langt árabil. Ég naut ekki
síður stuðnings hans, vináttu og
hvatningar sem ég get seint þakk-
að til fulls. Alltaf var hann tilbúinn
að leggja sitt af mörkum og koma
með góð sjónarmið og heilræði.
Þegar ég heimsótti hann á sjúkra-
húsið milli jóla og nýárs var hugur
hans enn brennandi fyrir þessu
málefni og í samtali okkar vitnaði
hann í höfund, sem hann hafði les-
ið nýlega, um mikilvægi trúar-
bragðafræðslu á tímum
fjölmenningarlegs nútímasam-
félags. Samtalið var bæði gefandi
og uppörvandi eins og svo oft áð-
ur. Ég kveð frænda minn því með
söknuði og djúpu þakklæti fyrir
gefandi samfylgd og samstarf.
Guð gefi fjölskyldunni huggun og
styrk, og blessi minningu Sigurð-
ar Pálssonar.
Gunnar Jóhannes
Gunnarsson.
Sómamaður er fallinn frá. Lík-
amlega hraustur að sjá í haust, en
hafði orð á því að honum væri að
daprast sýn. Í byrjun vetrar
dimmdi yfir. Við rannsókn greind-
ist illkynja mein við heila og nú er
kær mágur minn allur. Hann var
trúr kalli sínu og elskaði fjöl-
skyldu sína. Ástúðin var hrein og
afdráttarlaus svo unun var að
fylgjast með.
Hann var kennimaður af Guðs
náð, mælti tæpitungulaust í stól-
ræðum. Vandaði mál sitt í hví-
vetna, í ræðu og riti, embættis-
verkum, kennslu og daglegu tali.
Hann var viðræðugóður, ekki
bara um almenn efni og dægur-
mál, heldur persónuleg mál, áföll-
in í lífinu og trúmál, þar á meðal
glímuna við efann sem tíðum leit-
ar á eins og óboðinn gestur. Þótt
hann væri maður alvörunnar var
oft stutt í hnyttin tilsvör og at-
hugasemdir, og hann brá gjarnan
fyrir sig kveðlingi sem hæfði.
Eftir skyldunám lá leiðin í
kennaraskólann þar sem hann út-
skrifaðist með kennsluréttindi á
barna- og unglingastigi og söng-
kennararéttindi að auki. Stundaði
kennslu um árabil og var virkur í
kórstarfi og söngstjórn. Sinnti
ábyrgðarstörfum um langt skeið á
vegum opinberra stofnana. Flest
þau störf tengdust helsta hugðar-
efni hans, kennslu í kristnum
fræðum og trúarbragðafræðum í
íslenskum skólum. Sá brennandi
áhugi hans leiddi til doktorsnáms
og ritgerðar um stöðu og þróun
kennslu í kristnum fræðum og
trúarbragðafræðum á Íslandi,
sem hann varði við Kennarahá-
skólann. Áður hafði hann lokið
guðfræðinámi við Háskóla Ís-
lands, kominn á miðjan aldur.
Séra Sigurðar Pálssonar verð-
ur eflaust helst minnst sem kenni-
manns og farsæls sóknarprests í
Hallgrímskirkju um 10 ára skeið.
Ég mun einkum minnast mágs
míns sem heimilisföður. Á heimili
sínu kórónaði hann ævistarfið við
hlið konu sinnar sem var djásnið í
kórónunni. Í meira en 60 ár hlúðu
þau að heimili ástar og elsku í
blíðu og stríðu, gleði og sorg.
Áfallið var þungt, þegar him-
inninn hrundi yfir fjölskylduna við
sviplegt fráfall eldri dóttur þeirra
hjóna, Ágústu Helgu, frá þremur
barnungum drengjum. Ung, fal-
leg, bráðvel gefin, nýútskrifaður
lögfræðingur í byrjun starfsferils
féll hún fyrir óvægnum sjúkdómi.
Á erfiðustu stund lífs þeirra um-
vöfðu þau drengina hennar elsku
sinni og bjuggu þeim öruggt skjól.
Alúð þeirra í garð nærfjölskyld-
unnar var aðdáunarverð.
Harmurinn er sár Hönnu, eins
og mágur minn ávallt nefndi konu
sína, Möggu Stínu, Børge, Emblu
og Ágústi, og bræðrunum þrem-
ur, Hauki, Birgi og Arnari, sem nú
eru fulltíða menn. Gnótt dýr-
mætra minninga mun sefa sorg-
ina. Nú hefur Ágú tekið á móti
föður sínum á iðjagrænum ódáins-
völlum.
Blessuð sé minning þeirra
beggja.
Jakob Þ. Möller.
Hjónin á Akri, Bræðra-
borgarstíg 25, áttu barnaláni að
fagna. Þar bjó dásamlegt og kær-
leiksríkt fólk. Ég heyri fyrir mér
hvernig Margrét mamma þeirra
fór með nöfn barna sinna; Denna,
Dista, Dísa, Tolli og Diddi minn.
Ég man sérdeilis vel hvernig hún
sagði Diddi minn. Öll hétu þau
góðum og gildum íslenskum nöfn-
um: Þorkell, Steinunn, Kristín,
Svandís og Sigurður. Diddi, sem
rak lestina, var örverpið í stórum
systkinahópi – eins og ég. Við
frændsystkinin vorum jafnaldrar
og afar samrýnd þegar við vorum
börn.
Mikill samgangur og samhjálp
var á milli stórfjölskyldna okkar á
árum áður. Það var að mestu fyrir
mína tíð, og mun meiri en ég get
rakið hér því veikindi og stórbruni
höfðu varanleg áhrif á líf foreldr-
anna, sem settu allt sitt traust á
Guð. Mér finnst ég geta sagt að
Drottinn flutti inn og bjó í hjörtum
þeirra æ síðan. Margrét var afar
bænheit kona og leituðu margir til
hennar um hjálp að sögn móður
minnar.
Móðurbræður mínir og fjöl-
skyldur þeirra komu saman á há-
tíðum og lyftu sér upp við létta
leiki og söng. Við Diddi vorum
mestu mátar, enda langyngst í
báðum fjölskyldunum og látið
mikið með okkur. Diddi var nú
ekki alveg til í að láta allt eftir
frænku sinni. Eitt sinn þegar fjöl-
skylda hans var að kveðja á stiga-
pallinum á Bergþórugötunni ætl-
aði ég að kveðja frænda minn með
kossi eftir að hafa tilkynnt að ég
ætlaði sko að giftast Didda
frænda þegar ég yrði stór. Við
vorum fimm ára þarna. Uppá-
haldsfrændinn hryggbraut mig á
stigapallinum og þurrkaði af sér
kossinn.
Við lýðveldisstofnunina 17. júní
1944 tæmdist Reykjavík. Allir
sem vettlingi gátu valdið héldu til
Þingvalla. Börn og gamalmenni
urðu þó eftir í bænum. Þá var mér
komið fyrir hjá Margréti á Akri
sem varð eftir í bænum með
Steinunni móður sína og okkur
Didda átta ára gömul. Þá komst
ég að því að miklu fleiri bænir var
Diddi látinn lesa á kvöldin en ég
þekkti. Páll frændi hafði gaman af
að spjalla við okkur börnin, hann
var ljúflingur sem allt vildi fyrir
okkur gera. Hann kenndi okkur
að telja á grísku og ef við báðum
vel lét hann sig ekki muna um að
hreyfa á sér eyrun!
Ég hef rifjað hér upp æsku-
minningar en minnist lítt á miðbik
ævi frænda míns. Verð þó að
nefna hans yndislegu konu, æsku-
vinkonu mína Jóhönnu Möller, en
þar býr mikil saga bæði ham-
ingju, tillitssemi og sorga. Séra
Sigurður hefur ávallt verið til
staðar fyrir fjölskyldu okkar þeg-
ar við höfum orðið fyrir missi ætt-
ingja. Það var gott að leita til hans
sem aldrei brást og auðsýndi þá
elsku og nærgætni sem til þurfti á
erfiðum stundum.
Við Hörður höfðum bæði hugs-
að til að þessi góði vinur og frændi
yrði sá sem talaði yfir okkur látn-
um. En enginn veit ævi sína fyrr
en öll er. Nú sendum við og systk-
ini mín, Ingibjörg, Salóme og Sig-
urður, honum þakklætiskveðjur í
annan heim um leið og við vottum
Jóhönnu og fjölskyldu hennar
okkar innilegustu hluttekningu
vegna andláts yndislegs fjöl-
skylduföður sem stóð við hlið
þeirra í blíðu og stríðu.
Kristín Þorkelsdóttir.
Þegar ungur og fallegur maður
fór að birtast heima á Ægisíðu
með Jóhönnu systur varð ljóst að
kærastinn var ekki bara fallegur
að utan heldur líka að innan.
Gæska hans og hlýja leyndu sér
ekki og ljóst hversu gott manns-
efni Sigurður Pálsson, Diddi, var.
Sjálfselskan uppmáluð sá ég mér
leik á borði og lagði til að hann léti
systur mína róa og sneri sér frek-
ar að mér. Ekki reyndist hann til-
kippilegur og svo fór að þau Jó-
hanna gengu í hjónaband tveimur
dögum eftir sjö ára afmæli mitt.
Systir mín eignaðist góðan og
kærleiksríkan mann og fljótlega
varð ég sátt við minn hlut, að eiga
mág sem frá byrjun var mér ákaf-
lega góður og kær alla tíð. Hann
tók því vel að litla mágkonan væri
eins og grár köttur heima á
Bræðraborgarstíg þar sem þau
bjuggu sér heimili í kjallaranum
hjá foreldrum hans. Þaðan á ég
ljúfar minningar, með þeim og
fjölskyldu Didda uppi á lofti, enda
gæðafólk allt sem leyfði stelpu-
kríli að skottast í kringum sig. Til
gamans: Einu sinni sem oftar
sendi Diddi mig í sjoppuna á móti,
í þetta sinn til að kaupa kossa,
sem súkkulaðibollur kölluðust.
Ég kom sneypt til baka því tveir
unglingsstrákar á bak við búðar-
borðið sögðust ekki vilja kyssa
mig og bentu hvor á annan. Diddi
mátti sjálfur fara í sínar sjoppu-
ferðir eftir þetta.
Síst dró úr heimsóknum við
fæðingu Ágústu Helgu, sem ég
eignaði mér að stórum hluta, og
svo Möggu Stínu, þegar hún
bættist við. Þær systur voru um-
vafðar ást og umhyggju foreldr-
anna og bornar á höndum föður
síns.
Sigurður Pálsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann