Morgunblaðið - 12.04.2019, Síða 21
hringdi. Þegar hún fann hann
loksins í næsta herbergi, eða þá
úti á svölum, þar sem hún var að
stelast til að fá sér smók, þá var
hann búinn að hringja út.
Við báðar afskaplega utan við
okkur, ég er sem sagt nákvæm-
lega eins.
Svo var bakað hver jól með
mínum börnum og hennar, loft-
kökur í kílóatali og var alltaf mik-
ill spenningur að baka og koma
saman.
Sigrún var afar listræn svo
ekki sé meira sagt, algjör snill-
ingur eiginlega, og ennfremur í
saumaskap, saumaði bæði á sig
og krakkana, þar sem var virki-
lega vandað til verka. Allt gerði
hún af alúð.
Ég varð fyrir mikilli sorg þeg-
ar hún greindist með alzheimer
árið 2016, vildi alls ekki trúa
þessu og vonaði alltaf að hún
myndi lagast, en það náttúrlega
gerðist ekki. Hún hvarf inn í heim
Alzheimer-sjúkdómsins.
Ég fór á aðstandendafund með
Bessa og Svövu systur hjá Alz-
heimer-samtökunum og lærði
betur hvernig ég ætti að umgang-
ast hana.
Hún var mjög áhugasöm um
börnin mín, alltaf að spyrja um
þau og hvernig þau hefðu það.
Þau tala mikið um að þetta hafi
verið uppáhaldsfrænkan þeirra,
og hvað hún hefði verið mikill og
sterkur karakter.
Sigrún var alltaf svo glöð þeg-
ar ég heimsótti hana í Sóltún, hún
ljómaði, þó hún síðasta árið gæti
ekki tjáð sig mikið, en henni
fannst svo gaman að hlusta á okk-
ur systkinin, vinkonur sínar og
Bessa að spjalla saman og tók
stundum undir, því að þessi systir
mín hafði sína skoðun á málunum,
það verður ekki tekið af henni.
Þegar hún heimsótti mig síð-
ustu árin hafði hún alltaf skoðun á
fallegum hlutum sem ég hafði
verið að kaupa. Og gaf til kynna
að þarna hefði ég verið að kaupa
flottan hlut, en stundum færði
hún til hjá mér, fannst ég greini-
lega ekki nógu góð að raða upp
hlutum.
Já, hún var svo sannarlega eðal
í mínum augum, og ég sakna
hennar mjög mikið og hugsa til
hennar alla daga, en tíminn
læknar öll sár. Einn daginn á ég
eftir að hitta hana og tekur hún
pottþétt vel á móti mér.
Áslaug Ágústsdóttir.
Eini einkaritari minn á lífsleið-
inni, Sigrún Ágústsdóttir, hefur
kvatt í kyrrþey eftir erfiðan síð-
asta kafla á langri ævi. Við kynnt-
umst haustið 1978 fáum vikum
eftir að ég lenti að heita má fyr-
irvaralaust inn í ráðherrastarf og
tók þar við iðnaðar- og orkumál-
um. Sérstakt ráðuneyti iðnaðar-
mála varð fyrst til árið 1970 og
höfðu tveir ráðherrar, Magnús
Kjartansson og Gunnar Thorodd-
sen, sinnt málaflokknum ásamt
félagsmálaráðuneyti og höfðu
skrifstofu í því síðarnefnda. Það
var því byrjað á að umbylta húsa-
kynnum á 3. hæðinni í Arnarhvoli
til að koma þar fyrir ráðherra iðn-
aðarmála ásamt með ritara. Við
Sigrún settumst þar að störfum
við góðar aðstæður síðla septem-
bermánaðar, hún með skrifstofu
til hliðar við biðstofu og tók þar á
móti gestum og gangandi.
Hún hafði áður starfað um ára-
bil á lögfræðiskrifstofu Ragnars
Ólafssonar, en eiginmanninn
Bessa jarðfræðing hafði ég hitt
austanlands nokkrum árum fyrr,
þar sem hann var með þeim
fyrstu til að lesa í aðstæður í
grennd Kárahnjúka. Með Sig-
rúnu hófst eftirminnilegt sam-
starf sem aldrei bar skugga á og
stóð með stuttu hléi í hartnær 5
ár. Hún bar með sér einstaklega
trausta og ljúfa lund með glað-
væra framgöngu og lipurð sem
aldrei brást í flóknum samskipt-
um út á við.
Sem ritari tók hún við símtöl-
um, flokkaði pappíra og ritaði og
bætti ræðudrög ráðherrans,
mörg hver samin á elleftu stundu.
Innan ráðuneytis varð hún
hvers manns hugljúfi. Eftir rík-
isstjórnarskipti vorið 1983 gegndi
hún áfram ritarastarfi fyrir
Sverri Hermannson og fylgdi
honum að mig minnir yfir í
menntamálaráðuneytið tveim ár-
um síðar.
Við Sigrún hittumst örsjaldan
eftir þetta, jólakort gengu á milli
og einu sinni fyrir um áratug litu
þau Bessi til okkar Kristínar hér
við Skúlagötu og við rifjuðum upp
gamlar minningar. Ég var grun-
laus um þann sjúkdóm sem þá
beið þessa trausta og elskulega
einstaklings sem nú hefur kvatt
okkur.
Sigrún var frábær fulltrúi fyrir
þann fjölda starfsmanna, oftast
kvenna, sem eru burðarásar í
gangverki samfélags okkar, jafnt
hjá opinberum aðilum og einka-
fyrirtækjum. Við Kristín sendum
Bessa og öllum í fjölskyldu þeirra
samúðarkveðjur.
Hjörleifur
Guttormsson.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019 21
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba Gold 60+ kl. 10.30.
PÁSKABINGÓ kl. 13.30, páskaegg af öllum stærðum og gerðum í
vinning. Spjaldið kostar 350 krónur. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-
16. Botsía með Reginu kl. 10-11. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur
við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl.
11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 Fjölskyldujóga kl. 10.15-11.30. Opin handverksstofa
kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Heimsókn frá Háteigsskóla kl. 10.30.
Leikfimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Furugerði 1 Íslenskumorgnar kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur kl.
11.30-12.30, ganga kl. 13, kaffisala kl. 14.30-15.30. Föstudagsfjör: Alltaf
mismunandi.
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Páskabingó, ekki Félagsvist FEBG, í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá
Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30, og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til
baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13-
16. Allir velkomnir.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa
með leiðbeinanda kl. 90-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps
kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbein-
anda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist FEBK.
Gullsmári Handavinna kl. 9, leikfimi kl. 10, ljósmyndarklúbbur kl. 13,
bingó kl. 13.
Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika alla virka daga. Kl. 11.30 línu-
dans. Kl. 13 brids, kl. 13 botsía. Kl. 10.45 leikfimi Hjallabraut. Kl. 11.30
leikfimi Bjarkarhúsi.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13 og páskabingó
kl. 13.15, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, sundleikfimi kl. 9 í
Grafarvogssundlaug, bridshópur Korpúlfa kl. 12.30 í dag og hann-
yrðahópur Korpúlfa kl. 12.30, allt í Borgum. Tréútskurður kl. 13 í dag á
Korpúlfsstöðum.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45-10, lesið upp úr blöðum kl.
10.15, trésmiðja kl. 9-12, opin listasmiðja kl. 9-12/13-16, upplestur kl.
11, gönguhópur kl. 14, bókasafnshópur kl. 15.30.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln-
um á Skólabraut kl 11 og söngur kl. 13. Spilað í króknum kl. 13.30 og
brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Ath. nk. mánudag 15. apríl verður
páskaeggjabingó í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 19.30. Fjöldi páska-
eggja í vinning. Stund fyrir alla aldurshópa.
Stangarhylur 4 Dansleikur fellur niður sunnudag 14. apríl, dansað
verður mánudag 15. apríl kl. 20. Hljómsveit húsins leikur fyrir dansi,
allir velkomnir.
Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni kl. 13-14.
Kaffi á könnunni kl. 14-14.30. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Nudd
Nudd Nudd Nudd
Whole body massage
S. 7660348, Alena
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Atvinnublað
Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, á mbl.is og finna.is
✝ Ruth Ragnars-dóttir fæddist í
Reykjavík 28.
nóvember 1936.
Hún andaðist á
Hrafnistu í
Hafnarfirði 2. apríl
2019.
Foreldrar henn-
ar voru Ragnar H.
B. Kristinsson,
kaupsýslumaður
og iðnrekandi, f.
17. febrúar 1906 í Reykjavík, d.
16. mars 1963, og Rut Frið-
finnsdóttir húsfreyja, f. 6. febr-
úar 1909 á Borgum í Vopna-
firði, d. 18. janúar 1937.
Systkini Ruthar eru 1) Þur-
íður Kristín Ragnarsdóttir, f.
10. maí 1934, d. 8. júlí 2011,
sambýlismaður Guðbjörn Snæ-
björnsson. Systkini samfeðra
eru: 2) Ragna Lára Ragnars-
dóttir, f. 16. október 1942, maki
Brynjólfur Björnsson, 3) Krist-
inn Ragnarsson, f. 12. septem-
ber 1944, maki Hulda Ólafs-
dóttir. Fósturbróðir: 4) Jón E.
Ragnarsson, f. 24. desember
1936, d. 10. júní 1983, var
kvæntur Sigríði Ingvarsdóttur.
Síðari kona Ragnars var
Matthildur Edwaldína Jóns-
dóttir blaðamaður, f. 16. mars
1909, d. 22. ágúst 1975, sem
ættleiddi Þuríði og Ruth.
Ruth ólst upp á Frakkastíg
12 í Reykjavík og gekk í
Grænuborgarskóla og Lindar-
götuskóla. Hún var með meist-
arapróf í hárgreiðslu frá Iðn-
skólanum í
Reykjavík.
Ruth kynntist
eiginmanni sínum á
„Det Kgl. Nytorv“ í
Kaupmannahöfn í
Danmörku árið
1957 þegar hún var
á ferðalagi með
vinkonum sínum
frá Íslandi. Sigur-
þór stundaði þá
nám í verkfræði í
Kaupmannahöfn.
Ruth giftist Sigurþóri
Tómassyni frá Reykjavík, f. 29.
ágúst 1935, d. 19. janúar 2018,
þann 28. febrúar 1959 í Kaup-
mannahöfn. Börn þeirra eru: 1)
Ragnhildur Lára, f. 16. júlí
1959, maki Carsten Conradt-
Eberlin, f. 20. mars 1959. Börn
þeirra eru: Christina, f. 18.
ágúst 1991, Simon Alexei, f. 22.
apríl 1993, og Benjamin, f. 4.
apríl 1998. 2) Tómas, f. 16.
október 1962. Börn hans eru:
Anna, f. 2. mars 1994, Magnus,
f. 7. október 1996, og Sigurd, f.
1. september 1999. 3) Kristinn,
f. 19. september 1972, maki
Guðrún Kristjánsdóttir, f. 18.
mars 1968. Börn þeirra eru:
Sjöfn, f. 23. júní 1994, Sig-
urþór, f. 8. janúar 2003, og
Signý Lára, f. 24. mars 2005.
Ruth átti von á tveimur
barnabarnabörnum á þessu ári.
Útför Ruthar fer fram frá
Vídalínskirkju í Garðabæ í dag,
12. apríl 2019, og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Hún stóra systir mín, Systa
eins og hún var ávallt kölluð, lést
á Hrafnistu hinn 2. apríl sl. Fyrir
hartnær fjórum árum greindist
hún með heilabilun ári eftir að
eiginmaður hennar, Sigurþór
Tómasson verkfræðingur, hafði
greinst með alzheimer. Hann
hafði fengið pláss á Landakots-
spítala og lá þá beinast við að hún
fengi að vera við hlið síns maka.
Örlögin gripu inn í og pláss losn-
aði þar sem hún fylgdi á eftir. Ári
síðar fengu þau bæði tvö pláss á
Hrafnistu í Hafnarfirði. Í janúar
á síðasta ári lést Sigurþór.
Hugurinn reikar til berns-
kuára á heimili fjölskyldunnar á
Frakkastíg 12. Ættfaðirinn,
Kristinn Jónsson vagnasmiður,
hafði reist þriggja hæða timbur-
hús við hliðina á verkstæði sínu á
Grettisgötu 21. Ragnar Kristins-
son, faðir okkar, og Matthildur
Edwald Jónsdóttir gengu í hjóna-
band og hófu búskap. Ragnar átti
fyrir tvær dætur, þær Systu og
Þurí af fyrra hjónabandi með Rut
Friðleifsdóttur, sem hafði látist
af veikindum. Matthildur kom
með soninn Jón Edwald sem hún
átti með Agnari Norðfjörð inn í
fjölskylduna. Saman eignuðust
þau Rögnu Láru og Kristin. Ald-
ursmunur á okkur systkinum var
6-8 ár. Heimilið á Frakkastíg 12
er í mínum huga minning um
nokkurs konar brautarstöð þar
sem í húsinu bjuggu okkar fjöl-
skylda og afi auk starfsmanna
sem unnu á verkstæðinu. Gesta-
komur voru tíðar og samanstóð
hópurinn af ættingjum, vinum og
viðskiptavinum.
Þegar Systa hafði lokið gagn-
fræðaprófi lá leið hennar í Iðn-
skólann þar sem hún útskrifaðist
sem hárgreiðslumeistari. Að
námi loknu hóf hún starf hjá hár-
greiðslustofunni Lótus. Örlögin
gripu inn í lífshlaup hennar þegar
hún fór í skemmtiferð til Kaup-
mannahafnar. Þar kynntist hún
ungum verkfræðinema. Þau
kynni enduðu í hjónabandi þar
sem hún fluttist utan og hófu þau
búskap saman.
Þau eignuðust tvö myndarleg
börn, þau Ragnhildi Láru og
Tómas. Að námi loknu fluttu þau
til Íslands þar sem Sigurþór hóf
störf hjá Almennu verkfræðistof-
unni. 1969 verða kaflaskil þar
sem Sigurþór fékk vinnu á verk-
fræðistofunni Carl Bro í Kaup-
mannahöfn og fluttu þau þangað
og kaupa húsið í Hasselhaven. Á
þessum tíma fæðist yngsti son-
urinn Kristinn. Á árinu 1977
verða aftur kaflaskil þar sem Sig-
urþóri var veitt yfirmannsstaða í
útibúi stofunnar í Kenía og síðar í
Tansaníu í Afríku. Í kringum
1995 fór Sigurþór á eftirlaun. Þau
festu kaup á íbúð í Efstaleiti og
sumarhúsi á Sjálandi og ferðuð-
ust á milli með búsetu á þriggja
mánaða fresti.
Á Hasselhaven-tímanum vor-
um við hjónin búsett í Braunsch-
weig í Þýskalandi. Þá jukust okk-
ar samverustundir þar sem við
dvöldum hjá þeim um jólin og þau
heimsóttu okkur um páska og á
sumartíma. Meðal okkar ríkti í
öllu mikill kærleikur í hvívetna.
Það var því miður dapurlegt að
verða vitni að því hvernig táp-
miklir og sterkir einstaklingar
nánast tærast upp.
Elsku Systa, nú ert þú komin
aftur til hans Tóta þíns í Hótel
Himnaríki. Elsku Ragga, Tommi,
Kiddi og fjölskyldur, við vottum
ykkur okkar samúð og á sama
tíma gleðjumst við yfir að nú er
þessari píslargöngu lokið. Góður
guð fylgi ykkur sem og hann
ávallt gerir.
Kristinn Ragnarsson.
Ruth Ragnarsdóttir
var eins og hún hefði alltaf tíma til
alls. Tíma til að aðstoða alla.
Spádómsbollarnir hennar voru
okkur sífelld skemmtun. Margt er
ótalið, vinna hennar fyrir Leik-
félagið Grímni og leikfélög á höf-
uðborgarsvæðinu. Við sitjum
hnípnar eftir, aðeins þrjár, þær
hafa kvatt okkur svo allt of fljótt
vinkonur okkar. En Bára var orð-
in afar veik, okkur lánaðist að
heimsækja hana í vetur, sín í
hvoru lagi og vissum að hennar
tímaglas var að tæmast. Elsku
Einar okkar, Arndís, Bjarni,
Björn Anton, Heimir Skúli og
Anna Margrét, við sendum kær-
leiks- og samúðarkveðjur til ykkar
og fjölskyldunnar. Þrátt fyrir erf-
iðleika ýmsa, veikindi og basl, var
lífið hennar í lit og þið voruð það
besta sem hún átti.
Dagbjört S. Höskuldsdóttir,
Guðrún Anna Gunnarsdóttir,
Guðrún Marta Ársælsdóttir.
Við vinkonurnar kynntumst
Báru þegar við stunduðum nám
með Önnu Margréti, yngstu dótt-
ur hennar, í Flensborg. Við vorum
alltaf velkomnar á heimili Báru
sem gaf okkur rými til að vera við
sjálfar, fíflast og gera mistök en
var alltaf til staðar þegar við
þurftum á að halda.
Bára var einstaklega þolinmóð
og hlý sem er mikill kostur í um-
gengni við unglingsstúlkur. Það
var því alltaf gott að leita til henn-
ar sama hvort það var til að tala
um daginn og veginn eða hjartans
mál. Hún átti alltaf ráð eða hlust-
aði ef við þurftum á því að halda.
Bára var mikill mannþekkjari og
fann fljótt á sér hvort það væri
eitthvað varið í strákana sem við
kynntum hana fyrir og það var
ekki hægt að halda neinu leyndu
fyrir henni, var jafnvel búin að sjá
fyrir þunganir áður en maður átt-
aði sig á því sjálfur.
Bára var alltaf hress og bros-
andi, tilbúin að hjálpa öðrum. Sem
dæmi um hjálpsemi Báru þótti
henni það ekkert tiltökumál að
taka tvær af okkur upp á sína
arma og bjóða fram heimili sitt.
Einnig var hún afar handlagin
sama hvort það var að baka
heimsins bestu vatnsdeigsbollu-
kransa, prjóna peysu á Önnu eftir
mynd í bók eða elda gómsætan
lambahrygg með sósu.
Við erum ótrúlega þakklátar
fyrir að hafa kynnst Báru og
hennar hjartagæsku og hugsum
til hennar með hlýhug. Fjölskyldu
hennar sendum við okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
og ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Bryndís, Guðrún, Rósa
og Sigrún María.
Morgunblaðið birtir minningargreinar
endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar