Morgunblaðið - 12.03.2019, Side 26

Morgunblaðið - 12.03.2019, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019 FYRSTA FLOKKS RÁÐSTEFNU- OG FUNDARAÐSTAÐA UM ALLT LAND – ÁRSHÁTÍÐIR, SÖLUFUNDIR, NÁMSKEIÐ, VEISLUR OG VIÐBURÐIR – Nánari upplýsingar: islandshotel.is/fundir Bókanir: fundir@islandshotel.is Davíð Jónsson, tamningamaður og smiður, á 40 ára afmæli ídag. Hann rekur hestabú og ferðaþjónustu á Skeiðvöllum íLandsveit ásamt konu sinni, Katrínu Sigurðardóttur. Skeið- vellir eru nýbýli, stofnað 2007, en Katrín og foreldrar hennar bjuggu áður á Holtsmúla, en sjálfur er Davíð úr Árbænum. Á Skeiðvöllum er fyrst og fremst rekin hestatengd ferðaþjónusta, en að auki eru þau með eitt hús sem þau leigja út fyrir ferðamenn. Boðið er upp á hestaferðir allt árið, en styttri ferðir yfir vetrartím- ann. Um 100 hestar eru á bænum ef taldir eru með hestarnir sem tengdaforeldrar Davíðs eiga. Davíð er fyrrverandi Íslandsmeistari og landsmótsmeistari í skeið- greinum og er enn að keppa og tekur þátt í Meistaradeildinni sem er í fullum gangi. „Þetta er liðakeppni og ég er ekki byrjaður að keppa í ár, en skeiðgreinarnar hefjast bráðum.“ Afmælisdagurinn verður rólegur hjá Davíð. „Ætli maður verði ekki bara að dunda eitthvað í hesthúsinu og haldi upp á afmælið seinna.“ Það eru heldur engin ferðalög á næstunni. „Við reynum að fara eitt- hvert á haustin en á þessum tíma er svo mikið að gera í hesta- mennsku, keppnir og fleira slíkt.“ Börn Davíðs og Katrínar eru Sigurður Smári, f. 1998, og Guðlaug Birta, f. 2006. Knapinn Davíð ásamt uppáhaldsskeiðhrossinu, Irpu frá Borgarnesi. Skeiðgreinarnar eru í uppáhaldi Davíð Jónsson er fertugur í dag J ón Björgvin Guðnason fæddist 12. mars 1959 á Sólvangi í Hafnarfirði og ólst þar upp allt þar til hann flutti til Keflavíkur árið 1978. „Í Hafnarfirði var ég virk- ur félagi í Skátafélaginu Hraunbú- um. Allar helgar var dvalið í skáta- skálunum í Krísuvík eða við Hvaleyrarvatn. Í sex sumur var ég í sveit í Kálfs- árkoti í Ólafsfirði, hjá móðursystur minni, Fjólu Björgvinsdóttur, manni hennar Jóhannesi Blómkvist Jó- hannessyni og börnum þeirra. Þar lærði ég að vinna og meta gæði nátt- úrunnar. Dagurinn hófst á mjöltum, síðan var veitt í matinn, unnið og deginum lauk með mjöltum.“ Jón hóf skólagöngu sína í Öldu- túnsskóla í Hafnarfirði, síðan í Flensborgarskóla og þar á eftir lá leiðin í Iðnskólann í Hafnarfirði. Hann lauk síðar námi á iðnbraut raf- iðna frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og sveinsprófi 1982. „Öll unglingsárin vann ég hjá afa mínum, Jóni Guðnasyni, en hann átti og rak Pípugerð Jóns Guðnasonar í Kinnum, Hafnarfirði. Vann einnig við smíðavinnu hjá föðurbróður mín- um Jóhannesi Jónssyni en þegar ég flutti til Keflavíkur fór ég á náms- samning í rafvirkjun hjá Jóni Pálma Skarphéðinssyni rafvirkjameistara.“ Í september 1987 var Jón ráðinn til starfa hjá Ratsjárstofnun sem þá var að taka til starfa samanber sam- komulag milli íslenskra og banda- rískra stjórnvalda. Hjá Ratsjár- stofnun starfaði hann þar til stofnunin var lögð niður árið 2007. „Í upphafi rekstrar Ratsjárstofnunar var hópur starfsmanna ráðinn til starfa og sendur þá strax til Banda- ríkjanna til náms og starfsþjálfunar hjá í Bandaríkjunum. Verkefnið var að gera starfsmenn hæfa til að taka við rekstri ratsjár- og fjarskipta- stöðva bandaríska flughersins hér á landi. Starfsmenn voru síðan aftur sendir í náms- og starfsþjálfun hjá Lockheed Martin í Syracuse, New Jón B. Guðnason, frkvstj. varnarmálasviðs hjá LHG – 60 ára Morgunblaðið/Árni Sæberg Heimsókn utanríkisráðherra BNA Fr.v.: Jón B. Guðnason, Georg Kr. Lárusson, forstjóri LHG, Mike Pompeo utan- ríkisráðherra, Jill Espositio, staðgengill sendiherra BNA, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands. Annast daglega fram- kvæmd varnarmála Fyrsta barnabarnið Hulda, eigin- kona Jóns, með Manúel Nóa. Akureyri Katrín Emma Þorkels- dóttir fæddist 19. júní 2018 kl. 17.30 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hún var 3.932 g að þyngd og 51 cm að lengd. Foreldrar hennar heita Hulda Páls- dóttir og Þorkell Erlingsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.