Morgunblaðið - 12.04.2019, Síða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
DVERGARNIR R
Frábær hönnun, styrkur
og léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoðið nýjuheimasíðuna
islandshus.is
Í klípu
„JÁ, ÉG ER SEINN. ÉG Á ÞRJÁR ELDRI
SYSTUR OG BARA EITT BAÐHERBERGI –
FÁÐU ÞAÐ DÆMI TIL AÐ GANGA UPP.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ VARST AÐ HLUSTA! SAGÐI ÉG EKKI
ÖRUGGLEGA BRAUÐTENINGA?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar partíið fer að
verða spennandi.
VARIST
KÖTTINN
VARIST
KÖTTINN
ALLA VEGA ÞANGAÐ TIL ÉG
HEF FENGIÐ KAFFI
ÉG VEÐJA Á
ÍVAR!
HA! HVENÆR VANN
HANN SÍÐAST
BURTREIÐAR?
ÞEGAR HANN FÉKK SÉR EINHYRNING!
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Allt á hreinu. S-NS
Norður
♠ÁD764
♥9
♦98653
♣Á9
Vestur Austur
♠G10932 ♠K
♥862 ♥G543
♦7 ♦ÁKDG104
♣G1065 ♣KD
Suður
♠85
♥ÁKD107
♦2
♣87432
Suður spilar 2♦.
Norður var með allt á hreinu og
barði snöggt í borðið því til staðfest-
ingar. Eftir pass í suður og vestur
opnaði hann létt á 1♠ og austur dobl-
aði. Suður sagði 2♦ og þá byrjuðu
barsmíðarnar. Þetta var í fyrstu um-
ferð Íslandsmótsins.
Andstæðingarnir litu báðir upp með
spurn í augum: „Yfirfærsla,“ svaraði
norður. „Hann á hjarta.“ Svo tók við
löng bið. Vestur var reyndar fljótur að
passa, en norður fór yfir allar hliðar
málsins, lið fyrir lið:
(1) Suður á minna en 12 punkta
þannig að geim er langsótt. (2) Það
hefur forgang að taka undir opnunar-
litinn með veikt svar og því harla ólík-
legt að suður lumi á spaðastuðningi.
(3) Og varla á suður sexlit í hjarta úr
því hann opnaði ekki á veikum tveim-
ur.
Að öllu samanlögðu reiknaði norður
út að bútur í tígli væri góður kostur
og sagði PASS.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem haldið var í Luneburg í Þýska-
landi í júlí 2013. Danski alþjóðlegi
meistarinn Jens Ove Fries-Nielsen
(2381) hafði hvítt gegn Indverjanum
Banerjee Bitan (2295). 34. Hg6+!!
og svartur gafst upp enda mát eftir
34...Hxg6 35. Rh5# eða verður liði
undir eftir 34...Kf7 35. Hxh6. GAMMA
Reykjavíkurskákmótið stendur yfir
þessa dagana í Hörpu en í dag er frí-
dagur þar sem kl. 13:00 hefst Evr-
ópumeistaramót í Fischer-Random
skák. Þegar þremur umferðum af níu
var lokið á aðalmótinu hafði fram-
ganga ýmissa íslenskra skákmanna
vakið athygli, m.a. bar Sigurbjörn
Björnsson (2312) sigurorð af stór-
meistaranum Nikola Djukic (2566) frá
Norður-Makedóníu ásamt því að gera
jafntefli við brasilíska stórmeistarann
Alexandr Fier (2570). Í báðum þess-
um skákum var taflmennska Sigur-
björns einkar lífleg.
Hvítur á leik
María Karen er í kirkjukór Lága-
fellssóknar, stundar almenna hreyf-
ingu svo sem sund og útivist, og
hefur áhuga á garðrækt.
Fjölskylda
Eiginmaður Maríu Karenar er
Jón Kalman Stefánsson, f. 17. des-
ember 1963, rithöfundur. Foreldrar
hans voru hjónin Stefán Frímann
Jónsson, f. 5. apríl 1938, d. 27. maí
2011, múrari í Reykjavík, og Berg-
ljót Kristín Þráinsdóttir, f. 28. nóv-
ember 1938, d. 19. október 1969,
húsfreyja í Reykjavík.
Börn Maríu Karenar og Jóns eru
1) Bekan Sigurður Kalmansson, f.
14. nóvember 1998, bús. í Mosfells-
bæ, og 2) Védís Kalmansdóttir, f. 16.
júní 2003, bús. í Mosfellsbæ.
Systkini Maríu Karenar eru Elfur
Sif Sigurðardóttir, f. 12. nóvember
1965, fjármálastjóri, bús. í Reykja-
vík; Ernir Freyr Sigurðsson, f. 11.
mars 1973, vélvirki, bús. á Akranesi;
Irma Dögg Sigurðardóttir, f. 5. jan-
úar 1981, ritari, bús. á Akranesi.
Foreldrar Maríu Karenar eru
hjónin Sigurður Vésteinsson, f. 28.
apríl 1944, húsasmiður, og Hafdís
Karvelsdóttir, f. 6. febrúar 1946,
sjúkraliði. Þau eru bús. á Akranesi.
María Karen
Sigurðardóttir
Hafdís Karvelsdóttir
sjúkraliði á Akranesi
Karvel Lindberg Olgeirsson
vélstjóri á Ísafirði og Akranesi
María Guðmundsdóttir
húsfreyja í Keflavík á Hellissandi
Olgeir Oliversson
bóndi í Keflavík á Hellissandi
Guðmundur Vésteinsson fyrrv.
bæjarfulltrúi á Akranesi
Karvel Lindberg Karvelsson
pípulagningameistari á Akranesi
Auður Vésteinsdóttir
veflistakona í Hafnarfirði
Guðrún Halldórsdóttir
húsfreyja á Lækjarmótum á Ísafirði, Guðrún og Guðmundur Ingi
Kristjánsson, skáld frá Kirkjubóli í Bjarnadal, Önundarfirði, voru systkinabörn
Veturliði Guðbjartsson
verkstjóri á Lækjarmótum á Ísafirði
Halldóra Sigurlína Guðrún Veturliðadóttir
verslunarmaður og fiskvinnslukona á Ísafirði og Akranesi
ngibjörg Veturliðadóttir
húsfreyja í Reykjavík
IRagna Róbertsdóttir
listamaður í Reykjavík
Ásdís Bjarnadóttir húsfreyja á Kirkjubóli
Bjarni Guðmundsson
fræðimaður á Hvanneyri
Margrét Sigríður Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jón Gíslason
sjómaður í Reykjavík og á Eyrarbakka,
móðir Jóns og Brynjúlfur Jónsson frá
Minna-Núpi voru systkinabörn
Rósa María Þóra Guðmundsdóttir
fædd Jónsdóttir, húsfreyja á Akranesi
Vésteinn Bjarnason
verslunarmaður og bæjargjaldkeri á Akranesi
Guðmunda María Guðmundsdóttir
húsfreyja á Kirkjubóli í Dýrafirði
Elínborg
Guðmundsdóttir
úsfreyja á Arnarnúpi
í Keldudal í Dýrafirði
h
Jóhanna
Guðjónsdóttir
úsfreyja í Árholti
í Haukadal í
Dýrafirði, síðast á
Seltjarnarnesi
h
Jón Snorri
Þorleifsson
kvstj. Sambands
byggingamanna
og borgarfulltrúi
fr
Ragnheiður
Jónsdóttir
sóknarprestur
í Mosfellsbæ
Bjarni Magnús Guðmundsson
bóndi á Kirkjubóli í Dýrafirði
Úr frændgarði Maríu Karenar Sigurðardóttur
Sigurður Vésteinsson
húsasmiður á Akranesi