Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Page 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Page 19
Langar þig í ný gleraugu! Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun! Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Velkomin til okkar ’Um leið ogmaður hreyfirsig í sjónum ímyrkrinu lýsist allt upp. Þetta var eins og í Disney-bíó- mynd, algjörlega klikkað! sínum reglulega bréf og skæpar við þau. Þannig að þetta er líka kennsla í landafræði, fyrir hann og allan bekkinn, í leiðinni,“ segir Alexía. Pítsa með naggrís Alexía nefnir að kennarar krakk- anna hafi hvatt þau til að upplifa sem mest og ekki eyða of miklum tíma í heimalærdóm. Nóg myndu þau læra samt! „Þetta finnst okk- ur frábært viðhorf hjá skólunum, Melaskóla og Hagaskóla. Það líður ekki sá dagur að börnin, og við öll, lærum ekki eitthvað nýtt. Heim- urinn er risastór skólastofa.“ Fátt hefur komið upp á sem hefur sett strik í reikninginn nema hvimleið moskítóbit og ein- staka magapína en þau hafa pass- að vel upp á hvað þau borða. „Maturinn hér er geggjaður og við erum farin að þora að smakka meira með hverri vikunni og hverju landinu. Hérna í Ekvador er naggrís mjög algengur matur. Um daginn var hér pítsukvöld og hægt var að velja margarítu eða pítsu með naggrís,“ segir hún og hlær. „Við ákváðum að sneiða hjá naggrísnum!“ Alexía segir ferðina dásamlega í alla staði og nefnir að löndin í Suður-Ameríku séu alls ekki hættuleg. Hún segir marga hafa varað þau við hættum en sjálf seg- ist hún ekki upplifa neitt annað en velvild heimamanna og öryggi hvert sem þau fara, enda séu þau heldur ekki að taka neina óþarfa áhættu eða ana út í óvissu. Alexía myndi ekki hugsa sig tvisvar um ef hún fengi fleiri tækifæri til að ferðast á þennan máta. „Ég myndi hiklaust mæla með svona ferð; þetta er það gáfuleg- asta sem við höfum gert í lífinu. Þetta er svo hollt og gott og það er svo gaman að vera svona mikið með börnunum. Ég er að kynnast þeim á annan hátt. Og svo er ynd- islegt að sjá veröldina.“ Hægt er að fylgjast með ferða- laginu á vertuuti.is og einnig á instagramsíðunni guslextravel. Hjónin Guðmundur og Alexía njóta sín vel á suðrænum slóðum. Krakkarnir þurfa stundum að læra heima og þá sérstaklega stærðfræði. 31.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.