Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Page 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Page 10
FLUGREKSTUR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.3. 2019 Í sland er mjög dýrt land fyrir útflutningsgreinar, sér- staklega láglaunagrein eins og ferðaþjónustu. Öll þjón- usta er dýr hérna fyrir ferðamenn, bílaleigubílar, rútur, hótel, veitingastaðir og annað. Þetta háa verðlag ógnar þessum greinum og það að reka flugfélag sem er í samkeppni við flugfélög sem eru með höfuðstöðvar í lág- launalöndum, Ungverjalandi, Pól- landi og jafnvel Bretlandi, þar sem laun eru mun lægri en á Íslandi, gengur einfaldlega ekki til lengd- ar. Það er lærdómurinn sem við getum dregið af gjaldþroti WOW air.“ Þetta segir Gylfi Zoëga, prófess- or í hagfræði við Háskóla Íslands, beðinn að leggja mat á gjaldþrot WOW air í vikunni. Gylfi bendir á, að ytri aðstæður hafi líka mikil áhrif á flugrekstur og í því sambandi er heimsmark- aðsverð á olíu stærsta breytan. „Olíuverð hafði verið mjög lágt 2015 og 2016 en hækkaði síðan og um leið og það gerist fara veikustu félögin út vegna þess að launa- kostnaður þeirra er mun hærri en hjá samkeppnisfélögunum. Ice- landair er raunar með ennþá meiri launakostnað en WOW air var með en munurinn er sá að það félag er með meira eigið fé og þolir fyrir vikið meira.“ Fásinna að fara í verkföll Gylfi segir verkföll starfsfólks í ferðaþjónustu ekki hafa hjálpað á sama tíma og WOW air reri líf- róður. „Það var auðvitað fásinna að fara í verkföll sem sérstaklega beindust að þessari viðkvæmu grein sem greiðir svona há laun miðað við það sem sömu stéttir fá annars staðar. Það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að greiða miklu hærri laun fyrir sömu þjón- ustu í einu landi. Útflutnings- greinarnar hafa liðið fyrir mikinn kostnað sem þýðir að laun í evrum hér á landi eru mjög há. Það er þungbært að á sama tíma og þessi unga atvinnugrein er að berjast áfram sé verið að meiða hana með verkföllum. Því miður er þetta dæmi um marxíska hugsun sem hluti forystumanna verkalýðs- hreyfingarinnar aðhyllist.“ Hann segir okkur komin heila öld aftur í tímann með þessari hugsun, þar sem fyrirtækin í land- inu séu skilgreind sem óvinur laun- þega sem komnir séu í stríð við fjármagnseigendur. „Maður hélt að þetta stéttastríð hefði verið útkljáð fyrir að minnsta kosti sextíu árum. Ég hélt að allir væru farnir að skilja það að lífskjörin byggjast á því að fyrirtæki búi til verðmæti, veiti atvinnu og borgi laun. Það væri því nær fyrir verkalýðshreyf- inguna að vinna með öðrum og styðja við ferðaþjónustuna til að skapa meiri vinnu og betri lífskjör.“ – Skaðaði þessi marxíska stétta- barátta WOW air? „Ég veit svo sem ekki hversu mikill skaðinn var en það er alveg ljóst að þetta hjálpaði ekki. Félagið hefði án efa farið í þrot óháð þessu en það var eigi að síður undarlegt að horfa upp á verkföll á sama tíma og WOW barðist í bökkum.“ Gæta þarf að kostnaði Gylfi segir það gamla sögu og nýja að þegar kaup og kjör séu ákveðin verði að horfa til samkeppnishæfni viðkomandi greinar. Bera saman kostnað og tekjur hér heima við sambærilegar greinar erlendis. „Það er samanburðurinn sem skipt- ir máli. Við verðum að gæta þess að kostnaðurinn sé ekki miklu meiri hér. Það endar alltaf með ósköp- um.“ Áður en WOW air hvarf af mark- aði var útlit fyrir að ferðamönnum kæmi til með að fækka og varla eru tíðindi vikunnar til þess fallin að draga úr þeirri spá. „Ef áhrif gjald- þrotsins á fjölda ferðamanna verða mikil þá getur gengi krónu lækkað með þeim afleiðingum að allt verð- ur hlutfallslega ódýrara hérna. Á móti kemur að öfugt við 2008 er krónan að hjálpa. Verði höggið mikið lækkar hún sem þýðir að ís- lenskt vinnuafl verður ódýrara í evrum. Lífskjör fólksins í landinu munu rýrna en útflutningsfyr- irtækin munu hagnast meira. Krónan er með öðrum orðum högg- deyfir í kerfinu, eins og það blasir við okkur í dag, af því að passað hefur verið upp á það undanfarin ár að einstaklingar og krónufyrirtæki séu ekki með erlend lán eins og var svo algengt 2008. Þetta er óháð kjarasamningum. Verði samið um miklar launahækkanir lækkar krónan líklega ennþá meira.“ Út úr okkar hagkerfi Spurður hvort hann sjái fyrir sér að Íslendingar komi í náinni fram- tíð til með að reyna að spreyta sig á nýjan leik á rekstri lágfargalda- flugfélags svarar Gylfi: „Þeir þyrftu þá að gera það með höf- uðstöðvar annars staðar, þar sem íslensk vinnulöggjöf og íslenskir kjarasamningar eiga ekki við. Flest fyrirtæki á Íslandi sem ná ein- hverri drift koma sér út úr okkar hagkerfi; má þar nefna fyrirtæki eins og Marel og Össur, auk stórra fyrirtækja í sjávarútvegi sem eru að miklu leyti fyrir utan krónu- hagkerfið.“ Spurður um verð á flugmiðum til íslenskra neytenda segir Gylfi heimsmarkaðsverð á olíu ráða meiru þar um en gjaldþrot WOW air. „Túristabylgjan sem varð hérna kom í kjölfar þess að olíuverð hrundi úr 100 í 50 dollara í byrjun árs 2015. Þessi helmingslækkun hafði í för með sér að kostnaður flugfélaganna varð minni og fyrir vikið gátu þau lækkað fargjöldin. Ferðaþjónustubólan hefur að ein- hverju leyti verið drifin áfram af lækkuðu olíuverði og það verður undirliggjandi breyta áfram. Þegar olíuverðið fór aftur hækkandi, fyrst 2017 og svo aftur 2018, fór upp í 80 dollara áður en það byrjaði að lækka lítillega aftur, lentu lágfar- gjaldaflugfélögin í vandræðum víðsvegar um heim og nokkur þeirra hafa farið í þrot.“ Haldist olíuverð lágt telur Gylfi líklegt að önnur flugfélög muni fylla í skarð WOW air. Fari verðið upp verði á hinn bóginn dýrara að ferðast til landsins og frá en verið hefur undanfarin ár og misseri. Morgunblaðið/Hari Höfuðstöðvar þyrftu að vera erlendis Það gengur ekki til lengdar að reka lágfargjaldaflugfélag í landi þar sem launin eru eins há og á Íslandi. Þetta er afstaða Gylfa Zoëga prófessors í hagfræði sem segir Íslendinga þurfa að hafa höfuðstöðvarnar erlendis ætli þeir að spreyta sig á slíkum rekstri í náinni framtíð. Þá fylgi jafnan miklar sveiflur heimsmarkaðsverði á olíu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor. Morgunblaðið/Ómar Loksins fáanlegir aftur á Íslandi www.velaborg.is | Járnhálsi 2-4 | 110 Reykjavík | Sími 414-8600 LYFTARARNIR Til á lager

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.