Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 24
EM 2020 Ívar Benediktsson iben@mbl.is Annar hluti undankeppni Evr- ópumeistaramóts karla í handknatt- leik hefst í kvöld þegar flautað verð- ur leiks í fjölda leikja í undanriðlunum átta. Áfram verður síðan haldið annað kvöld og um helgina. Lokaspretturinn verður tek- inn um miðjan júní með tveimur um- ferðum eins og nú. Þegar úrslit leikj- anna í júní verða ljós liggur fyrir um leið fyrir hvaða landslið taka sæti í lokakeppni Evrópumótsins sem hald- in verður í janúar í sameiginlegri um- sjón Austurríkismanna, Svía og Norðmanna. Mótið í janúar verður það fyrsta þar sem 24 landslið koma saman en frá EM 2002 hafa þátttökulið verið 16 og þar áður 12 frá 1994 er fyrsta loka- keppni EM fór fram í kjölfar stofn- unar Handknattleikssambands Evr- ópu tveimur árum áður. Alls komast landslið 20 þjóða áfram úr riðla- keppninni, þ.e. tvö efstu lið hvers rið- ils undankeppninnar og fjórar þær sem ná bestum árangri þeirra sem hafna í þriðja sæti í riðlunum átta. Lið gestgjafanna þriggja bætast í hópinn auk ríkjandi Evrópumeistara Spánar. Sigur fleytir liðinu langt Íslenska landsliðið tekur á móti landsliði Norður-Makedóníu í Laug- ardalshöll í kvöld. Vinni íslenska liðið leikinn má segja að það sé komið með aðra höndina á farseðilinn í loka- keppnina. Má nær því slá föstu að ís- lenska landsliðið hafni aldrei neðar en í öðru sæti riðilsins. Íslenska landsliðið fór vel af stað í riðlakeppninni í haust og vann Grikki örugglega í Laugardalshöll 24. októ- ber, 35:21, og Tyrki í Ankara fjórum dögum síðar með 11 marka mun, 33:22. Þar af leiðandi situr íslenska landsliðið í efsta sæti þriðja riðils undankeppninnar. Norður- Makedóníumenn unnu Tyrki í októ- ber en töpuðu óvænt á útivelli fyrir Grikkjum og sitja í öðru sæti með tvö stig. Grikkir hafa sömuleiðis tvö stig. Tyrkir reka lestina án stiga eftir að hafa tapað viðureignum sínum til þessa fyrir Íslendingum og Norður- Makedóníu. Mætast á ný á sunnudaginn Eftir leikinn í Laugardalshöll í kvöld halda lið beggja þjóða til Skopje, höfuðborgar Norður- Makedóníu, og þar sem þau leiða saman hesta sína öðru sinni í hinni glæsilegu íþróttahöll sem nefnd er eftir fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Boris Trajkovski, sem lést fyrir um hálfum öðrum áratug í flug- slysi í Bosníu og var þjóð sinni harm- dauði. Lokaleikir íslenska landsliðsins í riðlakeppninni verða við Grikki í Kozandi í Grikklandi 12. júní og við Tyrki í Laugardalshöll fjórum dög- um síðar. Vel þekktur andstæðingur Íslendingar hafa margoft á síðustu árum mætt Norður-Makedón- íumönnum á handknattleiksvellinum. Segja má að Norður-Makedón- íumenn séu orðnir jafn hversdags- legur andstæðingur á handboltavell- inum og nágrannar þeirra frá Króatíu eru landsliðinu á fótbolta- vellinum. Síðast mættust landslið Íslands og Norður-Makedóníu í handknattleik karla í München fimmtudaginn 17. janúar á HM. Úrslit þeirrar við- ureignar skáru úr um hvort liðið kæmist í milliriðlakeppnina. Í hörku- leik vann íslenska liðið með tveggja marka mun, 24:22. Var það um leið síðasti sigurleikur Íslands á mótinu. Litlar sem engar breytingar hafa orðið á leikmannahópum beggja landsliða frá leiknum í Ólympíu- höllinni í München þar sem Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur í íslenska liðinu með 10 mörk. Nýr þjálfari en án byltingar Vegna litilla breytinga og stutts undirbúningstíma má reikna með að uppleggið í leiknum í kvöld verði svipað og í viðureigninni í janúar. Annar þjálfari verður reyndar við stjórnvölinn hjá Norður-Makedón- íumönnum í kvöld en var á HM. Hann hefur ekki umbylt leik liðsins á örfáum æfingum. Sennilegt er því að Norður-Makedóníumenn haldi sig við að leika oftast með sjö menn í sókn. Þ.e. tvo sterka og stóra línu- menn og fimm menn fyrir utan þar sem Kiril Lazarov verður í aðal- hlutverki auk þeirra Dejan Manas- kov, Filip Kuzmanovski og Filip Ta- leski. Leikmenn landsliðs Norður-Makedóníu eru sterkbyggðir en að sama skapi ekki eins úthalds- miklir ef leikurinn verður hraður. Hraður leikur er ekki þeirra uppá- hald. Búast má þar af leiðandi við að leikurinn reyni mjög á líkamlegan styrk íslensku leikmannana, nokkuð sem ætti að vera þeim í fersku minni. Frönsku bræðurnir og dómararnir Karim Gasmi og Raouf Gasmi flauta til leiks klukkan 19.45. Þeir eru 31 og 33 ára gamlir og dæmdu m.a. á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Danmörku og Þýskalandi í upphafi ársins. Bræðurnir komu ekki við sögu í leikjum íslenska landsliðsins á mótinu. Þráðurinn frá München tekinn upp?  Franskir bræður dæma viðureign Íslands og Norður-Makedóníu í Höllinni AFP Átök Ólafur Gústafsson er lykilmaður í varnarleik Íslands og er hér með tröllið Stojanche Stoilov í heljargreipum í leik liðanna á HM í janúar. 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 Meistaradeild karla 8-liða úrslit, fyrri leikir: Tottenham – Manchester City ............... 1:0 Heung-Min Son 78. Liverpool – Porto .................................... 2:0 Naby Keita 5., Roberto Firmino 26. EM U19 kvenna Milliriðill í Hollandi: Holland – Ísland....................................... 2:1 Alexandra Jóhannsdóttir 48.(víti) Rússland – Búlgaría................................. 1:0  Lokastaðan: Holland 9, Ísland 4, Rúss- land 4, Búlgaría 0. Holland í lokakeppnina. England B-deild: Blackburn – Derby................................... 2:0 Bristol City – WBA .................................. 3:2 Preston – Leeds........................................ 0:2 Sheffield Wed. – Nottingham F.............. 3:0 Swansea – Stoke....................................... 3:1 Bolton – Middlesbrough .......................... 0:2 Staða efstu liða: Norwich 40 25 9 6 82:48 84 Leeds 41 24 7 10 68:42 79 Sheffield Utd 40 23 8 9 67:37 77 WBA 41 20 10 11 77:55 70 Bristol City 40 18 11 11 54:44 65 Vináttulandsleikir kvenna Þýskaland – Japan ................................... 2:2 Noregur – Nýja-Sjáland.......................... 0:1 Ítalía – Írland............................................ 2:1 Holland – Síle............................................ 7:0 Sviss – Slóvakía ........................................ 1:0 Portúgal – Ungverjaland......................... 4:1 Austurríki – Svíþjóð................................. 0:2 England – Spánn ...................................... 2:1 Pólland Bikarkeppnin, undanúrslit: Jagiellonia – Miedz Legnica................... 2:1  Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með Jagiellonia. Svíþjóð B-deild: Västerås – Brage ..................................... 1:1  Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn með Brage. KNATTSPYRNA „Þetta er úrslitaleikur um efsta sæti riðilsins. Við högum und- irbúningi okkar í samræmi við það,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, á fundi með frétta- mönnum í gær. Þar fór hann vítt og breitt yfir viðureign íslenska landsliðsins við landslið Norður- Makedóníu í undankeppni Evr- ópumótsins sem fram fer í Laug- ardalshöll og hefst kl. 19.45. „Leikurinn er stór og mik- ilvægur fyrir landslið beggja þjóða enda vilja þau bæði komast áfram í lokakeppni EM sem fram fer á næsta ári. Lið Norður-Makedóníu er skipað sömu leikmönnum og léku við okkur HM í janúar. Þeir eru stórir og líkamlega sterkir. Þess vegna er um skemmtilegt verkefni að ræða sem mun reyna mjög líkamlega á okkur,“ sagði Guðmundur. Líklega svipaður leikstíll Guðmundur Þórður telur að þrátt fyrir að annar þjálfari stýri landsliði Norður-Makedóníu um þessar mundir en þegar þjóðirnar leiddu saman hesta sína síðast þá verði leikur Norður-Makedón- íumanna með líkum hætti og áður. „Þeir hafa leikið með sjö menn í sókn svo lengi sem menn muna, eða því sem næst,“ sagði Guð- mundur Þórður með bros á vor. „Undirbúningstíminn er svo skammur. Þess vegna tel ég að þeir muni halda sig við þá leik- aðferð sem þeir eru þekktir fyrir. Ég vonast bara eftir góðum stuðningi í leiknum. Það er alltaf skemmtilegt að leika í Höllinni fyr- ir fullu húsi áhorfenda,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla. iben@mbl.is Búum okkur undir úrslitaleik í kvöld AFP Ákveðinn Guðmundur Þórður býr sig að vanda undir erfiðan leik. HANDBOLTI Umspil kvenna Undanúrslit, fyrsti leikur: HK – FH ............................................... 27:24  Staðan er 1:0 fyrir HK. ÍR – Fylkir ............................................ 22:24  Staðan er 1:0 fyrir Fylki. Danmörk Úrslitakeppnin, 2. riðill: Aarhus United – Esbjerg.................... 21:26  Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir Es- bjerg.  Staðan: Esbjerg 8, Aarhus United 4, Herning-Ikast 3, Viborg 2. ÍSLANDSMÓTIÐ íPepsí Max-deild karla og kvenna í knattspyrnu sumarið 2019 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir miðvikudaginn 17. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is | Sími: 569 1105 –– Meira fyrir lesendur 26. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.