Morgunblaðið - 12.04.2019, Page 6

Morgunblaðið - 12.04.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666      Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Morgunblaðið/Hari Hús Framlengja á heimild til að ráðstafa séreign vegna íbúðalána. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Samtals hafa 54.864 einstaklingar sótt um að nýta séreignarsparnað ýmist til útgreiðslu vegna kaupa á fasteign, inn á lán eða hvort tveggja frá árinu 2014 samkvæmt upplýsing- um sem fengust í gær hjá embætti ríkisskattstjóra. Þetta úrræði hefur staðið til boða allt frá miðju ári 2014 og var það framlengt um tvö ár um mitt ár 2017 og gildir til 30. júní næstkomandi. ,,Með því úrræði hefur frá júlí 2014 og til og með mars 2019 verið ráðstafað 56.096.954.532 kr. inn á lán og 2.553.045.404 kr. verið greiddar út vegna fasteignakaupa,“ segir í svari embættis ríkisskattstjóra. Í aðgerðum sem stjórnvöld hafa lofað í tengslum við gerð kjarasamn- inga er lagt til að framlengd verði í tvö ár til viðbótar heimildin til að ráðstafa séreignarsparnaði inn á lán vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota til 30. júní 2021. 2,6 milljarðar inn á lán og vegna fyrstu fasteignakaupa Árið 2017 var einnig heimiluð skattfrjáls ráðstöfun séreignar- sparnaðar vegna fyrstu kaupa á íbúð. Samkvæmt upplýsingum ríkis- skattstjóra hafa samtals borist 7.800 umsóknir um útgreiðslu eða ráðstöf- un inn á lán vegna fyrstu íbúðar- kaupa. Frá júlí 2017 til og með mars síðastliðnum hefur alls verið ráðstaf- að 1.401.565.991 kr. inn á lán og 1.195.622.294 kr. hafa verið greiddar út vegna fyrstu fasteignakaupa. Að öllu samanlögðu hafa því borist hátt í 63 þúsund umsóknir um öll þau úrræði sem heimiluð hafa verið á umliðnum árum í skattfrjálsa ráð- stöfun séreignarsparnaðar vegna húsnæðiskaupa og inngreiðslu á lán. Í skýrslu starfshóps félags- og barnamálaráðherra um aðgerðir til að auðvelda ungu fólki og tekjulág- um að komast inn á húsnæðismark- aðinn, kemur fram að á sama tíma og séreignarsparnaðarleiðirnar hafa staðið til boða hefur fyrstu kaupend- um á húsnæðismarkaði fjölgað. ,,Árið 2014 voru um 18% allra fast- eignaviðskipta fyrstu kaup en nú er þetta hlutfall um fjórðungur,“ segir í greinargerð starfshópsins. Samtals 9,5% af launum Eins og fram hefur komið er gert ráð fyrir í aðgerðum stjórnvalda að heimilt verði að ráðstafa líka þeim hluta lífeyrisiðgjalds sem nefndur er tilgreind séreign til húsnæðiskaupa með skattfrjálsri úttekt og tíma- og fjárhæðartakmörkunum. Starfshópur ráðherra lagði í fram- haldinu til að ráðstafa megi einnig 3,5 prósentustigum lífeyrisiðgjalds skattfrjálst til húsnæðissparnaðar. ,,Heimild til ráðstöfunar allt að 6% séreignarsparnaðar skattfrjálst til fyrstu íbúðakaupa verði útvíkkuð þannig að einnig verði heimilt að nýta 3,5 prósentustig iðgjalds lífeyr- issparnaðar til íbúðakaupa eða sam- tals 9,5% af launum,“ segir þar. 63 þúsund sótt um séreignarleiðirnar  56 milljörðum af séreignarsparnaði ráðstafað inn á lán og rúmlega 2,5 milljarðar greiddir út vegna fasteignakaupa skv. upplýsingum RSK  7.800 hafa sótt um útgreiðslu til fyrstu íbúðakaupa frá 2017 Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Stór áfangi er í höfn eftir að tveir samstarfssamningar voru undirritað- ir í gær varðandi þróun og uppbygg- ingu stórskipahafnar og framkvæmd- ir í Finnafirði en verkefnið hefur verið lengi í deiglunni. Mættir voru fulltrú- ar sveitarfélaganna Langanesbyggð- ar og Vopnafjarðarhrepps auk full- trúa Verkfræðistofunnar Eflu og þýska félagsins Bremenports. Tvö hlutafélög eru stofnuð um verkefnið og er annað félagið, rekstrarfélag hafnarinnar, alfarið í eigu Langanes- byggðar og Vopnafjarðarhrepps en hitt félagið er þróunarfélag í eigu þeirra sem standa að verkefninu. Hafsteinn Helgason verkfræðingur hjá Eflu hefur unnið við þetta verk- efni frá árinu 2008 og sagði hann allar rannsóknir styðja það að í Finnafirði væru einstakar aðstæður en þar er mikið dýpi og lítil ölduhæð. Elías Pétursson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, lýsti ánægju með þennan áfanga og taldi hann ekki síst mikilvægan og til hagsbóta fyrir land- eigendur en gott samstarf hefði verið við þá og yrði það enn markvissara með þessum samningum. „Núna er ekki lengur unnið með hugmynd heldur með formlegt verkefni en vissulega er þetta risavaxið langtíma- verkefni og með undirrituninni í dag aukast líkur á því að framkvæmdir verði að veruleika,“ sagði Elías. Ro- bert Howe forstjóri Bremenports tók í sama streng og sagði hann Finna- fjarðarsvæðið vera einstakt og stað- setning hafnar þar gæti breytt al- þjóðasiglingum í framtíðinni. Um er að ræða langtímaverkefni sem tekur áratugi að byggja upp. Næstu 3-5 ár fara í undirbúning og er fjárþörf til þess um 5 milljónir evra, sagði Howe sem var bjartsýnn á að fjárfestar fengjust í verkefnið í lok þessa árs. Framkvæmdir gætu þá hafist 2024. Samstarfssamningur um stórskipahöfn í Finnafirði  Staðsetning hafnarinnar gæti breytt alþjóðasiglingum Grái herinn ætlar í mál við ríkið Aðgerðahópur Gráa hersins undirbýr nú málssókn gegn ís- lenska ríkinu og hefur stofnað sér- stakan málssókn- arsjóð til að vera fjárhagslegan bakhjarl sinn. VR hefur lagt barátt- unni til eina millj- ón króna, fleiri stéttarfélög lofa stuðningi og Félag eldri borgara í Reykjavík samþykkti að gerast stofnaðili málssóknarsjóðsins með hálfrar milljónar króna framlagi. Þetta kom fram í ávarpi Finns Birg- issonar og Ingibjargar Sverris- dóttur á landsfundi Landssambands eldri borgara í Reykjavík í gær. Þau hafa ásamt Wilhelm Wessman unnið að undirbúningi málssóknar vegna „óréttlátra og yfirgengilegra tekju- tenginga í lífeyriskerfi almanna- trygginga,“ eins og það var orðað í ávarpinu. Grái herinn er baráttuhópur inn- an Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis. Bent er á að miklar tekjuteng- ingar hér á landi séu einsdæmi og hvergi í nálægum löndum geti það gerst að regluverkið þurrki alveg út grunnlífeyri fólks frá hinu opinbera. Ósáttir Tekjuteng- ingar eru miklar.  Stofna sérstakan sjóð um málsóknina „Þetta er ómetanlegt og styrkir okkur í því mikilvæga starfi sem við höfum verið að vinna og að við höfum náð árangri,“ sagði Gylfi Júl- íusson í Vík í Mýrdal, talsmaður Fjörulalla, í samtali eftir að hann tók við landgræðsluverð- launum fyrir hönd þessara óformlegu samtaka. Árni Bragason landgræðslustjóri og Guð- mundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra afhentu þremur einstaklingum og hópum land- græðsluverðlaun 2019 í lok ársfundar Land- græðslunnar sem fram fór í Reykjavík í gær. Verðlaunin eru veitt fólki sem unnið hefur að landgræðslu og landbótum og er markmið þeirra að vekja athygli á mikilvægu starfi áhugafólks að landgræðslumálum. Auk Fjörulalla fengu verðlaun þau Haukur Engilbertsson, bóndi á Vatnsenda í Skorradal og Lionsklúbbur Skagafjarðar og hjónin Smári Borgarsson og Sigríður Sveinsdóttir, ábúendur í Goðdölum. „Ég hafði takmarkaða trú á þessu verkefni í upphafi. Landið er svo hátt yfir sjó og þurrt,“ segir Smári Borgarsson um uppgræðslustarf ábúenda í Goðdölum og félaga í Lionsklúbbi Skagafjarðar á Goðdalafjalli. Hann viðurkennir að mikill árangur hafi orðið af þessu starfi og raunar hafi landið gjörbreyst eftir að vetrarbeit var hætt. Fjörulallar hafa unnið mikilvægt starf í sjö ár við að hemja foksand í fjörunni við Vík í Mýrdal og verja byggðina. Gylfi segir að þótt árangur hafi náðst sé starfinu ekki lokið og vonast til að það haldi áfram. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Styrkir okkur í mikilvægu starfi Landgræðslan veitir þremur einstaklingum og félögum landgræðsluverðlaun 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.