Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019
Heimildarmyndahátíðin Sheffield Doc/Fest hefur hætt
við að frumsýna heimildarmyndina The Quiet One í leik-
stjórn Olivers Murray sem fjallar um Bill Wyman, en
hann átti að sitja fyrir svörum að sýningu lokinni. Wym-
an er þekktastur fyrir að hafa verið bassaleikari Rolling
Stone á árunum 1962 til 1993.
Samkvæmt frétt BBC er ástæðan sú að kvartað hafði
verið við stjórnendur hátíðarinnar undan veru Wyman
vegna samskipta hans við Mandy Smith á níunda áratug
síðustu aldar. Wyman kynntist Smith árið 1984 þegar
hún var 13 og hann 47 ára. Árið 2009 lýsti Smith því í
viðtölum að þau hefðu byrjað að stunda kynlíf þegar hún var 14 ára, en tíu
árum áður hafði systir hennar kallað eftir því að Wyman yrði saksóttur
fyrir að hafa haft samræði við ólögráða einstakling. Wyman og Smith giftu
sig 1989, en skildu tveimur árum seinna og hafa ekki talast við síðan. Í frétt
BBC kemur fram að saksóknari hafi 1986 íhugað að ákæra Wyman vegna
samneytis hann við Smith, en fallið frá því. Myndin verður heimsfrumsýnd
á Tribeca-kvikmyndahátíðinni í New York 2. maí.
Bill Wyman
Hætta við sýningu á mynd um Wyman
Ellefu sekúndna upptaka af eina lif-
andi flutningi Bítlanna í sjónvarps-
þættinum Top of the Pops frá 1966
kom nýverið í leitirnar. Frá þessu
greinir BBC. „Fyrir aðdáendur
Bítlanna er þetta eins og að finna
gralið helga,“ segir Chris Perry,
starfsmaður hjá Kaleidoscope sem
vinnur við að hafa upp á týndu sjón-
varpsefni. Samkvæmt BBC voru
frumupptökurnar ekki varðveittar,
en sjónvarpsáhorfandi í Liverpool
kvikmyndaði flutninginn á 8mm
tökuvél og rataði sú upptaka síðar í
hendur safnara í Mexíkó sem leitaði
til Kaleidoscope. Bítlarnir tóku
nokkrum sinnum upp lög sín fyrir-
fram sem send voru út í Top of the
Pops. Aðeins
einu sinni kom
sveitin fram í
beinni útsend-
ingu, en það var
16. júní 1966.
Frammistaða
Bítlanna í þeim
þætti hefur lengi
verið í minnum
höfð hjá aðdá-
endum. Sem kunnugt er héldu Bítl-
arnir síðustu tónleika sína á tón-
leikaferðalagi í San Francisco 29.
ágúst 1966 á hátindi Bítlaæðisins.
Sveitin hélt aðeins eina tónleika eft-
ir það, á þaki Apple-upptökuversins
í London 1969.
Endurheimta einstaka upptöku
Bítlarnir
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Undrarýmið heitir nýútkomin
ljóðabók Sigurlínar Bjarneyjar
Gísladóttur skreytt undirfurðu-
legum myndum úr safni Hag-
strömer lækningasögusafnsins við
Karolínsku stofnunina í Stokk-
hólmi. Aðspurð hvort heiti bók-
arinnar vísi í smáhlutasöfn sem
nutu hylli á sextándu og sautjándu
öld, Cabinet of Curiosities upp á
ensku og Kunstkabinett á þýsku,
tekur Bjarney undir það að
nokkru og bendir á að Viðar
Hreinsson nefni slík söfn furðu-
kames í bók sinni um Jón lærða,
Náttúrur náttúrunnar.
„Mér var bent á lækninga-
bókasafnið í Stokkhólmi og fór inn
á heimasíðu þess. Þar eru myndir
sem skannaðar hafa verið úr göml-
um bókum og mér fannst þær svo
ótrúlega heillandi að ég ákvað að
prófa að búa til ljóð um hverja og
eina, en náði nú ekki að gera ljóð
um þær allar.
Ég smellti samt ekki á hverja
mynd til að sjá nákvæmlega af
hverju hún væri, það var bara
myndin og áhrifin af henni sem ég
nýtti við ljóðagerðina.
Þetta handrit varð svo til á
tveimur árum í ákveðinni röð. Ég
setti alltaf inn í skjalið mynd og
svo kom ljóð, en ég þurfti stundum
að stilla myndinni inn og láta líða
smá tíma áður en að ljóðið kom.
Svo breytti ég röðinni á ljóðunum,
það var svolítið púsl að ákveða
hana, en fyrsta ljóðið var alltaf
fyrsta ljóðið. Svo fannst mér gott
að enda á vorljóði þar sem bókin
er að koma út að vori.“
— Það sést einmitt á ljóðunum
að þau eru ekki endilega um
myndina sem þau standa við og
tengingin getur verið ansi óljós og
jafnvel langsótt.
„Já, það var einmitt mjög mis-
jafnt hvort maður verður var við
myndina inni í ljóðinu eða ekki. Ég
reikna með því að ólíkir lesendur
muni skilja þetta á ólíkan hátt,
enda á þetta að vera opið.“
Líkami, sál, umbreyting
— Það er þó gegnumgangandi í
ljóðunum mikið um líkama og jörð
og niðurbrot, þegar eitthvað er að
brotna niður í náttúrunni.
„Já, líkami og líka sál, umbreyt-
ing. Ég er voðalega skotin í einni
setningu í einu ljóðinu þar sem ég
segi bara eins og er. Sársaukalaus
umbreyting sé ekki til. Það fylgir
alltaf sársauki þegar umbreyting á
sér stað.“
— Er ekki einmitt sífellt verið
að selja okkur sársaukalausa um-
breytingu: ef þú kaupir þetta verð-
ur allt undireins miklu betra!
„Ég var einmitt að ræða við vin
minn fyrir stuttu um orðið sjálfs-
hjálp og að það væri betra að tala
meira um meðhjálp, að vera með-
hjálpari. Það er gamalt hlutverk.
Fólk sem er í sjálfshjálp fær
samt yfirleitt hjálp frá öðrum, það
gerir enginn þetta einn.“
— Í Mannhelgikvæði yrkir þú
um mannhelgisgæsluna og um
hjálparsveit skálda. Okkur hefur
stundum vantað slíka sveit.
„Þær eru alltaf að störfum, allt-
af í útkalli, útkall rauður.“
Gandreið Jóns Daðasonar
Undrarýmið er sjötta bók
Bjarneyjar, sem ýmist hefur birt
ljóð eða smáprósa og stundum
hvort tveggja í senn. Hún er einn-
ig með skáldsögur í smíðum, og
hefur verið með um hríð, en segist
spenntust fyrir því sem stendur að
snúa sér að fræðitexta, en undan-
farið hefur hún skoðað rit frá
sautjándu öld sem heitir Gandreið
og er eftir Jón Daðason á Arnar-
bæli í Ölfusi.
„Ég er að átta mig á hvernig rit
þetta er og að skoða ævi Jóns, er á
kafi í handritagrúski og sagnfræði
sem er mjög skemmtilegt. Þetta er
handrit sem aldrei hefur verið gef-
ið út en er til uppskrifað í hand-
ritum frá átjándu öld. Jón byrjaði
sem prestur í Ögri, en sinnaðist
við Ara í Ögri og fluttist þá suður
og var svo að verjast galdrasend-
ingum að vestan allt sitt líf. Það er
eitt ljóð í bókinni, Vörn gegn apa-
gangi, sem er innblásið af skrýtn-
um orðum úr Gandreið.“
Það fylgir alltaf sársauki
þegar umbreyting á sér stað
Í nýrri ljóðabók yrkir Sigurlín Bjarney Gísladóttir um umbreytingu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Furðukames Sigurlín Bjarney Gísladóttir sótti innblástur í myndir á lækningasögusafni.
Madonna kemur
fram á úrslita-
kvöldi Euro-
vision í Tel Aviv
18. maí sé frétt á
Facebook-síðu
Live Nation Isra-
el rétt. Tals-
maður söngkon-
unnar staðfestir
fréttina við BBC,
en talsmenn Sambands evrópskra
sjónvarpsstöðva (EBU) gera lítið úr
fréttinni. „Ekki hefur verið tekin
endanleg ákvörðun og engir samn-
ingar eru enn undirritaðir,“ segir í
tilkynningu EBU og bent á að allar
fréttir tengdar keppninni séu fyrst
birtar á opinberum vef hennar.
Þetta yrði í fyrsta sinn sem Ma-
donna kæmi að Eurovision en í
fjórða sinn sem hún kemur fram í
Ísrael frá árinu 1993. Roger Waters
úr Pink Floyd er einn þeirra sem
hvatt hafa listamenn til að snið-
ganga keppnina í ár vegna þeirra
mannréttindabrota sem framin eru
í landi gestgjafanna.
Madonna
Treður Madonna
upp á Eurovision?
Trausti Valsson,
prófessor em-
eritus í skipu-
lagsfræðum við
Háskóla Íslands,
hefur endur-
útgefið allar 14
bækur sínar
ásamt völdum
greinum og ítar-
efni á rafrænu
formi sem notendur geta nálgast
endurgjaldslaust. Efnið birtir hann
á heimasíðu sinni við Háskóla Ís-
lands, https://notendur.hi.is/tv/. Í
tilkynningu frá Trausta kemur
fram að margar bóka hans hafi
lengi verið ófáanlegar og því sé
mikilvægt að geta gert efnið að-
gengilegt á ný. Meðal þekktra bóka
Trausta eru Mótun framtíðar,
Skipulag byggðar á Íslandi,
Reykjavík - Vaxtarbroddur og
Borg og náttúra … ekki andstæður
heldur samverkandi eining. Fjórar
bóka Trausta eru á ensku.
Trausti Valsson
Endurútgefur bæk-
ur sínar á netinu
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////