Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 28
Við hefðum boðið upp á pylsur
Hvernig gekk undirbúningurinn?
„Við vorum satt að segja ekki stressuð yfir
þessu og vildum hafa þetta mjög afslappað. Und-
irbúningurinn var nú varla nokkur af okkar hálfu
til að byrja með og við hefðum sjálfsagt endað
með að grilla pylsur hefðum við tvö séð um alla
skipulagningu. En foreldrar Braga höfðu lengi
ætlað að leggja gólf í fjósið hjá sér, en það hefur
ekki hýst dýr í mörg ár. Við og foreldrar okkar
fórum því í það í byrjun sumars að leggja palla-
efni í fjósið og smíða svið. Við fengum slatta af
vörubrettum gefins hér og þar sem við notuðum
undir sviðið og í pall fyrir utan. Foreldrar okkar
stóðu fyrir vínsmökkun og Óli sá um aðalréttinn.
Ég hannaði kortin, setti upp heimasíðu og alls
konar borðamerkingar, málaði skilti og gerði
gestabók. Bragi smíðaði tvö grill úr tunnum, eitt
gasgrill og annað kolagrill. Tengdapabbi var óður
með pensilinn um allt og málaði allt sem fyrir
varð. Síðan var ýmsum smáum og stórum verk-
efnum dreift á vini og fjölskyldu. Við fengum t.d.
lánað hljóðkerfi, leigðum klósett á hjólum, leigð-
um bekki og borð hjá Seglagerðinni og fengum
alls konar borðbúnað lánaðan. Tengdamamma
fékk fólk með sér í að tína blóm á svæðinu sem
síðan voru notuð í skreytingar og blómakransa
sem vinkona hennar bjó til. Mágur tengda-
mömmu skreytti ryðgötin á bílnum með blómum,
bjó til brúðarvönd á síðustu stundu og skreytti
brúðartertuna.“
Allt grænmetið úr sveitinni
Hvernig veitingar voru?
„Með kaffinu höfðum við horn sem pabbi
Bjarkar bakaði og við keyptum kleinur af kven-
félaginu.
Með fordrykknum voru jarðarber frá Reyk-
holti og í forrétt fengum við tómatsúpuna góðu
og nýbakað brauð frá Friðheimum.
Óli grillaði nauta-ribeye, lambalæri, kalkún-
abringur og paprikur fylltar með indverskum
bygg- og linsubaunarétti. Með þessu voru
timíanbakaðar kartöflur, indverskt ofnbakað
rótargrænmeti, ferskt íslenskt sumarsalat,
steiktur laukur og sveppir, tzatziki-jógúrtsósa,
chimichurri og rauðvínsgljái. Allt grænmeti
var fengið úr sveitinni.
Sindri bakari bakaði brúðartertuna handa
okkur en hún var sítrónuterta með osta-
kremi.“
Myndirnar úr brúðkaupinu skipta máli
Hvað skiptir mestu máli núna eftir á að
hyggja?
„Það er voða gaman að hafa allt fínt og full-
komið en það skiptir alls ekki mestu máli, það
var ýmislegt sem gleymdist í öllu stressinu en
það breytti engu. Mestu skiptir að hafa gott
fólk í kringum sig og treysta því að aðrir geti
gert hlutina þótt það sé ekki nákvæmlega eins
og þú hefðir gert þá. Okkur þótti endalaust
vænt um alla hjálpina sem við fengum og hvað
allir voru til í að leggja hönd á plóg. Myndirnar
sem voru teknar í brúðkaupinu skipta okkur
gríðarlegu máli og það var frábært að hafa
ljósmyndara alla veisluna. Ef ég gæti breytt
einhverju hefði ég haft upptöku af sviðinu, það
væri gaman að eiga til ræðurnar og öll frá-
bæru tónlistaratriðin.“
Skemmtileg hópmynd af gestum
og brúðhjónum úti í náttúrunni.
Vinkonur Bjarkar héldu
skemmtilega ræðu.
Björk og Bragi fyrir
framan brúðarbílinn.
Falleg kaka sem passaði vel
fyrir brúðkaup í náttúrunni.
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019
· Deila verkefnum á þá sem vilja hjálpa
· Gefa sér tíma í að skipuleggja brúðkaup
· Spara í blómakaupum með því að nota íslensku sumarblómin
· Splæsa í ljósmyndara
· Hlaða niður lagalistanum á Spotify ef veislan er í sambandslausri sveit
Björk mælir ekki með að
· Gera ráð fyrir að það sé bara hægt að skjótast til sýslumanns og gifta sig á pappírum
(það þarf að panta með ágætum fyrirvara)
· Að reyna að gera allt sjálfur
Björk mælir með að