Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019 ÍSLANDSMÓTIÐ íPepsí Max-deild karla og kvenna í knattspyrnu sumarið 2019 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir miðvikudaginn 17. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is | Sími: 569 1105 –– Meira fyrir lesendur 26. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um SÉRBLAÐ Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sýningin Mismunandi endurómun verður opnuð í Listasafni Árnesinga í Hveragerði í dag kl. 15. Á henni má sjá verk sex myndlistarmanna sem búa allir og starfa í Þýskalandi og er einn Íslendingur þeirra á meðal, Sig- rún Ólafsdóttir, en hinir listamenn- irnir eru Hollendingurinn Elly Valk- Verheijen og Þjóðverjarnir Annette Wesseling, Ekke- hard Neumann, Friedhelm Falke og Nikola Dimit- rov. Sýning með sama heiti, á ensku Different Echoes, hefur verið sett upp í söfnum og gall- eríum í nokkrum löndum Evrópu og nú verður hún sett upp í Lista- safni Árnesinga. Lykilstefið í sýningunni er að ná fram gagnvirkum endurómi verk- anna á milli og láta þau kallast á við ólíka sýningarstaði, að því er fram kemur í tilkynningu en þó er ekki um eiginlega farandsýningu að ræða því verkin á hverja sýningu eru valin með tilliti til misstórra sýningar- staða og í samráði við sýningarstjóra þeirra. Sýningarstjóri sýningarinnar í Listasafni Árnesinga er safnstjór- inn Inga Jónsdóttir. Efniviður margvíslegur „Þetta er fjölbreytt samtímalist og mér finnst mjög gaman að geta kynnt Sigrúnu í þessu samhengi,“ segir Inga. Um listamennina segir hún að þeir hafi allir náð góðum ár- angri í sinni listsköpun og að þeir séu innbyrðis ólíkir. „Sýningin gengur út á að finna eitthvert jafnvægi,“ útskýrir Inga en stærð og umfang verkanna er mismunandi, efniviðurinn marg- víslegur og viðfangsefnin ólík þó sýningin snúist um að ná jafnvægi milli andstæðna, eins og Inga lýsir því. „Nokkur verkanna eru aðlöguð staðsetningunni, eru innsetningar og verkin taka þannig breytingum eftir sýningarstöðum,“ segir Inga og að listamennirnir séu því allir á staðnum að sinna sinni listsköpun. Verkin eru unnin í ýmsa miðla, sum unnin með blandaðri tækni og stafrænni og einnig má sjá misstóra skúlptúra, málverk, textíl og inn- setningar. „Þetta er alveg míkró og makró,“ segir Inga um stærð verk- anna og að þau kallist á við rými sýn- ingarsalanna og því séu sýningarnar breytilegar þó titillinn sé sá sami og listamennirnir þeir sömu. Frekari upplýsingar um sýning- una og listamennina sex má finna á vef safnsins, listasafnarnesinga.is. Í leit að jafnvægi Listamennirnir Sigrún Ólafsdóttir, Elly Valk-Verheijen, Annette Wessel- ing, Ekkehard Neumann, Friedhelm Falke og Nikola Dimitrov.  Mismunandi endurómun í verkum sex myndlistarmanna sem opna saman sýningu á morgun í Listasafni Árnesinga Inga Jónsdóttir Opnunarmynd kvikmyndahátíðar- innar í Cannes verður nýjasta mynd Jim Jarmusch, The Dead Don’t Die, sem er uppvakningamynd með Bill Murray, Chloë Sevigny, Adam Driver og Tildu Swinton í aðal- hlutverkum. Í myndinni mæta þau skara uppvakninga og verða her- legheitin frumsýnd 14. maí. Sögu- svið myndarinnar er friðsæll smá- bær, Centerville, sem verður fyrir árás uppvakninga en Murray, Dri- ver og Sevigny leika lögregluþjóna. Myndin ku vera bleksvört gaman- mynd og er ein þeirra sem keppa um Gullpálmann. Cannes hefst með upp- vakningamynd Jarmusch Í vanda Bill Murray og Adam Driver í kvikmynd Jim Jarmusch. Krísan sem upphófst hjá Sænsku akademíunni (SA) í árs- lok 2017 í kjölfar þess að Jean-Claude Arnault, eigin- maður fyrrverandi meðlims SA, var sakaður um að hafa áratugum saman beitt konur kynferðislegu ofbeldi kost- aði SA tæplega 130 milljónir ísl. kr., þar af var beinn lög- fræðikostnaður tæp 91 millj. ísl. kr. Þetta má lesa út úr ársreikningum SA fyrir árið 2018 sem birtir hafa verið á vefnum svenskaakademien.se. Bókhald SA hefur aldrei verið opnað með viðlíka hætti í 233 ára sögu hennar. Í sömu gögnum má sjá að SA útdeildi á árinu 2018 verðlaunafé að upphæð tæplega 191 millj. ísl. kr. þrátt fyrir að engin Nóbelsverðlaun í bókmenntum væru veitt. Sama ár fengu meðlimir SA, sem samkvæmt stofnsáttmálanum eiga að vera 18 hverju sinni, samtals greiddar tæpar 55 milljónir króna. Fram kemur einnig að eigið fé SA nemur um 22 milljörðum ísl. kr. Á hátíðarsamkomu undir lok síðasta árs tilkynnti Anders Olsson, starfandi ritari SA, að ætlunin væri að aflétta þeirri leynd sem hulið hefur alla starfsemi og fjárhag SA frá stofn- un hennar árið 1786. silja@mbl.is Krísan kostaði 130 milljónir Anders Olsson Breski leikarinn Richard Madden sem þekktastur er fyr- ir hlutverk sín í sjónvarpsþáttaröðunum Game of Thron- es og Bodyguard gagnrýnir óraunhæfar útlitskröfur sem gerðar eru til leikara í sjónvarps- og kvikmynda- geiranum. „Ég hef tekið þátt í ótal verkefnum þar sem ég hef verið beðinn um að létta mig með því að svelta mig og stunda líkamsrækt tvisvar á dag,“ segir hann í samtali við breska Vogue og tekur fram að gerðar séu óraun- hæfar útlitskröfur til jafnt karla og kvenna í bransanum. Sagðist hann iðulega fá afhenta búninga sem væru svo þröngir að hann ætti erfitt með andardrátt. Fleiri karlmenn í skemmtanabransanum taka undir þessa gagnrýni. Þeirra á meðal er söngvarinn Sam Smith og ástralski leikarinn Chris Hemsworth. Gagnrýnir óraunhæfar útlitskröfur Richard Madden Enskar þýðingar á skáldsögum Sjóns og Ófeigs Sigurðssonar, Codex 1962 og Öræfi, eru meðal þeirra bóka sem tilnefndar eru til bandarísku þýðingaverðlaunanna Best Translated Book Awards (BTBA) sem verða afhent í 12. sinn á þessu ári. Verðlaunin eru veitt fyrir best þýddu bækurnar á ensku árið á undan, annars vegar ljóða- bók og hins vegar skáldsögu. Verð- launin voru fyrst afhent árið 2008 og er það veftímaritið Three Per- cent sem veitir þau. Sjón og Ófeigur eru á langlista verðlaunanna sem birtur var á vefnum í fyrradag en stuttlistinn verður birtur síðar. Við val á verð- launahöfum er ekki aðeins litið til gæða þýðingarinnar heldur einnig útgáfunnar í heild og þá m.a. rit- stjórnar. Með verðlaununum er því ekki aðeins verið að heiðra höfunda og þýðendur. Á langlistanum í ár eru bækur þýddar úr 16 tungu- málum. Codex 1962 og Öræfi meðal tilnefndra Sigurjón B. Sigurðsson/Sjó Ófeigur Sigurðsson Sýningin Hljómur heimsins: lækk- aðu ég er að reyna að hlusta, verð- ur opnuð í dag kl. 17 í Rýmd, Völvu- felli 13-21 og er hún samstarfs- verkefni Elínar Helenu Everts- dóttur og Selmu Hreggviðsdóttur. Þetta er í fyrsta sinn sem þær vinna saman og lágu leiðir þeirra saman í listkennsludeild Listaháskóla Ís- lands, skv. tilkynningu. „Í gegnum kynni þeirra og samtöl komu í ljós vissir sameiginlegir þræðir í list- sköpun þeirra. Viðfangsefnin með- al annars snúa að tilfinningalegum, líkamlegum og menningarlegum upplifunum manneskjunar á þeim stöðum og rýmum sem hún dvelur í. Í þessari sýningu er fengist við hug- myndir sem tengjast leitinni að andlegum efnum, tilgangi hlut- anna, samræmi í heiminum og al- mennri vellíðan,“ segir í tilkynning- unni. Sýningin Hljómur heimsins í Rýmd Í Rýmd Kynningarmynd fyrir sýninguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.