Morgunblaðið - 12.03.2019, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019
Listamaðurinn Friðgeir Ein-arsson frumsýndi nýveriðClub Romantica á Nýjasviði Borgarleikhússins
undir merkjum leikhópsins Abend-
show. Fram til þessa hefur Friðgeir
unnið flestar sínar sýningar með
leikhópnum Kriðpleir ásamt því að
starfa með sviðslistahópnum 16 elsk-
endur, en báðir hópar hafa nær und-
antekningarlaust haft einhvers kon-
ar rannsóknarvinnu að leiðarljósi í
vinnu sinni. Þannig miðaði hin bráð-
skemmtilega Síðbúin rannsókn: end-
urupptaka á máli Jóns Hreggviðs-
sonar á vegum Kriðpleirs að því að
komast að því hvort titilpersónan
hefði raunverulega gerst sek um
böðulsmorð fyrir rúmum 300 árum
meðan Ævisaga einhvers fól í sér
forvitnilega rannsókn á ævisögunni
sem formi. Báðar sýningar áttu það
sameiginlegt með nýlegu útvarps-
leikriti Kriðpleirs, Bónusferðinni, að
flytjendur notuðu sjálfa sig sem
efnivið til að skoða hluti í stærra
samhengi – en engu að síður enduðu
flytjendur í aðalhlutverkinu.
Club Romantica í leikstjórn Pét-
urs Ármannssonar ber skýr merki
heimildaleikhúss þar sem rannsókn
er í forgrunni. Í raun mætti jafnvel
segja að Friðgeir taki á sig hlutverk
spæjara í verkinu. Tilurð uppfærsl-
unnar má rekja til þess að fyrir um
áratug lá leið Friðgeirs til Brussel
þar sem hann fann á flóamarkaði
þrjú myndaalbúm þar sem sama
konan var í forgrunni. Fyrsta al-
búmið geymdi myndir úr sumarfríi
konunnar til Majorka sumarið 1976
þar sem hún dvaldist á sumardvalar-
staðnum Club Romantica ásamt vin-
konu sinni og gerði flestallt það sem
við mætti búast í slíkri ferð, fór á
ströndina, sigldi á hjólabáti og drakk
sangría. Næsta albúm geymdi
myndir frá sama sumarleyfisstað
einhverjum sumrum seinna en þá
var konan í för með öðru fólki. Þriðja
albúmið innihélt síðan brúðarmyndir
konunnar sem teknar voru í litlum
bæ í Belgíu í mars 1985.
Í viðtölum við fjölmiðla í aðdrag-
anda frumsýningar lýsti Friðgeir því
hvernig hann heillaðist af því að
hægt væri með myndaalbúmum
ókunnugs fólks að fá lykil að ævi
fólks sem skoðandinn þekkti ekki
neitt. Í sýningunni rifjar Friðgeir
upp hvernig hann rakst á albúmin og
hvernig forvitnin rak hann til að
kaupa þau og grandskoða næstu ár-
in með þeirri útkomu að hann mynd-
aði sífellt sterkari tengsl við konuna
og atburðina sem myndirnar lýsa.
Þegar breyttar fjölskylduaðstæður
kalla á að hann losi sig við albúmin
finnst honum ótækt að farga mynd-
unum sem geyma minningar ann-
arrar manneskju, enda væri slíkt
eins og að henda heilli mannsævi á
ruslahaugana. Þess í stað einsetur
hann sér að hafa uppi á eigandanum
og þar með hefst rannsóknarleið-
angur hans sem leiðir hann fyrst til
Majorka og síðan Tervuren, smá-
bæjar skammt frá Brussel.
Styrkur sýningarinnar felst í ein-
lægni Friðgeirs þegar hann lýsir því
hvaða áhrif myndirnar og leitin hef-
ur á hann. Feimni hans og vand-
ræðagangur í spæjarstörfunum er
sprenghlægilegur og vangaveltur
hans um hvort þráhyggja hans virki
í augum annarra jafnvel sjúkleg eru
áhugaverðar. Stíll sýningarinnar er
lágstemmdur og þar setur ang-
urvæn tónlist Snorra Helgasonar
tóninn. Auk þess að munda gítarinn
og syngja bregður Snorri sér með
góðum árangri í hin ólíku hlutverk
þegar þeir Friðgeir endurleika ýmis
samtöl sem hann átti á ferðalagi
sínu. Líkt og rannsóknarblaðamaður
eða spæjari notaðist Friðgeir við fal-
inn upptökubúnað en áhorfendur fá
bæði að heyra brot úr uppteknum
samtölum og myndefni af leið-
arenda. Míkrófónar eru nýttir með
skemmtilegum hætti í sýningunni til
að líkja eftir upptökunum. Á einum
stað heyrði undirrituð samt ekki
betur en að Friðgeir lofaði viðmæl-
anda sínum að nota ekki upptökuna
sem áhorfendur fá engu að síður að
heyra brot úr.
Sjónræn umgjörð Brynju Björns-
dóttir þjónar efniviðnum vel. Frið-
geir og Snorri eru klæddir í Hawaii-
stuttermaskyrtur og -buxur við
sandala. Sviðið er teppalagt með
sandlituðu teppi sem í samspili við
góða lýsingu Ólafs Ágústs Stefáns-
sonar og Pálma Jónssonar gat hæg-
lega blekkt augað. Þunnt baktjald
var notað til að varpa myndefni á og
gat með lýsingunni á örskotsstundu
breyst í heiðan himin á sólarströnd.
Efniviðurinn býður ekki upp á mikla
sviðsumferð, en frásögn Friðgeirs er
þó reglulega brotin upp með góðum
hætti. Gaman var að sjá hann róta í
„sandinum“ og áhrifaríkt var hvern-
ig hann sleppti helst aldrei taki á
myndaalbúmunum þremur sem
hvíldu í fangi hans stærstan hluta
sýningarinnar.
Ferðalag Friðgeirs spannar ekki
aðeins ólík lönd heldur virkar nánast
eins og tímaferðalag. Þannig leggur
hann upp með að rannsaka hlutina
með býsna gamaldags hætti þegar
hann ferðast til Majorka í því skyni
að komast að því hvort til séu hótel-
skrár yfir gesti Club Romantica
sumarið 1976, en stekkur í miðri
sýningu inn í tækniöldina þar sem
myndaleit á vefnum hjálpar honum
að staðsetja nákvæmlega kirkjuna
þar sem brúðkaupið fór fram. Í
Belgíu nýtur Friðgeir aðstoðar Jans
Herinckx, sem er prestur í evang-
elísku kirkjunni í Tervuren, en
upplýsingalög landsins setja leit
hans hins vegar ákveðnar skorður.
Eftir því sem sýningunni vindur
fram er engan veginn sjálfgefið að
ætlunarverk Friðgeirs takist, en
óhætt er þó að ljóstra því upp að
hann fær ákveðin svör um afdrif
konunnar sem reynist, líkt og marga
var sennilega farið að gruna, látin.
Sá grunur vaknaði reyndar strax
þegar leikskráin var lesin, en þar
stendur meðal annars: „Þegar Frið-
geir deyr vill hann að allar myndir af
honum verði brenndar eða grafnar
með honum.“ Að sýningu lokinni
velti rýnir því fyrir sér hvort þessi
tilmæli helguðust af því að Friðgeir
vildi ekki að sviðslistamaður í öðru
landi gæti í framtíðinni gert sér mat
úr myndum hans og minningum með
sama hætti og hann gerir í tilfelli
belgísku konunnar.
Það er auðvitað ekkert nýtt að
listafólk nýti sér líf annarra í list-
sköpun sinni, samanber þær sögu-
legu heimildir og persónur sem
Halldór Laxness nýtti sér í Íslands-
klukkunni. Vandasamt er að gefa út
algilda reglu um hversu langt þarf
að vera liðið frá andláti manneskj-
unnar eða hversu þekkt hún var sem
opinber persóna áður en siðferðilega
rétt er að gera hana að almannaeign
í formi listaverks. Þrátt fyrir að ljós-
myndirnar sem til umfjöllunar eru í
Club Romantica séu 34-42 ára gaml-
ar, er aðeins rúmur áratugur síðan
myndefnið féll frá og ekkert bendir
til þess að hún hafi verið opinber
persóna meðan hún lifði. Þrátt fyrir
að Friðgeir upplýsi að hann hafi
breytt nöfnum fólksins sem til um-
fjöllunar er hefur slíkt lítið að segja
á tækniöld þegar nota má myndaleit
og tæknina til að bera kennsl á and-
lit fólks. Í því ljósi hefði verið kostur
ef Friðgeir hefði upplýst hvort hann
væri að gera sýninguna með sam-
þykki fjölskyldu konunnar, enda
hefur slíkt óneitanlega áhrif á við-
tökurnar.
Út frá dramatúrgísku sjónarmiði
hefði raunar verið mun áhrifaríkara
að fjalla um myndirnar og konuna án
þess að sýna okkur hana. Með þeim
hætti hefði fókusinn líka haldist bet-
ur á Friðgeiri og þeim áhugaverðu
spurningum sem hann veltir fyrir
sér í sýningunni er snúa að því hvað
verði um minningar okkar og mynd-
ir, samsömun okkar með öðrum,
hvað vekur forvitni okkar í fari ann-
ars fólks, af hverju við tengjum bet-
ur við suma en aðra – jafnvel þegar
um bláókunnugt fólk er að ræða,
hvernig lesum við í myndbyggingu
og svipbrigði ásamt því að vera
rannsókn á breyttum tímum og
tækni. Einlægur áhugi Friðgeirs á
rannsóknarefni sínu og heillandi
framsetning hefur smitandi áhrif á
áhorfendur sem deila eðlilega for-
vitni hans. Hér er á ferðinni for-
vitnileg sýning, sem vekur fleiri
spurningar en hún svarar.
Hvar enda
minningarnar?
Morgunblaðið/Eggert
Forvitni „Einlægur áhugi Friðgeirs á rannsóknarefni sínu og heillandi
framsetning hefur smitandi áhrif á áhorfendur sem deila eðlilega forvitni
hans,“ segir í rýni. Flytjandi auk Friðgeirs Einarssonar er Snorri Helgason.
Borgarleikhúsið
Club Romantica bbbmn
Höfundur og flytjandi: Friðgeir Einars-
son. Höfundur tónlistar og flytjandi:
Snorri Helgason. Leikstjórn: Pétur
Ármannsson. Leikmynd, búningar og
myndband: Brynja Björnsdóttir. Sviðs-
hreyfingar: Ásrún Magnússon. Lýsing:
Ólafur Ágúst Stefánsson. Lýsing og
myndband: Pálmi Jónsson. Hljóð: Bald-
vin Magnússon. Leikhópurinn Abend-
show frumsýndi á Nýja sviði Borgarleik-
hússins 28. febrúar 2019, en rýnt í aðra
sýningu 3. mars 2019.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn
Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn
Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 60.sýn
Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 61.sýn
Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn Sun 26/5 kl. 13:00 Auka
Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn Sun 2/6 kl. 13:00 Auka
Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn Lau 8/6 kl. 13:00 Auka
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn Lau 4/5 kl. 19:30 22.sýn
Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn Lau 13/4 kl. 19:30 21.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 3/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn
Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn
Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn
Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Fös 15/3 kl. 19:30
Aðalæfing
Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas.
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas.
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00
Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 14/3 kl. 21:00 Fim 21/3 kl. 21:00 Lau 23/3 kl. 19:30
Fös 15/3 kl. 19:30 Fös 22/3 kl. 19:30 Lau 23/3 kl. 22:00
Fös 15/3 kl. 22:00 Fös 22/3 kl. 22:00
Dimmalimm (Brúðuloftið)
Lau 16/3 kl. 14:00 Lau 23/3 kl. 14:00 Lau 30/3 kl. 14:00
Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/3 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s
Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s
Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s
Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s
Frumsýning 15. mars.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/3 kl. 20:00 50. s Fös 15/3 kl. 20:00 52. s Sun 17/3 kl. 20:00 Lokas.
Fim 14/3 kl. 20:00 51. s Lau 16/3 kl. 20:00 53. s
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 15/3 kl. 20:00 43. s Lau 23/3 kl. 20:00 44. s Lau 30/3 kl. 20:00 45. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Lau 16/3 kl. 20:00 5. s Fös 22/3 kl. 20:00 6. s
Hvað varð um konuna?
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s
Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s
Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s
Alltof mikið testósterón
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!