Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 Álfabakka 12, 109 Reykjavík • S. 557 2400 • Netverslun elbm.is Opið virka daga kl. 8-18 Sængurverasett, dúkar, servíettur, viskustykki, dýnuhlífar & lök, sloppar & inniskór, handklæði & þvottapokar. Vörurnar fást í Efnalauginni Björg í Mjódd LÍN fyrir hótel, veitingahús, gistiheimili, sjúkrastofnanir og heimili Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Varmadælur Hagkvæmur kostur til upphitunar Verð frá aðeins kr. 145.000 m.vsk Midea KMB-E09 Max 3,4 kW 2,65 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,85) f. íbúð ca 40m2. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Hægt að fá WiFi sendi svo hægt sé að stjórna dælunni úr GSM síma Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land Wifi búnaður fylgir með öllum varmadælummeðan birgðir endast Mission Extreme Umhverfisvænn kælimiðill Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, fundaði í gær með Angelu Merkel Þýskalandskanslara og Emmanuel Macron Frakklandsfor- seta í þeirri von að hún gæti talið þau á að veita Bretum aukinn tímafrest til þess að ganga frá þeim vanda- málum sem komið hafa upp vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusam- bandinu. May hefur formlega óskað eftir því að núverandi tímafrestur, sem rennur út á föstudaginn, verði fram- lengdur til 30. júní næstkomandi. Leiðtogar hinna Evrópusambands- ríkjanna 27 munu funda í dag og á morgun til þess að rökræða hversu langur sá tímafrestur eigi að vera. Hermdu heimildir AFP-fréttastof- unnar að líklegt væri að fresturinn yrði veittur en á móti yrðu Bretar að sætta sig við hörð skilyrði um tak- markaða þátttöku þeirra í samstarfi ESB-ríkjanna. Þau skilyrði kæmu til dæmis í veg fyrir að Bretar tækju þátt í að velja næsta forseta fram- kvæmdastjórnar sambandsins eða hefðu nokkuð að segja um fimm ára fjármálaáætlun þess. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka- mannaflokksins, sagði í gær að við- ræður tveggja stærstu flokkanna í Bretlandi hefðu verið settar í bið- stöðu þar sem May vildi lítið gefa eft- ir varðandi kröfur flokks síns. Daily Telegraph birti í gær bréf frá Liam Fox, ráðherra utanríkisvið- skipta, til óbreyttra þingmanna Íhaldsflokksins þar sem hann talaði gegn tollabandalagi, sem er sú lausn sem Corbyn hefur talað mest fyrir. Sagði Fox að slíkt bandalag myndi tryggja að Bretar gætu hvorki samið um tolla við þriðja aðila né haft nokk- ur áhrif á þær stofnanir sem ákvörð- uðu tollana. „Eins og þeir segja í Brussel: ef þú ert ekki við borðið ertu á matseðlinum,“ sagði Fox enn- fremur. AFP Brexit Macron Frakklandsforseti tekur á móti Theresu May í París í gær. Frá Merkel til Macron  Theresa May reynir að fá ESB til að veita Bretum langan tímafrest  Viðræður flokkanna settar í biðstöðu Sameinuðu þjóðirnar tilkynntu í gær að sérstakri friðarráðstefnu, sem átti að hefjast næstkomandi sunnudag, hefði verið frestað. Markmið ráðstefnunnar var að fá stríðandi fylkingar til þess að koma sér saman um kosningar til þings og forsetaembættisins en þeim hefur ítrekað verið frestað vegna ótryggs ástands í landinu. Ghassan Salame, erindreki Sam- einuðu þjóðanna í landinu, sagði að ekki væri hægt að biðja fólk að funda á meðan skothríð og loft- árásir dyndu yfir því. Sagðist Sa- lame vonast til að hægt yrði að halda ráðstefnuna sem fyrst. Antonio Guterres, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær stríðandi fylkingar til þess að leggja niður vopn sín undireins. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna boðaði jafnframt til sérstaks fund- ar um ástandið síðar í dag. Mitiga-alþjóðaflugvöllurinn í Trípólí var opnaður á ný í gær, en honum var lokað á mánudaginn eftir að loftárás skildi eftir sig djúpan gíg á einni flugbrautinni. Þjóðarher Líbíu, sem er undir stjórn stríðsherrans Khalifa Haft- ar, lýsti yfir ábyrgð á árásinni, en enginn lést í henni. Salame for- dæmdi hana hins vegar sem brot á mannréttindalögum, sem bönnuðu árásir á borgaralega innviði ríkja. Ítalir tilkynntu í gær að þeir myndu ekki draga hermenn sína í Líbíu til baka þrátt fyrir átökin. Áætlað er að um 400 ítalskir her- menn séu í Líbíu, sem eitt sinn var ítölsk nýlenda. Hlutverk þeirra er að aðstoða stjórnvöld við að tryggja stöðugleika, sem og að koma í veg fyrir mansal og smygl frá Líbíu yfir Miðjarðarhafið. sgs@mbl.is Friðarráðstefnu frestað  Ástandið í Líbíu sagt of ótryggt til þess að hægt sé að skipuleggja kosningar  Öryggisráðið mun funda í dag Ástandið í Líbíu » Ráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna, sem átti að fara fram 14.-16. apríl næstkomandi, var frestað í gær. » Öryggisráðið mun fara yfir stöðu mála í dag. Fjölmenn mótmæli skóku götur Khartoum, höfuð- borgar Súdans, í gær, þar sem þess var krafist að Omar al-Bashir viki úr forsetaembætti landsins þar sem hann hefur setið í þrjá áratugi. Mótmæli gegn al-Bashir hafa nú staðið yfir í fjóra mánuði, en þau hófust þegar verð á brauði hækkaði í desember. Stjórnvöld í Bandaríkj- unum, Bretlandi og Noregi hvöttu í gær til þess að frið- samleg stjórnarskipti færu fram í landinu. AFP Krefjast þess að forsetinn víki Mannréttindadómstóll Evrópu úr- skurðaði í gær að Rússland hefði brotið á mannréttindum Alexeis Navalnís, eins helsta andstæðings Pútíns Rússlandsforseta, þegar honum var haldið í stofufangelsi megnið af árinu 2014. Var rúss- neska ríkið dæmt til að greiða Na- valní 20.000 evrur í skaðabætur og 2.665 evrur í málskostnað. Navalní fagnaði niðurstöðu dómsins og sagði að hann myndi hafa „mikilvægar afleiðingar“ fyrir þá Rússa sem þyrftu að þola viðlíka brot á réttindum sínum. Dímítrí Peskov, talsmaður Pút- íns, sagði aftur á móti að dómurinn hefði komið á óvart og dómsmála- ráðuneyti landsins myndi nú fara yfir málið. RÚSSLAND Mannréttindi sögð brotin á Navalní

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.