Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 87. tölublað 107. árgangur
AÐ HJÁLPA
FÓLKI AÐ
FINNA HEIMILI VORBLÓT Í TJARNARBÍÓI
BLANDA AF ÞVÍ MEST SPENNANDI 29 LISTASAFN ÁRNESINGA 28FASTEIGNIR 32 SÍÐUR
Komi á markað 2022
» Ragnar Þór telur raunsætt
að fyrstu íbúðirnar á vegum
Blæs komi á markað í árslok
2022 en um þau áramót renna
lífskjarasamningarnir út.
» Ósamið sé um fjármögnun.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Greining Samtaka iðnaðarins bendir
til að hlutfallslega fáar nýjar íbúðir á
höfuðborgarsvæðinu séu ódýrar. Til
dæmis sé fimmta hver íbúð í smíðum
á dýrum svæðum í miðborginni.
Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri SI, gagnrýnir sveitar-
félögin fyrir að bregðast ekki hraðar
við hugmyndum átakshóps um aukið
framboð íbúða fyrir tekjulága. Fátt
bendi til að vandinn sé að leysast.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, boðar byggingu 6-8 þúsund
íbúða í húsnæðisfélaginu Blæ með
aðkomu lífeyrissjóðanna. Uppbygg-
ingin er hluti af kjarasamningum.
Umræða um slíka fjármögnun
virðist hins vegar skammt á veg
komin á vettvangi lífeyrissjóðanna.
Ragnar Þór segir óvíst hvort líf-
eyrissjóðirnir vilji fjárfesta í Blæ.
„Þótt við stjórnum þeim ekki beint
kjósum við stjórnir sjóðanna. Það er
áætlað að lífeyrissjóðirnir hafi tapað
50 milljörðum þegar þeir seldu
Bakkavararbræðrum hlut í félaginu
árið 2015. Það er sambærileg upp-
hæð og þarf í þetta verkefni.“
Lágt hlutfall ódýrari íbúða
Samtök iðnaðarins telja uppbyggingu ekki í takt við markmið um ódýrar íbúðir
Formaður VR segir óvíst hvort lífeyrissjóðir fjármagni þúsundir slíkra íbúða
MLítið byggt af ódýrum íbúðum »11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kosning Kjarasamningurinn kynntur á fjölsóttum fundi VR í vikunni.
Atkvæðagreiðsla um nýgerða kjara-
samninga Starfsgreinasambandsins
og VR við Samtök atvinnulífsins er
hafin hjá nokkrum félaganna og hjá
öðrum hefst hún eftir hádegi í dag.
Alls eru um 35 þúsund manns á kjör-
skrá hjá félögum innan Starfs-
greinasambandsins og álíka fjöldi er
á kjörskrá hjá VR.
Atkvæði eru greidd rafrænt. Gild-
ir um þessar atkvæðagreiðslur sama
regla og þegar póstkosning fer fram,
niðurstaðan er óháð þátttöku. Meiri-
hluti þeirra sem kjósa í hverju félagi
ræður úrslitum af eða á. »14
Kosið um kjarasamningana
Niðurstaða óháð þátttöku Afstaða meirihlutans ræður
Löglegu tímabili fyrir nagladekk fer senn að
ljúka en það er frá 1. nóvember til 14. apríl. Af
þessu leiðir að nagladekk eru bönnuð frá 15.
apríl til 31. október. Lögreglan hefur þó á síð-
ustu árum slakað á þessum kröfum þegar veðr-
átta hefur ekki verið í samræmi við óskir lög-
gjafans. Það hefur þó verið nóg að gera á
dekkjaverkstæðum síðustu vikur engu að síður
og verður líklegast áfram alla helgina.
Vetrardekkjum skipt út fyrir sumardekk
Morgunblaðið/Hari
Löglegu tímabili nagladekkja fer að ljúka
Einstaklingar
hafa nýtt sér
heimild sem stað-
ið hefur til boða
frá 2014 og
greitt samtals 56
milljarða króna
af séreignar-
sparnaði inn á
fasteignalán. Frá júlí 2014 til mars
á þessu ári voru einnig teknir út
rúmlega 2,5 milljarðar af séreign
vegna fasteignakaupa. Þetta kemur
fram í svari Ríkisskattstjóra við
fyrirspurn blaðsins. 7.800 umsóknir
hafa einnig borist um útgreiðslu
eða ráðstöfun séreignar inn á lán
vegna kaupa á fyrstu íbúð frá því sú
leið var fyrst heimiluð 2017. »6
56 milljarðar af
séreign inn á lánin
Fulltrúar Ísey útflutnings ehf. og
japanska fyrirtækisins Nippon Ham
hafa skrifað undir viljayfirlýsingu
um að fyrirtækin vinni saman að
markaðssetningu á skyri á nágranna-
mörkuðum Japans þar sem Nippon
Ham hefur sterka stöðu. Nippon
Ham er stórt matvælafyrirtæki sem
veltir um 1.400 milljörðum, er með 30
þúsund starfsmenn og starfsemi um
allan heim.
MS valdi dótturfyrirtæki þess,
Nippon Luna, til samstarfs um fram-
leiðslu og sölu á Ísey skyri á Japans-
markaði. Reiknað er með að fram-
leiðslan hefjist í september næst-
komandi og verður skyrið kynnt á
vörusýningu Nippon Ham í janúar.
Ísey skyrið á síðan að vera aðal-
heilsuvara Nippon á Ólympíu-
leikunum í Tókýó á næsta ári.
Jón Axel Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Ísey útflutnings, segir
að samstarfið eigi eftir að þróast.
Fyrirtækin muni einbeita sér að
þeim mörkuðum þar sem Nippon
Ham er með sterka stöðu. Nefnir
hann Suður-Kóreu, Filippseyjar,
Malasíu og Indónesíu sem dæmi um
slík lönd. »10
Undirbúa útflutning
á Ísey skyri til Asíu
Alls störfuðu 8.473 starfsmenn
við grunnskóla í haust og fjölgaði
um 4,2% frá fyrra ári. Þó að nem-
endur í grunnskólum hafi aldrei
verið fleiri en síðasta haust var
engu að síður einn starfsmaður á
hverja 5,4 nemendur. Starfs-
mönnum grunnskóla hefur fjölgað
um 39,1% frá hausti 1998 en á sama
tíma hefur nemendum fjölgað um
8,2%. Fjölgun starfsfólks má fyrst
og fremst rekja til fjölgunar stuðn-
ingsaðila nemenda. Ragnar Þór
Pétursson, formaður Kennara-
sambands Íslands, segir að eftir að
sveitarfélögin tóku við rekstri
grunnskóla hafi grunnskólakerfið
orðið mjög kostnaðarsamt, mönnun
hafi blásið út. „Úr varð verkefni
sem við stóðum ekki fyllilega und-
ir.“ »10
Morgunblaðið/Hari
Skóli Starfsmönnum hefur fjölgað mikið.
Starfsmönnum hef-
ur fjölgað um 39%
MISMUNANDI
ENDURÓMUN
SEX LISTAMANNA