Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 0. A P R Í L 2 0 1 9 Stofnað 1913  85. tölublað  107. árgangur  LANGAR AÐ UPPLIFA STEMN- INGUNA Í VAL MINNKA AFFÖLL BÓLUEFNA UMBREYTINGU FYLGIR ALLTAF SÁRSAUKI VIÐSKIPTAMOGGINN LJÓÐ BJARNEYJAR 28ÍÞRÓTTIR 24-27 Mikil verðmæti » Á árabilinu 2020-2023 hefði WOW fengið úthlutaðar los- unarheimildir að andvirði 1,2 milljarðar króna. » Ekkert verður af úthlutun. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Forsvarsmenn WOW air seldu los- unarheimildir vegna útblásturs frá starfsemi félagsins skömmu áður en félagið fór í þrot. Andvirði söl- unnar, sem nam um 400 milljónum króna samkvæmt heimildum Við- skiptaMoggans, átti að nota til að standa straum af launagreiðslum vegna marsmánaðar. Fjármunir vegna sölu heimildanna komu hins vegar aldrei í hlut fyrirtækisins meðan það starfaði. Greiðslan fyrir þær barst ekki fyrr en um nýliðin mánaðamót eða nokkrum sólar- hringum eftir að flugfélagið var gefið upp til gjaldþrotaskipta. Los- unarheimildir þær sem félagið hef- ur fengið úthlutaðar án endurgjalds á síðustu árum hafa sífellt orðið verðmætari en heimildir af þessu tagi ganga kaupum og sölum. Þann- ig hefur hver losunarheimild, sem jafngildir einu tonni af koltvísýr- ingi, hækkað úr rúmum 13 evrum fyrir ári í rúmar 24 evrur um þess- ar mundir. WOW hafði fengið út- hlutaðar ríflega 150 þúsund ein- ingar fyrir árið í ár. WOW seldi losunarheimildir  Félagið framseldi losunarheimildir fyrir 400 milljónir  Átti að ganga upp í greiðslu launa í mars  Slitabúið fékk fjármunina í hendur eftir gjaldþrotið MViðskiptaMogginn Morgunblaðið/Hari Skýrsla Guðrún Jónsdóttir kynnti skýrslu Stígamóta fyrir árið 2018. 784 konur og karlar leituðu til Stíga- móta í fyrra vegna kynferðisofbeldis sem þau höfðu orðið fyrir, þar af komu 359 einstaklingar þangað í fyrsta skipti. Þetta kemur fram í ársskýrslu Stígamóta fyrir árið 2018 sem kynnt var í gær. Fæst málanna enda fyrir dómstólum, í mörgum tilvikum eru þau fyrnd og ein helsta áskorun Stígamóta er að stytta þann tíma sem líður þar til þolendur kynferðisofbeld- is treysta sér til þess að segja frá of- beldinu. Afleiðingarnar geta orðið al- varlegri eftir því sem lengri tími líður án þess að brotaþoli leiti sér aðstoðar. Um 27% þeirra sem leituðu til sam- takanna í fyrra höfðu gert tilraun til sjálfsvígs og mátti rekja það til of- beldisins. „Við erum fyrst og fremst að fást við gömul leyndarmál,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stíga- móta. Hún segir að mörg ár, jafnvel ára- tugir, geti liðið þar til þolendur kyn- ferðisofbeldis treysti sér til þess að segja frá ofbeldinu. „Til dæmis feng- um við símtal frá lækni fyrir nokkru sem bað okkur að koma og tala við há- aldraða konu sem lá banaleguna. Hún hafði orðið fyrir kynferðisofbeldi þeg- ar hún var barn og vildi ekki fara með það í gröfina.“ »12 Sagði frá á dánarbeðnum  Yfir fjórðungur skjólstæðinga Stígamóta reyndi sjálfsvíg Barnamenningarhátíð hófst í gær. Tónskóli Sig- ursveins og leikskólar í Reykjavík buðu til tón- leika í Eldborgarsal Hörpu. Þar komu fram 5-6 ára leikskólabörn og forskólanemendur í Tón- skóla Sigursveins. Einnig lék hátíðarhljómsveit nemenda úr tónskólanum. Gestir úr söng- leiknum Matthildi í Borgarleikhúsinu komu einnig fram. Upplýsingar um dagskrá hátíð- arinnar eru á barnamenningarhatid.is. Börnin sungu og léku á hljóðfæri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon  Donald Tusk, forseti leiðtoga- ráðs Evrópusam- bandsins (ESB), skrifaði leiðtogum ESB í gærkvöldi og sagði að litlar ástæður væru til að trúa því að breski forsætis- ráðherrann Ther- esa May kæmi Brexit-samkomulaginu í gegnum breska þingið fyrir sumarið. The Telegraph greindi frá því í gærkvöldi að Brexit gæti dregist allt upp í eitt ár. Evrópskir leiðtogar hefðu varað May við því að of mikil áhætta fylgdi því að framlengja út- göngufrest aðeins til loka júní. »13 Brexit gæti dregist allt upp í eitt ár Donald Tusk Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sér fyrir sér að Bjarg íbúðafélag og fyrirhugað húsnæðisfélag, Blær, geti byggt 600-800 íbúðir á ári. Til samanburðar sé áætlað að byggja þurfi 1.800 til 2.200 íbúðir á ári. Samkvæmt þessum tölum gætu félögin tvö því verið með um og yfir þriðjung nýrra íbúða á landinu. Ragnar Þór kveðst aðspurður sjá fyrir sér að ríkið geti lagt til eigin- fjárlán vegna íbúða sem byggðar eru á vegum Blæs. Rætt hefur verið um að slík lán geti orðið 15-30% af kaup- verði og þannig stutt við tekjulága. Hann segir af ef fyrirhuguð áform rætast muni það leiða til breytingar á íslenskum húsnæðismarkaði. Vegi á móti sveiflum „Við sjáum fyrir okkur að Blær geti eins og Bjarg gegnt sveiflujöfn- unarhlutverki fyrir byggingariðnað- inn. Að það sé eitthvert félag sem er fjármagnað og hafi burði til þess að skrúfa frá einum framkvæmdakrana þegar einhverjar aðrar forsendur í efnahagslífinu skrúfa fyrir aðra,“ segir Ragnar Þór um möguleg áhrif félagsins. »10 Bjarg og Blær byggi þriðjung nýrra íbúða  Skipulagsyfirvöld í Reykjavík vinna nú að því að innleiða varan- legar göngugötur í miðborginni. Verður verkinu skipt í þrjá áfanga og vonast er til að framkvæmdir hefjist í ár. Í sumar verður göngu- götusvæðið minnkað frá því sem verið hefur til að hægt sé að dreifa umferð betur. Fram til þessa hafa allir sem hafa keyrt niður Lauga- veginn þurft að beygja niður Vatns- stíg. Í ár nær göngusvæðið bara upp að Klapparstíg en í staðinn verður akstursstefnunni snúið við frá Klapparstíg að Frakkastíg. Við- mælendur Morgunblaðsins muna ekki til þess að umferð hafi áður verið beint upp Laugaveginn en á stríðsárunum var umferð í báðar áttir um Bankastræti. »6 Umferð beint upp Laugaveg í sumar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.