Morgunblaðið - 12.04.2019, Page 12
okkar hópi, undir samninga sem eru
yfir hundrað milljónir evra (andvirði
um 13,5 milljarðar íslenskra króna).
Þetta eru verkefni næstu þrjú árin,
sumt af þessu er næstum því búið en
annað er eitthvað sem tekur lengri
tíma eins og skipasmíði og uppsetn-
ing búnaðar.“
Ný starfsstöð
Mikil uppbygging er nú innan
sjávarútvegs í Rússlandi að sögn
Jónasar sem vísar til þess að stjórn-
völd þarlendis hafa skapað hvata til
þess að endurnýja fiskiflotann sem
er orðinn úreltur. Bendir hann meðal
annars á að yfirvöld veiti ríkisstyrki
til endurnýjunar búnaðar auk þess
sem stjórnvöld úthluta kvóta til fyr-
irtækja sem láta byggja ný skip. Þá
verða ný skip að vera byggð í Rúss-
landi í þeim tilgangi að efla skipa-
smíðaiðnað í landinu og hefur ís-
lenskum fyrirtækjum gengið vel að
selja hugvit til Rússlands.
„Þetta er að miklu leyti hugvit og
þetta eru kerfi, eins og fiskvinnslu-
kerfi, vinnsludekk á togurum, fisk-
vinnsluhús og hönnun á skipum. Við
erum líka að selja lausnir í sambandi
við trollbúnað og allt sem tengist því.
Þetta er allt saman tækni sem er
þróuð á Íslandi sem við erum að selja
og það er mikill áhugi hjá Rússun-
um,“ útskýrir Jónas. Til að mynda
hefur verkfræðistofan Nautic, sem
er eitt fyrirtækja Knarr-hópsins,
komið upp starfsstöð í Sankti Pét-
ursborg og ráðið til sín um 45 starfs-
menn sem munu hanna skip, að sögn
Jónasar. Þá hafa Rússar einnig leit-
að ráðgjafar í sambandi við rekstr-
arform, en þeir hafa mikið verið að
heilfrysta úti á sjó í stað þess að
veiða og kæla, síðan vinna í landi.
„Þeir eru jafnvel að hallast að því að
taka þetta upp sem gefur meiri verð-
mæti.“
Bylting í greininni
Spurður hvort þessar miklu breyt-
ingar megi kalla byltingu í greininni
í Rússlandi, segir Jónas svo vera.
„Þetta er virkileg bylting miðað við
það sem hefur verið í gangi hérna
síðustu árin. Ég er búinn að fylgjast
með þessum bransa í Rússlandi síð-
ustu 30 árin og þetta er alveg stór-
kostlegt. Það hafa hingað til verið
mjög litlar fjárfestingar, mjög lítið
um landvinnslu og mjög lítið um full-
vinnslu, en nú er verið að taka mjög
stór skref með gríðarlegum fjárfest-
ingum.“
Ljósmynd/Knarr Rus
Veiðarfæri Íslensk fyrirtæki sem hafa þróað mikla þekkingu og reynslu við að þjónusta sjávarútveginn hér á landi,
sjá nú mikil tækifæri í Rússlandi. Þar á sér nú stað bylting í greininni sem afleiðing aukinna fjárahagslegra hvata.
Selja íslenskt hugvit
fyrir 13,5 milljarða
Nútímavæðing sjávarútvegs Rússa, sóknarfæri Íslendinga
BAKSVIÐ
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Fulltrúar 13 íslenskra fyrirtækja
mættu á alþjóðlegu sjávarútvegsráð-
stefnuna „Fishing in the Arctic“ í
Murmansk í Rússlandi í síðasta mán-
uði. „Það er mjög mikið að gerast í
þessu og það voru fjögur félög frá
okkur í Knarr Maritime hópnum
sem tóku þátt í þessari ráðstefnu,“
segir Jónas Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Knarr í Rússlandi.
Hann segir að send hafi verið sterk
íslensk sendinefnd sem skipuð var
bæði fulltrúum Knarr-hópsins og
einnig frá öðrum fyrirtækjum eins
og Marel og Sæplast. „Það var mjög
vel tekið á móti okkur. Þannig að það
er ýmislegt að gerast hjá öllum þess-
um aðilum og mikill áhugi á því að
nýta íslenska reynslu og þekkingu.“
Fyrirtækin Brimrún, Frost, Naust
marine, Nautic, Skaginn 3X og
Skipatækni gera Knarr-hópinn.
Umfang verkefna Knarr í Rúss-
landi er sífellt að aukast, að sögn
framkvæmdastjórans. „Á þessu
rúmu ári sem við höfum verið virkir í
Rússlandi er búið að skrifa, bara hjá
12 FRÉTTIRVIðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019
VINNINGASKRÁ
50. útdráttur 11. apríl 2019
176 9368 20901 32423 42064 50173 60676 72291
221 9498 20942 33022 42134 50607 60726 72316
233 10105 21076 33231 42255 51201 61289 72413
266 10117 21246 33386 42846 51315 61311 72544
1262 10134 21940 34249 43265 51524 61408 72551
1264 10409 22787 34346 43403 51661 61892 72688
1328 10878 22984 34542 44065 52430 62127 74763
1504 10965 23132 34719 44293 53036 62709 74921
1714 11735 23456 35424 44308 53127 62937 74975
1832 12343 23722 35623 44316 54116 64325 75073
1906 13512 23794 35674 44406 55058 64384 75144
2156 13881 24198 36216 44797 55395 64591 75461
2542 13952 24246 36429 44935 55649 64613 76077
2629 14077 25165 36884 44950 55725 64658 76236
3168 14104 25361 36956 45384 55905 65919 76432
3261 14221 25532 37486 45624 55989 66133 76551
3321 14459 25842 37580 45754 55992 66356 76591
3693 14869 25969 37902 45868 56087 66846 76680
3765 14908 26127 38243 46195 56161 66879 77089
3881 16907 26158 38308 46284 56196 67030 77385
3972 16938 26198 38460 46579 56575 67223 77416
4047 16975 26286 39023 46592 56679 67253 77417
4142 17135 26376 39199 46798 57347 67395 77568
4523 17851 26524 39331 47187 57949 68202 77764
4667 17898 26751 39452 47266 58114 68429 77902
4831 18364 27568 39577 47366 58134 68610 78000
5047 18518 27672 39650 47400 58325 68725 78003
5212 18881 27798 39824 47555 58429 68928 78313
5846 18913 27809 39834 48096 58773 68982 78349
6647 18937 27868 40864 48421 59009 69060 78396
7374 19099 29526 41101 49099 59123 69076 79798
7477 19614 29660 41117 49106 59632 69462
7655 19683 30179 41239 49277 59794 69702
7852 20013 30634 41451 49513 60095 70152
8027 20366 31041 41551 49634 60272 70186
9164 20456 31046 41847 49873 60514 71005
9291 20614 31964 41929 50060 60531 71704
465 10371 21788 28189 35788 47607 61221 71630
934 10521 22398 29281 38268 49506 61499 71889
2188 10858 22511 29744 39643 50170 61914 71931
3128 12871 22691 29829 39903 53182 61915 72168
4390 13384 23268 30340 39944 53629 63231 73895
5278 13495 24976 31189 41642 54034 63580 75097
7046 14195 25226 31611 41936 54538 63583 77561
7354 14689 26087 32481 42996 55068 64873 77948
8491 18104 26501 32615 43843 56537 66294 78799
8700 18558 26683 32923 44337 59946 66402
9065 19334 27057 33188 45912 60024 67945
9245 19450 27312 33721 47245 60243 69915
9543 20383 27583 35416 47521 60844 69988
Næstu útdrættir fara fram 17. & 26. apríl 2019
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
34722 47090 54809 74454
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
2644 17577 24654 36664 56426 67540
5651 21775 28639 39514 60414 72434
5821 21776 30749 47713 64824 74675
11062 22136 33820 54592 65646 79418
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 2 2 4 0
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
12. apríl 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 118.56 119.12 118.84
Sterlingspund 155.09 155.85 155.47
Kanadadalur 88.93 89.45 89.19
Dönsk króna 17.897 18.001 17.949
Norsk króna 13.924 14.006 13.965
Sænsk króna 12.803 12.879 12.841
Svissn. franki 118.46 119.12 118.79
Japanskt jen 1.0655 1.0717 1.0686
SDR 164.63 165.61 165.12
Evra 133.63 134.37 134.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.5852
Hrávöruverð
Gull 1301.85 ($/únsa)
Ál 1850.0 ($/tonn) LME
Hráolía 70.82 ($/fatið) Brent
„Finnski markaðurinn er flottur
markaður sem við munum skoða
enn frekar,“ segir Andrés Vil-
hjálmsson, útflutningsstjóri Ice-
landic Lamb, og bendir á að nýlega
hafi verið gerður leyfissamningur
við fyrirtækið Wihuri Oy Aarnio
Metro um notkun markaðsefnis Ice-
landic Lamb, en fyrirtækið annast
dreifingu og sölu íslensks lamba-
kjöts í Finnlandi. Sala á kjötinu hef-
ur staðið frá fyrsta janúar 2018 og
hafa hingað til verið seld um átta
tonn á finnskum markaði.
Þá var íslenskt lambalæri og
hryggvöðvi valið sem aðalhráefni í
keppninni kokkur ársins í Finn-
landi, en úrslit hennar voru tilkynnt
6. apríl. „Þetta sýnir okkur enn og
aftur hvað við erum með einstaka
vöru í höndunum,“ segir Andrés og
bætir við að hann sé „bjartsýnn á að
Finnland geti orðið stöðugur mark-
aður fyrir íslenskt lambakjöt í
framtíðinni“. Hann segir Icelandic
Lamb vinna að því að tryggja bætt-
ar upprunamerkingar og að lagt sé
upp með að upprunamerkja mest
allan útflutning, sérstaklega þann
útflutning sem fer á markaði sem
greiða ákjósanlegt verð. gso@mbl.is
Finnar taka vel á móti
íslensku lambakjöti
Elo-säätiö/Santeri Stenvall
Lamb Aðalhráefni kokkanna.
Atvinna