Morgunblaðið - 12.04.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 12.04.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019 Origo-höll, undanúrslit kvenna, þriðji leikur, fimmtudag 11. apríl 2019. Gangur leiksins: 2:2, 4:3, 6:5, 8:6, 10:8, 12:10, 15:12, 16:16, 17:19, 21:19, 24:20, 25:22. Mörk Vals: Lovísa Thompson 6, Sandra Erlingsdóttir 5/4, Anna Úr- súla Guðmundsdóttir 5, Íris Ásta Pétursdóttir 4, Alina Molkova 4, Díana Dögg Magnúsdóttir 1. Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 13, Chantal Pagel 1/1. Valur – Haukar 25:22 Utan vallar: 2 mínútur Mörk Hauka: Berta Rut Harðardóttir 6/5, Ramune Pekerskyte 4, Karen Helga Díönudóttir 3, Vilborg Péturs- dóttir 3/1, Ragnheiður Sveinsdóttir 3, Maria Ines Pereira 2, Hekla Rún Ámundadóttir 1. Varin skot: Saga Sif Gísladóttir 3, Ástríður Glódís Gísladóttir 3. Utan vallar: 2 mínútur Áhorfendur: 156.  Valur sigraði 3:0 samanlagt. Olís-deild kvenna Undanúrslit, þriðji leikur: Fram – ÍBV........................................... 34:29  Fram sigraði 3:0. Valur – Haukar..................................... 25:22  Valur sigraði 3:0. Undankeppni EM karla 2020 2. riðill: Serbía – Króatía ................................... 25:25  Króatía 5, Sviss 4, Serbía 2, Belgía 1. 4. riðill: Holland – Slóvenía .............................. 26:27  Erlingur Richardsson þjálfar Holland. Eistland – Lettland .............................. 18:24  Slóvenía 6, Lettland 4, Holland 2, Eist- land 0. 5. riðill: Finnland – Bosnía ................................ 26:30  Tékkland 4, Hvíta-Rússland 4, Bosnía 4, Finnland 0. 6. riðill: Rúmenía – Litháen............................... 28:23 Portúgal – Frakkland .......................... 33:27  Portúgal 6, Frakkland 4, Rúmenía 2, Litháen 0. 7. riðill: Rússland – Ungverjaland.................... 19:25  Ungverjaland 6, Rússland 4, Ítalía 2, Sló- vakía 0. Evrópubikar EHF Noregur – Svíþjóð ................................ 35:26  Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð. Austurríki – Spánn............................... 29:28  Spánn 4, Noregur 4, Svíþjóð 2, Austur- ríki 2. HANDBOLTI Framhús, undanúrslit kvenna, þriðji leikur, fimmtudag 11. apríl 2019. Gangur leiksins: 5:0, 8:1, 10:3, 14:5, 17:8, 19:11, 23:13, 25:16, 27:20, 31:22, 32:25, 34:29. Mörk Fram: Karen Knútsdóttir 10, Unnur Ómarsdóttir 5, Þórey Rósa Stefánsdóttir 5, Hildur Þorgeirs- dóttir 4, Ragnheiður Júlíusdóttir 4/2, Steinunn Björnsdóttir 3, Berg- lind Benediktsdóttir 2, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 1. Varin skot: Erla Rós Sigmarsdóttir 9/1, Sara Sif Helgadóttir 1. Fram – ÍBV 34:29 Utan vallar: 8 mínútur Mörk ÍBV: Arna Sif Pálsdóttir 9/3, Greta Kavaliauskaite 6, Sunna Jónsdóttir 5, Ásta Björt Júlíusdóttir 5/4, Ester Óskarsdóttir 2, Bríet Ómarsdóttir 1, Karolína Lárudóttir 1. Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 9, Tanya Rós Jósefsdóttir 2. Utan vallar: 4 mínútur Dómarar: Ramunas Mikalonis og Þorleifur Árni Björnsson Áhorfendur: 268.  Fram sigraði 3:0. KÖRFUKNATTLEIKUR Undanúrslit karla, þriðji leikur: MG-höllin: Stjarnan – ÍR (1:1) ............ 19.15 Umspil karla, þriðji úrslitaleikur: Dalhús: Fjölnir – Hamar (1:1)............. 19.15 HANDKNATTLEIKUR Umspil kvenna, undanúrslit, 2. leikur: Fylkishöll: Fylkir – ÍR (1:0) ................ 19.30 Kaplakriki: FH – HK (0:1)................... 19.30 BLAK Annar úrslitaleikur karla: KA-heimilið: KA – HK (1:0) ..................... 20 KNATTSPYRNA Bikarkeppni KSÍ, Mjólkurbikarinn: Fjölnisvöllur: Vængir J. – Kóngarnir...... 19 Hertz-völlur: Fenrir – Ægir..................... 19 Leiknisvöllur: KB – Snæfell ..................... 19 Úlfarsárdalur: Úlfarnir – Vatnaliljur ...... 19 Samsung-völlur: KFG – Reynir S............ 19 Víkingsvöllur: Mídas – Ísbjörninn........... 20 Ásvellir: ÍH – Björninn ............................. 20 Vivaldi-völlur: Kría – KÁ.......................... 20 Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn: Egilshöll: HK/Víkingur – FH................... 19 Würth-völlur: Fylkir – Keflavík.......... 19.15 Í KVÖLD! Margir af snjöllustu kylfingum heims fóru vel af stað á fyrsta degi Masters-mótsins í golfi í Georgíuríki í Bandaríkjunum í gær. Mótið er fyrsta risamót ársins hjá körlunum og er ávallt haldið á hinum glæsilega Augusta National-velli. Brooks Koepka sem unnið hefur tvö af síðustu þremur risamótum lék fantavel í gær og var á sex höggum undir pari þegar blaðið fór í prent- un. Átti hann þá aðeins eina holu eft- ir. Koepka missti af Masters fyrir ári vegna meiðsla. Landi hans frá Bandaríkjunum, Bryson DeChambeau, lauk leik á sex undir pari og fékk fugla á síðustu fjórum holunum á fyrsta hringnum. Englendingurinn Ian Poulter lék á fjórum undir pari. Bandaríkjamenn- irnir Dustin Johnson og Phil Mickel- son voru á sama skori en áttu holu eftir. Sá eini þessara sem unnið hefur Masters er Mickelson en hann hefur gert það þrívegis. Fyrrverandi sigurvegari Adam Scott frá Ástralíu lék vel og var á þremur undir. Tiger Woods, sem fjór- um sinnum hefur sigrað á Masters, er í fínum málum á tveimur undir pari. DeChambeau efstur AFP -6 Bryson DeChambeau skoðar púttlínuna á 13. flötinni í gær. SAFAMÝRI/HLÍÐARENDI Kristján Jónsson Bjarni Helgason Íslandsmeistarar kvenna síðustu tveggja ára í handknattleik í Fram fara inn í úrslitarimmuna um Ís- landsmeistaratitilinn á góðri sigl- ingu eftir 3:0 sigur á ÍBV í undan- úrslitum. Fram vann þriðja leikinn örugglega í Safamýri í gær 34:29. Framkonur höfðu fullkomna stjórn á leiknum eftir magnaða byrjun þar sem liðið komst í 7:0 og 10:1. Staðan varð því fljótt vonlítil fyrir ÍBV og þótt leikmenn liðsins spiluðu ágætlega í síðari hálfleik varð aldrei nein spenna í leiknum að ráði. Nítján sinnum lauk sóknum ÍBV án þess að liðið kæmi skoti á markið og það er fullmikið, svo ekki sé talað um gegn ríkjandi meisturum á útivelli í úrslitakeppn- inni. Stefán Arnarson, þjálfari Fram, lét sínar konur koma lengra út á móti andstæðingunum í vörninni en oft áður og virkaði það fullkomlega á upphafsmínútunum. Þá náði Fram boltanum ítrekað og hraða- upphlaupin gengu vel hjá Fram- konum. Unnur Ómarsdóttir, Karen Knútsdóttir og Þórey Rósa Stef- ánsdóttir gerðu sér mat úr þeim en samtals skoruðu þessar þrjár tutt- ugu mörk í leiknum. Valur á helling inni Valur leikur til úrslita um Ís- landsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna eftir 25:22-sigur gegn Hauk- um í þriðja leik liðanna á Hlíð- arenda í gær en Valur vann einvígið sannfærandi, samanlagt 3:0. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik til að byrja með en þegar líða tók á hálfleikinn sigldi Valsliðið hægt og rólega fram úr og leiddi með tveimur mörkum í hálf- leik, 12:10. Hafnfirðingar mættu mjög öflugir til leiks í seinni hálfleik og tókst að komast yfir, 18:16, þeg- ar fimmtán mínútur voru til leiks- loka. Þá spýtti Valsliðið vel í lófana og tókst að knýja fram öruggan sig- ur, 25:22. Valsliðið hefur oft spilað betur en í gær en þrátt fyrir það fögnuðu þær nokkuð þægilegum sigri. Íris Björk Símonardóttir hélt sínu liði á floti þegar mest á reyndi en Valsliðið virtist allan tímann hafa trú á því að þær myndu vinna leik- inn og það sást á leik liðsins í gær. Haukar gáfu ekkert eftir en í stöðunni 19:19 brenndi Berta Rut Harðardóttir af tveimur vítum í röð fyrir Hauka og eftir það virtist allur vindur vera úr liðinu. Haukarnir virtust ekki hafa nægilega mikla trú á verkefninu þegar leið á leikinn og það kann aldrei góðri lukku að stýra. Valskonur þurfa að spila miklu betur en þær gerðu í gær ef þær ætla sér Íslandsmeistaratitilinn, en það jákvæða í stöðunni er að liðið virðist enn þá eiga helling inni. 3:0 hjá bæði Fram og Val  Reykjavíkurliðin mætast í úrslitum annað árið í röð Morgunblaðið/Eggert Liðug Íris Björk Símonardóttir ver eitt af þrettán skotum sínum í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.