Morgunblaðið - 12.03.2019, Page 25

Morgunblaðið - 12.03.2019, Page 25
bröndurum og varst einstaklega fljót upp ef þér mislíkaði eitt- hvað. En það var akkúrat það sem gerði þig svona einstaka. Það var enginn eins og þú. Þú hefðir átt að sjá svipinn á vinkonum mínum þegar þær sóttu mig í Akraselið í fyrsta skiptið á leið í skólann. Vel að merkja, fyrsta skóladaginn minn. Þið afi stóðuð í gluggan- um á neðri hæðinni vinkandi mér og bæði skælbrosandi. Þú auðvitað berbrjósta og afi ber að ofan. Já, ég held að enginn hafi byrjað skóladaginn með jafn miklum stæl og ég því nekt fyrir þér var ekkert feimnismál. Þú elskaðir að vera nakin og veistu, ég er nákvæmlega eins, og það er 100% þér að kenna eða ekki að kenna. Þú elskaðir að spila og við gátum spilað heilu stundirnar saman dag eftir dag. Manni var vitanlega blótað í sand og ösku ef maður var að vinna þig. Eng- inn nema þú myndi gera það og ég elskaði það. Það má ekki gleyma að þú varst matkona mikil og eldaðir og bakaðir eins og sannur Michelin-stjörnukokkur. Í há- deginu á virkum dögum eftir skóla fengum við systkinin jafn- vel hrygg eða lærissneiðar með öllu tilheyrandi. Ef gestir voru væntanlegir í kaffi tókstu ein- hverjar dýrindis kökur úr fryst- inum og á núll-einni varstu komin með heilt kaffihlaðborð. Þú varst mjög gestrisin og tókst öllum opnum örmum. Þú varst með stórt og fallegt hjarta og máttir ekkert aumt sjá. Þú varst sú sem huggaðir mann í mjúka örugga faðminum þínum. Þar varð allt betra. Minningarnar um þig, amma, eru dásamlegar og þær eru svo margar. Við systkinin vorum svo heppin að fá að njóta ein- staklega mikils tíma með ykkur afa og það var svo margt sem við gerðum saman. Ég er hepp- in að hafa fengið að njóta allra stundanna með þér og fyrir það er ég óendanlega þakklát. Minning mín um þig er hlát- ur. Hláturinn þinn var smitandi og hár. Maður heyrði í þér úr margra kílómetra fjarlægð þeg- ar þér þótti eitthvað fyndið og húsið fylltist af hlátri þegar þú gast ekki hamið þig. Gleði amma. Gleði. Þú varst gleðigjafi með öllum dásamlegu dónabröndurunum þínum, fyndnu pælinguum, sögunum og spurningunum. Takk fyrir að vera þú því það er enginn eins og þú. Þvílíkt sem ég datt í lukkupottinn að eiga ömmu eins og þig. Takk fyrir allt amma. Ég elska þig. Þín Margrét Ýr. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019 25 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Tunika 4990 Peysa kr. 5.990 Buxur kr. 4.500 ST.42-56 Sími 588 8050. - vertu vinur Bátar Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30. Stóla jóga kl. 9.30. Gönguferð kl. 10.15. Tálgað í tré kl.13. Postulínsmálun kl.13. NÝTT NÁMSKEIÐ, vatnslitun kl. 13. Bíó í miðrými kl. 13.20. Kaffi kl.14.30- 15.20. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 10. Leshringur með Heiðrúnu kl.11. Brids kl. 13-16. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld kl. 20. í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar. Allir velkomnir, Safnaðarfélag Áskirkju-Vesturbrún 30. Boðinn Góugleði Boðans kl. 20. Jóhannes Kristjánsson eftirherma og skemmtikraftur slær á létta strengi, allir velkomnir. Botsía kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 13. Brids og kanasta kl. 13. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14. Fella- og Hólakirkja Við byrjum með kyrrðarstund kl. 12. Kristín Kristjánsdóttir djákni og Arnhildur Valgarðsdóttir organisti sjá um stundina, súpa og brauð á eftir. Gestur okkar í dag er Kristján Snorra- son forstjóri Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. Hlökkum til að sjá ykkur og allir eru velkomnir. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50, kaffisopi og blöðin. Myndlistanámskeið hjá Margréti kl. 9-12. Thai chi kl. 9-10. Leikfimi kl. 10-10.45. Spekingar og spaugarar kl. 10.45-11.45. Hádegis- matur kl. 11.30. Kríur myndlistarhópur kl. 13. Brids kl. 13-16. Ensku- námskeið kl. 12.30-15. Tölvuleiðbeiningar kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30. U3A kl. 16.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Kl. 11. Stólaleikfimi. Kl. 13. Opin handverkstofa. Kl. 14.50 Landið skoðað með nútímatækni. Kl.14.30 Kaffiveitingar. Allir velkomnir! Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30 / 15. Qi gong Sjálandi kl. 9. Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í Kirkjuhvoli kl. 13.30 / 14.30. Tréskurður/smíði í Smiðju kl. 9 / 13. Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl. 9-12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Jóga kl. 10.30-11.30 Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafnvægisæfingar. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara er í Grafarvogskirkju kl. 13 til 16 alla þriðjudaga. Fyrir opna húsið er helgi- og fyrirbæna- stund kl. 12, þar sem öllum er frjálst að mæta í og er súpa og brauð í boði fyrir vægt gjald þar á eftir. Hér er fjölbreytt dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við hæfi. Grensáskirkja Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Verið velkomin. Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9. Botsía kl. 9.30. Málm-/silfurmíði / kanasta / tréskurður kl. 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30, 1340 kr mánuðurinn, allir velkomnir og kostar ekkert að prufa. Hjúkrunarfræðingur kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Spjallhópur kl. 13, nota- leg og skemmtileg samvera þar sem allir eru velkomnir að vera með. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika, kl. 9 dansleikfimi, kl. 10 qi-gong kl. 13 brids, kl. 10.45 leikfimi Hjallabraut, kl. 13-16 fjölstofan Hjalla- braut, kl. 9-12 handverk Sólvangsvegi, kl. 11.30 leikfimi Bjarkarhúsi, kl. 14.40 vatnsleikfimi Ásvallalaug. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13 og eftir- miðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9. í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll. Dans kl. 11. í Borgum, vonumst til að fá ykkur sem flest í dansgleðina, öll gömlu, góðu lögin. Prjónað til góðs kl. 13 í Borgum. Félagsvist kl. 13 í Borgum og tré- útskurður á Korúlfsstöðum kl. 13. í dag. Kóræfing Korpusystkina hefst kl. 16 í Borgum í dag, Kristín stjórnar og Elísabet er undirleikari. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, botsía, spil og leikir kl. 16. Uppl. í s. 4112760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn- um kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Helgistund á Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Ath. í kvöld kl. 19.30 verður spiluð félagsvist með félagsmönnum Lions hér á Nesinu í salnum á Skóla- braut. Allir velkomnir. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka- bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Skák kl. 13, allir velkomnir í hópinn. ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, verður gestur á hádegisfundi SES á morgun, miðvikudaginn 13. mars kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Húsið opnað kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1000 krónur. Allir velkomnir. Stjórnin Fundir/Mannfagnaðir mbl.is alltaf - allstaðar Vantar þig fagmann? FINNA.is 200 mílur Jónassyni, bifvélavirkja og skip- stjóra frá Ísafirði. Þau eru: 1) Jón Rafn, f. 1953, barnsm. Sveinsína Björg, f. 1953, þeirra barn a) Sigrún Anna, f. 1972, m. Ingi Þór Steinþórsson, f. 1972, þeirra börn: Jakob Breki, f. 1998, Elvar Áki, f. 2003, og Hekla María, f. 2008. Fyrri kona Dagný Mjöll Hjálmarsd., f. 1951, þeirra barn Anna Mar- grét, f. 1982. Barnsfaðir Bjarni Þór Finnbjarnarson, f. 1974, þeirra barn Jón Alexander, f. 2007. Samb. Tómas Auðunn Þórðarson, þeirra barn Auð- björn Fannar, f. 2014. Seinni kona Hansína B. Einarsdóttir, f. 1957. 2) Jóna Rebekka, f. 1956, m. Þorgeir A. Þorgeirsson, f. 1953. Þeirra börn: a) Högni Stefán, f. 1973. Barnsm. Berg- lind Jóhannsdóttir, þeirra barn Kristjana Sif, f. 1990, barnsf. Ágúst Sævar Einarsson, f. 1984. Þeirra börn: Telma Lind, f. 2009, og Andrea, f. 2011. M. Guðni Þór Pétursson, f. 1988. Barnsmóðir Alda Kristín Sig- urðardóttir, f. 1974, þeirra barn: Elma Rebekka, f. 1997. K. Guðríður Svana Bjarnadóttir, f. 1978. Þeirra börn: Stefán Hrafn, f. 2011, og Steinar Bjarni, f. 2013. b) Eva Dögg, f. 1978, barnsf. Haukur Helgason, f. 1974, þeirra barn: Tristan Nói, f. 2005. M. Davíð Jón Ög- mundsson, f. 1982. c) Halldóra, f. 1981, fv. m. Anders Bo Ped- ersen, f. 1981, þeirra börn: Au- relia Rebekka, f. 2004, og Juli- an Vitus, f. 2007. M. Eddymufy Akhibi Eyienyien, f. 1982, þeirra börn: Sky Efua Jóna Eyienyien, f. 2017, og Star Savi Eyienyien, f. 2018. 3) Pétur Hafsteinn, f. 1958. K. Vivienne Ruth, f. 1961, þeirra börn: Nikulás Högni, f. 1991, og Anna Freydís, f. 1994. 4) Katrín Sól, f. 1959, m. Jón Hjörtur Jónsson, f. 1956, börn: a) Kristín Harpa, f. 1977, m. Sveinbjörn Ragnar Árnason, f. 1967, þeirra barn: Axel Hjörtur, f. 1998, b) Sess- elja Rán, f. 1980, m. Helgi Guð- mundsson, f. 1974, börn Hafdís Huld, f. 2005, og Katrín Sig- urborg, f. 2013, c) Anna Mar- grét, f. 1995. 5) Kristján Tryggvi, f. 1962, k. Fjóla Karls- dóttir, f. 1964, þeirra börn: a) Atli Freyr, f. 1989, b) Árbjartur Snær, f. 1998. 6) Margrét, f. 1964, m. Ríkarð Ó. Snædal, f. 1958, þeirra börn: a) Natalía Ósk, f. 1985, barnsf. Guðni Svavar Guðnason, f. 1984, þeirra barn: Bernharð Máni, f. 2003. M. Jón Gestur Björg- vinsson, f. 1983, þeirra börn: Óðinn Rafn, f. 2007, og Anna Sigrún, f. 2009, b) Sonja Dröfn, f. 1988, barnsf. Hreinn Hlífar Gottskálksson, f. 1984, þeirra barn Margrét Ylfa, f. 2007, c) Sigurbjörg Halldóra, f. 1996. 7) Anna Sigurborg, f. 1971, m. Michael Dahl Clausen, f. 1974. 8) Sigríður Högna, f. 1974, fv. m. Hjálmar Gísli Hjálmarsson, f. 1971, þeirra börn: a) Patrek- ur Sölvi, f. 1996, b) Kristófer Andri, f. 2002, c) Victor Kári, f. 2005. M. Cory Alan Snow. Útför Gísla fór fram í kyrr- þey. „Já, ef mamma þín vill það.“ Þannig leystist það. Þau Anna fluttu til Reykjavíkur 1992. Þeg- ar Anna veiktist alvarlega fluttu þau aftur til Neskaupstaðar árið 2005. Átti hún þar langa og erf- iða banalegu og 31 árs farsælli sambúð þeirra lauk árið 2008 þegar Anna lést. Gísli sagði sjálfur að hann hefði átt bestu ár lífs síns þegar hann bjó í Neskaupstað með henni Önnu sinni. Hann ann- aðist hana af mikill kostgæfni í hennar veikindum. Seinna sagði hann mér að það hefði verið erf- iður tími og gengið mjög nærri honum bæði andlega og líkam- lega. Eftir lát Önnu flutti Gísli aftur til Reykjavíkur og var í góðu sambandi við dætur sínar. Einnig var hann í góðu sam- bandi við Margréti, Önnu Sig- urborgu og Sigríði Högna fóst- urdætur sínar og heimsótti stundum Önnu Sigurborgu í Kaupmannahöfn. Það var alltaf hlýtt á milli hans og Dunnu systur hans. Þó að samskiptin hafi á seinni árum ekki verið mikil því miður. Þó hringdu þau oft hvort í annað og var það þeim mikils virði. Einu sinni var Dunna í síman- um og ég ætlaði að tala við hana þá leit hún á mig og sagði með áherslu: ég er að tala við Gísla bróður. T.d. gaf hann henni fal- lega klippimyndaveggmynd sem hann hafði gert á föndurnám- skeiði. Hann heimsótti Dunnu á hjúkrunarheimilið Eir skömmu áður en hún lést og kvaddi hana. Fannst mér þá af honum dregið, heilsan var farin að bila. Þegar hann lést held ég að hann verið hvíldinni feginn. Ég þakka hon- um hjálpsemi og vináttu og votta fjölskyldunni mína samúð. Rúnar Guðbjartsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.