Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Side 32
SUNNUDAGUR 31. MARS 2019
Á hverju ári stendur Wacken fyrir hljómsveitakeppn-
inni W:O:A Metal Battle og verður hún haldin í níunda
sinn á Íslandi í ár. Sex sveitir keppa um stóra hnossið:
Að komast á Wacken Open Air að spila og taka þátt í
lokakeppninni þar sem til margs er að vinna. Farið
verður vandlega yfir umsóknir og mun sérstök nefnd
velja sveitirnar sex til að keppa. Það gildir því ekki
fyrstur kemur fyrstur fær, heldur gæði. Því eru sveitir
hvattar til að vanda vel til umsókna, skila tónlist í mikl-
um gæðum og þess háttar.
Það var Une Misère sem sigraði í íslensku und-
ankeppninni síðast og fór því út til Wacken fyrir Íslands
hönd þar sem sveitin hafnaði í fjórða sæti. Var það ann-
að árið í röð sem Ísland lenti í topp fimm í keppninni en
árið á undan landaði sveitin Auðn þriðja sætinu. „Frá-
bær árangur og gríðarleg kynning fyrir íslenska tón-
list,“ segir Þorsteinn Kolbeinsson, aðstandandi keppn-
innar hér heima.
Keppnin verður haldin 11. maí á Húrra og sérstakir
gestir verða Une Misère. „Ljóst er að öllu verður tjald-
að til. Viðburðinn hefur verið með flottari viðburðum í
þungarokkinu á klakanum síðustu ár en reynslan sýnir
að þátttökusveitirnar eiga sín allra bestu gigg í þessari
keppni, enda mikið í húfi,“ segir Þorsteinn.
Ljósmynd/Ívar Eyþórsson
Málmbræður berjast
Opnað hefur verið fyrir skráningu í Wacken Metal Battle 2019 og er
umsóknarfrestur til og með 3. apríl. Sex bönd berjast þar um réttinn til að
verða fulltrúi Íslands á einni stærstu málmhátíð heims, Wacken Open Air.
Une Misère í essinu sínu
á Secret Solstice í fyrra.
„Sjónvarp fyrir fjöldann er ekki
lengur draumur eða hugsjón,
sem bíða verður eftir lengi, að
gerð verði að veruleika.“
Þessi gagnmerku tíðindi flutti
Morgunblaðið lesendum sínum
á þessum degi fyrir áttatíu ár-
um, 31. mars 1939.
Fram kom í fréttinni að
nokkrum vikum fyrr (upplýs-
ingar ferðuðust ekki eins hratt á
milli landa þá og nú) hefði hnefa-
leikakeppni milli tveggja nafn-
kunnra hnefaleikamanna, Boon
og Danahar verið sjónvarpað í
Englandi og sjónvarpið sýnt í
stað kvikmynda í þrem stórum
kvikmyndahúsum í London.
„Myndirnar voru afburða skír-
ar og greinilegar. Einn eða tveir
smávægilegir gallar komu í ljós,
eins og vænta mátti, þar sem
hjer var um að ræða fyrstu til-
raun, en annars gátu áhorfend-
urnir fylgst með því, sem var að
gerast á hnefaleikapallinum eins
og áhorfendurnir, sem sátu næst
pallinum, þar sem hnefa-
leikakeppnin fór fram,“ sagði
ennfremur í fréttinni.
Boon vann bardagann í fjór-
tándu lotu.
GAMLA FRÉTTIN
Sjónvarp
ekki lengur
draumur
Breski hnefaleikamaðurinn Eric Boon tók sig vel út í sjónvarpinu árið 1939.
Hann vann 92 af 119 bardögum sem hann háði á ferlinum. Boon lést 1981.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Einar Hermannsson
eigandi Útimiðla
Örn Thomsen
framkv.stj. Arctic Trucks Noregi
Heimir Már Pétursson
fréttamaður
Aðeins 142.425 kr.
Dökk- eða silfurgrátt slitsterkt áklæði
Hægri og vinstri tunga.
Fullt verð: 189.900 kr.
NEWMALMÖ
hornsófi með tungu
25%
AFSLÁTTUR
VIKUTILBOÐ
Aðeins 167.920 kr.
Ljós- eða dökkgrátt slitsterkt ákl
Hægri og vinstri tunga.
Stærð: 315 x 215/143 cm.
Fullt verð: 209.900 kr.
TAMPA
u-sófi
20%
AFSLÁTTUR
VIKUTILBOÐ
AVIGNION
hægindastóll
Stillanlegur
hægindastóll með
innbyggðum skemli.
Dökkgrátt PVC-leður.
Fullt verð: 129.900 kr.
Aðeins 103.920 kr.
20%
AFSLÁTTUR
VIKUTILBOÐ
Aðeins 74.925 kr.
Aðeins 41.175 kr.
Stóll
Þriggja sæta sófi
Slitsterkt áklæði. Blár, grár, brúnn og rauður.
Stóll fáanlegur í sömu litum. Stærð sófa: 186 x 77 cm, H: 85 cm.
Fullt verð á sófa : 99.900 kr. Fullt verð á stól : 54.900 kr.
BOGGIE
Stóll og
3ja sæta
sófi
KLASSÍSK
hönnun
25%
AFSLÁTTUR
BOGGIE
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum)
Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi)
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Vikutilboð
28.mars til 3. apríl
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI