Morgunblaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ein af furðu-legribirtingar- myndum tilrauna til að draga úr los- un gróðurhúsa- lofttegunda eru svokallaðar los- unarheimildir. Fyrirtæki fá los- unarkvóta og þeir ganga síðan kaup- um og sölum þannig að fyrir- tæki, sem menga lítið, geti selt fyrirtækjum, sem menga mikið, losunarheimildir sínar. Á forsíðu Morgunblaðsins í gær var vísað í frétt Viðskipta- moggans um að flugfélagið Wow hefði selt losunarheim- ildir, sem félagið fékk án endurgjalds, rétt fyrir gjald- þrot og því hefði rúmlega 400 milljóna króna greiðsla borist inn í slitabúið. Í fréttinni kemur fram að Wow hafi átt los- unarheimildir að andvirði rúm- an milljarð króna, en þær séu bundnar við gilt flugrekstr- arleyfi og teljist því ekki til eigna í þrotabúinu. Þetta mál er þeim mun kyndugra vegna þess að Wow hafði ekkert svigrúm í losunarmálum og hefði þurft að kaupa sér losunarheimildir aft- ur síðar til að vera réttum meg- in við strikið. Um helgina var greint frá því í fréttum að ítalski bílafram- leiðandinn Fiat hefði keypt los- unarheimildir fyrir mörg hundruð milljónir dollara af rafbílaframleiðandanum Teslu til að komast hjá því að fá sektir frá framkvæmdastjórn Evrópusambands- ins. Lesendur kann- ast við losunar- heimildaviðskipti af rafmagnsreikn- ingum sínum þar sem fram kemur að þeir séu kaupendur kjarorku. Ástæðan er sú að ís- lenskir orkuframleiðendur hafa selt svo kallaðar uppruna- ábyrgðir úr landi og teljast því ekki bjóða upp á endurnýjan- lega orku nema að hluta. Þann- ig geta syndaselir sveipað sig vistvænum ljóma án þess að leggja nokkuð á sig og meng- unarheimildir ganga kaupum og sölum eins og aflátsbréfin forðum. Og Íslendingar gerast kjarnorkuknúnir án þess nokk- urn tímann að hafa komið ná- lægt kjarnorku. Næsta skrefið hlýtur að vera að rafbílaeigandinn á sjöttu hæðinni geti selt jeppaeigand- anum á fjórðu hæðinni losunar- heimildir sínar. Hér hefur orðið til flókinn markaður sem fylgja mikil við- skipti og útheimtir viðamikið skipulag og utanumhald. Hann breytir samt engu og útblástur- inn er sá sami og áður þrátt fyr- ir allar æfingarnar. Oft er blás- ið til skrýtinna leikja, en þetta fyrirkomulag í loftslagsmálum er svo fáránlegt að það ætti að fá heitið fáránleikar. Syndaselir sveipa sig vistvænum ljóma án þess að leggja nokkuð á sig og mengunarheim- ildir ganga kaupum og sölum eins og af- látsbréfin forðum} Fáránleikar Breska lög-reglan hand- tók í gær Julian Assange í sendiráði Ekvador í Lund- únaborg, tæpum sjö árum eftir að hann flúði þangað undan tveimur ákærum um kynferðis- brot í Svíþjóð. Ríkisstjórn Ekvador hafði þá svipt Assange pólitísku hæli, en ljóst var að stjórnvöld þar voru komin með mikla leið á „gestinum“ í sendi- ráðinu. Var sá leiði ekki bara vegna þess að vera Assange í sendi- ráðinu litaði öll samskipti ríkis- ins við Breta, heldur olli hann einnig reglulega usla gagnvart öðrum ríkjum. Sú staðreynd að Wikileaks tók þátt í netárás rússneskra hakkara á Demó- krataflokkinn í aðdraganda for- setakosninganna 2016 með því að birta þau skjöl sem þar fund- ust reyndi einnig á taugar stjórnvalda í Ekvador, sem brugðust við með því að taka netsamband af Assange í nokkra mánuði. Skjöl frá Vatí- kanínu sem Wikileaks birtu í janúar síðastliðnum reyndust dropinn sem fyllti mælinn. En hvað verður um Assange nú? Þrjú af þeim fjór- um kynferðis- brotum sem Ass- ange var sakaður um í Svíþjóð eru fyrnd og rannsókn fjórða brotsins, meintrar nauðgunar, hefur verið hætt af saksókn- urum þar í landi. Hún gæti þó hafist að nýju, stígi Assange fæti á sænska grund fyrir lok næsta árs. Í Bretlandi þarf Assange að standa skil á því að hafa ekki hlýtt fyrirskipunum dómara þegar hann kaus að flýja undan réttarfari Svía árið 2012, og um leið rofið þau skilyrði sem fylgdu því þegar hann var lát- inn laus gegn tryggingu í að- draganda réttarhaldanna. Inn- an skamms þarf hann svo að mæta kröfu bandarískra yfir- valda sem vilja koma lögum yfir hann fyrir brot sem tengjast starfsemi Wikileaks. Það var tímabært að réttað væri í mál- um Assange og vonandi að til- raunum hans til þess að koma sér undan réttvísinni sé með handtökunni í gær loksins lok- ið. Assange handtekinn eftir sjö ára bið}Réttvísin á næsta leik Þ ingflokkur Flokks fólksins lagði í vikunni fram tvær þingsályktun- artillögur um mikilvæg málefni sem varða réttindi og hag eldri borgara. Í fyrra málinu skal Alþingi fela félagsmála- ráðherra að leggja fram lagafrumvarp til breytinga á lögum um málefni aldraðra. Þar verði afnumið svokallað vasapeningafyrir- komulag. Þannig mun lífeyrisþegi sem flytur á dvalar- eða hjúkrunarheimili halda óskertum lífeyris- og bótagreiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins. Flokkur fólksins telur það til grundvallarmannréttinda að aldr- aðir megi áfram njóta lögbundins fjárræðis og sjálfræðis síns. Þetta er mál sem Landssamband eldri borgara hefur beitt sér fyrir í mörg ár. Í dag er það svo að þegar ein- staklingur flytur inn á dvalar- eða hjúkrunarheimili fell- ur réttur viðkomandi til ellilífeyris niður. Viðkomandi getur átt rétt á ráðstöfunarfé, eða vasapeningum, sem á árinu 2019 er að hámarki 74.447 kr. Yrði þessu breytt og vasapeningafyrirkomulagið lagt niður þá væri greiðslu- þátttöku íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum breytt þannig að íbúar haldi lífeyrisgreiðslum sínum og greiði milliliðalaust fyrir húsaleigu, mat og annan kostnað sem fylgir heimilishaldi. Almennar reglur um þá heilbrigðis- þjónustu sem veitt er á heimilunum verði óbreyttar. Íbú- ar ættu rétt á húsnæðisbótum. Kostnaðarþátttaka ein- staklinga á dvalar- eða hjúkrunarheimilum yrði tekjutengd og félli niður hjá þeim sem hafi lágar tekjur. Tilraun sem svipaði til þessa fyrirkomulags þar sem ætlunin var að gefa öldruðum kost á að halda fjárhags- legu sjálfstæði var gerð á Dalvík 1989 til 1990. Þar var hluta Dalbæjar, heimilis aldr- aðra á Dalvík, breytt í verndaðar þjónustu- íbúðir. Árangurinn varð að þátttakendur í til- rauninni sýndu aukna virkni og félagslífið jókst. Einnig má benda á jákvæða reynslu frá Danmörku. Afnám vasapeningafyrirkomulagsins hefur verið á döfinni í mörg ár en lítið orðið úr verk- um. Flokkur fólksins telur mikilvægt að aldr- aðir haldi sjálfræði inni á stofnunum í eins ríkum mæli og kostur er svo að sem minnstar breytingar verði á högum fólks og háttum þegar það þarf á breyttu búsetuúrræði að halda. Hin þingsályktunartillagan snýr einnig að félagsmálaráðherra. Þar er lagt til að Alþingi álykti að fela honum að leggja fyrir árslok fram lagafrumvarp um embætti hagsmunafulltrúa aldraðra. Slíkum fullrúa væri ætlað að vekja athygli á réttinda- og hagsmunamálum aldraðra, leiðbeina þeim um réttindi sín og bregðast við telji hann að brotið sé á þeim. Honum bæri að hafa frumkvæðiseftirlit með persónulegum hög- um allra eldri borgara, sérstaklega til að koma í veg fyrir félagslega einangrun, næringarskort og almennt bágan aðbúnað þeirra. Einnig gera tillögur um úrbætur á rétt- arreglum er varða aldraða og hafa frumkvæði að stefnu- markandi umræðu í samfélaginu um málefni aldraðra. Ástand í öldrunarmálum sýnir að löngu er tímabært að hinn stóri og sístækkandi hópur aldraðra hér á landi fái sinn eigin hagsmunafulltrúa. Inga Sæland Pistill Þörf þingmál um hag aldraðra Höfundur er formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Mikill fjöldi launamanna ífélögum verslunarfólksog aðildarfélögumStarfsgreinasambands Íslands, eða á áttunda tug þúsunda félagsmanna, eiga þess kost að kjósa í rafrænni atkvæðagreiðslu um nýju Lífskjarasamningana við Samtök at- vinnulífsins, sem undirritaðir voru í seinustu viku. Atkvæðagreiðsla meðal félags- manna VR og í nokkrum félögum verslunarmanna á landsbyggðinni innan Landssambands ísl. verslunar- manna hófst í gærmorgun og mun henni ljúka klukkan tólf á hádegi 15. apríl. Atkvæðagreiðslur í öðrum stétt- arfélögum byrja kl. 13 í dag og standa yfir til klukkan fjögur síðdegis þriðju- daginn 23. apríl. Kynna á niðurstöður þeirra daginn eftir. Alls eru milli 34 og 35 þúsund fé- lagsmenn á kjörskrá í kosningum Starfsgreinasambandsfélaganna samkvæmt upplýsingum Flosa Eiríkssonar, framkvæmdastjóra SGS. Sambandið heldur utan um raf- ræna atkvæðagreislu hjá 18 af 19 að- ildarfélögum en kjarasamningurinn verður afgreiddur í atkvæðagreiðslu á heimasíðu AFLs á Austurlandi á lokuðum síðum félagsmanna. Talning atkvæða fer fram sér- staklega fyrir hvert félag um sig þeg- ar þar að kemur. Þannig má segja að um sé að ræða 19 aðskildar atkvæða- greiðslur í SGS að þessu sinni þar sem meirihluti þátttakenda ræður því í hverju félagi hvort samningarnir verða samþykktir eða þeir felldir. Áður fyrr var algengt að nýgerð- ir kjarasamningar væru bornir upp á félagsfundum til samþykkis eða synj- unar eða greidd voru atkvæði í póst- atkvæðagreiðslu félagsmanna. Nú hafa leynilegar rafrænar kosningar víðast hvar tekið yfir í verkalýðs- hreyfingunni og gilda þá sömu reglur um þátttöku og þegar um póstkosn- ingu er að ræða, þ.e.a.s. niðurstaða kosninganna gildir óháð því hver þátttakan verður. Meirihluti þeirra sem kjósa í hverju félagi ræður úrslit- um af eða á. Ekki fá allir félagsmenn þessara verkalýðsfélaga að kjósa um samn- inginn þar sem hann nær ekki til þeirra félagsmanna sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum, sem eiga enn ósamið. Ómögulegt er að spá fyrir um hver þátttakan verður í atkvæða- greiðslunum en þegar kosið var um seinustu kjarasamninga SGS í júní árið 2015 var kjörsóknin rúmlega 25% í þeim 15 aðildarfélögum Starfs- greinasambandsins sem SGS fór þá með umboð fyrir. 79,95% samþykktu samningana en 18,43% vildu fella þá. Voru niðurstöðurnar afgerandi í öll- um aðildarfélögunum. Flóafélögin svokölluðu, Efling, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, sömdu sér og þar voru samningarnir á árinu 2015 samþykktir með 78,9% atkvæða. Um 35 þúsund manns eru núna á kjörskrá í VR, stærsta stéttarfélagi landsins, og lýkur atkvæðagreiðslu þeirra eins og fyrr segir í hádeginu næstkomandi mánudag. Þegar seinast var kosið um kjarasamning VR og Samtaka at- vinnulífsins í júní árið 2015 var hann samþykktur með miklum meirihluta atkvæða eða 73,9%. Kosningaþátt- taka verslunarmanna í VR var þá að- eins 18,71% sem var þó á þeim tíma meiri þátttaka í atkvæðagreiðslum um kjarasamninga en verið hafði á umliðnum áratug. Hæst hafði hún orðið 15,5% árið 2011 en þátttakan var undir tíu prósentum þegar kosið var um samninga árið 2004 svo dæmi séu tekin. Úrslitin ráðast í hverju félagi um sig Morgunblaðið/Hari Lífskjarasamningurinn Fjöldi samningamanna undirritaði nýju kjarasamn- ingana á ellefta tímanum að kvöldi 3. apríl í húsnæði Ríkissáttasemjara. Verði kjarasamningarnir sam- þykktir í yfirstandandi at- kvæðagreiðslum gilda þeir frá 1. apríl til 1. nóvember 2022. Í þeim eru þó uppsagnarákvæði og heimilt er að segja upp samningum ef forsendur bresta á samningstímabilinu. For- sendur kjarasamninganna eru þríþættar: Að kaupmáttur launa aukist á samningstímanum skv. markmiðum um að hækka lægstu laun, að vextir lækki og að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar sem gefin var út í tengslum við samningana verði efnd að fullu. Sérstök launa- og forsendu- nefnd viðsemjenda metur það tvisvar á samningstímanum í september á næsta ári og í september 2021 hvort forsend- urnar hafa staðist. Ef einhver af þessum forsendum stenst ekki eiga viðsemjendur að leita sam- komulags um viðbrögð. Náist það ekki getur hvor um sig sagt samningum upp. Gætu sagt upp tvisvar META FORSENDURNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.