Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Side 29
voldugum einsöngslögum við góðar
undirtektir áheyrenda og með
tölvutækni sem lætur gítarinn
hljóma eins og strengjasveit.
Trommuleikararnir hafa staðið
skemur við. John Blunt leiddist út í
fíkniefnaneyslu og var rekinn 1969.
Billy Adamson stóð vaktina til 1998
en sagði þá upp með látum, hafði
lengi verið ósáttur við sinn hlut sem
launamaður, auk þess sem hann
fékk ekki að leika á hljómplötum
sveitarinnar, bara á tónleikum. Síð-
an kom Eddie Rothe og lék allt til
ársins 2010, en hætti þá spila-
mennsku og giftist vinkonu frá
æskuárunum sem var orðin forrík
sjónvarpsstjarna. Í hans stað kom
„ungi maðurinn“, Scott Ottaway, þá
aðeins 38 ára. Hann þarf nú að leita
sér að annarri vinnu, en hinir þrír
eru allir komnir á eftirlaunaaldur.
Spencer James getur þó örugglega
hugsað sér að halda áfram enn um
sinn, enda fjölhæfur listamaður og
vinsæll.
Meðlimir hljómsveitarinnar
The Searchers á Schiphol-
flugvelli í Amsterdam 1965.
Ljósmynd/Jac. de Nijs/Anefo/Wikimedia Commons
31.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
TÓNLIST FKA Twigs er á meðal
þeirra sem koma fram á tónlist-
arhátíðinni Afropunk í ár. Hátíð-
in verður haldin hinn 24. og 25.
ágúst í Commodore Barry-
garðinum í Brooklyn í New York.
Einnig koma fram Gary Clark
Jr., Santigold, Jill Scott og Ka-
masi Washington og margir
fleiri. Hátíðin þykir lífleg og enn-
fremur verður haldin hljóm-
sveitakeppni, markaður og fyr-
irlestrar. Þemað í ár er „We See
You“ eða „við tökum eftir þér“.
FKA Twigs á Afropunk
FKA Twigs á sviði í Laugardalnum árið
2015 en hún kom fram á Secret Solstice.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hinar sígildu barnabækur um Emmu og Tuma
eru komnar út á ný en hver man ekki t.d. eftir
bókinni Emma öfugsnúna? Höfundur er Gunilla
Wolde en Anna Valdimarsdóttir þýddi. Aðrar
bækur með sömu persónum eru Tumi bakar,
Emmu finnst gaman í leikskólanum og Tumi fer
til læknis. JPV gefur út.
Út er komin nýr spennutryllir, Lasarus, eftir Lars
Kepler, sem er höfundarnafn hjónanna Alexöndru og
Alexanders Ahndoril. Aðalsöguhetjan er hinn eft-
irminnilegi Joona Linna en í bókinni leitar þýska lög-
reglan til hans vegna morðs sem fram-
ið hefur verið rétt utan við Rostock.
Eyrún Edda Hjörleifsdóttir þýddi og
JPV gefur út.
Mataráhugafólk ætti að gleðjast yfir bókinni Pie
Fidelity: In Defence of British Food eftir Peter Brown
sem kom út í vikunni. Í henni eru hefðbundnir breskir
réttir skoðaðir og hvað þeir þýða fyrir þjóðarsálina.
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR
Ég reyni að hafa
fjölbreytni í því
sem ég er að lesa
og er oftast með
fleiri en eina bók í
gangi í einu. Ég
var að klára Sex-
tíu kíló af sólskini
eftir Hallgrím
Helgason og var alveg heilluð og
sakna hennar – en það gerist með
bækur sem eru virkilega vel skrif-
aðar.
Mér finnst dásamlegt að lesa
bækur sem eru fallega skrifaðar.
Inn á milli vil ég svo auðlesnari
bækur þar sem ég þarf ekki að
hafa eins mikla
athygli. Svo reyni
ég að lesa bækur
sem eru ekki
skáldsögur með,
þá annaðhvort
ævisögur eða
eitthvað smá
fræðilegt.
Síðasta ævi-
sagan sem ég las
var The Last
Black Unicorn
eftir Tiffany
Haddish, bráð-
fyndin, mjög
áhugaverð en
líka átakanleg
saga úr amerískum samtíma.
Á náttborðinu er líka bókin
Why We Sleep: Unlocking the
Power of Sleep and Dreams eftir
Matthew Walker, vísindaleg en
skemmtilega skrifuð, mjög holl
lesning sem fær mig aðeins til að
hægja á ferðinni – og sofa meira.
JÓRUNN ER AÐ LESA
Saknar sólskinsins
Jórunn
Atladóttir er
skurðlæknir.
Þónokkrir smellir The
Searchers rötuðu of-
arlega á breska vin-
sældalistann. Sæti á lista
eru í sviga:
Sweets for My Sweet (1)
Sugar and Spice (1)
Needles and Pins (2)
Don’t Throw Your Love
Away (1)
Someday We’re Gonna
Love Again (11)
When You Walk in the
Room (3)
Love Potion No. 9 (3 í
Bandaríkjunum)
What Have They Done
to the Rain (13)
Goodbye My Love (4)
He’s Got No Love (12)
Take Me For What I’m
Worth (20)
Margir smellir
20-50% afsláttur
á debe.is og Glerártorgi Akureyri
VETRARÚTSALA
Minnum á lagersöluna í Holtagörðum
BÓKSALA 20.-26. MARS
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 LasarusLars Kepler
2 Húðflúrarinn í AuschwitzHeather Morris
3 Hin ósýnileguRoy Jacobsen
4 MoldrokMons Kallentoft
5
Hringfarinn
Helga Guðrún Johnson /
Kristján Gíslason
6 BlóðhefndAngela Marsons
7 Sagas of the Icelanders
8 Independent PeopleHalldór Laxness
9 Sextíu kíló af sólskiniHallgrímur Helgason
10 MatthildurRoald Dahl
1 MatthildurRoald Dahl
2
Harry Potter og visku-
steininn
J.K. Rowling
3 Villinorn – blóð ViridíönuLene Kaaberbøl
4 Hvar er Depill?Eric Hill
5 VitinnRóbert Marvin
6
Dundað í fríinu – skrifum
og þurrkum út
Kirsteen Robson
7
Lubbi finnur málbein
Eyrún Í. Gísladóttir / Þóra
Másdóttir / Þórarinn Eldjárn
8 Hulduheimar 5 – töfrafjalliðRosie Banks
9 Litli prinsinnAntoine de Saint-Exupéry
10 DraugaslóðKristín Helga Gunnarsdóttir
Allar bækur
Barnabækur