Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019 AF SVIÐSLISTUM Nína Hjálmarsdóttir ninahjalmars@gmail.com Vorið er komið og þá ekki síst ísjálfstæðu sviðslistasenunni.Um síðustu helgi var efnt til Vorblóts í Tjarnarbíói þar sem boðið var upp á blöndu af því mest spenn- andi sem er að gerast í dansi, leik- húsi og performans. Hvort sem það er nýútskrifað sviðslistafólk að sýna sín fyrstu verk eða þekktir reynslu- boltar þá er mjög gleðilegt að geta notið hátíðarveislu þar sem tilrauna- kennd verk á mörkum margra list- greina fá sitt pláss. Fjöldi spennandi verka var á hátíðinni en hér verður aðeins fjallað um nokkur þeirra. Rósa Ómarsdóttir hefur getið sér gott orð ásamt Ingu Huld Hákonar- dóttur fyrir verk eins og Da Da Dans og The Valley. Í nýjasta verki Rósu, Traces, eru áhorfendur dregnir inn í veröld sem kallast á við ímyndanir okkar um Eden-paradís. Hljóð, ilmur og áferð öðlast stór hlutverk og sviðsmyndin dansar með flytjendunum á mjúkan og við- kvæman hátt. Verkið er hugleiðing um stöðu manneskjunnar í náttúr- unni, upphaf lífsins og endalok þess. Í verkinu I Want To Dance Like You Part 2 reyna sviðshöfundurinn Alma Mjöll Ólafsdóttir og dansarinn Ástrós Guðjónsdóttir að sviðsetja hið fullkomna samsköpunarverk (e. devised performance) þar sem áhorfendum er lofað að þeir gráti, hlæi og gangi út sem nýjar mann- eskjur. Eða það er allavega ætlunin. Verkið er óður til amatörisma þar sem sýningin misheppnast gjör- samlega, en mistökin eru greinilega fyrirfram ákveðin. Verk sem er í raun um verkið sem átti að vera, er klassísk aðferðafræði til að vinna með væntingar áhorfenda og klisjur leikhússins. Minna er meira Verk nr. 1,5 eftir Steinunni Ketils- dóttur er annað dansverkið í seríu verka sem spretta úr rannsóknar- verkefninu EXPRESSIONS: Virði og vald væntinga í dansi. Verkið á margt sameiginlegt með Verk nr. 1 sem Íslenski dansflokkurinn frum- sýndi á síðasta ári, nema í þetta skiptið er andrúmsloftið persónu- legra og ekki eins vélrænt. Í staðinn fyrir hóp dansara, eins og er í fyrra verkinu, þá er aðeins einn dansari á sviðinu, Snædís Lilja Ingadóttir. Snædís nær ótrúlegri tengingu við áhorfendur og heldur athygli áhorf- enda allan tímann, magnaður dans- ari með sterkan grunn sem veldur þessu hlutverki mjög vel. Raftónlist Áskels Harðarsonar er einfaldlega æðisleg, frumleg og algjörlega sam- ofin kóreógrafíunni og flytjand- anum. Grúvið er dáleiðandi og við í salnum eigum erfitt með að sitja kjurr. Lýsingin og búningur þjón- Blótað með listum Ljósmynd/Thoracius Appotite Skemmtilegt Skemmtilegasta verk hátíðarinnar var Geigen Galaxy #2 eftir sviðslista- og tónlistardúóið Gígju Jónsdóttur og Pétur Eggertsson. uðu sýningunni vel og mögnuðu upp- lifunina. Eins og í Verk nr. 1 þá er umfjöll- unarefnið danslistin sjálf og hlut- verk dansarans. En verkið kallar líka fram hugleiðingar um togstreitu mannsins við ósveigjanlegt kerfi, kerfið sem er alltumlykjandi og kæf- ir hinn frjálsa vilja. Sem dæmi eru sumar hreyfingar tilvísanir í vél- rænan klámkúltúr og klisjuleg hlut- verk konunnar. En það sem gerir verkið einstaklega gott er hversu lít- ið er sagt, en um leið er margt gefið í skyn. Hið listræna gildi felst því ekki síst í því hvernig áhorfandinn tengir án þess að geta útskýrt af hverju hann tengir. Það er bara eitthvað heillandi við þessar hreyfingar og tónlist sem og nákvæmni og afstöðu flytjandans. Verkið nær hámarki í lokin sem má túlka sem frelsun manneskjunnar. Eftir á langar mann bara að sjá meira. Við erum öll Geigen Skemmtilegasta verk hátíðarinn- ar var tvímælalaust Geigen Galaxy #2 eftir sviðslista- og tónlistardúóið Gígju Jónsdóttur og Pétur Eggerts- son. Orðið „geigen“ þýðir „að leika á fiðlu“ á þýsku sem passar við notkun teknótónlistar í verkinu, en höfuð- borg Þýskalands er oft kölluð óopin- ber höfuðborg teknósins. Við göng- um inn í tónleikagjörning þar sem tvær verur í einkennisklæðnaði há- menningarinnar, skartandi átjándu aldar hárkollum, fara með okkur í ferðalag. Húmorinn liggur í því hversu alvarlegar verurnar eru og þeim stekkur aldrei bros. Þær eru einhvers konar alter-egó höfund- anna, eða költleiðtoganna, og við er- um kolfallin frá fyrsta augnabliki þegar bogarnir snerta streng og ritúalið hefst. Heimur verksins er skýr. Með myrkrinu og notkun sjálflýsandi efn- is, strobe-ljósa og glóandi prika er nefnilega auðvelt fyrir áhorfendur að gleyma sér í teknó-rave-partýi. Þó svo að við verðum aldrei jafn kúl og flytjendurnir. Sviðsmyndin er einföld, heillandi og hefur þann safa- ríka eiginleika að hægt er að spila tóna á hana sjálfa. Þarna er teflt saman ólíkum heimum, teknórave- inu og háklassíkinni, og írónían er áþreifanleg. Í lok partýsins skilja þau áhorfendur eftir í trylltum dansi. Við erum hluti af költinu. Framtíð í spegli fortíðar Heiti hátíðarinnar, Vorblót, hefur metnaðarfulla tilvísun þar sem Vor- blóts-ballettinn með tónlist Strav- inskíjs, frumsýndur í París árið 1913, er einhver frægasti gjörningur allra tíma. Verkið kollvarpaði evr- ópskri listahefð nítjándu aldar og var boðberi nýrra tíma. Fá verk hafa verið jafn umdeild og haft jafn mikil áhrif á listasöguna og þetta töfrablót frumstæðra náttúruafla og óm- stríðrar tónlistar. Það var vægast sagt algjör negla. Eflaust eru slags- mál, uppþot og umbylting sögunnar ekki beint markmiðið með Vorblóti Tjarnarbíós, en tengingin er þó við hæfi því hún minnir okkur á mikil- vægi sjálfstæðrar hugsunar í listum, að eiga í stöðugu samtali við formið, og dansa á mörkum listgreinanna. Í heimi vaxandi togstreitu er það ekki spurning að list verður að ögra viðteknum normum samfélagsins, heldur staðreynd. Við þurfum að ræða hvernig framtíð við viljum, og þar er listin okkar öflugasta tæki. Tjarnarbíó á hrós skilið, en Vor- blótið er myndarleg viðbót í flóru ís- lenskra listahátíða sem vonandi mun halda áfram að blómstra á komandi tímum. »Húmorinn liggur íþví hversu alvarlegar verurnar eru og þeim stekkur aldrei bros. Heimildarmynd- in Can’t Walk Away, sem fjallar um tónlistar- manninn Herbert Guðmundsson, verður sýnd í kvöld kl. 19.45 á RÚV. Herbert talar afdráttarlaust um það sem á daga hans hefur drifið og er einnig rætt við samferðarmenn sem hafa margar fróðlegar og skemmtilegar sögur að segja, að því er fram kem- ur í tilkynningu. Myndin spannar um fjóra áratugi og eru höfundar hennar kvik- myndagerðarmennirnir Friðrik Grétarsson og Ómar Sverrisson en þeir unnu hana í samvinnu við Saga Film. Can’t Walk Away sýnd á RÚV í kvöld Herbert Guðmundsson Tímakistan, barnabók Andra Snæs Magnason- ar, sem kom út hér á landi árið 2013, er komin út í enskri þýð- ingu í Bandaríkj- unum og er hún gefin út af Rest- less Books í New York. Bókin heit- ir á ensku The Casket of Time en sjö áru eru frá því önnur bók Andra, Sagan af Bláa hnettinum eða The Story of the Blue Planet, kom út í Bandaríkjunum. Í Tíma- kistunni hefur skógurinn yfirtekið borgirnar, úlfar ráfa um götur og skógarbirnir hafa hertekið versl- unarmiðstöðvar. Enginn veit hvernig stendur á því nema gömul kona sem vakir í einu húsanna. Tímakistan í Bandaríkjunum Andri Snær Magnason Kanadíska myndlistarkonan Carissa Baktay opnar sýninguna Sharp Places í Listastofunni, Hringbraut 119, í dag kl. 18. Breytileiki efna og áferða, þyngdar og nær- veru er Baktay hugleikinn og fer hún „á fund lið- inna tíma og þeirrar ánægju sem finnst í endurtekningunni þar til fullkomnun er náð“, eins og segir í tilkynningu. Carissa Baktay er skúlptúristi og býr nú og starfar hér á landi. Hún hefur unnið með gler frá árinu 2008 og notast við tilraunakennda tækni og aðferðir í bland við aldagamlar í glergerð. Tilraunir í bland við gamlar hefðir Carissa Baktay Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 13/4 kl. 12:00 Sun 5/5 kl. 16:00 Sun 19/5 kl. 16:00 Sun 14/4 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 13:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Sun 14/4 kl. 16:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Sun 26/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 2/6 kl. 13:00 Sun 28/4 kl. 16:00 Lau 18/5 kl. 16:00 Aukas. Lau 8/6 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 13:00 Sun 19/5 kl. 13:00 Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Lau 13/4 kl. 19:30 Lau 4/5 kl. 19:30 Mið 8/5 kl. 19:30 Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Fös 12/4 kl. 19:30 Fim 9/5 kl. 19:30 Fös 3/5 kl. 19:30 Mið 22/5 kl. 19:30 Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Lau 13/4 kl. 15:00 Sun 28/4 kl. 15:00 Lau 13/4 kl. 17:00 Sun 28/4 kl. 17:00 Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Fös 12/4 kl. 19:30 Mið 24/4 kl. 19:30 Fös 26/4 kl. 19:30 Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor Loddarinn (Stóra Sviðið) Lau 27/4 kl. 19:30 Frums. Fös 10/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 23/5 kl. 19:30 Þri 30/4 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 2/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið) Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart Dimmalimm (Brúðuloftið) Lau 13/4 kl. 15:00 Lau 27/4 kl. 14:00 Lau 27/4 kl. 15:30 Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Fös 3/5 kl. 19:00 aukas. Sun 2/6 kl. 19:00 38. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s Mið 5/6 kl. 19:00 39. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s Fim 6/6 kl. 19:00 40. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Mið 15/5 kl. 19:00 31. s Fös 7/6 kl. 19:00 41. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Fim 16/5 kl. 19:00 32. s Mán 10/6 kl. 19:00 42. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Mið 22/5 kl. 19:00 33. s Fim 13/6 kl. 19:00 43. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Fim 23/5 kl. 19:00 34. s Fös 14/6 kl. 19:00 44. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Sun 26/5 kl. 19:00 35. s Sun 16/6 kl. 19:00 45. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Mið 29/5 kl. 19:00 36. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s Fim 30/5 kl. 19:00 37. s Stundum ég þarf að vera svolítið óþekk! Elly (Stóra sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas. Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fös 24/5 kl. 20:00 216. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Fös 10/5 kl. 20:00 13. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Sun 12/5 kl. 20:00 14. s Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Mið 15/5 kl. 20:00 15. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Club Romantica (Nýja sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar. Bæng! (Nýja sviðið) Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s Alltof mikið testósterón Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 aukas. Aukasýning komin í sölu. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.