Morgunblaðið - 12.04.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 12.04.2019, Síða 32
Efnt er til sam- komu í Mengi annað kvöld kl. 20.30 vegna út- gáfu Einvalds- óðs, kammer- óperu eftir Guðmund Stein Gunnarsson sem komin er út á tvöföldum geisladiski. Hljóðritun- in var gerð á Sláturtíð 2017 í gömlu kirkjunni á Árbæjarsafni. Hægt verður að heyra búta af disknum ásamt því sem kveðið verður upp úr frumtextanum. Loks mun Heiða Árnadóttir flytja verkið Laberico Narabida á ný en það var meðal annars flutt á Myrkum Músík- dögum fyrr á árinu. Aðgangur er ókeypis. Einvaldsóði kammer- óperu fagnað í Mengi FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 102. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. KR hleypti spennu í undanúrslita- einvígið gegn Val á Íslandsmóti kvenna í körfuknattleik í gærkvöld með því að vinna þriðja leik liðanna á Hlíðarenda, 87:85. Þetta var fyrsta tap Valskvenna síðan í nóv- ember, þegar þær töpuðu líka gegn KR, en þær höfðu unnið 23 leiki í röð í deild, bikar og úrslitakeppni frá þeim tíma. »27 KR-ingar stöðvuðu sigurgöngu Vals ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Menningarfélag Akureyrar setur upp söngleikinn Vorið vaknar eftir Steven Sater við tónlist Duncans Sheik í janúar 2020 í leikstjórn Mörtu Nordal. Söngleikurinn er byggður á samnefndu þýsku leik- riti frá 1891 eftir Frank Wedekind og fjallar um tilfinningarót og fyrstu kynlífsreynslu unglinga í ófrjálslyndu og þröngsýnu sam- félagi Þýska- lands á 20. öld. Tónlist- arstjóri er Þorvaldur Bjarni Þor- valdsson og dansa sem- ur Lee Proud. Vorið vaknar á Akureyri í janúar Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Vestur-Íslendingurinn Thelma Guttormson Wilson, píanóleikari og -kennari í Winnipeg í Manitoba í Kanada, er 100 ára í dag, 12. apríl, og hún býst við um 80 gest- um í afmælisveisluna, sem verður á morgun. „Ég átti ekki von á að ná þessum aldri, en mér líður vel og ég er þakklát fyrir góða heilsu,“ segir hún hress og bætir við að hún spili nær daglega á pí- anóið. Thelma ólst upp og býr í Winni- peg. „Ég er 100% Íslendingur í báðar ættir, en fæddist í Winni- peg, hef búið hérna allt mitt líf og er því „Canadian“, eins og sagt er á íslensku!“ Bætir við að hún hafi tapað íslenskunni vegna þess að hún hafi ekki notað málið. „Ég lærði íslensku í fjögur ár hjá Har- aldi Bessasyni í íslenskudeild Manitoba-háskóla og fékk skjal því til staðfestingar, en málið er liðin tíð hjá mér.“ Tónlistin sem rauður þráður Tónlistin hefur verið sem rauð- ur þráður í lífi Thelmu. Helga, móðir hennar, byrjaði að læra á píanó á unglingsaldri og Björn, faðir hennar, keypti sér fiðlu fyrir fyrstu útborgunina eftir að hann byrjaði 18 ára á vinnumarkaðnum. „Hann hafði ótrúlega næmt eyra fyrir tónlist og spilaði af fingrum fram en fór aldrei í tónlistartíma,“ rifjar Thelma upp. „Eftir að ég fæddist reyndu þau bæði að kenna mér, pabbi hélt fiðlunni að mér og mamma vildi að ég lærði að spila á píanó. Fljótlega sáu þau að skynsamlegast væri að ég fengi kennslu hjá virtum tónlistarkenn- ara og fimm ára byrjaði ég að læra á píanóið.“ Thelma er elst fjögurra systkina. Hún hefur látið að sér kveða í íslenska samfélaginu í Manitoba og var til dæmis fjall- kona á Íslendingadeginum á Gimli 2004. Norman, bróðir hennar, er 95 ára og býr í Saskatchewan, en Sylvia og Jón eru látin. Jón var flugmaður í bandaríska hernum í seinni heimsstyrjöldinni og var nær tvö ár sem slíkur á Íslandi. „Hann færði okkur systur minni og mömmu íslensk gæruskinn, þegar hann kom til baka,“ segir Thelma um eina tenginguna við föðurlandið, sem hún hefur heim- sótt sjö sinnum, og hlýnar um hjartarætur við tilhugsunina. Guttormur Þorsteinsson og Birgitta María Jósepsdóttir, afi og amma Thelmu í móðurætt, fluttu til Manitoba 1892, þegar Björn, faðir hennar var níu ára. Þau sett- ust að skammt fyrir sunnan Gimli. Vopnfirðingurinn Jón Friðfinns- son, sem síðar tók upp eftirnafnið Kernested, og Mývetningurinn Svava Jónsdóttir, afi og amma Thelmu í föðurætt, fluttu vestur um haf um 1891 og kynntust þar. Kerr Wilson, sem lést 2006, og Thelma ólust upp í sama hverfi í Winnipeg, voru leikfélagar og síð- an hjón. Hann var af írskum ætt- um, lék á fiðlu en fljótlega tók söngurinn völdin. Hann var þekkt- ur bariton-söngvari, var með eigin útvarps- og sjónvarpsþætti og hún spilaði undir. „Hápunkturinn var þegar hann söng og ég spilaði fyr- ir Philip prins og Elísabetu Eng- landsdrottningu í heimsókn hjónanna til Winnipeg 1959,“ segir Thelma. „Ég þurfti að læra hvern- ig ég átti að heilsa þeim og var með hjartað í buxunum en allt gekk að óskum, okkur gekk vel að syngja og spila í húsnæði fylk- isstjórans og hún sendi okkur þakkarbréf fyrir flutninginn.“ Thelma og Kerr eiga fjögur börn. Þrjú barnanna, Carlisle fiðluleikari, Kerrine, píanóleikari og kennari, og Eric sellóleikari, hafa mikið látið að sér kveða á tónlistarsviðinu, en Mark, sem kvæntur er Guðnýju Hildi Krist- insdóttur, lagði viðskipti fyrir sig og býr ásamt fjölskyldu sinni á Ís- landi. Hápunkturinn með Elísabetu drottningu  Thelma Guttormson Wilson í Winnipeg er 100 ára í dag Ljósmynd/Ruth Bonneville/Winnipeg Free Press 100 ára Thelma Wilson við píanóið heima hjá sér um liðin mánaðamót.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.