Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Síða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Síða 13
Guðlaug segir að rauði þráðurinn í hennar lífi hafi verið að upplifa mikla þreytu og í dag hafi hún skilning á því og leyfi sér að hvíla sig. „Ég skil betur ástæðurnar að baki því í dag. Þetta er eins og þynnka af því að vera í miklu áreiti; það er kallað „social-hangover“ – þessi þreyta sem kemur eftir að fara í gegnum dag- inn þar sem maður er í stöðugum samskiptum við fólk og innan um daglegt áreiti. Þetta er meira átak fyrir þá sem eru á einhverfurófi, maður verður hálfgrillaður og orkulítill. Ég prófaði einmitt að taka ginseng þegar ég var í skóla til að fá smá orku en það virkaði þannig að einbeitingin varð einum of – ég gat ekki einu sinni sónað út og sleppt því að heyra eina setningu frá kennaranum! En greiningin finnst mér eiginlega bara jarðtenging, ég set hlutina í samhengi. Ég á mína stráka og finnst þeir brjál- æðislega skemmtilegir og hef mjög gaman af ýmsu sem fylgir þeim, svo sem þessu bók- staflega. Mér finnst þetta bara mjög skemmti- leg sérkenni að hafa og finnst ekkert verra að vera orðin staðsett þarna með þeim.“ Syndi ekki með straumnum Hvað finnst þér þú hafa í lífinu sem kemur sem styrkleiki frá því að vera á einhverfuróf- inu? „Það sem mér finnst kannski vænt um er hæfileikinn til að geta hugsað út fyrir kassann og sjá hlutina svolítið utan frá. Maður er ekki alveg partur af þessari sultu sem er að hrær- ast í pottinum. Mér finnst þessi krítíska hugs- un oft nýtast. Nám hefur legið fyrir mér svo til fyrirhafnarlaust, hvort sem það er gott eða slæmt. Í gegnum tíðina hef ég alls ekki synt með straumnum og mér líður betur með það, ég hef verið óhrædd við að benda á ýmislegt og segja að eitthvað eigi ekki að vera svona og hinsegin. Það hefur hins vegar oft ekkert komið mér sjálfri allt of vel.“ Guðlaug heldur úti bloggi um konur á ein- hverfurófinu, hlidstaedverold.blog, sem hún segir sitt framlag til að breiða út þekkingu um stúlkur og konur á einhverfurófi. Þú hefur alveg verið opin með þína grein- ingu frá því þú fékkst hana. „Já. Ég hef í rauninni aldrei getað farið í fel- ur með eitt eða neitt, það er partur af rófinu að geta ekki verið tvöfaldur í roðinu. Ég hugsaði þetta líka þannig að ef maður væri úti að keyra í umferðinni, þá væri ekki nóg að spenna eigið öryggisbelti, það þyrfti líka að vera merkjasending. Ég hugsaði að ég þyrfti bara að hafa einhvern fána upp úr hausnum þannig að fólk skildi. Partur sem ég hef heyrt um mig í gegnum tíðina er að ég sé hrokafull, fjarræn, hlusti ekki og hafi engan áhuga á öðrum. Þetta hefur endurómað í gegn- um tíðina. Ég var orðin svolítið leið á því; að fá að heyra að maður væri bara einhver hroka- gikkur sem þyldi ekki annað fólk. Þannig að einhverju leyti var það það og svo bara í gegnum tíðina hef ég haft mjög mikinn áhuga á jafnréttismálum og heilsu kvenna. All- ar heilsufarsrannsóknir eru að megninu til gerðar út frá karlmönnum, rannsóknir eru gerðar á karldýrum og það miðast alltaf allt við karla. Hjartaáföll voru lengi vel greind út frá því sem karlar finna, meðan konur hafa allt önnur einkenni. Öryggisbúnaður í bílum er miðaður við karlkyns líkama. Mér finnst því að mín saga megi heyrast. Mig langar líka að benda á að þú getur verið að áorka hellingi, farið út um allt og þetta get- ur verið styrkur að vera á einhverfurófinu.“ Mikilvægt að það verði vakning Guðlaug telur afar mikilvægt að það verði vakning um hvernig stúlkur á einhverfurófi sýni önnur einkenni en drengir, það verði fræðsla í skólum og víðar. „Ekki bara fyrir nemendur heldur kennara, það er það fólk sem þarf að geta séð stelpurnar en við erum svo blessunarlega ósýnilegar þar að það hálfa væri nóg og þar eigum við oft mjög svipaða sögu. Höfum kannski verið af- burðanámsmenn en félagslega allt í rugli, ein- elti, ofbelti og misnotkun,“ segir Guðlaug en sjálf upplifði hún einelti í skóla þegar hún var 10 ára og lenti í ofbeldissambandi sem ung kona, um tvítugt. „Þetta er bara svolítið rauði þráðurinn í reynslu kvenna á einhverfurófi. Ég held að rosalega mörg af eineltismálum í skóla séu vegna þess að krakkar geti ekki lesið hver annan.“ Hvernig viðbrögð fékkstu þegar þú komst fram og sagðir frá því að þú værir með Asper- ger? „Ég fékk mjög góð viðbrögð og það sem ég var að vonast kannski eftir og gerðist var að fólk, sem var að velta fyrir sér kannski eigin ástandi eða dóttur sinnar, hafði samband. Ég er nákvæmlega eins og ég hef alltaf verið og hafi ég verið eitthvað galin þá er ég það líka núna! En í dag get ég frekar sett mér og öðr- um meiri mörk. Mér er ofarlega í huga hversu nauðsynlegt sjónarhorn einhverfra er samfélaginu, að við séum við borðið þar sem ákvarðanir eru tekn- ar. Þegar sagan er skoðuð hafa einmitt oft ein- hverfir hugsuðir komið fram með góðar breyt- ingar og nýjungar, verið ákveðið hreyfiafl. Þetta finnst mér mikilvægt, sem þátttakanda í pólitík og öðrum félagsstörfum, að tryggja sem breiðasta aðkomu ólíks fólks. Við þurfum á því að halda.“ Morgunblaðið/Eggert 31.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.