Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 32
Þorgerður Þorvaldsdóttir og Bára Baldursdóttir fjalla um kynjaða menningu háriðna á Íslandi í kvöld kl. 20 á rannsóknarkvöldi Félags ís- lenskra fræða í safnaðarheimili Neskirkju. Erindi þeirra nefnist „Að lækna heilaþreytu, krulla, klippa og raka – kynleg menning á rakara- og hárgreiðslustofum“ og er byggt á efni úr bók þeirra, Krullað og klippt, sem kom út í fyrra og segir aldar- sögu háriðna á Íslandi. Kynjuð menning háriðna á Íslandi MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 100. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Þór Þorlákshöfn hafði betur gegn KR, 102:90, er liðin mættust öðru sinni í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik. Staðan í rimmu liðanna er nú 1:1 en KR vann fyrsta leikinn í Reykjavík á föstu- daginn. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit og verður næsti leik- ur á heimavelli KR og fjórði leik- urinn í Þorlákshöfn. »27 Þórsarar jöfnuðu gegn KR í Þorlákshöfn ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Ísland tekur í kvöld á móti Norður- Makedóníu í undankeppni Evrópu- móts karla í handknattleik en liðin mætast í Laugardalshöllinni klukk- an 19.45. Ísland er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina en Norður-Makedónía er með tvö stig. Stutt er frá síðustu viðureign þjóðanna en ís- lenska liðið hafði betur í hörkuleik, 24:22, þegar þau mættust á heims- meist- aramótinu í München í janúarmánuði. »24 Hörkuleikur í undan- keppni EM í Höllinni Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Nú um miðjan apríl eru fimmtíu ár liðin frá fræknu afreki MR-inga árið 1969, þegar þeir höfðu sigur í úrslita- leik framhaldsskólamótsins í knatt- spyrnu á háskólavellinum gamla, gegn stjörnum prýddu liði Háskóla Íslands, sem einnig tók þátt í mótinu. Eftir 90 mínútur var staðan 2:2 og því þurfti að grípa til framlengingar og vítaspyrnukeppni. Svo fór að Örn Guðmundsson tryggði MR titilinn með síðustu spyrnu leiksins. Ólafur Þorsteinsson, viðskipta- fræðingur og stundakennari við MR í viðskipta- og hagfræði í 6. bekk, var fyrirliði MR-inga og tók við bikarnum af Alberti Guðmundssyni, formanni KSÍ, sem endurvakti framhaldsskóla- mótið eftir að það hafði legið niðri um nokkurra ára skeið. „Árið 1967 kom til starfa við MR Jóhannes Sæ- mundsson heitinn, íþróttakennari og faðir Guðna [Th. Jóhannessonar, for- seta Íslands]. Hann var mikill bolta- maður og hélt þessu mjög að okkur. Við tókum boltann, í orðsins fyllstu merkingu, og sýndum áhuga,“ segir Ólafur. Landsliðsmaður í hverju rúmi Segja má að með sigri MR hafi Davíð sigrað Golíat enda var lið HÍ mjög vel skipað. „Lið HÍ var auðvitað eldra og þarna voru allir þeirra bestu menn. Sigurinn var ennþá sætari fyr- ir vikið; að vinna sjálfan Háskólann,“ segir Ólafur. Í liði Háskólans voru landsliðs- og fyrstudeildarleikmenn í hverju rúmi, þ.á m. Valsarinn Páll Ragnarsson, sem lék með Val gegn Benfica í Evrópukeppninni sumarið áður og fékk það hlutverk að hafa hemil á portúgölsku goðsögninni Eusebio. Í liði MR voru þó leiknir leikmenn einnig, margir þeirra úr Víkingi að sögn Ólafs. Hann nefnir einnig að Þorsteinn Ólafsson úr Keflavík hafi staðið í marki MR, en hann var lands- liðsmarkvörður á þessum tíma. Þá var í liðinu Jón Karlsson, sem síðar varð fyrirliði landsliðsins í handbolta. Lék hann handbolta með Val og knattspyrnu með Víkingi, en að sögn Ólafs var algengt á þessum tíma að menn gerðu hvort tveggja. Í liðinu voru einnig KR-ingar og Ármenn- ingar. „Þetta var mjög vel saman sett lið, menn kunnu til verka og skólinn studdi okkur vel,“ segir Ólafur, en fjöldi nemenda lagði leið sína á völl- inn. Síðar afhenti Ólafur Einari Magnússyni, rektor MR, bikarinn. „Hann var mjög stoltur af okkur og hafði mjög gaman af þessu,“ segir Ólafur, sem segir það vel koma til greina að liðið komi saman á ný og fagni tímamótunum, fimmtíu ára af- mæli afreksins á háskólavellinum. Liðið Fremri röð f.v.: Gunnar Gunnarsson, Torfi Magnússon, Þorsteinn Ólafsson. Ólafur Þorsteinsson og Gunnar Ólafsson. Aftari röð f.v. Gunnar Kjartansson, Jón Karlsson, Steinþór Guðbjartsson, Bragi Jónsson, Kjartan Stein- bach, Örn Guðmundsson, Sverrir Guðjónsson og Dýri Guðmundsson. Fimmtíu ár frá fræknu afreki menntskælinga  Skólalið MR í knattspyrnu sigraði stjörnum prýtt lið HÍ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrirliði Ólafur Þorsteinsson lyfti bikarnum fyrir MR á sínum tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.