Morgunblaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Hugverkastofa Evrópusambandsins
(EUIPO) hefur komist að þeirri
niðurstöðu að vörumerkjaskráning
bresku verslunarkeðjunnar Iceland
Foods Ltd. á orðmerkinu Iceland í
Evrópusambandinu sé ógild í heild
sinni. Fyrirtækið hefur tvo mánuði til
að áfrýja úrskurðinum. Þetta kemur
fram á vef Stjórnarráðsins en íslensk
stjórnvöld, Íslandsstofa og Samtök
atvinnulífsins ákváðu í nóvember
2016 að grípa til til lagalegra aðgerða
gegn Iceland Foods Ltd., sem fékk
árið 2014 orðmerkið Iceland skráð
hjá Hugverkastofu Evrópusam-
bandsins.
Krafa Íslands var að þessi skrán-
ing Iceland Foods yrði ógilt, enda
væri um þekkt landfræðilegt heiti að
ræða og einnig að merkið Iceland
væri almennt, sérkennalaust og hefði
aldrei átt að fást skráð. „Ég fagna
þessari niðurstöðu þótt hún komi mér
ekki alls kostar á óvart enda gengur
það gegn almennri skynsemi að er-
lent fyrirtæki geti slegið eign sinni á
nafn fullvalda ríkis eins og þarna hef-
ur verið gert. Hér er um að ræða
áfangasigur í afar þýðingarmiklu
máli fyrir íslensk útflutningsfyrir-
tæki,“ segir Guðlaugur Þór Þórðar-
son utanríkisráðherra. Iceland Foods
Ltd. á eftir sem áður orð- og mynd-
merki sitt, svokallað „lógó“, skráð í
Evrópu og víðar og getur haldið
áfram að stunda viðskipti undir nafn-
inu. Frestur Iceland Foods til að vísa
málinu til áfrýjunarnefndar EUIPO
rennur út 5. júní nk.
Vörumerkjaskráning
Iceland Foods ógilt
Þýðingarmikið
fyrir íslensk út-
flutningsfyrirtæki
Iceland Fyrirtækið á þó enn orð- og
myndmerki sitt sem er skráð víða.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég lít á rannsóknina sem líflínu
eins og þá sem kastað er til
drukknandi skipverja á strand-
stað. Þessi rannsókn gerir meira
en bara að skoða sjúkdóminn. Hún
mun að mínu áliti einnig finna
lausnina og lyf sem koma í veg
fyrir að sjúkdómurinn nái að
þróast.“ Þetta skrifar Katrín
Björk Guðjónsdóttir, 26 ára kona
frá Flateyri sem fékk þrisvar sinn-
um alvarlegt heilablóðfall fyrir
nokkrum árum og bloggar á síð-
una katrinbjorkgudjons.com um
lífið í bataferli.
Hún skrifar nú um lyf sem verið
er að þróa og gerðar verða rann-
sóknir á hér á landi. Hún hvetur
alla sem telja möguleika á að þeir
séu með ættarsögu tengda heila-
blæðingu að taka þátt.
„Ég ætla að finna lausn“
Eftir að Katrín Björk fékk
fyrstu áföllin heyrði vísindamaður
úr fjölskyldu hennar, Hákon Há-
konarson, barnalæknir og sérfræð-
ingur í lungna- og genarannsókn-
um, sem starfar við
háskólasjúkrahúsið í Filadelfíu í
Bandaríkjunum, af því að hún væri
með þennan ólæknandi sjúkdóm.
Hann sagði við Katrínu: „Ég ætla
að finna lausn, en ég þarf bara
smá tíma.“ Þetta var áður en hún
fékk stærsta áfallið. Hann lagði til
að hún yrði sett á lyf sem hjálpaði
henni að losna við slímtappa sem
mynduðust í öndunarfærum henn-
ar. „Þetta er líka upphafið að
kraftaverkinu,“ skrifar Katrín.
Rannsókn að hefjast
Í október 2016 hringdi Hákon til
að segja henni að hann hefði með
teymi sínu fundið lyf sem minnkar
útfellingar í æðum sem einmitt er
ástæðan fyrir blæðingum hennar
og hægir á framgangi sjúkdóms-
ins. Það grundvallast einnig á önd-
unarlyfinu sem hún hafði verið að
taka. „Í kjölfarið fór ég að taka
lyfið í töfluformi og hef síðan farið
reglulega í rannsóknir sem sýnt
hafa ótrúlega góðar niðurstöður,“
segir Katrín.
Nú er Hákon að hefja rannsókn
á Íslandi þar sem kannað verður
hvort lyfið sem rannsóknin leggur
upp með sé lausnin og geti stöðvað
framgang þessa ólæknandi sjúk-
dóms. Teymi hans býður fólki sem
hefur þennan sjúkdóm eða á hann
á hættu að koma í greiningu. Þeim
sem greinast jákvæðir er boðið
upp á lyfjameðferð.
Með heppnustu manneskjum
„Trú mín á að ég sé í hópi með
hinum allra heppnustu manneskj-
um sem til eru í þessum heimi hef-
ur bara eflst við hverja rannsókn-
ina sem ég hef farið í síðan í
október 2016. Það er von mín og
ósk að hinn ótímabæri dauðadóm-
ur snúist yfir í það að verða það
afl sem knýr áfram rannsóknina
sem síðan leiði til þess að fólk
þurfi ekki í framtíðinni að lifa í
ótta við að greinast með genanið-
urstöðu eins og þá sem ég greind-
ist með, því það sé til lækning.
Rannsóknina er aðeins hægt að
gera hér á Íslandi því um er að
ræða genabreytingu sem aðeins
hefur fundist hérlendis, svo vitað
sé,“ skrifar Katrín Björk.
Eins og líflína til drukknandi manns
Katrín Björk Guðjónsdóttir sem greindist með arfgenga heilablæðingu hefur trú á lyfi sem
vísindamaður úr fjölskyldu hennar er að rannsaka Hvetur fólk til að taka þátt í rannsókninni
Jákvæðni Skrif á bloggið og jákvæðnin eru liður í bataferli Katrínar
Bjarkar Guðjónsdóttur. Hún telur sig í hópi heppnasta fólks í heimi.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ráðist verður í næsta áfanga end-
urbóta Hverfisgötu í miðborg
Reykjavíkur í sumar. Eins og
kunnugt er hefur gatan verið end-
urgerð að stórum hluta síðustu ár
en tveir neðstu hlutarnir eru enn
eftir. Að þessu sinni verður kaflinn
milli Ingólfsstrætis og Smiðjustígs
endurgerður. Við þetta tækifæri
munu Veitur endurnýja fráveitu-
og kaldavatnslagnir í Ingólfs-
stræti, milli Bankastrætis og
Hverfisgötu.
Samkvæmt upplýsingum frá Sig-
urborgu Ósk Haraldsdóttur, for-
manni skipulags- og samgönguráðs
Reykjavíkurborgar, hefur útboð í
verkið verið auglýst og tilboð
verða opnuð 23. apríl.
Lagnir endurnýjaðar
Verkið felur í sér að skipt verð-
ur um jarðveg í Hverfisgötu og
lagnir veitufyrirtækja verða endur-
nýjaðar að stórum hluta. Allt yfir-
borð götunnar verður endurnýjað:
Hjólastígar verða malbikaðir og
gangstéttir hellulagðar. Gatan
verður malbikuð nema á gatnamót-
um þar sem verða steinlögð upp-
hækkuð svæði. Lögð verður snjó-
bræðsla í hjóla- og göngustíga og í
upphækkuð steinlögð gatnamót.
Lýsing við götuna verður endur-
nýjuð.
Samkvæmt áætlun er gert ráð
fyrir að heildarkostnaður við þess-
ar endurbætur nemi 318 milljónum
króna. Þar af er kostnaður Reykja-
víkurborgar 170 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir því að jarð-
vinna og vinna við lagnir hefjist 13.
maí næstkomandi. Frágangi á yf-
irborði í Ingólfsstræti eigi að ljúka
1. júní. Þann 29. júní eigi yfir-
borðsfrágangi við gatnamót Ing-
ólfsstrætis og Hverfisgötu að
ljúka. Yfirborðsfrágangi á götu-
kaflanum milli Smiðjustígs og Ing-
ólfsstrætis eigi að ljúka 3. ágúst.
Þá verði aðeins eftir yfirborðsfrá-
gangur fyrir framan bílastæða-
húsið Traðarkot. Verklok þar eru
áætluð 23. ágúst í sumar.
Endurgera á hluta Hverfis-
götu og Ingólfsstrætis
Vinna við verkið á að hefjast 13. maí og ljúka 23. ágúst
Morgunblaðið/Hari
Hverfisgata Endurnýja á kaflann milli Smiðjustígs og Ingólfsstrætis, auk lagnavinnu í Ingólfsstræti.