Morgunblaðið - 05.04.2019, Page 30
A
thöfnin var dásamleg en við vorum umkringd
fjölskyldu og vinum. Veðrið þennan dag verður
lengi í minnum haft en það var vægast sagt
fullkomið. Það var logn og örlítið frost,“ segir
Sunna Dögg. Þau hjónin eiga tvö börn og segir
hún að þau hafi langað að ganga í hjónaband.
Sunna Dögg og Arnar eru nútímahjón og ákváðu í sam-
einingu að ganga í hjónaband og bað hann hennar ekki
með formlegum hætti.
„Hann var búinn að hugsa þetta mjög lengi, hvort hann
ætti að biðja mín og hvernig hann ætti að fara að því. Og
ekki síst hvernig hring hann ætti að kaupa. En svo
ákváðum við þetta í sameiningu, völdum kirkju og veislu-
sal og bókuðum ferð til Boston þar sem ég valdi
draumatrúlofunarhringinn sjálf. Ég var mjög ánægð með
þetta fyrirkomulag,“ segir hún en fyrir valinu varð ákaf-
lega fallegur demantshringur.
Arnar og Sunna Dögg héldu veisluna í Gamla bíói vegna
þess að þeim finnst salurinn svo fallegur. Auk þess fannst
þeim skipta máli að brúðkaupsgestir gætu gengið úr kirkj-
unni í veisluna sjálfa.
„Það myndaðist mjög skemmtileg stemning í þessu fal-
lega veðri þegar veislugestir löbbuðu úr kirkjunni í veisl-
una,“ segir Sunna Dögg. Þegar í Gamla bíó var komið
þurftu brúðkaupsgestir ekki að bíða eftir brúðhjónunum
því þau fóru í myndatöku fyrir athöfn. Það er óvanalegt að
brúðhjónin fari í myndatöku fyrir athöfn því það er óskrif-
uð regla að eiginmaður sjái brúði sína í fyrsta skipti í full-
um skrúða þegar hún gengur inn kirkjugólfið. Sunna
Dögg segir að sér hafi alls ekki fundist hún vera að brjóta
neinar reglur eða eyðileggja stemninguna með þessu.
Allt upp á 10
Sunna Dögg er sérlega ánægð með þjónustuna sem hún
fékk í Gamla bíói.
„Þeir bjóða upp á smakk og valdi ég mikilvægustu kon-
urnar í lífi mínu til að koma með mér í smakkið. Eftir að
vera búin að velja mat og vín var ég miklu afslappaðri og
það var þungu fargi af mér létt þegar pöntunin var komin í
hús.
Fyrir valinu varð reykt bleikja í forrétt, í aðalrétt voru
nautalundir og uxabrjóst með tilheyrandi meðlæti og í
eftirrétt var súkkulaðikonfektkaka. Maturinn sló algjör-
lega í gegn. Við ákváðum að sleppa brúðartertunni og
leggja meira upp úr því að vera með geggjaðan kokteilbar
í boði hússins,“ segir hún.
Aðspurð um skipulagningu og tímarammann segir
Sunna Dögg að þau hafi pantað kirkjuna og salinn tæpu
ári fyrir brúðkaupsdaginn. Með því að panta þetta tvennt
sé boltinn farinn að rúlla.
„Ég mæli með að bóka kirkju og sal mjög tímanlega þar
sem fólk pantar slíkt jafnvel með meira en árs fyrirvara.
Ég fékk Örnu Siggu blómaskreyti til að sjá alfarið um all-
ar skreytingar og voru þær alveg hreint guðdómlegar.
Varðandi veislustjóra þá lá það ekki beint fyrir þar sem
það er margt skemmtilegt fólk í kringum okkur en við vor-
um svo sem nokkuð fljót að komast að niðurstöðu og báð-
um Ólaf Thors og Ragnar Clausen að taka þetta skemmti-
lega verkefni að sér. Við erum þeim ævinlega þakklát þar
sem þeir slógu algjörlega í gegn. Veislan var algjörlega
umfram mínar væntingar. Dásamlegar ræður frá for-
eldrum, systkinum og bestu vinum. Hver ræða toppaði þá
næstu á undan og langar mig að nefna pabba minn, Björn
Helga Baldvinsson, hann var með æðislega ræðu og frum-
samið lag um mig, það var ótrúlega dýrmætt og minnis-
stætt. Svo söng mágkona mín, Katrín Ómarsdóttir, ásamt
konu sinni, Önnu Fríðu, lag til okkar.
Skemmtikraftar kvöldsins voru ekki af verri endanum;
þar komu fram Björgvin Halldórsson, Aron Can og
Emmsé Gauti og héldu uppi stuðinu.
Seinna um kvöldið komu vinkonur mínar mér heldur
betur á óvart og fengu Herra hnetusmjör til að syngja lag-
ið mitt „Upp til hópa“ sem var alveg óborganlegt.
Eftir að formlegri dagskrá lauk tók Danni Delux við
DJ-borðinu og hélt uppi fjörinu fram á nótt,“ segir Sunna
Dögg.
Lét sérsauma kjólinn
Sunna Dögg giftist í ákaflega fallegum kjól. Hún segist
strax hafa verið ákveðin í hvernig kjól hún vildi klæðast á
brúðkaupsdaginn.
„Það sem hjálpaði var að besta vinkona mín, Signý Jóna
Tryggvadóttir, gifti sig 2015 og lét sauma á sig kjól frá
Eðalklæðum. Sá kjóll var algjörlega fullkominn þannig að
það var ekki spurning fyrir mig að leita til Eðalklæða. Það
ferli stóð gjörsamlega upp úr í undirbúningnum fyrir stóra
daginn að sjá kjólinn „fæðast“ hægt og rólega. Ég var
nokkuð ákveðin hvernig ég vildi vera og þær hjá Eðal-
klæðum útfærðu það fullkomlega. Ég fékk Theodóru
Mjöll til að sjá um hárið og var ótrúlega ánægð með út-
komuna. Ég vildi greiðsluna „loose“ og hún hreinlega las
mig eftir fyrstu heimsókn. Það kannski hjálpaði til að ég
þekki hennar vinnubrögð og treysti henni 100 prósent.“
Sunna Dögg fékk Karin Kristjönu til að farða sig fyrir
stóra daginn.
„Hún er ótrúlega fær og ég var afar ánægð með geisl-
andi náttúrulegt útlit sem mér fannst skipta máli,“ segir
hún.
Hildur Erla myndaði brúðhjónin á brúðkaupsdaginn.
„Ég var allan tímann ákveðin í hvaða ljósmyndara ég
vildi. Hildur Erla er algjör fagurkeri og það sem ég vildi
einna helst var að hún myndi fanga augnablikin. Mynd-
irnar frá deginum eru svo mikilvægar. Ég gæti ekki verið
hamingjusamari með myndirnar sem Hildur tók. Hún
fangaði allt og miklu meira en það og er ég henni ótrúlega
þakklát. Að geta upplifað daginn aftur með sínum heitt-
elskaða og farið í gegnum augnablikin aftur er ómetanlegt
og ég tala nú ekki um að geta deilt þessum æðislega degi
með börnum okkar og barnabörnum í framtíðinni.“
Á brúðkaupsdaginn sjálfan var Sunna Dögg með að-
setur á 101 hóteli.
„Undirbúningurinn á brúðkaupsdaginn sjálfan var
æðislegur og algjörlega ógleymanlegur. Sigrún Þormóðs-
dóttir frænka mín sá til þess að allt væri fullkomið. Undir-
búningurinn fór að mestu leyti fram á 101 hóteli, nánar til-
tekið „rauða herberginu“. Þangað komu mínar uppáhalds-
konur og gerðu sig til og gerðu daginn svo skemmtilegan.
Það sem ég var hvað ánægðust með var að það var ekkert
stress heldur eintóm gleði og hlátur og að sjálfsögðu
kampavín. Að hafa vinkonurnar í kring, hvort sem það var
að farða, klæða mig í kjólinn eða sjá til þess að ég væri
með í glasinu, var algjört „bíómyndaatriði“ og ég naut
þess svo! Hversu heppin er ég með allar þessar drottn-
ingar mér við hlið!
Það er eitt sem mig langar að nefna. Þeir sem töluðu við
mig sem eru búnir að gifta sig sögðu við mig: „Sunna
njóttu þess, áður en þú veist af er dagurinn liðinn.“ Ég
gleymi því aldrei að þegar ég komst örskamma stund úr
búblunni þá leit ég á Arnar og sagði: „Er eftirrétturinn í
alvöru að koma á borðin?“ Ég ætlaði ekki að trúa því. Ég
var allan tímann meðvituð um að soga allt inn, njóta hvers
einasta augnabliks en það er eitthvað sem gerist. Þessi
dagur var of töfrandi til að meðtaka allt. En ég er ótrúlega
þakklát fyrir minn mann, fyrir fjölskylduna okkar og vin-
ina sem gerðu þennan dag ógleymanlegan í alla staði. Ef
ég ætti að ráðleggja þeim sem eiga þetta eftir væri það ná-
kvæmlega það sama og allir sögðu við mig – „njóttu
þess“.“
„Sunna njóttu þess, áður en
þú veist af er dagurinn liðinn“
Sunna Dögg Björnsdóttir og Arnar Ómarsson
gengu í heilagt hjónaband í Dómkirkjunni
24. nóvember síðastliðinn. Séra Vigfús
Bjarni Albertsson gaf þau saman og á eftir
héldu þau glæsilega veislu í Gamla bíói.
Marta María | mm@mbl.is
Sunna Dögg og Arnar
eru alsæl með brúð-
kaupsdaginn sinn.
Þau skipulögðu
daginn í sameiningu
og fóru í myndatöku
fyrir athöfnina.
Ljósmynd/Hildur Erla
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019
Íslensk hönnun í aldanna rás
Sjón er sögu ríkari
Gullkistan
Frakkastíg 10/ sími 551-3160
www.thjodbuningasilfur.is