Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Allar almennar bílaviðgerðir TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Aðalmeðferð hófst í gærmorgun í Landsrétti í máli Vals Lýðssonar. Hann var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í sjö ára fangelsi fyrir að hafa orðið bróður sínum, Ragnari Lýðssyni, að bana á bænum Gýgjar- hóli II aðfaranótt 31. mars í fyrra. Valur kaus að tjá sig ekki við skýrslutöku í Landsrétti og kom af- staða hans ákæruvaldinu í opna skjöldu. Sebastian Kunz réttar- meinafræðingur gaf síðan skýrslu. Helgi Magnús Gunnarsson vara- ríkissaksóknari spurði Kunz um hvernig dauða Ragnars hefði borið að. Kunz sagði dánarorsökina vera bráða öndunarskerðingu vegna upp- sölu sem orsakaðist af höfuðáverka. Niðurstöður af blóðferlarannsókn á staðnum svara til þeirra högga sem Ragnari voru veitt, að sögn Kunz. Ragnar lá á gólfinu þegar hann hlaut fjölda áverkanna sem um getur. Helgi spurði Kunz út í hálsbrot sem Ragnar hlaut og svaraði hann að það hefði líklega orðið þegar Ragnar var meðvitundarlaus. Bætti hann því við að brotið á hálsliðnum hefði ekki valdið dauða hans. Helgi spurði einnig hvaða áhrif áfengisdrykkja Ragnars hefði haft á getu hans til að bregðast við ofbeld- inu sem hann var beittur, í ljósi þess að uppsölur hefðu valdið því að hann kafnaði. Að sögn Kunz mældist áfengismagn í blóði hans 2,44 prómill og geta hans til að skila slíku frá sér hefði því verið minni en ella. Magnús Óskarsson, skipaður verj- andi Vals, sýndi Kunz réttarmeina- fræðingi myndir af hnífi og exi og spurði hvort líklegt væri að þessum vopnum hefði verið beitt er Ragnar lést. Kunz svaraði því neitandi. Magnús spurði þá hvort líklegt væri að einhver önnur vopn hefðu verið notuð þegar Ragnari var ráðinn bani. Svaraði Kunz að brotaþoli hefði ekki borið nein merki um að hafa hlotið áverka með beittum eða hálf- beittum vopnum, t.d. hníf eða exi. Hann útilokaði ekki að harður hlutur af einhverju tagi hefði verið notaður. Magnús spurði Kunz um greiðslur til hans og kvaðst Kunz fá greitt mán- aðarlega fyrir störf sín en ekki fyrir hverja krufningu. Lést vegna öndunarskerðingar  Aðalmeðferð fyrir Landsrétti í máli Vals Lýðssonar sem varð Ragnari bróður sínum að bana  Valur kaus að tjá sig ekki við skýrslutöku í Landsrétti  Réttarmeinafræðingur lýsti áverkum og dánarorsök Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrir dómi Valur Lýðsson. Myndin var tekin í Héraðsdómi Suðurlands. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fossvélar á Selfossi og eigendur Þórustaðanámu í Ingólfsfjalli hyggj- ast stækka námasvæðið í fjallinu um 11,3 hektara og verði það alls um 34 hektarar. Fyrirhugað er að vinna 27,5 milljónir rúmmetra af malarefni á nýja námasvæðinu næstu 30 ár. Magnús Ólason, framkvæmda- stjóri Fossvéla, segir að með stækk- un vinnslusvæðisins sé verið að tryggja efnistöku til framtíðar og búa í haginn svo fyrirtækið verði tilbúið að mæta þörf vegna stórfram- kvæmda í samfélaginu næstu ár og áratugi. Hann nefnir vegafram- kvæmdir í því sambandi, meðal ann- ars breikkun Suðurlandsvegar og byggingu nýrrar Ölfusárbrúar. Ferli vegna mats á umhverfis- áhrifum er að hefjast og eru drög að tillögu að matsáætlun fyrir efnis- tökusvæðið kynnt á vefsíðum EFLU og Fossvéla. Bæjarráð Árborgar fjallaði um málið á fimmtudag í síð- ustu viku og í fundargerð segir: Bæj- arráð fagnar þeirri vinnu sem farin er af stað í þessum efnum enda eru miklir hagsmunir í húfi fyrir sveitar- félagið að náman verði starfrækt í sátt til framtíðar. Áhrif á landslag og ásýnd Tólf manns starfa nú hjá Fossvél- um, en fjöldinn er breytilegur eftir aðstæðum og verkefnum. Fyrir- tækið er einnig með efnistöku í Bola- öldum. Í kynningu á umhverfismat- inu segir að efnistaka hafi átt sér stað í Þórustaðanámu í Ingólfsfjalli frá árinu 1957 og hafa Fossvélar rek- ið starfsemina frá 1975. Matið bygg- ist að hluta á því mati sem áður hefur verið unnið fyrir starfsemina. Í kafla um landslag og ásýnd segir meðal annars: Efnistökusvæðið er nærri þjóðvegi 1 og sýnilegt frá að- liggjandi byggð. Megináhrif vegna efnistökunnar verða á landslag og ásýnd svæðisins. Hlíðar Ingólfsfjalls innan námunnar bera þegar merki efnistöku. Rásirnar sem efni er ýtt niður um eru til staðar sem og at- hafna- og vinnslusvæði neðan nám- unnar. Efnistakan mun því að mestu fara fram innan þegar raskaðs svæðis fyrir utan stækkun þess til norðurs efst á svæðinu. Efnistaka til framtíðar  Námasvæðið í Ingólfsfjalli stækk- ar um 11,3 hektara Suðurlandsvegur IN G Ó L F S FJ A L L Heimild: Efl a verkfræðistofa Grunnkort/Loftmyndir ehf. Athafnasvæði Mörk núverandi efnistökusvæðis Efnistökusvæði, viðbót, 2. áfangi Þórustaðanáma Jarða- mörk Guðni Einarsson Þorsteinn Ásgrímsson Dómsmálaráðherra kynnti á ríkis- stjórnarfundi í gær að íslenska ríkið myndi óska eftir endurskoðun yfir- deildar Mannréttindadómstóls Evr- ópu (MDE) á dómi MDE í landsrétt- armálinu. Meirihluti dómsins dæmdi að annmarkar á meðferð ráðherra og Alþingis við skipun landsréttar- dómaranna fælu í sér brot gegn mannréttindasáttmála Evrópu um að skipan dómstólsins væri ákveðin með lögum. „Það er alla vega komin niður- staða og hægt að vinna út frá henni,“ sagði Ólöf Finnsdóttir, fram- kvæmdastjóri dómstólasýslunnar. Hún sagði að stjórn dómstólasýsl- unnar myndi væntanlega fjalla um þessa ákvörðun á næsta fundi sínum. Í bókun sem stjórnin samþykkti 15. mars segir m.a. að dómstólasýslan leggi ríka áherslu á að áhrif mál- skots til yfirdeildar Mannréttinda- dómstólsins verði könnuð. Í tilkynningu Stjórnarráðsins er vitnað í Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa- dóttur dómsmálaráðherra, sem seg- ir: „Við höfum síðustu vikur skoðað mismunandi fleti þessa mikilvæga máls. Eftir þá skoðun tel ég rétt að óska endurskoðunar hjá yfirdeild Mannréttindadómstólsins. Ég tel brýnt að fara þessa leið í ljósi þess hve mikilvæga hagsmuni málið snertir hér á landi. Ég mun halda áfram að skoða aðra fleti málsins en á þessu stigi verða ekki teknar frek- ari ákvarðanir.“ Úr því fæst væntanlega skorið innan fárra mánaða hvort yfirdeildin tekur dóminn til endurskoðunar. Verði það samþykkt verður óskað eftir flýtimeðferð. Morgunblaðið/Hanna Landsréttur Mannréttindadómstóllinn fann að því hvernig dómarar við réttinn voru skipaðir. Dómurinn hefur áhrif um alla Evrópu. Landsréttarmáli skotið til yfirdeildar  Ekki frekari ákvarðanir að sinni Eyjólfur Árni Rafnsson var í gær endurkjör- inn formaður Samtaka at- vinnulífsins. Kjörið var til- kynnt á aðal- fundi SA. Hlaut Eyjólfur Árni 96,5% greiddra atkvæða og var þátttaka í kosningunni góð. Á fund- inum voru nýgerðir kjarasamn- ingar kynntir. Fram kom að fram undan eru kynningarfundir SA um nýja kjarasamninga víða um land. Í kjölfarið fer fram atkvæðagreiðsla um samningana meðal aðildar- fyrirtækja SA. Ársfundur atvinnu- lífsins, sem er öllum opinn og hefur verið haldinn í kjölfar aðalfundar, verður að þessu sinni haldinn fimmtudaginn 17. október kl. 14-16 í Hörpu. Þá verða liðin 20 ár frá stofnun Samtaka atvinnulífsins. Áfram formaður SA Eyjólfur Árni Rafnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.