Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10,1 kg Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is áskorun Stígamóta sé að stytta þennan tíma. „Til dæmis fengum við símtal frá lækni fyrir nokkru sem bað okkur að koma og tala við há- aldraða konu sem lá banaleguna. Hún hafði orðið fyrir kynferðis- ofbeldi þegar hún var barn og vildi ekki fara með það í gröfina.“ Þriðjungur tíu ára eða yngri 70,8% þeirra sem leituðu til Stíga- móta í fyrra voru á barnsaldri, þ.e. yngri en 18 ára, á þeim tíma þegar þeir urðu fyrir ofbeldinu og rúmlega 30%, eða 112 einstaklingar, voru tíu ára og yngri. Alls voru 575 ofbeldismenn skráð- ir í þeim málum sem komu inn á borð Stígamóta í fyrra. 99 þeirra eða rúm 17% voru 17 ára og yngri og 27 voru yngri en 13 ára. Í skýrslunni er greint frá við- brögðum brotaþola þegar ofbeldið átti sér stað. Þar kemur m.a. fram að algengustu viðbrögðin við nauðgun eru að gera ekkert, að frjósa, upplifa að líkaminn lamist og að láta sem ekkert sé. „Þetta er það sem þol- endur kynferðisofbeldis eru ítrekað spurðir út í; af hverju gerðirðu ekki neitt?“ segir Guðrún. „Að afneita því sem er að gerast eru þekkt viðbrögð við gríðarlegu áfalli og það að gera ekki neitt eru viðbrögð sem mann- kynið hefur þróað með sér í árþús- undir til að lifa af. Hvernig á að vera hægt að kæra þessi brot þegar það er ekki skilningur í réttarkerfinu á þessum viðbrögðum?“ Spurð um hversu mörg málanna séu kærð segir Guðrún hlutfallið hafa verið 7,8% í fyrra. Mörg þeirra séu einfaldlega fyrnd, þar sem langt sé liðið frá brotunum. Af þeim mál- um sem kærð voru var um helm- ingur látinn niður falla. Í héraðs- dómi lauk 20% málanna með skilorðsbundnum dómi og sama hlutfalli með fangelsisdómi. 10% brotaþola með örorku Um 10% þeirra sem komu til Stígamóta í fyrra búa við skerðingar sem metnar eru til örorku. Því til viðbótar eru 26,5% með skerðingu sem ekki er metin til örorku og rúm 7% búa við skerðingar þar sem óvíst var um örorkumat. Þetta er aukning um 5% frá árinu á undan og flestir í þessum hópi eru með geðsjúkdóma, einhverfu eða þroskahamlanir. Guð- rún segir að ekki sé hægt að fullyrða út frá þessu að kynferðisofbeldi gagnvart fötluðu fólki og öryrkjum hafi aukist. Hugsanleg skýring sé vitundarvakning. „En það er þekkt að kynferðisofbeldi gagnvart fötluðu fólki er algengara en gagnvart öðr- um hópum. Allir jaðarsettir hópar eru útsettari fyrir ofbeldi en meðal- manneskjan.“ Í skýrslunni kemur fram að afleið- ingar kynferðisofbeldis geti verið mjög alvarlegar og að þær geti orðið meiri eftir því sem lengra líður frá ofbeldinu og þangað til brotaþolinn fær aðstoð. Tæp 27% þeirra sem leituðu til Stígamóta í fyrra hafa gert tilraun til sjálfsvígs, um 86% segjast upplifa skömm og kvíða, um þriðjungur hefur skaðað sjálfan sig, litlu færri hafa verið með átröskun og hátt í 80% segjast vera með lé- lega sjálfsmynd. 40% þeirra sem komu til Stíga- móta í fyrra höfðu ekki leitað til neinna fagaðila áður og Guðrún seg- ir að það gefi til kynna að fjölga þyrfti leiðum fyrir brotaþola til að leita sér aðstoðar og nefnir sem dæmi samstarf við heilsugæslu, skóla og umboðsmann barna. Hún bendir á að skólar hafi aðgang að öll- um börnum og að þar væri hægt að vinna þrekvirki. Þá væri hægt að koma á samstarfi við Barnahús þar sem börn gætu hringt og rætt nafn- laust við ráðgjafa. „Ég held að með því væri verið að senda sterk skila- boð um að kynferðisofbeldi getur verið ástæðan fyrir ýmiskonar van- líðan og veikindum.“ Erum að fást við gömul leyndarmál  784 manns leituðu til Stígamóta í fyrra  359 komu í fyrsta skipti  Yfir fjórðungur reyndi sjálfsvíg  8.424 manns og 55.535 viðtöl frá 1992  Áratugir geta liðið þar til þolandi treystir sér til að segja frá 35,6% 22,3% 18% 9,9% 6,1% 3,5% Skjólstæðingar Stígamóta 2018 Skipting brotaþola eftir kyni Aldur brotaþola þegar ofbeldi var fyrst framið Hlutfall þeirra sem hafa gert sjálfsvígs- tilraunir Nauðgun Kynferðisleg áreitni Sifjaspell Nauðgunar- tilraun Stafrænt kynferðisof- beldi Klám Vændi Annað 23 hópnauðganir 2 ofbeldismenn í 8 tilfellum 3 ofbeldismenn í 3 tilfellum 4 ofbeldismenn í 2 tilfellum 5 ofbeldismenn í 1 tilfelli Í 9 tilfellum vantaði upplýs- ingar um fjölda ofbeldism. Heimild: Ársskýrsla Stígamóta 2018 Algengar afleiðingar kynferðisofbeldis ➜ Skömm ➜ Kvíði ➜ Depurð ➜ Léleg sjálfsmynd ➜ Sektarkennd ➜ Ótti ➜ Sjálfsvígshugleiðingar ➜ Einangrun ➜ Átröskun ➜ Sjálfssköðun 27,9% 39,6% 25,6% 3,3% 1,8% 2,7% 0,9% 2,8% Karl Annað kyn, 0,3% Kona 86,6% 13,1% Ástæður þess að leitað var til Stígamóta 2018 0 til 4 ára 5 til 10 ára 11 til 17 ára 18 til 29 ára 30 til 49 ára Uppl. vantar 26,7% Morgunblaðið/Hari Stígamót Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, á kynningunni í gær. Þar kom m.a. fram að 40% þeirra sem þangað leita höfðu ekki farið til fagaðila. SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Á síðasta ári leituðu 784 konur og karlar til Stígamóta vegna kyn- ferðisofbeldis af einhverju tagi, þar af komu 359 í fyrsta skipti til sam- takanna. Nauðgun var algengasta ástæðan, þar á eftir komu kynferðis- leg áreitni og sifjaspell. Heimili of- beldismannsins var algengasti vett- vangur ofbeldisins. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársskýrslu Stígamóta fyrir árið 2018 sem kynnt var í gær. Þar kemur fram að ekki hafi komið jafn margir nýir brotaþolar þangað síðan 1992, að undanskildu árinu í fyrra. Af þessum 359 einstaklingum sem beittir höfðu verið ofbeldi voru 311 konur, 47 karlar og einn var af öðru kyni. Karlar voru tæp 96% ofbeldis- manna og konur 4%. Stígamót hófu starfsemi árið 1990 og síðan þá hafa 8.424 einstaklingar leitað til samtakanna og þar hafa verið veitt 55.535 viðtöl. „Við erum fyrst og fremst að fást við gömul leyndarmál,“ segir Guð- rún Jónsdóttir, talskona Stígamóta. Hún segir að mörg ár, jafnvel ára- tugir, geti liðið þar til þolendur kyn- ferðisofbeldis treysti sér til þess að segja frá ofbeldinu og ein helsta 28 einstaklingar, aðallega kon- ur og flestar þeirra íslenskar, leituðu til Stígamóta í fyrra eftir að hafa verið í vændi eða klámiðnaði af einhverju tagi. Samtökin bjóða upp á sjálfs- hjálparhópa fyrir fólk í þessari stöðu sem Anna Þóra Krist- insdóttir ráðgjafi hefur um- sjón með. „Fólk sem hefur ver- ið í vændi segir oft ekki frá því í fyrstu og gefur upp aðrar ástæður fyrir komu sinni. Það fylgir þessu oft svo mikil skömm,“ segir Anna Þóra. Spurð að hvaða leyti þessar konur séu í klámiðnaði segir hún að flestar þeirra hafi verið að dansa á nektarstöðum. Margar þeirra sem hafi verið í vændi hafi verið gerðar út af öðrum og þá oftast á vefsíð- um. Í vændi og klámiðnaði SJÁLFSHJÁLPARHÓPAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.