Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019 Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Verð 7.990 Stærðir 40-52 Jakkar rússkinnsáferð Nýjar vörur í hverri viku Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Dómsmálaráðuneytið hefur sent Reykjavíkurborg bréf vegna fyrir- hugaðrar byggingar Lindarvatns ehf. á hóteli á svokölluðum Land- símareit og þar á meðal á svæði sem áður var kirkjugarður, Víkurgarður. Er þar m.a. vísað til 33. gr. laga nr. 36/1993, um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, og bent á að niður- lagðan kirkjugarð megi ekki nota til neins þess sem óviðeigandi er að dómi prófasts. Ekki megi þar jarð- rask gera né reisa nein mannvirki. Þó geti dómsmálaráðuneytið veitt undanþágu frá þessu, að fengnu samþykki kirkjugarðaráðs. Bendir ráðuneytið á að því hafi vorið 2018 borist beiðni Veitna ohf. þar sem óskað var eftir heimild ráðu- neytisins til þess að mega grafa fyrir veitulögnum á svæði Víkurgarðs. „Eftir að hafa aflað afstöðu kirkju- garðaráðs féllst ráðuneytið á beiðn- ina. Aðrar beiðnir um leyfi fyrir jarð- raski eða mannvirkjagerð á svæðinu sem tilheyrir Víkurgarði hafa ekki borist ráðuneytinu,“ segir í bréfi. Þá bendir dómsmálaráðuneytið á að Víkurgarður sé í raun niðurlagður kirkjugarður. Telur ráðuneytið „því óhjákvæmilegt að vekja athygli Reykjavíkurborgar sem leyfisveit- anda á grundvelli laga nr. 160/2010, um mannvirki, og Lindarvatns ehf. sem framkvæmdaaðila, á því að leita beri eftir heimild ráðuneytisins um allar framkvæmdir sem kunna að hafa í för með sér jarðrask á svæði hins gamla kirkjugarðs.“ Hjá borginni fengust þær upplýs- ingar að borgarstjóri hefði falið umhverfis- og skipulagssviði og borgarlögmanni að svara bréfinu. Ber að leita fyrst eftir heimild  Borginni sent bréf vegna Víkurgarðs Morgunblaðið/Eggert Jarðrask Víkurgarð má finna í hjarta Reykjavíkurborgar. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Nemendur í grunnskólum hafa aldr- ei verið fleiri hér á landi en í fyrra, alls 45.904. Starfsfólki í skólum hef- ur fjölgað mikið síðustu ár og síðasta haust var einn starfsmaður á hverja 5,4 nemendur. Alls störfuðu 8.473 starfsmenn við grunnskóla í haust og fjölgaði um 4,2% frá fyrra ári. Fjölgun starfsfólks má fyrst og fremst rekja til fjölgunar stuðnings- aðila nemenda. Þroskaþjálfum hefur fjölgað hlutfallslega mest. Stuðn- ings- og uppeldisfulltrúum hefur fjölgað úr 247 í 1.161 á síðustu 20 ár- um. Á sama tímabili hefur fjöldi sér- kennara og skólasálfræðinga/ námsráðgjafa meira en tvöfaldast. „Ef tekið er mið af öllum starfs- mönnum grunnskóla, hefur starfs- mönnum fjölgað um 39,1% frá hausti 1998 en á sama tíma hefur nem- endum fjölgað um 8,2%,“ segir í nýrri samantekt Hagstofunnar um þetta. Árið 2016 var hlutfall nemenda á hvern kennara 10,8 hér á landi, sam- kvæmt tölum sem birtar eru í skýrsl- unni Education at a Glance hjá OECD. Meðaltal OECD-ríkja það ár var 15,1 nemandi á hvern kennara. Ísland er í hópi þeirra landa með lægsta hlutfallið, aðeins fjögur lönd hafa færri nemendur á hvern kenn- ara. Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, segir í samtali við Morgunblaðið að þessi mikla mönnun í íslenska skólakerf- inu skýrist að hluta til af fjölda alls konar stuðningsaðila. Þá þróun megi að einhverju leyti rekja til hvernig kosið hafi verið að takast á við skólakerfi án aðgreiningar. „Sú leið er að einhverju leyti að ganga til baka, menn eru farnir að sjá að þetta hafi verið misráðin leið til að ná þessu markmiði,“ segir hann. Önnur skýring á þessu að mati Ragnars er sú að samþjöppun á þétt- býlisstaði hefur skilað fámennum skólum á landsbyggðinni sem þarf eftir sem áður að manna. Því séu hlutfallslega fleiri kennarar þar en á þéttbýlisstöðum. Ragnar segir að eftir að sveitar- félögin tóku við rekstri grunnskóla hafi grunnskólakerfið orðið mjög kostnaðarsamt, mönnun hafi blásið út. „Úr varð verkefni sem við stóð- um ekki fyllilega undir,“ segir hann. Nú standi yfir eins konar naflaskoð- un á stöðu mála og í haust megi vænta tillagna um úrbætur. „Ég á von á því að ef menn hafa tækifæri til muni verða lögð áhersla á að fjölga menntuðum kennurum og breyta starfs- og kennsluháttum.“ Morgunblaðið/Hari Námsmenn Starfsmönnum grunnskóla hefur fjölgað um 39,1% frá 1998. Einn starfsmaður á hver 5,4 börn  Skólakerfið á Íslandi hefur blásið út Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fulltrúar Ísey útflutnings ehf. og japanska fyrirtækisins Nippon Ham hafa skrifað undir viljayfir- lýsingu um að fyrirtækin vinni saman að markaðssetningu á skyri á nágrannamörkuðum Japans þar sem Nippon Ham hefur sterka stöðu. Nippon Luna, dótturfyrir- tæki Nippon Ham, er að reisa skyrverksmiðju í Tókýó þar sem framleitt verður Ísey skyr fyrir Japansmarkað. Nippon Ham er stórt matvæla- fyrirtæki sem veltir um 1.400 millj- örðum, er með 30 þúsund starfs- menn og er með starfsemi um allan heim. MS valdi dótturfyrirtæki þess, Nippon Luna, til samstarfs um framleiðslu og sölu á Ísey skyri á Japansmarkaði. Fyrirtækið er að undirbúa verkefnið, meðal annars með því að byggja nýja skyrverk- smiðju í Tókýó. Mjólkurfræðingar frá Japan hafa að undanförnu verið í þjálfun hjá MS á Selfossi. Reiknað er með að framleiðslan hefjist í september næstkomandi og verður skyrið kynnt á vörusýn- ingu Nippon Ham í janúar. Ísey skyrið á síðan að vera aðalheilsu- vara Nippon á Ólympíuleikunum sem haldnir verða í Tókýó á næsta ári. Hafa sterka stöðu í Asíu Yoshihide Hata, forstjóri Nippon Ham, kom í heimsókn til landsins í byrjun vikunnar í þeim tilgangi að styrkja samstarf fyrirtækjanna. Átti hann meðal annars fundi með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanrík- isráðherra og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, ráðherra ferðamála. Tækifærið var notað til að und- irrita viljayfirlýsingu um frekara samstarf um sölu Ísey skyrs á fleiri mörkuðum Asíu. Jón Axel Péturs- son, framkvæmdastjóri Ísey út- flutnings, segir að samstarfið eigi eftir að þróast. Fyrirtækin muni einbeita sér að þeim mörkuðum þar sem Nippon Ham er með sterka stöðu. Nefnir hann Suður- Kóreu, Filippseyjar, Malasíu og Indónesíu sem dæmi um slíka markaði. „Þeir eru spennandi sam- starfsaðilar og þekkja þessa mark- aði miklu betur en við,“ segir Jón Axel. Samstarf við Japani um sölu skyrs á Asíumarkaði  Spennandi samstarfsaðilar segir framkvæmdastjóri Ísey Samstarf Yoshihiko Ishii forstjóri Nippon Luna og Ari Edwald forstjóri MS staðfesta samning. Á bak við þá standa Kazuhiro Mikuni framkvæmdastjóri hjá Nippon Ham, Yoshihide Hata forstjóri, Jón Axel Pétursson fram- kvæmdastjóri Ísey útflutnings og Bolli Thoroddsen ráðgjafi. Flestir myndu kjósa Sjálfstæðis- flokkinn ef kosið yrði til Alþingis núna og næstflestir myndu kjósa Pí- rata. Þetta kemur fram í nýrri könn- un MMR á fylgi flokkanna þar sem spurt var um hvaða flokkur yrði fyr- ir valinu ef kosið yrði til Alþingis í dag. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 21,7%, sem er tveimur prósentustigum minna en í síðustu könnun sem gerð var um miðjan mars. Píratar hafa bætt við sig einu og hálfu prósentustigi frá síðustu könnun og er fylgi þeirra nú 15%. Samfylkingin er þriðji stærsti flokkurinn samkvæmt könnuninni, flokkurinn mælist með 13,9% fylgi en var með 13,8% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri grænna mælist nú 10,4%, en var 11,4% síðast, Mið- flokkurinn er með 10,2% og mældist með 8% í síðustu könnun. Fylgi Viðreisnar mælist 9%, það var 9,4% í síðustu könnun, Fram- sóknarflokkurinn mælist með 8,7% fylgi, en var með 11,1% í síðustu könnun og Flokkur fólksins mælist með 5,4%, en var með 4,7% í síðustu könnun. Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mælist 4,5%, en var 2,5% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mæld- ist 1,2% samanlagt. Einnig var spurt um stuðning við ríkisstjórnina, hann er 46,5% en var 41,8% í síðustu mælingu. X-P og X-M bæta við sig fylgi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.