Morgunblaðið - 12.03.2019, Blaðsíða 36
ReSound LiNX
Quattro
eru framúrskarandi
heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur
Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu
smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða,
tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum
tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á
tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan
hátt, eða með einnota rafhlöður.
Góð heyrn
glæðir samskipti
Tónlistarhópurinn UMBRA kemur
fram á tónleikum Þriðjudagsklass-
íkur í Garðabæ í kvöld kl. 20 í sal
Tónlistarskóla Garðabæjar við
Kirkjulund. UMBRA flytur efnis-
skrána „Á Norðurslóðum“ en í
hópnum eru Arngerður María Árna-
dóttir, hörpu- og orgelleikari, Alex-
andra Kjeld kontrabassaleikari,
Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir
fiðluleikari og Lilja Dögg Gunn-
arsdóttir söngkona.
UMBRA kemur fram á
tónleikum í Garðabæ
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 71. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Ég hef ekki annað í hyggju en að
vera með eitthvað áfram. Sem
stendur hef ég mjög gaman af
handboltanum og líður mjög vel í
félagsskapnum á Hlíðarenda þar
sem mjög vel er að öllu staðið,“
segir handboltamarkvörðurinn Íris
Björk Símonardóttir sem varð bik-
armeistari með Val um helgina eft-
ir að hafa unnið bikarinn áður með
tveimur öðrum liðum. »3
Íris vann bikarinn
með þriðja félaginu
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Það er alltaf kostur að eiga heima-
leik í fyrstu umferð úrslitakeppn-
innar. Við kunnum alltaf best við
okkur heima þar sem stuðningurinn
er mikill. Áhuginn fyrir hokkíinu er
alltaf mikill hér á Akureyri og vel
stutt við bakið á okkur,“ segir Andri
Már Michaelsson,
fyrirliði Íslands-
meistara SA í ís-
hokkíi karla, en lið
hans mætir SR í
fyrsta úrslita-
leiknum um Ís-
landsmeistaratit-
ilinn 2019 á
Akureyri í kvöld. »1
Fáum mikinn stuðning
á heimavellinum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sighvatur Ómar Kristinsson skaraði
fram úr í kvikmyndaklippingu í MA-
námi við National Film and Tele-
vision School (NFTS) í Beaconsfield,
rétt fyrir utan Lundúnir á nýliðnu
tímabili. Við útskriftarathöfn á dög-
unum verðlaunaði fyrirtækið Avid,
sem er fremst í gerð forrita fyrir
hljóð og klippingu, hann fyrir besta
árangur útskriftarnema í klippingu
með æviáskrift að klippiforritinu.
„Ég klippti þrjár myndir fyrir út-
skriftina og fékk verðlaunin fyrir
eina þeirra, We have everywhere to
go,“ segir Sighvatur. „Þetta er mikill
heiður og frábært að hafa frían að-
gang að forritinu við kvikmynda-
klippingu það sem eftir er.“
Sighvatur útskrifaðist sem vöru-
hönnuður frá Listaháskóla Íslands
og byrjaði á því að klippa fréttir hjá
Ríkissjónvarpinu 2006. „Ég kunni í
raun ekki neitt í klippingu en lærði
með reynslunni,“ segir hann. Síðan
lá leiðin á mbl.is og þaðan á auglýs-
ingastofu áður en hann hélt til Eng-
lands.
Námið ytra tók tvö ár og hann
segir að þeim tíma hafi verið vel var-
ið. „Ég vildi breyta til. Eftir að hafa
klippt myndir í nokkur ár langaði
mig til þess að dýpka þekkingu mína
og fara í meistaradeildina í kvik-
myndaklippingum. Ég sé ekki eftir
því.“
Skólinn er með deildir fyrir hvert
hlutverk í kvikmyndagerð. Boðið er
upp á nám í leikstjórn, hljóðvinnslu,
klippingu, kvikmyndatónlist, hand-
ritagerð, framleiðslu og svo fram-
vegis. Jafnmargir nemendur eru í
öllum deildum og myndaðir hópar
með einum nemanda á hverju sviði.
Sighvatur segir að hann hafi fengið
tækifæri til þess að koma að öllu sem
viðkemur klippingum í kvikmynda-
gerð. Hann hafi til dæmis klippt
heimildamyndir, leiknar myndir,
teiknimyndir og fleira. „Verkefnin
eru af ýmsum toga, mjög fjölbreytt,
og því gafst tækifæri til þess að auka
færnina á mörgum sviðum.“
Eftir því sem leið á námið segist
Sighvatur hafa fundið hvað það væri
gott að geta rætt um verkefnin á
vinnsluferlinu, spá og spekúlera.
„Meðan á klippiferlinu stendur er
spjallað um verkið frá öllum hliðum,
hvernig hljóðvinnslan kemur inn,
hverju tónlistin bætir við og svo
framvegis. Maður öðlast djúpan
skilning á öllu sem viðkemur kvik-
myndagerð og hvað einstök atriði
hafa mikil áhrif.“
Eiginkonan og börnin þrjú fluttu
heim á liðnu hausti og Sighvatur er
að byrja að líta í kringum sig á
heimaslóðum. „Næst á dagskrá er
að finna spennandi verkefni. Mikil
gróska er í íslenskri kvikmyndagerð
og víða verið að framleiða kvik-
myndir og þætti,“ segir hann.
Besti kvikmyndaklipparinn Gaurav Harrish hjá Avid, til vinstri, afhenti Sighvati Ómari Kristinssyni verðlaunin.
Sighvatur í meistara-
deildina í klippingum
Verðlaunaður fyrir bestu kvikmyndaklippinguna í NFTS