Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019
Reykjavíkurborg er staðráðin íað hrekja allar verslanir,
aðrar en lundabúðir, úr miðborg-
inni. Ekki hefur verið sett form-
legt markmið um hvenær þessum
merka áfanga skuli náð, en að
sögn Sigurborgar Óskar Haralds-
dóttur, pírata og formanns skipu-
lags- og samgönguráðs borg-
arinnar, er ætlunin
að ýta göngugöt-
unum ofar á
Laugaveginn á
næsta ári.
Athyglisvert erað sjá haft
eftir henni að fram
undan sé samstarf
„við verslunar- og veitinga-
húsaeigendur því sumir hafa
áhuga á að koma með þjónustuna
meira út á götu.“
Staðreyndin er sú að borgaryf-irvöld hafa engan áhuga sýnt
á samstarfi eða samráði við lang-
stærstan hluta verslunareigenda í
miðborginni. Þau hafa skipulega
hunsað óskir verslunareigend-
anna um að hafa við þá samráð
og leyfa umferð um Laugaveginn.
Borgaryfirvöld hafa verið mjögskýr með það að samráð er
ekki á dagskrá, að minnsta kosti
ekki við þá sem leyfa sér að vera
annarrar skoðunar en samfylk-
ingarflokkarnir í borgarstjórn.
Og það hefur líka verið mjögskýrt hvað borgaryfirvöld
vilja að þeir verslunarrekendur
geri sem sætta sig ekki við að
viðskiptavinir þeirra geti ekki
komið akandi til þeirra.
Þannig verslunarrekendurskulu brott úr miðborginni,
líkt og margir þeirra hafa þegar
gert.
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir
Samráð bara við þá
sem eru sammála
STAKSTEINAR
W W W. S I G N . I S
Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður │ S: 555 0800 │sign@sign.is
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
gær karlmann í tólf mánaða fangelsi
fyrir fíkniefnabrot og ítrekuð vopna-
lagabrot og brot gegn valdstjórninni.
Til frádráttar er gæsluvarðhald sem
maðurinn sætti frá 29. desember.
Hann játaði brot sín skýlaust.
Maðurinn var dæmdur meðal ann-
ars fyrir brot gegn valdstjórninni,
tilraun til sérstaklega hættulegrar
líkamsárásar og vopnalagabrot með
því að hafa 12. september, í og við
viðtalsherbergi á bráðamóttöku geð-
sviðs Landspítalans á Hringbraut,
veist með ofbeldi og hótunum um of-
beldi að geðlækni við skyldustörf.
Með 11 sm langan kjöthníf
Maðurinn dró þar upp úr peysu-
vasa sínum kjöthníf með 11 sm löngu
blaði, gekk í átt að lækninum með
hnífinn fyrir framan sig og otaði hon-
um fram líkt og hann ætlaði að
stinga hann í bakið að því er segir í
dómnum.
Læknirinn sneri sér á sama tíma
við, að manninum, og hörfaði síðan
út úr viðtalsherberginu en ákærði
elti hann með hnífinn á lofti. Gerði
maðurinn tilraun til þess að stinga
lækninn með hnífnum ofarlega í búk
eða andlit, en læknirinn náði að verj-
ast manninum og varnarteymi geð-
deildar yfirbugaði hann í kjölfarið.
Veittist að geðlækni vopnaður hnífi
Dæmdur í 12 mánaða fangelsi m.a.
fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot
Morgunblaðið/Ómar
Landspítali Atvikið átti sér stað á
Landspítalnum við Hringbraut.
Síðari umræðu um ársreikning Sel-
tjarnarnesbæjar var frestað á bæj-
arstjórnarfundi í fyrradag því hann
var ekki tilbúinn til undirritunar.
Endurskoðunarfyrirtækið KPMG
skrifaði ekki undir ársreikninginn
og er ástæðan sú að KPMG sam-
þykkir ekki að fé sem kom inn vegna
nýs hjúkrunarheimilis var fært und-
ir A-hluta ársreiknings en ekki B-
hluta eins og KPMG bendir á að eigi
að gera lögum samkvæmt. Þetta eru
217 milljónir króna. Þetta segir Guð-
mundur Ari Sigurjónsson sem situr í
minnihluta í bæjarstjórn fyrir Sam-
fylkinguna.
Nýr bókari tekur til starfa
Á fundi bæjarstjórnar var Ás-
gerður Halldórsdóttir bæjarstjóri
spurð nánar um ástæðu frestunar-
innar og sagði hún hana vera vegna
þess að nýr bókari bæjarins væri
ekki tekinn til starfa og því var ekki
hægt að senda fylgigögn með árs-
reikningnum.
Guðmundur segist hafa fengið þau
svör hjá bæjarstjóra í gær að hún
hyggist ekki breyta bókuninni eins
og KPMG mælist til. Hins vegar
bendir hann á að bæjarstjórn geti
enn breytt og fært þessar 217 millj-
ónir króna yfir í B-hlutann fyrir
seinni umræðu um ársreikninginn
því hann hefur ekki enn verið sam-
þykktur. Seinni umræða fer fram
eftir 2 vikur eða 24. apríl.
„Þetta er einfaldlega gert til að
fegra bókhaldið því það lítur ekki vel
út í ár,“ segir Guðmundur.
Hann bendir á að A-hluti árs-
reikningsins skili 47 milljóna króna
halla ef hann haldist óbreyttur með
tekjum af þessum 217 milljónum
króna eins og bæjarstjórn hyggst
gera.
Umræðu um árs-
reikning frestað
Greinir á um bók-
færslu 217 millj. kr.
hjá Seltjarnarnesbæ
Morgunblaðið/Hari
Gróttuviti Bæjarstjórn Seltjarnar-
ness greinir á um ársreikning.